Morgunblaðið - 05.03.1947, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
•Miðvikudagur 5. mars 1947
Henrik Kauíímann og störf
hans á styrjaldarárunum
í RÆÐU þeirri, sem C. Brun,
sendiherra Dana, flutti á fundi
Dansk íslenska fjelagsins s.l.
föstudagskvöld ræddi hann
fyrst og fremst um Henrik
Kauffmann, sendiherra Dana í
Washington og þýðingu starfs
hans á styrjaldarárunum.
í upphafi máls síns talaði
sendiherranrt alment um mót-
stöðuhreyfingu dönsku þjóðar-
innar gegn þýska hernámslið-
inu. Starf Kauffmans og ann-
ara frjálsra Ðana hefði undir-
búið grundvöll þessarar mót-
stöðu.
Fórust honum orð m.a. á
þessa leið:
Sendiherra í Róm og Kína
Kauffmann hafði frá æsku-
sýnt að hann var sjerstaklega
góðum gáfum gæddur. Hann
var aðeins 33 ára gamall þegar
honum var veitt fyrsta sendi-
herrastaða sín í Róm. Eftir
nokurra ára skemtilega dvöl
þar var hann sendur til Pek-
ihg. Þar ferðaðist hann mikið
um innri hluta landsins, lærði
fljótt kínversku og vann sjer
álit meðal þjóðarinnar, sem
kom sjer vel fyrir Dani, sem
eiga þar verulegra hagsmuna
að gæta. í Kína vöru þá um það
bil 800 Danir.
Árið 193? fjekk Kauffmann
fyrsta stóra verkefni sitt á
sviði utanríkisstjórnmálanna.
Danmörk og Noregur deildu
um Grænland. En menn vildu
koma í veg fyrir að þær deilur
leiddu til varanlegrar beiskju.
Dr. Munch sendi Kauffmann
iil Oslo til þess að vinna að
sáttum. Það verk tókst framar
öllum vonum.
Jeg hefi einnig heyrt frá því
sagt er Kauffmann talaði við
Holberg-hátíðahöld í Bergen.
Enda þótt Noregur og Danmörk
ættu ekki að þurfa að deila
um Holberg hefur þó oft verið
kritur út úr því, hvorri þjóð-
inni hann tilþeyrði og jeg hygg
að báðar þjóðirnar eigi jafna
sök á honum. En Kauffmann
hjelt ræðuna í Bergen og á
þann hátt að Norðmenn og
Danir voru jafn hrifnir af
henni. Og það var ekki Ijett
verk.
Þetta var þá maðurinn, sem
ör. Munch hafði valið ^ hina
þýðingarmiklu stöðu í Was-
hington. Og það var mikið lán
að það skyldi vera hann. Sendi
herra fær sjaldan tækifæri til
þes^ áð koma fram upp á eigði
spýtur og reka sjálfstæða
stjórnarstefnu. En Kauffmann
fjékk samt tækifærf til þess og
þar með meiri möguleika en
nokkur annar danskur sendi-
herra til þess að gera landi sínu
gagn. Og hann var hlutverki
sínu vaxinn.
Hernám Danmcrkur
Frjettirnar um að þýski her-
inn hefði kl. 4 að morgni 9.
apríl 1940 ráðist inn í Dan-
mörku, höfðu borist til Was-
hihgton þegar kl. 1 um nótt-
iná. Þetta lítur einkennilega út
en skýringin liggur í hinum 6
klgt. tímamismun.
Kauffmann var á ferðalagi í
Ur ræðu C. Brun, sendi-
herra Dana í Dansk-
*
Islenska
C. Brun.
Virginíu. Hann flýtti sjer til
Washington ög kallaði blaða-
menn þegar til sín.
Yfirlýsing hans var á þessa
leið:
„Jeg kom til Bandaríkjanna
til þess að vera fulltrúi kon-
ungs míns og frjálsrar Dan-
merkur. Sem fulltrúi Danakon
ungs, skipaður á löglegan og
frjálsan hátt, mun jeg halda
áfram að berjast fyrir einu
markmiði: uppbyggingu frjálsr
ar og sjálfstæðrar Danmerk-
ur“.
Þetta var fyrsti Ijósgeislinn í
því náttmyrkri, sem nú grúfði
yfir Danmörku.
Hugsun Kauffmans var
þessi:
Á meðan danska stjórnin get
ur aðeins unnið undir þvingun
geta þeir sendiherrar hennar,
sem eru utan áhrifasvæðis
Hitlers, ekki verið skilyrðis-
laust skuldbundnir til þess að
framkvæma þær skipanir, sem
þeir fá frá henni. Þeir hljóta að
hafa leyfi til þess að meta,
hvort fyrirskipanirnar túlki
hinn frjálsa vilja dönsku stjórn
arinnar eða hvort þær eiga
rætur sínar að rekja til þýskr-
ar nauðungar. Þegar þannig er
ástatt ber ekki að fylgja þeim.
Leiga Grænlands
Þessu næst ræddi Brun
sendiherra ýmsar ráðstafanir
Kauffmans m.a. þá ákvörðun
hans að leigja Bandaríkjunum
herstöðvar á Grænlandi. En um
það gerði hann samning við
Bandaríkjastjórn 9. apríl 1941.
Afleiðingin varð sú að danska
stjórnin vjek Kauffmann úr
embætti, en hann neitaði að við
urkenna að ríkisstjórn, sem
væri undir þvingun, hefði vald
til þess að víkja honum úr
stöðu hans. Sömu afstöðu tók
stjórn Bandaríkjanna, hún við
urkendi Kauffmann áfram og
lýst'i því yfir að hún myndi ekki
semja við neinn nema hann.
Þúsundir símskeyta frá Dön
um úm allan heim bárust
fjelaginu
Kauffmann. Þegar honum var
vikið úr sendiherrastöðunni og
neitaði að skeyta uppsögninni,
spurði hann ræðismenn sína,
sem voru 35—40, hvort' þeir
vildu fylgja honum. Ef þeir
vildu það ekki væri hann knúð
ur til þess að víkja þeim frá
störfum. Þeir tóku allir afstöðu
með honum að tveimur undan-
teknum.
■ En hvernig gat Kauffmann
haldið starfinu áfram þegar
hann fjekk ekki lengur fje frá
Kaupmannahöfn? Það var ofur
einfalt mál. Bandaríkjastjórn
viðurkendi rjett hans eins til að
ráðstafa öllum rjettindwm Dan
merkur í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir mótmæli frá Kaup-
mannahöfn hafði hann þannig
til umráða 13 milj dollara, sem
Danmörk átti í Bandaríkjun-
um, þar af hluta af gullforða
landsins. Við þetta bættust svo
tekjurnar af Grænlandi, sem
voru á þessum árum allháar
vegna hins háa verðlags á
kryoliti til aluminíumfram-
leiðslu.
í lok ræðu sinnar komst
Brun sendiherra þannig að
orði:
Kauffmann hdfði á þessum
árum sjerstaka aðstöðu í Wash
ington. Það var honum mikill
stuðningur að Innn naut óskor-
aðs trausts Roosevelt forseta og
Cordell Hulls utanríkisráðherra.
í Englandi átti hann einnig
miklu trausti að fagna.
En það var ekki aðeins Kauff
mann, sem naut viðurkenning-
ar. Það var að miklu levti hon-
um að þakka að stóll Danmerk-
ur stóð ekki auður þegar sátt-
máli Sameinuðu þjóðanna var
samþykktur í júlí 1945. Við
fengum okkar rúm þar viður-
kennt af Bandamönnum.
Kauffmann er hugsjónamkð-
ur í utanríkisþjónustu sinni,
þess vegna er svo ánægjulegt að
vinna undir stjórn hans. Hon-
um er það ekki aðalatriðið,
hvað er hagkvæmast að gera
við ákveðnar aðstæður.
Það, sem hann lítur á, er
hvað krefst heiðurs vor rjett-
lætiskennd og arengskapur, að
vjer gerum?
Þannig vann hann árin 1940
—1945. Og pað er viðurkent af
Danmörku, þegar hún var orðin
frjáls þegar hann var gerður að
ráðherra, án sjerstakrar stjórn-
ardeildar í stjórn þeirri, sem
mynduð var 5. maí 1945. Hann
varð ekki utanríkisráðherra.
Heima í Danmörku höfðu
menn þá ekki öðlast fullkom-
inn skilning á þýðingu starfs
hans. Sjálfum varð honum það
aðeins Ijettir, því valdafíkinn
er hann ekki. Hann fór á skíði,
þegar hann gat komið því við
* Framh. á bls. 11
Bræðslusíldaraflinn rúml.
71 þús. mái.
-------- ‘ 1
-VerðmætL hans eruum 3,2 milj.
FRÁ ÞVÍ að síldveiðiflotinn byrjaðf að veiða síld til bræðslu
á Siglufirði þar til í fyrrakvöld, hafði flotinn aflað alls 70.080
mál. Síðan hefir lítilsháttar bæst við og í gærkvöldi var talið
að um 1100 mál síldar biðu flutnings norður til Siglufjarðar.
Er því bræðslusíldaraflinn kominn upp í rúmlega 71 þús. mál.
í gær voru allmörg skip að®
veiðum, en bæði veður og kuldi
hömluðu. Sjómenn telja þó, að
enn muni vera síld, en ekki sje
gott að segja ákveðið um það'
fyr en veðuí lægir.
Með flutningaskipum rúm 60
þúsund mál.
Svo sem kunnugt er, hafa
nær öll síldveiðiskipin selt
afla sinn í flutningaskip og hafa
þau alls flutt norður til bræðslu
60.196 ipál síldar.
Aflahæsta skipið í flotanum
er Andvari frá Reykjavík með
8636 mál, næst er Victoria með
8,600. Afli einstakra skipa er
lagt hafa afla sinn í flutninga-
skip er sem hjer segir: Hafborg
með 2312 mál, Nanna 2003. Hvít
á með 2604 mál, Hafdís með
373, Mars 1127, Fylkir 90, Már
367, Dagný 75, Anglia 1747,
Reynir 595, Bjarki 2599, Arin-
björn 1315, 4.ðalbjörg 444, Meta
539, Sævar 179, Dagsbrún 1643,
Gunnar Hámundarson 51, Guð-
ný 170, íslendingur 478, Skóga-
foss 50, Guomundur Þorlákur
69, Ilrönn 78, Ágúst Þórarins-
son 2750, Skógafoss Ve 320 87,
Gísli Johnsen 56, Sidon 87,
Garðar 3288, Vonon Ve 113,
292, lv. Jökull 2851, Fagriklett-
ur 5860, Ingólfur Arnarson 62,
Gylfi 1403, Dóra 2130, Geir 637,
Richard 1638, Álsey 2572, fs-
lendingur RE 73, 302 og Svanur
208 mál síldar.
Með eigin afla.
Níu skip sem stundað hafa
veiðar, hafa flutt afla sinn sjálf
til bræðslu á Slglufirði. Samt.
eru það um 9884 mál, sem þessi
skip hafa flutt. Þau eru þessi:
Bjarki 2250 mál. Er því heildar
afli skipsins 4849 mál. Lv. Jök-
ull 1212 og hefir því aflað 4063
mál. íslendingur RE 73 964,
heildarafli því 1266, Fagriklett-
ur með 560 mál, því samtals
6420 mál. Álsey hefir flutt 1054
mál, Akraborg 400, Eldborgin
1666, Rifsnes 700 mál, og Siglu-
nes 1078 mál.
Sæfell frá Vestmannaeyjum,
sem hlektist á um síðustu helgi,
liggur enn inni á Beruvík og
bíður þar veðurs. Tekist hefir
að rjetta skipið alveg við.
FRJETTARITARI vor á
Raufarhöfn hefir símað, að
þorskafli hafi veiýð þar óvenju
mikill á þessum tíma árs.
Afli bátanna hefir verið eins
og best veiðist á sumarvertíð.
Að jafnaði hcfir aflast Y2
skippund á bjóð (320 önglar).
Frá Dómkirkjunni
ÞEIR SEM fram hjá Dóm-
kirkjunni ganga á sumrin og
sjá skrúðgarðinn fagra um-
hverfis kirkj'una og þeir sem í
kirkjuna koma til messugerða
og annara helgiathafna og sjá
þar ýmislega prýði, svo sem lif
andi blómin í kirkjunni allan
ársins hring, sjá til hvers kon-
urnar í Kirkjunefnd kvenna í
Dómkirkjusöfnuðnium stárfa.
Á morgun, fimtudag, halda
konurnar hinn árlega bazar
sinn í húsi KFUM og K, en
hann hefst kl. 4. Verður þar
margt góðra og gagnlegra
muna selt með vægu verði,
fallega gerðir hlutir til gagna
og prýði, sem margar húsmæð-
ur munu sækjast eftir, svo lít-
ill tími sem víða er nú í heim-
ilunum til slíkrar vinnu.
Konurnar í kirkjunefndinn!
vinna gott verk en þær heita
einnig á annarra hjálp og biðja
þær konur sem vilja styðja þæt|
að koma gjöfum sínum í hús
KFUM og K í dag eftir kl. 2.
Bazarinn, sem hefst kl. 4 á
morgun, verður vafalaust fjöl-*
sóttur, því að þar verður hægt
að gera það tvent í senn, að
styðja gott málefni og styðja
jafnframt eigin hag.
Jón Auðuns.
-----—-------- -J
.Freyja' meS þrjé
hákaria
LÍNUVEIÐARINN Freyjai
frá Reykjavík, sem stundax)
hákarlaveiði ' í Jökuldjúpinu,
liefir fengið 3 hákarla, allií,
vel vænir og að sama skapl
lifraðir.
Þar um slóðir hefir vcrið
vonsku veður síðustu dægun
og hefir veiðin gengið ver en;
skyldi. |
Norskt skip strandar viS
írland 1 I
London í gærkvöldi.
NORSKA flutningaskipið
Bolivar sendi í dag frá sjeu
eftirfarandi neyðarkall: „Skip;
ið að brotna í tvent — áhöfni
in að yfir'gefa það“.
Áður hafði borist tilkynn-
ing frá Bolivar um að það
hefði strandað skamt frá
Dublin og þyrfti tafarlausrar
aðstoðar vfð.
Dj'áttarbátur er nú á leið-
inni til skipsins og verður
væntanlega kominn á strandf-
staðinn um miðnætti í kvöld,
Bolivar er 5200 tonn.
— Reuter. j