Morgunblaðið - 06.03.1947, Qupperneq 11
Fimtudagur 6. mars 1947
MORGUNBLAÐIÐ
11
Tveir flokksforingjar
ÞAÐ hefir stundum vTerið um
það rætt á undanförnum árum,
að stjórnmálabaráttan hjer á
landi væri illvígari heldur en
meðal annara þjóða, vegna þess
návígis sem fámennið hefir i
för með sjer.
Þetta hefir áreiðanlega við
mikil rök að styðjast og enda
eðlilegt. Baráttan verður af
þeim sökum mikið meira tengd
við einstaka forystumenn flokka
og stofnana og getur jafnvel
gengið svo langt, að upphafleg
sjónarmið og stefnur brenglist
mjög af ófyrirsjáanlegum at-
yikum.
Það er jafnan mikill vandi
fyrir þá, sem sjálfir standa í
baráttunni, að meta rjettilega
öll sjónarmið og störf þeirra
manna, sem mestu ráða um úr-
$lit mála og þjóðarstefnu á
hverjum tíma. Mundi jeg ekki
ón ítrekaðra tilefna gera þær
athugasemdir er hjer fara á eft-
ir. En vegna þess sífelda og
margendurtekna rógburðar sem
blaðið Timinn flytur um merk-
asta og hæfasta stjórnmála-
mann þjóðarinnar sem nú lifir,
þá tcl jeg ríka ástæðu til að
víkja hjer að fáeinum atriðum,
sem fram hafa komið í ferli
þeirra tveggja formanna, sem
stærstu stjórnmálaflokkar lands
ins hafa nú, þeirra Ólafs Thors
og Hermanns Jónassonar. Ekki
fyrir það, að jeg láti mjer til
hugar koma, að bera. þessa ólíku
menn saman. Ekki heldur af
því, að mjer detti í hug, að lýsa
fyrir þjóðinni kostum þeirra og
göllum. Heldur af hinu, að
reynslan er ólygnust í þessu
sem öðru og hún sannar svo
ekki verður á vilst hve miklar
andstæður er hjer um að ræða
og hve breitt djúp er á milli.
★
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR-
INN er 17 ára gamall flokkur.
Allan þann tíma hefir hann ver-
ið stærsti flokkur þjóðarinnar,
og eftir því sem lengra hefir lið-
ið hefir traust hans og gengi
farið vaxandi, þó tvisvar hafi
hann orðið fyrir nokkru áfalli.
Þrettán ár af þessum tíma
hefir Olafur Thors verið for-
maður flokksins. Hann tók vúð
þegar fyrverandi formaður, Jón
Þorláksson, neitaði að vera for-
maður áfram. Vissu allir, að
mikill vandi var að taka við af
Jóni, því hann var að flestra
dómi einhver allra mikilhæfasti
stjórnmálamaður sem þjóðin
hefir átt að fornu og nýju.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk
ur allra stjetta okkar lands.
Hann hefir við að stríða marg-
víslega hagsmunaárekstra, sem
mismunandi stjettarafstaða
skapar á hverjum tíma. Þó allir
menn hans byggi á sömu grund-
yallarstefnu, eru skoðanir þeirra
mjög breytilegar um einstök
mál og málaflokka.
Að sameina þessa ólíku
krafta, sneiða af vankantana og
koma í veg fyrir bresti og
sprungur er erfitt verk og
vandasamt. Það gerir enginn
meðalinaður og allra síst til
lengdar Þetta hefir þó Ólafi
Thors tekist svo að aldrei hefir
leitt • til klofnings þrátt fyrir
ýmsa árekstra. Þegar tæpast
hefir staðið með samvinnu, þá
hefir traustið á formanninum og
vináttan við hann verið sterk-
asti strengurinn sem foi’ðað hef-
ir slitum og óhöppum. Aldrei á
þessu lú ára tímabili hefir held-
ur komið til nokkurs ágreinings
um það, liver ætti að vera for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Hann hefir verið sama sem sjálf-
kjörinn. Jafnvel hefir gengið
svo langt, að stundum hafa
liðið fleiri ár, svo að enginn
hefir verið kosinn varaformað-
ur í Sjálfstæðisflokknum. Að
flokkurinn er nú stór flokkur og
vaxandi er miklu meira að
þakka víðsýni, drengskap og
bjartsýni Ólafs Thors en flestir
gera sjer grein fyrir. Ókunnugir
vita það ekki.
★
FR A MSÓKN ARFLOKKUR-
INN er fullra 30 ára gamall.
Hann hefir haft forystu í stjórn
landsins lengur en nokkur ann-
ar flokkur, en altaf við vaxandi
vantraust.
Fyrir tæpum 13 árum varð
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra Framsóknarflokksins. —
Altaf síðan hefir hann verið
einna valdamestur maður i
þeim flokki og formaður hans
nokkur síðustu árin.
Að ráðherrastarfinu komst
hann með þeim hætti, að semja
við annan flokk um það, að
gera það að skilyrði fyrir stjórn-
arsamvinnu, að þáverandi for-
maður og aðalleiðtogi flokksins
frá byrjun yrði ekki ráðherra.
Framsóknarflokkurinn hefir
jafnan talið sig flokk bænda og
sveitamanna. Frá þvi sjónar-
miði hefði hann átt að geta ver-
ið tiltölulega samstæður flokk-
ur ef honum hefði verið sæmi-
lega stjórnað. En hann hefir
meira og meira tapað trausti
sveitafólksins eftir því sem
lengra hefir liðið. Hefir hins-
vegar náð nokkuð auknu fylgi
í sumum bæjum og þorpum þar
sem hann hefir getað notað
kaupfjelögin sem máttarrafta.
Allan þenna 13 ára tíma hef-
ir verið magnað ósamlyndi í
Farmsóknarflokknum og það
hefir ekki mest verið tengt við
niálefnisl^gan ágreining heldur
barátta um völd og menn.
Núverandi formaður, Her-
mann Jónasson, og næsti valda-
maður hans, Eysteinn Jónsson,
hafa staðið saman um það, að
flæma aðalstofnanda flokksins
og fleiri menn úr flokknum. Yf-
ir standa rannsóknir og ákærur
leynt og ljóst á ýmsa helstu
menn flokksins. Þeir eru tor-
trygðir og vanvirtir svo að
furðu sætir. Að síðustu er svo
talið að sjálfur formaður flokks
ins hafi staðið eftir við annan
eða þriðja mann, þegar fjelagi
hans og vinur gerðist þátttak-
andi í ríkisstjórn með þeim
flokkum, sem formaðurinn og
blað flokksins hafði mest sví-
virt árum saman.
Það kynni að mega segja það,
að sá nrismunur, sem hjer hefir
verið vikið að, liggi í mismun-
andi flokksliði og manndómi
þess. Alá og vera að svo sje að
einhverju leyti. En það eitt er
víst,» að Sjálfstæðisflokkurinn
væri nú lítill flokkur ef hann
hefði ekki haft á að skipa hæf-
ari flokksforingja en Hermann
Jónasson er.
Það er víst, að á stjórnmála-
sviðinu er mest að marka reynsl
una. Þess .vegna hefi jeg i þess-
um fáu orðum lagt aðal áherslu
á að nefna þær staðrevndir sem
alment eru þektar. Því ella
mætti ætla að vinátta eða óvin-
átta væri hin ráðandi öfl.
★
Fyrir Sjálfstæðisflokkin n er
það þýðingarmikið umhugsun-
arefni, sem hjer að framan er
að vikið, að á allri ævi sinni
hefir hann tvisvar orðið fyrir
nokkru áfalli. Þetta var 1934 og
1942. t bæði skiftin kom hann
úr samvinnu við Framsóknar-
flokkinn. í fyrri skifti gerðist
sá atburður á meðan samvinn-
an stóð, að ráðherra flokksins,
hinn ágæti maður Magnús Guð-
mundsson, var af undirmanni
sínum í samvinnunni dæmdur
í tukthúsið fyrir engar sakir.
í síðara skiftið skeði það
meðal margs annars, að annar
ráðherra, formaður Sjálfstæðis-
flokksins Ólafur Thors, var af
sínum yfirmanni í samvinnunni
Iýstur meinsærismaður og svik-
ari, Mka fyrir engar sakir.
í bæöi skiftin var að verki
sami maður, núverandi forrnað-
ur Framsóknarflokksins. í bæði
skifti urðu árásirnar Sjálfstæð-
isflokknum og hlutaðeigandi
mönnum til aukinna vinsælda
af því að allir sem til þektu
vissu hið sanna og tóku ekkert
mark á aðgerðunum.
Nú hefir Sjálfstæðisflokkur-
inn í þriðja sinn gengið í stjórn-
arsamvinnu við Framsóknar-
flokkinn. Hafa margir litla trú
á gagnsemi þessarar samvinnu.
En reynslan ein getur skorið
úr því, auk alls annars, hvaða
veitingar ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins fá nú að skilnaði.
J. P.
Sigurður Sigurðsson
frá Brekkum
Minnin garorð
smiður góður, hann var glað*
vær, góðlyndur og skemtileg-
ur fjelagi, og góður drengur
og traustur.
Einn af þeim, sem skilja eft
ir það skarð, þegar þeir falla
frá, sem seint verður fylt.
Reykjavík, 18. febr. 1947.
Fi-ændi.
Gullbrúðkaup
GULLBRÚÐKAUP sitt
h.jeldu þau Geldingaholts-
HANN fæddist að Brekk-!h3ón í Skagafirði, Sigrún Tob
um í Holtahreppi 20. nóvem- jíasdóttir og Sigurjón Helga-
ber 1857, sonur hjónanna Sól- son> Þ- 12- íebrúar þ. á. —
Sr. HaUgrímur sál. Thorlac-
ius gaf tvenn hjón saman í
Glaumbæjarkirkju 12. febrú-
ar 1897, þau Sigrúnu og Sig-
urjón og Ingibjörgu Björns-
dóttur og Gísla Benediktsson,
er síðar bjuggu lengi á Hall-
dórsstöðum á Langholti, eú,
Happdrætti
Eftirfarandi vinningar komu
upp í happdrætti Fjelags Suð-
urnesjamanna, Reykjavík: Nr.
6215 1 tonn kol. 11740 Vz tonn
kol. 10081 % tonn.kol. 11163
250 kg. kol. 538 250 kg. kol.
9501 250 kg. kol. 3581 40 kg.
saltfiskur. 944 40 kg. saltfisk-
ur 940 40 kg. saltfiskur. 4028
40 kg. saltfiskur. 2654 1 rl. þak
pappi. 8622 alfræðiorðabók.
11315 flugferð til Vestmanna-
eyja. 4026 hringflug 7915 hring
flug 2409 krystalskál. 11030
1 sk. sement. 7942 1 sk. sement.
8552 1 sk. sement. 2315 1 sk.
sement. 2313 50 fl. maltöl. 7050
1 kjötskrokkur. 6256 1 kjöt-
skrokkur. 7086 1 hveitipoki.
Vinninganna sje vitjað til
Friðriks Magnússonar, Vestur-
götu 33, Reykjavík.
veigar Gunnarsdóttur og Sig-
urðar Gunnarsdóttur og Sig-
urðar Runólfssonar, sém þar
bjuggu allan sinn búskap.
Sigurður kvæntist Guð-
laugu Halldórsdóttur frá
Syðri-Rauðalæk. Voru þau
gefin saman í Árbæjarkirkju
13. dag júlímánaðar 1889. nú_ eru bæði dáin.
Þau eignuðust þrjú börn,
einn dreng og tvær stúlkur,
aðra stúlkuna mistu þau ný-
fædda og drenginn, er hann
var fimtán ára gamall, en
Elín, elsta barnið, er gift og'
búsett hjer , Reykjavík. Guð-
laug kona Sigurðar andaðist
að heimili sínu 23. júlí 1909.
Sigurður kvæntist aftur
nokkrum árum seinna Stein-
unni Guðmundsdóttur og lif-
ir hún mann sinn.
Sigurður andaðist að heim-
ili sínu Brekkum 21. febrúar
1945, 88 ára að aldri.
Oft var gleði o,g glaumur á
heimili Sigurðar á uppvaxt-
arárum hans. Hafði faðir
hans mjög gaman af söng og
kveðskap, enda góður kvæða
maður sjálfur og hagyrðing-
ur, þótt lítið bæri 4. Systkinin
voru mörg og öll næm á bund
ið mál, bræðurnir fóru því jónsson, elsti sonur þeiri a
Margt gesta var 1 Geldinga
holti gullbrúðkaupsdaginn,
enda veður bjart og fagurt.
Bárust gullbrúðhjónunum
gjafir frá sveitungum, börn-
um og frændum. Þau eiga 6
uppkomin börn og 12 barna
börn, og vöru þau öll viðstödd
nema 2 kornung barnabörn.
Meðal barnanna voru þrír
bændur í Seyluhreppi og inn
fjórði búlaus maður þar í
sveit, en hygginn og sjálf-
stæður. Dóttur eiga þau hjón
eina, gifta suður í Rvík, o,g|
loks bílstjóra og bíleiganda,
og er hann einnig búsetur í
Rvík. — Yfir borðum voru
fluttar margar ræður, flutt
kvæði og mikið sungið. Mátti
kalla þar gleðskap góðan á
hinn forna og fríða skagfirska'
höfuðbóli.
Ræður fluttu: Tobias Sigan
snemma að kveða rímur og
lesa hátt á kvöldvökum, var
sá siður almennur í þá daga,
en nú er ekki eftir af þeim
menningarverðmætum annað
en minningar hjá öldruðui
hjóna, bóndi í Geldingaholti*
Sr. Gunnar Gíslason í Glaum
bæ, Haraldur Jónasson hrepp
stjóri á Völlum, Hjörtur Kr.
Benediktsson, bókbindari á
Marbæli, Jóhann Sigurðsson
fólki. Þjóðin hefir illu heilli bóndi á L°ngumýri, Brynleif
glatað því, ásamt fleiru
gömlu og góðu.
Sigurður var raddmaður
mikill, hafði hann djúpa og
hljómfagra bassarödd og tók
jafnan þátt í öllu sönglífi í
sveit sinni. Hann hjelt rödd-
inni fram á síðustu æfiár.
Sigurður dvaldi hjá for-
foreldrum sínum á uppvaxt-
arárum sínum, en stundaði
sjóróðra á vei'tíðum og vann
að búi föður síns, þegar hann,
hafði aldur o,g þroska til. Þeg
ar faðir hans dó, sextíu og sjö
ára að aldri, tók Sigurður við
búinu. Sigurður var maður
gjörvilegur ásýndum, hann
var hár vexti og þrekinn og
beinvaxinn, kvikur á fæti og
fljóthuga, enda duglegur til
allra verka, verklaginn og
ur Tobiasson, yfirkennari á
Akureyri, Jón Jónsson á
Bessastöðum, Jón Jóhannes-
son bóndi á Ytra-Skörðugili
og Sigurjón Jónasson, bóndi á
Syðra-Skörðugili. Jón Jóns-
son á Bessastöðum flutti gull
brúðhjónunum ágætt kvæði,
og mörg skeyti bárust þeim
og vinarkveðjur.
Þessi heiðurshjón hafa búið
samfleytt 50 ár, þar af 36 ár 1
Geldingaholíi, en 14 ár á Gili
í Svartárdal. Eru þau enn við
allgóða heilsu og vinna á búi
sínu enn í dag, þó að aldurinn
sje allhár orðinn. Gullbi'úð-
guminn verður áttræður 30.
maí n.k. og brúðurin sjötug
26. ág. nk. og elsti sonur þeifra,
fimtugur 10. okt. 1947. ,
Viðstaddur.