Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 16

Morgunblaðið - 06.03.1947, Side 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: Fimtudagur 6. mars 1947 Sýning á þróunarsögu og borgarsafni Reykjavíkur á næsta ári Á ÁRINU 1948 mun verða haldin hjer í Reykjavík sýn- ing á þróunarsögu bæjarins og borgarsafni. Bæjarstjórn hefír ákveðið að veita 50 þúsund króna styrk af fjárhags- áætlun bæjarins fyrir árið 1947. Það er Jóhann Hafstein, sem borið hefir tillögu þessa fram og er oún svohljóðandi: Bæjarstjórn Reykjavíkur sam^" þykkir að efna til almennrar sýningar, er sje við það miðuð að gefa til kynna þróunarsögu höfuðstaðar lantísins og bygðar í Reykjavík frá fyrstu tíð. Jafnfi’amt samþykkir bæjar- stjórnin að koma upp borgar- safni Reykjavíkur; þar sem varðveittar sjeu fornar minjar úr bygð og sögu bæjarins, og eje að því stefnt, að með bæjar- sýningunni geti skapast til varð veislu stofn að siíku safni. I framangreindum tilgangi eltal kosin 7 .manna nefnd til að undirbúa og slanda fyrir sýn- ingunni og gera tillögur og áætl anir um framkvæmdir við stofnun borgarsafnsins. Kýs bæjarstjórn 5 án tilnefningar, en 2 skulu skipaðir eftir tilnefn ♦ngu frá Reykvíkingafjelaginu. Nefndin skiftir með sjer verk- um. Nefndin miði störf sín við það. að sýningunni verði komið upp árið 1948 Bæjarstjórnin' samþykkir að veita á fjárhagsáætlun ársins 1947 kr. 50 þús. til undirbún- ings sýningarinnar og annars kostnaðar af ákvörðunum og störfum nefndarinnar. Bresk bridge- sveit kemur í apríl FYRIR milligöngu Brithis Council hefur Bridgefjelagi Reykjavíkur tekist að fá úr- valssveit breskra bridgespil- ara hingað til lands. í þessari sveit munu vera 5 til 6 menn og er hún væntan leg hingað í apríl. Hjer mun breska sveitin keppa við úr- valssveitir Reykvískra bridge spilara. .Drotningin' fer aftur í kvöid „DROTTNINGIN“ kom í gærmorgun frá Danmörku og fer aftur í kvöld kl. 8. Með henni komu 81 farþegi. Voru 55 þeirra Danir, 22 íslend- ingar, tveir Norðmenn einn Svíi og einn Rússi. Reykvíkingar unnu bæja- keppnina í handknattleik ÞAÐ KOM greinilega í ljós, í bæjakepni Hafnarfjarð- ar og Reykjavíkur í gærkvöldi, hve handknattleikurinn á orðið miklum vinsældum að fagna, þar sem hvert sæti í íþróttahúsinu við Hálogaland var setið og margir urðu að standa. Annars urðu menn fyrir allmiklum vonbrigð- nm um kepnina, þar sem liðin voru alit of ójöfn. Hafn- firðingarnir voru langt frá því eins sterkir og búist hafði verið við , ^ Kvenflokkarnir attust fyrst við. Það kom strax í ljós, að Reykjavíkurstúlkurnar voru mikiu öruggari notuðu meira samspil og voru ákveðnari. þið þeirra var gott. Hafnarfjarðar- stúlkurnar voru afíur á móti sundurleitar og ekki eins sam- stiltar, þótt i liðj þeirra væru góðir einstaklingar eins og t. d. rniðfi'amherji og hægri fram- herji. Markverðirnir áttu sinn þátt í ósigrinum Reykjavíkur- stúlkurnar unnu með 13:3. — I fyrri hálfleik 10:2, en í síðari 8:1. miklu betur hinar nýju leik- reglur, sem nctaðar .voru. — Skifta mátti um þrjá menn í liðinu hvenær sem var, og mönmim þanmg gefið tækifæri til þess að hvílast. Hafnfirðing- ar notuðu það ekki sem skyldi. Markamismunurinn var mikill. Reykvíkingar unnu með 35:9. í fyrri hálfleik 21:3; en í síð- ari 14:6. • 25.009 íbúðir. Sama er að segja um karla- flokkana. Reykjavikurliðið var miklum mun betra, og einnig hagnýttu Reykvíkingarnir sjer PRAG: — Tjekkneska stjórn in hefur nú á prjónunum á- form um að láta byggja 25000 íbúðir í Prag. Démkirkjan í Sevilla. Frá því var skýrt í frjettum í gær, að stórflóð hefði gert 6000 íbúa Sevilla heimilislausa. Myndin hjer að ofan er af hin ni fögru dómkirkju borgarinnar. —.— (Sjá grein á 1. síðu um vatnavextina og afleiðingar þeirra). Aukin skógrækt í Hafnarfirði INGVAR GUNNARSSON formaður Skógræktarfjelags ’afnarfjarðar skýrði blaðinu svo frá í gær að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefði á fjár- hagsáætlun fyrir árið 1947 veitt fjelaginu 20 þús. kr. styrk til starfsemi sinnar. Hyggst fjelagið verja þessu fje tii að girða land við Hvals eyrarvatn um það bil einn ferkm. að stærð. Á þessu landi ætlar fjelagið að vinna að skógrækt og landgræðslu. Skógræktarfjelag Hafnarf. var stofnað s.l. haust og er deild úr Skógræktarfjelagi ís lands. Meðlimir þess eru nú hátí á fjórða hundrað. í GÆRKVÖLDI telfdu þeir Eggert Gilfer og Guðmundur S. Guðmundsson biðskák úr fimtu umfer.ð. Leikar fóru að Guðmundur sigraði. Þá áttu þeir Guðmundur Ágústs- son og Ásmundur Ásgeirsson| óteflda skák úr sömu umferð og varð það biðskák. Árni Snævarr gaf biðskák sína við Ásmund úr 6. umferð. í kvöld verða telfdar bið- skákir 6. umferðar. Guðmund ur S. á móti Yanofsky, Guð- mundur Ágústsson á móti Baldri Möller og Wade á móti Eggert Gilfer. MEST DRUKKID LONDON: — í nýútkom- inni skýrslu er skýrt frá því, að í Bretfandi sje mest drukk- ið í Cambridge. Oxford er númer tvö, en *þar jókst drykkjuskapur um 100% s.l. ár. — I Mikil snjóþyngsli á Aknreyrí —————— v Allir bílvegir til bæjarins teppasf ALLIR VEGIR til Akureyrar voru ófærir bílum í morg- un, sagði frjettaritari vor á Akureyri, er hann átti tal við blaðið í gær. Snjókoma hefir verið mikil þar í marga daga og er ennþá. Hefir ekki komið þar meiri snjór í mörg ár. Öll bílaumferð á götum bæjarins er einnig erfið. ÓÖinsmenn ræða hlufallskosningar MÁLFUNDAFJELAGIÐ Óð inn hjelt fjölmennan fund í Sjálfstæðisfjelaginu s.l. sunnu- dag. Bjarni Benediktsson utanrík isráðherra flutti þar erindi um stjórnarsamvinnuna og lýsti málefnasamningi þeim, sem gerður var milli flokkanna. — Ráðherrann kom víða við í ræðu sinni og var hún hin jfróð legasta og mjög vel tekið af fundarmönnum. Næstur tók til máls Jóhann Hafstein alþm. Flutti hann er- indi um hlutfallskosningar inn an verlýðsfjelaganna. Lýsti hann rjettlætí þess máls og sýndi fram á hve sanngjarnt væri að hinir pólitísku flokkar fengju trúnaðarmenn í stjórn og önnur störf innan fjelag- anna, eftir hlutfalli hvðrs flokks. Er Jóhann hafði lokið máli sínu var rætt um það og voru allir fundarmenn sammála um sanngirniskröfur þessar. • Auk þeirra Bjarna Benedikts sonar og Jóhanns Hafstein tóku til máls á fundinum Axel Guð mundsson og Meyvant Sigurðs- son. Engin tök eru á því, að ryðja vegina með ýtu, vegna þess að fönnin er svo mikil, að þær geta ekki ýtt henni frá sjer. Mjólk verður flutt til bæjar- ins á sleðum, eftir því, sem við verður komið og einnig sjóleið- is frá Svalbarðseyri. Á þriðjudagskvöldið fjell nið ur þak á stórum skúr í mið- bænum vegna snjóþynglsa. —■ Skúr þessi hafði áður verið flug vjelaskýli, en nú voru geymd- ir í honum þrír bílar. Skemdust þeir nokkuð, en ekki er enn vitað hvað mikið. Nefmf manna at- hugar rekstor Sfræl- isvagnanna Á FUNDI bæjarráðs cí haldinn var á þriðjudag s.L var kosin nefnd manna til þess að athuga rekstur stræt isvagnanna. I nefndinni eiga að vei'ða þrír menn, en Al- þýðuflokkurinn hefur ekki cnn tilnefnt fulltrúij sinn í nefndina. Þeir tveir er þegar hafa verið útnefndir eru Jón Sigurðsson, slökkviliðsstjóri og' Sigfús Sigurhjartarson bæjarfulltrúi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.