Morgunblaðið - 28.03.1947, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.03.1947, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 28. mars 1947 Á HEIMILI ANNARAR * 24. dagur Sam hjelt að byssunni hefði verið fleygt í sjóinn. Henni datt snöggvast í hug að það væri rjettast fyrir sig að ná í byssuna í nótt og laumast með hana niður að sjó og fleygja henni í sundið. Hún klæddi sig nú í síðan kjól, þann fyrsta, sem varð fyr- ir henni, hvítan kjól með rauðu skrauti. Síðan stakk hún kúlunni í vasann á þessum kjól Þá burstaði hún hár sitt vand- lega og var einmitt að setja upp í hnút í hnakkanum þegar barið var að dyrum. Hún hjelt fyrst að þetta væri Richard, en svo var ekki. Það var Fankine, þernan. Hún var •mjög æst að sjá og það var flóttasvipur í augunum. Hún sagði: „Frúna langar til að tala við yður._ Myra“. „Frúna----------?“ í svipinn mundi hún ekki eftir annari en Corneliu. „Já, frú Thorne, auðvitað. Ó, finst yður þetta ekki taka á taugarnar, ungfrú. Barton sagði að það hefði nærri því liðið yfir sig þegar hann opn- aði dyrnar og hún stóð þar úti fyrir alveg eins og hún væri að koma heim úr viku fríi“. Hún dæsti og andvarpaði. „Segið frú Thorne að jeg skuli koma að vörmu spori“. „4á, ungfrú“. Francina hik- aði eins og hana langaði til að segja eitthvað meira. En svo vatt hún upp á svuntuna sína og fór. Myra flýtti sjer ekki. Hún smurði varir sínar með lit mjög vandlega eins og mikið væri undir því komið að þær væri sem fallegastar. Svo fór hún í háhælaða inniskó og bar ilm- vatn í hár sitt, kring um háls- inn og ermarnar. En þegar hún leit í spegil fanst henni ein- hver ókunn kona horfa á sig. Síðan fór hún fram á gang- inn, gekk rakleitt að dyrunum á herbergi Alice og barði. Skyldi Richard koma til dyra. Hann kom ekki. En Alice kallaði hárri röddu inni fyrir: „Er það Myra? Gerið svo vel að koma inn“. Herbergið var eitt blómahaf. Als staðar voru blóm. Glugg- arnir voru opnir svo að svalur blær kom inn. Á arninum skíð- logaði eldur. Richard var ekki þarna. Alice var þar ein. Hún var í gulum silkikjól og hár- ið fjell laust niður um herð- arnar. Hún var fögur, töfrandi fögur. „Komið þjer inn Myra. En hvað þjer eruð hraustleg. Og hvað yður fara vel þessir lit- ir, rautt og hvítt. Gerið svo vel að fá yður sætr*. Hún hallaðist aftur á bak á legubekk og augu hennar voru blíðleg. Hún var grönn og veikluleg, svo að það var ekki að furða þótt henni fyndist Myra hraustleg. En Myra var ekki á marga fiska. Hún skalf á beinunum og hálfhnje niður á stólinn, sem Alice hafði boð- ið henni. Alice sagði blíðlega: „Jeg þarf að tala við yður. Það er viðvíkjandi Richard og yður — og mjer“. XII. KAFLI Hafði Richard sagt henni upp alla sögu? Nei, það var svo grimdarlegt að Richard hefði ekki getað fengið það af sjer. Hafði hún þá sjálf giskað á hvernig komið var? Hafði eitt- hvað verið í fari þeirra Ric- hards, eitthvað einkennilegt, er þau höfðu sjálf eigi veitt eftirtekt, en Alice hafði sjeð og skilið? Höfðu þau ekki gætt augna sinna, eða hafði mátt lesa hugsanir þeirra úr svip þeirra? Það snarkaði ofurlítið í eld- inmu. Alice spenti greipár og giftingarhringur hennar glóði þar. Hún sagði: „Segið þjer eitthvað Myra. Það er svo erfitt að byrja á þessu“. Myra svaraði hægt: „Þjer eruð mjög þreytt, Alice. Er ekki betra að við tölum sam- an á morgun?“ Alice skaut brúnum og hall- aðist svolítið áfram. „Við þekkjumst litið, Myra“, sagði hún. „En jeg þekki yður þó vel af afspurn. Tim tilbiður yður, og eins Cornelia frænka. Og jeg veit hvað þjer hafið ver ið góð við Richard og Cornéliu, síðan þið komuð hingað. Og það var fallega gert af yður að koma hingað eins og þá var á- statt“. „Mirinist þjer ekki á það“. „Jú, jú, það má ekki gleym- ast. Ríkisstjórinn sagði mjer að reyna að gleyma og láta eins og jeg hefði aðeins verið skav^ma stund burtu. Jeg ætla að reyna að gleyma því sem fyrir mig hefir komið“. Samt sem áður studdi hún nú hönd undir kinn og horfði dapur- lega inn í eldinn. Svo sagði hún: Jeg verð að láta eins og þetta hafi aldrei komið fyrir. Jeg yerð að byrja lífið að nýju. Jeg yerð að reyna að vera kjarkmikil. Jeg verð að reyna að fá traust á sjálfri mjer. Jeg verð að reyna að vera sú kona, sem er Richard samboðin. Þess vegna fanst mjer jeg verða að tala við yður í kvöld. Jeg get ekki farið að sofa fyr en jeg veit hvað þjer ætlið að gera“. „Hvað jeg ætla að gera?“ endurtók Myra undrandi. „Já, gagnvart Richard". Nú, hann hafði þá sagt henni frá því. Hve mikið hafði hann sagt? Alice mælti enn og bar ört á: „Jeg hjelt að við gætum tal- að um þetta okkar á milli. Hann þarf ekkert að vita um það. Og hann má ekki vita um það. En eftir því. sem jeg hefi heyrt af yður, þá treysti jeg því, að við getum talað um þetta í vin- semd og alvöru.“ Hún laut áfram svo að hár- kollur fjell fram yfir andlit hennar. Hún strauk hann til baka og sagði: „Mjer dettur ekki í hug að álasri ykkur, hvorki yður nje honum. Þetta hlaut að fara svona. Jeg bjóst jafnvel við því fyr“. „Bjuggust þjer við því?“ sagði Myra undrandi og henni fanst Alice hafa flækt sig í neti. „Jeg vissi að hann var ein- mana. Jeg veit að til eru fagr- ar konur — og þjer eruð sjer- staklega fögur og aðlaðandi“. Á veggnum andspænis þeim var stór spegill í logagyltri um- gjörð. Þeim varð báðum litið í hann samtímis. Hvorug sá and- litsfall hinnar, þær sáu aðeins augun, spyrjandi, rannsakandi, eins og þegar tveir bláókunn- ugir menn horfðast í augu. En svo var eins og báðar færi hjá sjer og jafnsnemma litu þær undan, Alice sagði og hló ofurlítið við: „Þessi spegill er of dökk- ur. Jeg verð að láta breyta hon um.“ Svo laut hún nær Myru. „Þjer hafið verið hjer allah tímann. Og hvorugt ykkar hef ir búist við því að jeg mundi nokkurn tíma koma heim aft- ur — eins og nú — sem kona Richards. Jeg áfellist ykkur ekki. En samt--------“ Hún rjetti báðar hendur biðj andi fram. Netið sem hún dró umhverf- is Myru var svo ljett og gagn- sætt að Myra varð varla vör við það. En það drógst stöðugt að henni. Hún spratt á fætur og gekk út að glugganum til þess að láta svalt kvöldloftið leika um sig. „Góða Myra, horfið þjer á mig“, sagði Alice. „Jeg hefi sært yður — jeg bið yður inni- lega fyrirgefningar á því. Æ, horfið þjer á mig“. Myra sneri sjer við og sagði: „Hefir Richard talað um þetta við yður?“ Alice hikaði um stund og beit á vörina. Svo sagði hún: „Nei. ekki beinlínis“. „Hvernig vissuð þjer þetta þá?“ Alice sagði: „Það er þá satt?“ Myru brá ónotalega. „Nú, þjer vissuð það“. Alice lygndi augunum og sagði: „Ójá, jeg vissi það — jeg giskaði á það. Jeg fann það á andrúmsloftinu. Enginn sagði mjer frá því — en jeg vissi það samt. Maður finnur þetta fljótt. En það er best áð jeg segi yður eins og er, Myra, að jeg var altaf hrædd um hann fyrir yður. Jeg vissi hvað hann var einmana og jeg mundi hafa gefið honum eftir skilnað, ef hann hefði farið fram á það — ef hann hefði farið fram á það meðan jeg var í varðhald- inu“. Hún þagnaði og hugsaði sig um nokkra stund. „Jeg hefði ekki getað gert annað“, sagði hún svo. „Jeg gat ekki ætlast t^l þess að Ric- hard lifði einstæðingslífi mín vegna. Já, ef hann hefði þá beðið mig um skilnað þá hefði jeg undir eins orðið við því, enda þótt hjarta mitt hefði brostið“. Hún hallaði sjer upp að svæflunum. Myra vissi varla hvaðan á sig síóð veðrið. Hún gat ekki láð Alice — því að Alice var í sínum fulla rjetti. Hún varð að segja henni alt eins og var, vera hreinskilin, og komast svo á burt hjeðan. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiii 1 Ifiíja^núó <~Jkorlaciuó hæstarjettarlögmaður 1 Aðalstræti 9, sími 1875. llllllllllllll•lllllllllllllllllllllllll•llllllllllll■lllmlllllll mil Að jarðarmiðju | Eftir EDGAR RICE BURROUGHS. 120. ' um vír. Samkvæmt uppástungu hans, var vír þessum vafið á sjerstaka spólu, en hann hugðist festa annan enda vírsins hjer uppi á yfirborðinu áður en hann legði af stað, og með því svo að vinda hann af spólunni, meðan á ferð jarðvjelarinnar stæði, gerði hann sjer vonir um að leggja símalínu milli ytri og innri heimsins. í brjefi mínu sagði jeg honum að gæta þess vandlega, að merkja endamörk vírsins greinilega með hárri vörðu, ef svo kynni að fara, að jeg næði ekki á fund hans áður en hann legði upp í ferð sína. Varðan átti svo að vísa mjer á vírendana og þá gæti jeg haft samband við Davíð, skyldi honum auðn- ast að komast til Pellucidar. Jeg fekk mörg brjef frá honum eftir að jeg kom til Bandaríkjanna — sannast að segja sendi hann mjer brjef með öllum þeim úlfaldalestum, sem voru á leið norður eftir og til strandar. Síðasta brjef hans var skrifað daginn áður en hann hugðist leggja af stað. Svona er brjefið: „Kæri vinur: Á morgun mun jeg leggja af stað í leit mína að Pellu- cidar og Dían. Það er að segja, verði Arabarnir ekki búnir að gera út af við mig. Þeir hafa látið ákaflega ófriðlega upp á síðkastið. Jeg veit ekki ástæðuna, en þeir hafa tvívegis hætt lífi mínu í beinan voða. Einn þeirra, sem hefir verið mjer hlyntari en hinir, sagði mjer í dag, að þeir hefðu í hyggju að gera árás á mig í kvöld. Það mundi vissulega vera mikil óhamingja, ef slíkt ætti eftir að koma fyrir núna, þar sem jeg er því nær tilbúinn að leggja af stað. Þó getur verið, að þetta hafi svo sem lítið að segja, því því nær sem dregur að burtfarartíma mínum, því minni líkur virðast fyrir því, að rtijer muni takast að ljúka ætlunar- verki mínu. Nú er hann kominn til mín, hinn vingjarnlegi Arabi, sem ætlar að taka þetta brjef norður á bóginn fyrir mig, svo jeg kveð þig og bið Guð að blessa þig fyrir alla vin- áttu þína. * • Arabinn er að segja mjer að flýta mjer, því hann sjer sandský í austri — hann heldur að þetta sje jóreykur Ar- aba þeirra, sem hyggjast drepa mig, og hann vill ekki láta þá koma að sjer hjá mjer. Vertu enn einu sinni blessaður. Þinn, Davíð Innes.“ |)D. 1 p/nuj Þegar Mark Twain kom eitt sinn til Evrópu var bann boð- inn til bresku konungshjón- anna. Þar sagði Twain kon- unginum frá því, að hann hefði verið nýlega í boði hjá ræðis- manni Bandaríkjanna og grætt á því 500 dollara, að ræðismað- urinn kom í veg fyrir að hann flytti þar ræðu. Konungi þótti þetta heldur ótrúlegt, en þá kom skýringin: — Ef jeg hefði haldið þessa ræðu, sagði Twain, hefðu öll amerísku blöðin prentað hana, en efnið úr henni notaði jeg í grein, sem jeg seldi North Am erican Review fyrir 500 doll- ara. ★ Stúlka, sem ók bíl, kom í fyrsta sinn í þorp eitt. Þegar hún ók um aðaltorg þorpsins kom hún auga á myndastyttu, sem hún varð mjög hrifin af. Horfði hún svo mikið á stytt- una, að hún gleymdi sjer al- veg og keyrði beint á fótstall hennar. í því ber þar að sendi- svein. — Gerðu aðra tilraun, óða, sagði hann, styttan stendur ennþá. Prófessorinn (í veitinga- húsi): — Þjónn, ef jeg er bú- in að borða, komið þá með reikninginn, en ef jeg er ekki búinn að borða látið mig þá fá svínasteik og ölglas með. ★ í hjónaskilnaðarmáy í Lond- on sagði eiginmaðurinn: — Það er villandi, þegar konan mín segir að við höfum mikið rifist út af peningum. Mjer vitanlega höfum við aldrei átt neina peninga. ★ Rithöfundurinn Chesterton var manna feitastur og henti oft gaman að því sjálfur. Eitt sinn sagði hann t. d. þessa sögu: — Jeg kom inn í sporvagn og settist. Rjett á eftir fyltist vagninn af farþegum. Þá stóð jeg upp og lánaði þremur kon- um sætið mitt. Eitt sinn er Chesterton hitti Bernhard Shaw, sem var mjög grannholda, sagði hann: — Þegar maður sjer þig gæti maður haldið að það væri hung ursneyð í landinu. — Já, og væri þjer að kenna, svaraði Shaw.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.