Morgunblaðið - 28.03.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLí TIÐ: Faxaflói:
A FERÐ OG FLUGI. Valtýi'
Norð-ausían kaldi. - - Ljett-
skýjað.
Föstudagur 28. mars 1947
Geslir AOA komnir
að vestan
FULLTRÚAR ríkisstjórnar-
innar og blaðamenn þeir, sem
fóru í boði AOA til Bandaríkj-
anna komu hingað til íslands
aftur í fyrrinótt með „Flag-
ship Copenhagen“. Ljetu þeir
hið besta yfir för sinni og róm
uðu ágætar móttökur flugfje-
lagsins vestra.
Þeir sátu boð sendisveitar ís
lands í Washington og sama
dag boð hjá flugfjelaginu í
Carlton-hótelinu í Washington.
Þeir, sem fóru í þessa för,
voru: Sigurður Bjarnason,
Gunnlaugur Pjetursson, Gunn
laugur Þórðarson, Sigurður Ó1
afsson, Jón Magnússon, Þór-
arinn Þórarinsson og Kristján
Guðlaugsson.
„Flagship" AOA á flugi
Skymasterflugvjel af sömu gerð og ,,Flagship Reykjavík“, scm Svíþjóðarfararnir fóru með.
Grein eftir Valíý Stcfánsson ritstjóra á bls. 7 og 8.
Fjelag Rafiækjasala
NÝLEGA var stofnað hjer í
bæ „Fjelag raftækjasala“. Að
fjelagsstofnuninni standa eftir-
taldir aðilar:
Bræðurnir Ormsson, Elangros
Trading, Electric h.f., Eiríkur
Hjartarson & Co., Guðm. Mar-
teinsson, Glóðin h.f., Júlíus
Björnsson, Ljós & Hiti, Ljósa-
foss, Ljós & Orka h.f., Lúðvík
Guðmundsson, Paul Smith,
Rafall h.f., Rafmagn h.f., Raf-
tækjasalan h.f., Rafvirkinn s.f.,
Johan Rönning h.f., Terra Tra-
ding h.f., V. Thorsteinsson.
Markmið fjelagsins er að
stuðla að sameiginlegum á-
hugamálum fjelagsmanna, svo
sem heilbrigðum verslunar-
háttum og rjettlátri úthlutun
innflutnings- og gjaldeyris-
leyfa. Ennfremur að hnekkja
ómaklegum árásum í garð fje-
lagsmanna.
Stjórn fjelagsins skipa: For-
maður: Ilans R. Þórðarson,
Gjaldkeri: Holger P. Gíslason.
Ritari: Jón Á. Bjarnason. Vara-
menn: Ingólfur Bjarnason og
Júlíus Björnsson.
Ágúsl Þórarinsson
láfinn
ÁGÚST ÞÓRARINSSON kaup
maður í Stykkishólmi andaðist
í fyrrinótt að heimili sínu. —
Hann var 82 ára.
Þessa mæta og merka manns
verður nánar getið síðar hjer í
blaðinu.
issí ier
Tvö islandsmet voru
sett
SÆNSKI sundmeistarinn Per Olof Olsson fór hjeðan
ósigraður snemma í morgun áleiðis til New York. Hundr-
uðir Reykvíkinga fögnuðu honum í Sundhöllinni í gær-
kveldi, en þar bauð forseti í. S. í., Ben. G Waage, hann
velkominn áður en keppnin hófst.
Olsson vann 100 m. skriðsund á 58,5 sek., en Ari
Guðmundsson synti þar á mettíma sínum^ 61,5 sek.
— 100 m. bringusund vann Olsson á 1.13,4 mín.,
en Sigurður Þingeyingur, sem varð annar, synti
á nýju íslensku meti, 1.17,7 sek. — Þá kom það
mjög á óvart, að hinn ungi ÍR-ingur Ólafur Guð-
. mundsson sló íslandsmet Jónasar Halldórssonar í
50 m. baksundi. Synti á 34,9 sek.
Það er óhætt að fullyrða, að
Olsson vann Ara eingöngu á
„startinu“ og snúningunum,
en þar hafði hann mikla yfir-
burði. Einnig kom það greini-
lega í ljós í 100 m. bringusund-
inu á móti Sigurðunum. Olsson
var aldrei í verulegri hættu
hvað sigurinn snerti, en ís-
lensku sundmennirnir veittu
honum þó harða keppni.
í 100 m. skriðsundinu synti
Olsson fyrstu 25 metrana á 12,8
sek., aðra á 14,5, þriðju á 15;0
og fjórðu á 16,2.
Helstu úrslit KR-mótsins
urðu annars þessi:
100 m. skriðsund: — 1. Per
Olof Olsson 58,5 sek., 2. Ari
Guðmundsson, Æ, 61,5 sek., 3.
Rafn Sigurvinsson, KR, 69,6
sek. og 4. Ólafur Diðriksson,
70,9 sek. — Ari vann hjer í
þriðja sinn og til eignar bikar,
sem keppt hefir verið um á KR-
mótinu^ en Olsson fjekk sjer-
stök heiðursverðlaun.
100 m. bringusund: — 1. Per
Olof Olsson 1.13,4 mín., 2. Sig-
urður Jónsson, HSÞ, 1.17,7 mín.
(ísl. met), 3. Sigurður Jónsson,
KR, 1.19,7 mín. og 4. Ingvar
Jónasson, Æ, 1.22,9 mín. Ols-
son fjekk hjer einnig heiðurs-
verðlaun, en Sigurður vann í
annað sinn bikar þann, sem
keppt er um í þessari grein.
50 m. baksund karla: — 1.
Ólafur Guðmundsson, ÍR, 34;9
sek. (ísl. met), 2. Guðmundur
Ingólfsson, ÍR, .35,7 sek. og 3.
Halldór Bachmann, Æ, 38,6
sek. — íslandsmetið, sem. Jónas
Halldórsson átti, var 35,0 sek.,
se’tt 1938. Ólafur og Guðmund-
ur syntu ekki í sama riðli.
200 m. bringusund kvenna: —
1. Gyða Stefánsdóttir, KR,
3.38,5 mín.; 2. Lilja Auðuns-
dóttir, Æ, 3.39,5 mín. og 3. Anna
Ólafsdóttir, Á, 3.41,0 mín.
Keppnin var afar hörð, eins og
tíminn ber með sjer.
4x100 m. boðsund (frj. aðf.):
— 1. Ægir 4.39,5 mín., 2. KR
4.51,2 mín. og 3. Ármann 4.54,4
mín.
50 m. skriðsund drengja: —
1. Helgi Jakobsson, ÍR, 32;3
sek., 2. Rúnar H. Hjartarson,
Á, 32,6 sek. og 3. Theodór Dið-
riksson, Á, 32,8 sek.
50 m. bringusund drengja: —
1. Georg Franklinsson, Æ, 40,6
sek., 2. Þorkell Pálsson, Æ;
43,1 sek. og 3. Guðjón Þórarins-
son, Á, 43,7 sek.
Eins <f§ áður er sagt fór Ols-
son hjeðan snemma í morgun
áleiðis til New York. Hann mun
svo á morgun (laugardag)
fljúga til Boston og keppa þar
annað kvöld, en síðan mun hann
(4. og 5. apríl) taka þátt í
ameríska meistaramótinu.
—Þorbjörn.
r
Ben. G. Waage, forseti Í.S.Í.,
býður Per Olof Olsson velkom-
inn í Sundhölíinni í gærkveldi.
(Ljósm. Mbl.: F. Clausen).
Sveif í svifflugu í nær
sjö og hálfa klst.
í GÆR tókst Albert Tómás-
syni, flugumferðarstjóra á
Reykjavíkurflugvelli að halda
sjer á lofti í svifflugu í 7 klst.
og 25 mínútur og er það nýtt
met hjer á landi.
Albert var dreginn á loft í
svifflugu sinni kl. 12,25 í gær.
Var honum síðan slept kl. 12,
45 yfir sandskeiðinu. Hann var
síðan í loftinu, þar til hann
lenti á Reykjavíkurflugvelli
kl. 21,10 í gærkvöldi. Var hann
mestan tímann í 5000 feta hæð.
Áður hafði Agnar Kofoed-
Hansen, lögreglustjóri, haldið
sjer lengst á lofti í svifflugu,
eða 5 tíma og 15 mínútur.
Albert er aðeins 19 ára, og
er þetta afrek hans talið mjög
gott, sjerstaklega ef tekið er
tillit til þess, hve kalt er í
veðri.
Stefánsson ritar um Svíþjóðar-
for. — Sjá bls. 7—8.
Verod barna og ung-
linga lögfesf
FRUMVARPIÐ um vernd
barna og ungmenna var í gær
afgr. sem lög frá Alþingi.
Gísli Jónsson bar fram brtt.
við frv., þess efnis að samþykkt
barnaverndarráðs þyrfti til að
mönnum úr barnaverndarnefnd
unum væri heimilt að fara inn
á heimili til rannsóknar á hög-
um barns og ungmennis.
Benti Gísli á hve nálægt
heimilisrjettinum hjer væri
gengið er nefndarmenn gætu
vaðið inn á heimilin skilyrðis-
laust undir því yfirskyni að
þeir væru að tryggja vernd
barnanna.
Allt um það var þessi brtt.
ásamt tveim öðrum felld og
frv. samþ. sem lög með 10 atkv.
Sendiherrann ætlar
að segja sann-
leikann
Washington í gær.
TRUMAN forseti hefir sam-
þykt lausnarbeiðni sendiherra
Bandaríkjanna í Póllandi, Arth-
ur Bliss Lane.
Frá Hvíta húsinu var í dag
| birt brjef, sem farið hafa á
j miili forsetans og sendiherr-
ans; þar sem senaiherra segist
vilja gerast almennur borgari
til þess að fá tækifæri til að
tala og skrifa frá eigin brjósti
og sannleikanum samkvæmt
um „sorgarsögu Póllands“.
Gyðingar hófa
blóðhefndum
Jerúsalem í gærkvöldi.
BRESKUR lögreglumaður
særðist í dag, er menn, sem
álitnir eru vera Gyðingar, rjeð
ust með sprengjukasti og skot-
hríð á tvo lögreglubíla í Tel
Aviv. Árásarmennirnir komust
undan.
Óaldarflokkurinn Irgun Zval
Leumi hefir nú sent út dreifi-
miða, þar sem því er lýst yfir,
að til blóðugra átaka muni
koma, ef Doc Gruner, Gyðing-
ur sá, sem dæmdur hefir verið
til dauða, verði líflátinn.
Franshi sendikenn-
arinn flyfur fyrir-
lesfur um Portúgal
FRANSKI sendikennarinn,
André Rousseau, flytur fyrir-
lestur á frönsku í Háskólanum
um Portúgal í kvöld kl. 6 í
fyrstu kenslustofu.
Sendikennarinn, sem dvald-
ist fyrir skömmu um eins árs
skeið í Portúgal, mun dragá
upp myndir úr þjóðlífi Portú-
galsmanna og lýsa þjóðinni
eins og hún kom honum fyrir
sjónir. Skuggamyndir fylgja
fyrirlestrinum, og auk þess
mun áheyrendum gefast kost-
ur á að heyra portúgölsk þjóð-
lög af hljómplötum.