Morgunblaðið - 03.04.1947, Page 8
8
MORGUNBLASIÖ
Fimtudagur 3. apríl 1947
i
tn
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík,
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Tokum höndum saman
PÁSKALEYFIÐ er hafið. Þetta er annað lengsta frí
ársins hjá mörgum kaupstaðabúum. Það stendur í fimm
ríaga. En hvernig verja menn frídögunum?
Fjöldi æskumanna, kvenna og karla hjer í höfuðborg
landsins nota frídagana til skíðaferða á fjöllum. Sumir
leita langt inn í óbygðir, til jöklanna og dvelja þar. Aðrir
leita til skíðaskálanna í nágrenninu, og eru þeir allir
fullskipaðir. Enn aðrir láta sjer nægja að fara að morgni
og koma heim aftur að kvöldi.
Þessi sókn til fjallanna í páskaleyfinu er orðinn fast-
ur siður fjölda fólks, einkum hinna yngri. Hann er lofs-
verður, því að þeir sem temja sjer fjallgöngur í frístund-
um sínum sækja í sig kraft og þrótt með útiverunni
★
Vafalaust verða þeir margir, sem leggja leið sína í aust-
urátt að þessu sinni, í áttina til Heklu, til þess að sjá
með eigin augum náttúruundrin, sem þar eru að verki.
Verður því án efa margt um manninn í nágrenni Heklu
frídagana.
Rjett þykir að minna þetta fólk á, að það forðist sem
mest átroðning á bæjunum. Raunir fólksins í næsta ná-
grenni eldstöðvanna er vissulega nógar fyrir, þótt ekki sje
að óþörfu verið að baka því fyrirhöfn með því að taka
á móti gestum- Á flestum bæjum er og ástandið þannig,
að lítt kleift er að taka á móti gestum, vegna fólksleysis
og annarra ástæðna. Ættu bæjarbúar að hafa þetta í huga.
Þeim ber að sýna nærgætni og forðast alla óþarfa á-
níðslu. Þeim er vorkunnarlaust að búa sig þannig, að ekki
þurfi þeir að vera upp á aðra komnir.
★
Annars er ekki úr vegi að sá stóri hópur manna, sem
til þessa hefir ekki haft önnur kynni af Heklugosinu en
þau, að hafa úr fjarlægð horft á þessi undur náttur-
unnar og orðið hrifið af þeirri sjón, noti einnig páskana
til að íhuga ástandið hjá því fólki, sem harðast hefir orðið
úti af völdum hamfaranna úr Heklu. Erfiðleikar og raunir
þessa fólks varða þjóðina alla. Og það þarf áreiðanlega
ekki að minna Reykvíkinga á að gera skyldu sína, ef til
þeirra verður leitað um aðstoð í þessu efni.
★
Oft höfum við íslendingar dáð forfeðurna fyrir þraut-
segju, dug og þrek í sambandi við eldgos fyrr á öldum,
og allar þær hörmungar sem dundu þá yfir varnalausa
þjóðina. Er hugsanlegt, að kynslóðin sem nú lifir sje það
þrekminni en forfeðurnir, að hún láti bugast við fyrstu
raun? Þó er ólíku saman að jafna nú eða þá. Nú eru greið-
ar samgöngur um alt land. Nú eru vísindamenn komnir
á eldstöðvarnar strax í byrjun gossins og fylgjast með
cllu, sem þar fer fram. Þeir senda jafnharðan leiðbeining-
ar til fólksins um alt, sem máli skiftir. Þjóðin er vissu-
lega þannig stödd í dag, að hún er þess megnug að hjálpa
lólki, sem harðast verður út'i af völdum eldgosa.
Alt þetta rifjast upp fyrir mönnum nú, við þau hörmu-
legu tíðindi, að bændur í Inn-Fljótshlíð sjeu staðráðnir í
að skera niður sauðfje sitt, og hafa að engu boðna aðstoð
ríkisins til bjargar búpeningnum. Svo furðuleg er þéssi
fregn, að menn fást ekki til að trúa henni.
Það er skylda ríkisvaldsins að koma í veg fyrir slíkar
aðgerðir. Þær yrðu engum til góðs- Það væri uppgjöf. Það
er fásinna að láta sjer detta í hug, að ekki sje hægt að
bjarga f jenaðinum á öskusvæðinu. Auðvitað er það skylda
ríkisvaldsins og þjóðarinnar allrar, að aðstoða við þá
björgun.
Þótt vonleysi hafi gripið fólkið á öskusvæðinu í dag,
þegar það sjer auðnina og eyðilegginguna hvert sem litið
er, má ekki gleyma gróanda náttúrunnar. Oft hefir ömur-
legra verið um að litast eftir eldgos en nú, og samt hefir
batinn komið furðu fljótt.
Látum ekki hugfallast. Tökum höndum saman og björg-
um því, sem bjargað verður.
\Jilwerjl óbripat':
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Langa fríið.
Nú er langa fríið að byrja
hjá mörgum. Lengsta frí árs-
ins að undanskildu sumarfrí-
inu. alls heilir fimm dagar. Það
má nota það, en er þó bæði vel
notað, og misnotað, eftir því
hvernig menn skoða frí. Sumir
telja^ að fríin sjeu eingöngu til
að skemta sjer. Vilja hafa ,,líf
og glaða daga“. Aðrir nota sjer
frí frá daglegum störfum til
þess .að hressa sig, annaðhvort
andlega, eða líkamlega. Og loks
eru þeir, sem gera hreint ekki
neitt og eru ánægðastir með
það.
Ferðalög eru orðin algeng
um páskana hjá kaupstaða-
fólki, Skíðaskálar allir eru yf-
við og jafnvel sæluhús á fjöll-
um uppi. Fer mest eftir veðri,
hvernig ferðalögin hepnast. Því
er alment trúað að hret komi
einhverntíma um páskana og
vill oft svo til, en sjerstök ó-
heppni er það ef skíðafclk og
ferðagarpar fá ekki að minsta
kosti einn dag góðan.
En nú verður straumurínn
vafalaust til Heklu fyrst og
fremst Það öfundar víst eng-
inn sveitafólkið á bæjunum íj
grend við Heklu, sem verður
að taka á móti öllum þeim ara
grúa af fólki, sem sækir það
heim um páskana.
•
Engin blöð í fimm
daga.
JAFNVEL blaðamenn fá frí
um frá störfum um páskahelg-
ina, en þeir hafa yfirleitt ekki
mikið af slíkum lúxus að segja.
En það eru prentararnir sem
segja til. Án þeirra er ekki
hægt að gefa út blöð og þeir
hafa tekið upp sið margra ann-
ara stjetta, að vinna ekki á
laugardag fyrir páska.
Það er svo mörgum, sem
ekki þykir taka því, að vera að
fara. til vinnu þessa stuttu
stund á laugardeginum. Ekki
mun það þó stafa af trúarleg-
um ástæðum, "heldur af ein-
hverju öðru.
Gott eiga þeir, sem geta
hvílt sig og látið sjer líða vel.
Islendingar eru eina þjóðin í
heiminum, sem tekur lífinu
svo með ró, að hún leyfir sjer,
að hætta störfum í heila fimm
daga. Ætti það að benda til þess
að við sjeum komnir lengra í
fjelagslegri þróun. Eða ætli
það sje ekki rjett athugað?
•
Undirbúningur
samskota
UNDIRBÚNINGUR undir
samskot fyrir fólk á gossvæð-
inu mun vera hafinn, eftir því
sem jeg hefi frjett og hefur
sýslumaður Rangæinga for-
göngu í því máli, ásamt öðrum
forystumönnum hjeraðsins. en
ákveðið hefur verið að fresta
því að hefja söfnun þar til
eftir páska.
•
Heklumerki.
DANSKUR verkamaður
sendir mjer línu og hefur hann
| fengið líka hugmynd og stung-
ið var upp á hjer í dálkunum
í gaer, en það er að hjálpa beri
þeim, sem orðið hafa illa úti
vegna hamfaranna í Hekhi.
En hann hefur þá hugmynd,
að gera ætti brjefmerki einskon
ar frímerki af Heklu gjósandi,
sem selt yrði frekar háu verði,
en það sem inn kæmi gengi til
hjálpar nauðstöddu fólki.
Hugmyndin er ekki slæm.
En illa lýst mjer þó á frjettirn
ar, sem berast úr Fljótshlíð-
inni,. að bændur ætli sjer að
skera niður 1800 fjár, þegar
komið er fram á vor og ærnar
komnar að burði. Ætli það sje
nauðsynlegt, að hlaupa að því
að lítt hugsuðu máli. Skynsam
legri. virðist ráðstöfun bænda,
sem búa undir Eyjafjöllum,
sem ætla að koma fjenaði sín-
um fyrir í högum nágrannanna.
•
Tveir flokkar
OG ILLA er vana brugðið, ef
þetta verður ekki mikið hita-
mál austur þar og jafnvel víð-
ar. Menn munu skiftast í tvo
flokka, niðurskurðarmenn og
hina,. sem ekki vilja drepa fje.
Kanske fer þetta út í pólitík
og þá er ekki að spyrja að því.
að skynsemin verður að víkja.
Það er mitt álit að minsta kosti.
Ástandið er alvarlegt hjá
bændunum, sem sjá gróður
jarðar hverfa undir kolsvarta
eldfjallaöskuna, en betra væii
að hafa vísindamenn með í
ráðum og heyra álit þeirra, áð-
ur en gripið er til örþrifaráða.
Þegar slys verða, eða nátt-
úruhamfarir. er hætta á að
menn missi jafnvægið og grípi
til einhvers, sem þeir sjá eftir
síðar meir.
En ólánið er nógu stórt, þó
að ekki verði það gert stærra,
Bjartari kvöld
STRAX á páskadagskvöld
tekur birtan að kvöldinu til
langt stökk hjá okkur hjer á
landi. Það á að flýta klukk-
unni aðfaranótt sunnudagsins
um eina stund og þess vegna
verður bjart klukkust. lengur
fram eftir á sunnudag, en á
laugardag. Það var skynsamleg
tillaga, sem fram kom og sam-
þykt var á Alþingi að klukk-
unni skyldi ekki flýtt fyr en
fyrsta sunnudag í apríl, í stað
fyrsta sunnudags í mars, eins
og áður tíðkast.
Vorið er að koma og dagarn
ir lengjast.
Gleðilega páska.
MEÐAL ANNARA ORÐA . . ..
Á Moskvafundinum er margf að sjá
RÁÐSTEFNA utanríkisráð-
herranna í Moskva hefur nú
um alllangan tíma verið for-
síðufrjett blaða um allan heim.
Hvert einasta orð utanríkisráð
herranna hefur verið skrað og
frjettamenn eru önnurn kafnir
við að spá hver áhrif Moskva-
fundurinn muni hafa á framtíð
ina, hvort samkomulag verði
að lokum um þetta eða hitt at
riðij hvers vænta megi að
Marshall og Bevin, Bidault og
Molotov geri á morgun.
Minna hefur verið sagt ura
undirbúning ráðstefnunnar og
umb^erfi hennar. Time birtir
þó nýlega greinarkorn í sam-
bandi við komu bandarískra
frjettamanna til Moskva. Þar
segir. meðal annars:
Leiðbeiningabæklingur.
Að minsta kosti Bandaríkja-
mennirnir höfðu verið búnir
undir það versta, er þeir komu
til Moskva. í 11 blaðsíðna bækl
ing var þeim skýrt frá vega-
brjefum .... máltíðum, sem
gætu jafnvel kostað 10 eða 20
dollara. hvernig fá mætti brjef
að heiman, skortinum á flutn-
ingjatækjum og vöntuninni á
fathreinsun á staðnum. Þá var
þeim sagt að láta bólusetja sig
við ýmsum sjúkdómum og hafa
meðferðis ullarfatnað og hlý
prjónavesti.
Rússar undirbjuggu sem best
ar viðtökur. Hópar verka-
manna fóru um með kústa og
pensla í hótelum og stjórnar-
byggingum. Flestir hinna 500
erlendu ferðamanna fengu að
setur, í hinu 15 hæða Moskva-
hóteli, en það er aðeins tíu ára
gamalt og það besta i höfuð-
borginni. Hótelið snýr út að
Mangzh flotatorgi, en öðru
megin við það er bandaríska
sendiráðið og Moskvaháskóli,
hinum megin gul hús og hinir
turnum skrýddu veggir Kreml
ins. Sunnanmegin snertir það
Rauðatorgið, en í norðurátt
sjest upp Gorkystræti til póst-
hússins og símabyggingarinnar.
i-j -. ■ . ! <*.'i u iifa..
Ferðaskrifstofa.
í marmaraanddyri Moskva-
hótels var aukið við enskumæl
andi starfsmenn ferðaskrifstof
unnar. Þetta starfsfólk slciþar
mönnum í herbergi, úthlutar
matvælaseðlum, útvegar leik-
húsmiða, sjer um kynnisferðir
og gefur holl ráð um veitinga-
hús _og næturklúbba. Einn af
helstu næturklúbbunum er á
efstu hæð sjálfs Moskvahótels,
en gegnum hina stóru glugga
hans er gott útsýni til Kremlin.
Danshljómsveit leikur þarna
næstum alla nóttina. .
í Metropole hóteli eru þjón-
arnir komnir í ný svört föt og
hvítar skyrtur, hljómsveitin
hefur verið stækkuð og áfengið
aukið í vínkjallaranum. Þá hef
ur einnig verið sett upp nýtt
látúnsgrindverk kringum gos-
brunninn á miðju dansgólfinu.
Brunnur þessi, sem einu sinni
var notaður til að geyma í glæ
nýjan fisk handa gestunum
varð fyrir löngu síðan víðfræg
ur sgm hættulegur vodkafull-
um næturhröfnum.
Búa í sendiráðunum.
Forystumenn sendinefnd-
anna á Moskvafundinum búa á
sendiráðsskrifstofum sínum ..
Marshall og nokkrir aðstoðar-
manna hans fóru til Spaso-
hússins, bandaríska sendiráðs-
ins, þar sem Bedell Smitt sendi
herra ljet utanríkisráðherran-
um í tje íbúð sína. Marshall og
bandaríska sendinefndin mun
starfa í bráðabirgðaskrifstof-
um. sem komið hefur verið fyr
ir í danssal og billiardherbergi
sendiráðsins. Bevin hefur kom
ið sier líkt fyrir í breska sendi-
ráðinu, hinni gamaldags Sofisk
ayahöll andspænis Kremlin við
Moskvufljot.