Morgunblaðið - 03.04.1947, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 03.04.1947, Qupperneq 9
Fimtudagur 3. apríl 1947 MOHGUNBLAÐIÐ 9 BRESKA ÞJÓÐIN BÝR VIÐ SKORT TÖKUM dæmi um enskan hálaunamann — það er að segja, sem er kallaður hátt laun aður í Englandi —. Ef hann fær 120 dollara á viku en á konu og tvö börn, verður hann að greiða 38 prósent í tekju- skatt til ríkisins. Ef hann á bif- reið, verður hann að greiða ár- lega skatt af henni? sem nemur 50 til 100 dollurum. Hann fær átta til sextán gallon af bensíni á mánuði, en hvert gallon kostar 50 cent, og er það auðvitað að mestu leyti skattur. Þrefalt húsverð. Ef hann vantar — og er svo heppinn að geta fengið — smá- hús í einhverju úthverfinu, kjallaralaust, óeinangrað og án miðstöðvarkyndingar, mun það kosta hann um 12,000 dollara, eða þrefalt verð þess 1938. Ef honum finnst hann þurfa endi- lega að kaupa eitthvað, getur hann leitað í auglýsingum á not uðum vörum, eins og þeirri, sem jeg sá í New Statesman: „Eitt eintak af Forever Amber, græn rúmábreiða (full stærð) án skömmtunarseðla og aluminiuri ketill“. Eiginkona hans mun standa í biðröðum við hverja búð og kaupa það sem hún fær. Að tveim eða þrem búðum undan- teknum getur hún hvergi fengið því skift, seip hún hefir keypt, hvað þá fengið peningana aft- ur. Hversu mikið, sem hún hat- ar kaupmanninn; má hún bakka fyrir að fá tvö sæmilega ný egg hálfsmánaðarlega og þrjár appelsínur við og við. Fjölskyldan getur heldur ekki notið þess að borða á veit- ingahúsum. Hún hefir þá reynslu af baltneskum þrjótum og flóttamönnum, sem virðast reka flest veitingahús í London að hún mun heldur kjósa að borða heima. Eitt kvöld í West End nægir til að fullvissa þau um, að hin gamla einlæga kurteisi og virðu leiki Lundúna er horfinn, ef til vill fyrir fullt og allt. Nú er West End orðin Broadway vesa linganna. Það er í West End, sem þú finnur einu mennina, sem eru skattfrjálsir í þessu landi. Það eru þeir, sem selja á svörtum markaði, innbrots- þjófar, fjárhættuspilarar og skækjur. Tekjur af óheiðarleg- um atvinnurekstri er þó að minnsta kosti óskattlagður. Fólkið er yfirleitt hvorki fram gjarnir kapitalistar nje sann- færðir sósialistar. Það býr í Ijósaskiftum þessara tveggja stefna og fær það versta úr þeim báðum. Afleiðingarnar koma ekki að- eins fram í lækkun siðgæðis- ins, heldur engu síður í áhuga- leysi, sem lýsir sjer í litlum af- köstum í námum og verksmiðj- um, fjölgandi afbrotum, sem eru óhjákvæmileg og algeng eft ir styrjöldina, og hinum sorg- legu tilhneigingum ungra manna að leita öruggrar vinnu í hinum vaxandi skrifstofu- báknum. Framleiðslan. Þar sem Bretland á nú allt undir sínum eigin auðlindum, án tekna frá öðrum löndum, munu framtíðarlífskjör þjóðar- Mikil átök þarf ti! að fleyta Bret- landi yfir núverandi vandræða- ástand Eftir Harold Hutchinson Síðarí grein innar fara fyrst og fremst eft- ir innanlandsframleiðslunni. Sú framleiðsla er ekki nógu stór um sig og þessvegna of dýr. En vegna þess hve hún er dýr, mun Bretland standast illa sam keppnina; þegar núverandi sölu markaðir bregðast. Skýringin fyrir hinni litlu framleiðslu er í fyrsta lagi sú, að aðaliðngrein- ar Bretlands tóku engum fram- förum fram að styrjöldinni, og í öðru lagi, að breskir verka- menn, sem gátu ekki gleymt ár- um atvinnuleysisins, reyndu að halda afköstunum litlum, til þess að geta látið verkið end- ast sem lengst. Það er vegna þessa að stjórn in og hin stóru verslunarsam- bönd verða nú að leggja áherslu á aukningu framleiðslunnar um allt land. „Ef þú erfiðar meira nú, muntu eiga betri tíma í vændum", segja auglýsinga- spjöldin, og: „Fyllið skipin og við munum fylla búðirnar“. Stjórnin beinir öllum áróðri sínum til að fullvissa verka- mennina um, að hún muni sjá öllum fyrir vinnu, þeir þurfi því ekki að óttast atvinnuleysi; og að afkoma þeirra. yrði þeim mun betri, sem þeir ynnu betur. Það er óneitanlega satt, að þessi viðleitni stjórnarinnar hefir borið harla lítinn árangur, en ef til vill stafar þetta af skilj- anlegri þreytu eftir stríðið. Lítil afköst. I sumum greinum iðnaðarins eru afköst verkamanna sögð vera aðeins 60 prósent afkast- anna fyrir stríð. Hæfni þeirra hefir minkað hlutfallslega meira, þar sem mörgum göml- um faglærðum verkamönnum missir við á hverju ári, og í mörgum iðngreinum, svo sem byggingum, hefir enginn ungur maður getað numið fagið í sjö ár. Það er einnig mikið um fjar vistir, einkum í námunum, vegna þess að menn hafa enga hvöt til að vinna fyrir meiru en þeir geta eytt á hverri viku. Við fáum því ekki nær því full afköst, þó að allir hafi næga vinnu að nafninu til. Þetta er eríiðasta vandamál okkar heima fyrir. Annað atriði þessa vandamáls er, að þegar iðngreinarnar keppa um vinnu- aflið, vilja ungir menn ekki leggja fyrir sig að vinna í hin- um óþrifalegri, erfiðari, hættu- legri og leiðinlegri atvinnugrein um, sem eru undirstaða bresks iðnaðar — námugreftri, járn- steypu og vefnaði. Heldur flykkjast þeir til nútíma verk- smiðja. En með þessu skapa þeir hættulegt ójafnvægi í iðn- aðinum; sem hefir þær afleiðing ar, að helstu vjelaverksmiðjurn ar og verksmiðjur, sem fram- leiða ýmsar neysluvörur, sjá fram á, að tilfinnanlegur skort- ur verður á kolum og járn- steypu á þessum vetri. Skortur á nýju vinnuafli. Námurnar skortir tilfinnan- lega nýtt vinnuafl. Þrátt fyrir það sá jeg stór auglýsingaspjöld í kolahjeruðum Welsh á þessa leið: „Látið skrá ykkur í Palestínu-lögregluna. Það er æfistarf“. Við þörfnumst verkamanna í vefnaðariðnaðinn næstum því jafn tilfinnanlega og okkur vant ar námumenn. Ástandið í vefn aðarborgunum er með því versta í landinu, og yngri verkamennirnir fara því ann- að. Við verðum að beita öllum ráðum til að fá konur til að vinna í vefnaðariðnaðinum. Á liðnum árum varð hús- móðirin að vinna, til að geta haldið lífi í ^jölskyldunni. En ef eiginmaðurinn getur nú unnið, aflar hann allra þeirra peninga, sem þau geta eytt, þar eð kaupið hefir tvöfaldast og lítið er hægt að kaupa. Ef það aftrar henni ekki frá að vinna, verður tekjuskatturinn til þess. Skattstiginn er þannig gerður, að konan verður að greiða nær því helming þess, sem hún vinn ur inn, í beina skatta, þegar tekjum hennar er bætt við tekj ur eiginmannsins^ eins og gert er við skattaálagninguna. Því segja þær í Lancashire: „Við ætlum okkur ekki að vinna fyr- ir bannsetta stjórnina“. Nær því allri framleiðslu er stjórnað af ríkisstjórninni, ann- aðhvort beinlínis eða með tak- markaðri úthlutun hráefna. Þrátt fyrir það, að raforka okk- ar nægir ekki til að fullnægja kröfunum, hefir stjórnin leyft framleiðslu á þrem fjórðu milljón rafmagnsofna. Fólk verður að nota rafmagn, þar eð kolin eru skömmtuð. Það orsakar of mikið álag og öðru hvoru rofnar straumurinn snögglega. Ljósin slokkna og suðuplatan kólnar. Þetta varir þangað til mesta álaginu linn- ir og heimilin fá aftur sinn skerf. Til 1950. Þetta mun haldast fram að 1950 og við því er ekkert hægt að gera. Iðnaðurinn eyðir miklu meira rafmagni en fyrir stríð- ið, og enda þótt við sæjum það fyrir mörgum árum, máttum við ekki sjá af einum einasta manni nje neinu efni frá hern- aðarframleiðslunni meðan á stríðinu stóð til að ráðast í að auka raforkuna. Við höfum þó byrjað á því núna. Nær því öll einkenni gamla Englands eru horfin nema lofts lagið. Hegðun fólksins hefir líka hnignað svo, að nú er nauð- synlegt að festa upp skilti við neðanjarðar brautarstöðvar, sem benda mönnum á að kurt- eisi flýti fyrir. Jeg hefi ekki ennþá sjeð neinn ungan mann standa upp í strætisvagni eða neðanjarðarsporvagni til að bjóða konu sæti sitt, hversu gömul, sem hún er, veikluleg eða hlaðin byrðum. Stundum stendur gamall gráhærður mað- ur af gamla skólanum upp, býð ur sæti sitt og ávítar ungu mennina hæglátlega. En það hefir engin áhrif. Frjálsræði Englendingsins til að gera það sem hann vill á sínu eigin heimili, svo framar- lega sem hann ónáði engan ann an, er algjörlega búið að vera. Maður nokkur^ sem ætlaði að byggja skýli í garði sínum með eigin vinnuafli, sótti um leyfi og fjekk svohljóðandi svar frá ráði því, er um þetta fjallar: „Sá, sem óskar eftir að byggja, með eigin eða ólaun- aðri vinnu, bílskúr, kolaskýli, veðurskýli, gróðurhús, vegg eða girðingu umhverfis lóð, verður fyrst að fá smíðarjett- indi. Slík rjettindi munu venju lega ekki verða veitt“. Slík skriffinsku-höft valda mikilli óánægju, hversu nauð- synleg sem þau eru til að trvggja að hvert fet af timbri fari þangað sem þess er mest þörf. Það er staðreynd, að skömtunin og flestar aðrar höml ur eru nauðs,ynlegar og það vit- um við líka flest. Við vitum, að við eigum ekki annars úr- kostar og fyrir það eigum við erfiðara með að þola þær. Við vitum, að stjórnin gerir í höfuð- atriðum, það sem hvaða bresk stjórn sem væri myndi verða að gera í þessum efnum. Þessvegna er 'stjórnin algjörlega örugg í sínum sessi, þó að hún njóti ekki mikilla vinsælda meðl al- mennings. Þá er jafnvel minni áhugi fyrir mögulegum breyt- ingum. Þreyta. Meiri hluti þjóðarinnar er bara orðinn þreyttur á ástand- inu, án þess að geta skýrt það nánar. En Ivor Brown, ritstjóri Observer, er ekki í vandræðum með að skýra það, og er hjer dæmi upp á hina fáguðu beiskju sem skín út úr skrifum hans, þegar hann lýsir fyrir milli- og efristjettar lesendum sínum, hvernig ríkið er skipulagt af nýju stjórninni: „Nýtt konungsríki hefir skapast, ríki með óskorað vald, ríki, sem þarf ekki að svara neinum spurningum nje áskor- unum, sem lögsækir en getur ekki verið lögsótt, sem getur rænt hvern mann húsi og eign- um og goldið honum þær skaða- bætur, sem það kýs, þegar þvi svo líkar. Það er hægt að reka harðstjóra af höndum sjer, en. stjórnardeildir deyja aldrei“. Þetta er hróp Englendings- ins, sem sjer hin þægilegu og ánægjulegu heimkynni sín molna niður og ,verða að því, sem hann mun vafalaust líta á sem sorphaug örlaganna. Meðalmaðurinn, sem hefir aldrei lifað sjerstaklega þægi- legu lífi, fannst hann samt vera þýðingarmikill þáttur í vold- ugu ríki og að óbreyttir útlend- ingar mættu vel öfunda hann. Hann er nú farinn að venjast því að sjá franska hesta vinna kappreiðar hjá okkur, ameríska hnefaleikamenn slá kappa okk- ar í þungavigt í rot, Ástralíu- menn vinna okkur í knattleik- um og alla vinna okkur í tennis. En honum finnst það samt ó- eðlilegt og ó-enskt, að við skul- um skulda Indverjum peninga en áhugi hans á framtíð þeirra getur ekki minni verið — og undarlegt, að við skulum á sama tíma lána Grikkjum fje. Áróður. Þar sem engir eru til, sem blessa okkur, er áróðrinum heima fyrir beitt til að láta okk ur þakka Guði fyrir það, að við erum ekki eins og aðrir menn, en það gerðu flestir Englend- ingar ótilhvaddir fyrir stríð. Okkur er ætlað að trúa, að þeg- ar sum lönd, sem nú blómstra, eru farin að gjalda þess að hafa sóað fje sínu með óhóf- legum lifnaði, munum við fara að uppskera laun okkar fyrir ráðvendni; erfiði og sjálfsaf- neitun. Frjettir eru notaðar til að telja hug í okkur. Breskur frjettaritari, sem ekur í amer- ískum bíl í New York, sagði okkur tildæmis nýlega, að eftir- spurn eftir breskum bílum í Ameríku færi vaxandi, vegna þess að þeir væru vandaðri. Sumir okkar, sem vita hvers- vegna breskir bílar eru eftir- sóttir, brosa háðslega, er við lásum þetta. Og öll blöð segja okkur frá unaðslegum — en án efa ósið- legum — máltíðum á svörtum markaði á Ítalíu og öðrum lönd- um, sem töpuðu styrjöldinni. Við sigurvegararnir förum nú pílagrímsferðir í tötralegum fötum til þeirra landa, sem voru hlutlaus, eða sem voru sigruð, og höldum fast utan um þá 300 dollara, sem er allt og sumt, sem stjórnin leyfir ,okk- ur að fara með út úr landinu á einu ári, og glefsum aðeins í nokkuð af sigurlaununum, sem við getum ekki fundið heima fyrir. Aldrei hafa utanfarir verið eins almennar. Aldrei hafa eins margir Englendingar verið sam mála um^ að taka BrUssel, Zurich, Róm eða jafnvel Dublin fram yfir England, sitt fagra heimaland.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.