Morgunblaðið - 03.04.1947, Qupperneq 16
. VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
AUSTAN kaldi, skýjað, en
úrkomulaust að mestu.
Fimtudagur 3. apríl 1947
Bruni á New York höfn
Fyrir skömmu var skýrt frá því í frjettum, að kveiknað hefði í
stóru farþegaskipi skamt frá Queen Elizabeth, rjett um sama
leyti og risaskipið breska var að leggja af stað frá New York.
Hjer á myndinni sjest hvernig slökkvibátar berjast við eldinn,
cn efst til vinstri sjest Queen Elizabeth.
Dðnskir komiministar missa
þriðjung fyigis
KAUPMANNAHÖFN í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
LANDSÞINGSKOSNINGARNAR í gær tóku til Kaupmanna-
hafnar, Fjóns og Norður-Jótlands. Kosið var í 28 af 76 lands-
þingsætum, því að Landsþingið ér kosið að nokkrum hluta
fjórða hvert ár. Kjósendur kjósa kjörmenn, sem svo aftur kjósa
landsþingmenn.
*—.—.— --------------„—4.
Náði 20 smái. af
vikri
Frá frjettaritara vorum
í Vestm.eyjum, miðvd.
I nótt og í dag hefur rek
ið hjer óhemju mikið af
vikri. Sumstaðar hefur
hann hlaðist upp í allt að
hálfs annars meters haVð.
I nótt sem leið rak víkur-
á land á Eiðin, en í aag
hefur verið hjer austan
átt og hefur hann þá rekið
inn í svonefndan Botn.
Reimar Hjartarson pípu
gerðarmaður tók í dag 20
smálestir af vikri til iðn-
aðar síns.
Bátar sem voru á sjó
fengu vikur í kælivatns-
pumpuna og stöðvuðust
vjelar sumra í allt að 4
klst. Afli báta með ueí var
sæmilegur í gær, en
nokkru minni í dag.
«5* W—■ 1 -I.—- 1 ■.»
Æskulýðssamkoma
„Bræðralags"
2. páskadag
,,BRÆÐRALAG“, — ki’isti-
legt fjelag stúdenta, gengst fyr-
ir æskulýðssamkomu í Tjarn-
arbíó á annan dag páska. Hefst
íamkoman klukkan 13,15 stund
víslega. Á samkomunni munu
m. a. biskupinn yfir Islandi og
Baldur Jónss. stud. med. flytja
ræður og Þorvaldur Steingríms
son leika á fiðlu með undirleik
Sigurðar ísólfssonar. Loks verð-
ur sýndur kafli úr kvikmynd
•— Aðgöngumiðar að samkom-
unni verða afhentir meðlimum.
æskulýðsfjelaganna í söfnuðum
Reykjavíkur í fordyri fríkirkj-
unnar á skírdag kl. 5—6 e. h.
■og laugardaginn fyrir páska kl.
5—7 e. h. ;,Bræðrafjelag“ hefir
fyrr í vetur gengist fyrir æsku-
lýðssamkomu, og þótti hún í
hvívetna takast prýðilega, enda
var hún mjög fjölsótt.
* ———- - -———
Frjetfasfofa segir
nasisla og kvisl-
inga hópasl lil
íslands
1 Kaupm.h. í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
„NORSK Telegram-
bureau“ tilkynnir, að yfir
1000 danskir nasistar og
allmargir kvislingai frá
öðrum löndum, hafi íarið
til Islands eftir uppgjöf
Þjóðverja.
Segir frjettastofan, að
menn þessir virðist líta á
Island sem cinhverskonar
áningarstað, því að mark
mið þeirra sje að leita sjer
landvistar í Suður-Amer-
íku.
Sósíaldemokratar
882 kjörmenn.
Sósíaldemokratar fengu 882
kjörmenn, og hafa því unnið
24 frá síðustu landsþingskosn-
ingum 1939. Radikalar fengu
116, töpuðu 68. íhaldsmenn
fengu 288, töpuðu 78. Vinstri-
menn fengu 534, unnu 103.
„Retsforbundet“ fengu 28, unnu
24. Kommúnistar fengu 176,
unnu 109. Dansk Samling
fjekk sex, tapaði einu.
Kommúnistar töpuðu
fylgh
Ef úrslitin í gær eru borirf
saman við þjóðþingskosninguna
1945, þá hefir Sósíaldemokröt-
um greinilega aukist fylgi.
Vinstrimenn hafa einnig aukið
fylgi sitt, einkum í Kaup-
mannahöfn. Kommúnistar og
stuðningsflokkar ríkisstjórnar-
innar, hafa greinilega tapað
fyigí-
Sósíaldemokratar fengu í
gær 42,7% af öllum greiddum
atkvæðum, en 33,1% 1945.1
Vinstrimenn 22,1%, en 19,5%
1945. Kommúnistar fengu
10,3%, en 15,5% 1945. íhalds-
menn fengu 14,9%, en 19,7%
1945. Radikalir fengu 6,2%, en
7,5% 1945.
Hörð kosningabarátta.
Sósíalistar og kommúnistar
háðu harða kosningabaráttu.
Aðal kosningamál þeirra sner-
ust um öflun nauðsynja handa
þjóðinni, gjaldeyrisskuldir og
erfiðleika um lántökur erlendis.
Prentaraverkfallið gerði borg
araflokkunum í Kaupmanna-
höfn erfitt fyrir í kosningabar-
áttunni.
Landsþingskosningar hafa að
jafnaði ekki í för með sjer nein
áhrif um störf eða stefnu þjóð-
þingsins, en Sósíaldemokratar
búast við því, að kosningarnar
muni stytta stjórnartíð núver-
andi ríkisstjórnar.
Dýrkeyptur stuðningur.
Christmas Möller segir, að
það sje dýrkeypt að vera stuðn-
ingsflokkur ríkisstjórnarinnar.
Fylgisaukning vinstrimanna
vegur ekki upp á móti fylgis-
tapi íhaldsmanna og radikala.
„Fyns Stifttidende", málgagn
íhaldsmanna, segir, að úrslit
kosninganna skapi nauðsyn
þess, að íhaldsmenn og radi-
kalar taki til rækilegrar endur-
skoðunar afstöðu sína til stjórn-
arinnar.
Flokkshagsmunastefna
komma.
Hedtoft Hansen, foringi Sósíal
demokrata, segir að fylgishrun
kommúnista ' hafi byrjað við
sveitastjórnarkosningarnar ’46
og orðið enn áþreifanlegra við
kosningarnar í gær. Flokkshags
munastefna kommúnista og
pólitísk smákaupmenska höfðu
ekki tilætluð áhi’if.
Aksel Larsen, foringi komm-
únista, játar fylgistap flokks-
ins.
„Cosið getur snert allt
daglegt líf hjer á landiu
Vísindaleg rannsókn Heklugossins
skipulögð
Á FUNDI, sem haldinn var í Atvinnudeild Háskólans í
gær með íslenskum vísindamönnum, sem fást við rann-
sóknir í sambandi við Heklugosið, var rætt um verkefní
þeirra og gengið frá skipulagningu rannsóknanna.
Við umræður um verkefni
rannsóknanna, kom í Ijós, að
gosið snertir allflestar grein-
ar vísindanna og getur enn-
fremur varðað alt daglegt líf
hjer á landi og í sjó. Þá var
og rætt um þau tæki, sem
notuð yrðu, og var það á-
hugamál allra, að neyta þar
nýunga í vísindum og tækni,
eftir því sem völ er á. Ýmis
tæki eru til og mörg má
smíða hjer á landi, en mikið
vantar af dýrum og marg-
brotnum mælitæjum, sem
nauðsynlegt er að afla til
landsins.
Varðandi skipulagningu
var ákveðið að skipta verk-
efnunum milli helstu grein-
anna þannig, að jarðfræðing
arnir annist almenná jarð-
fræðilega lýsingu á gosinu.
útbreiðsla og magn öskufalls
ins verði athuguð af jarð-i
fræðingum í samvinnu við'
veðurstofu og atvinnudeild
Háskólans, sem einnig annist
söfnun sýnishorna af ösku
og vatni til rannsókna. Rann
jsókn ösku, vatns og h rauns
I framkvæmir atvinnudeildin.
Jarðeðlisfræðilegar rannsókn:
jir munu próf. Trausti Ein-
I arsson og Gunnar Böðvarssort
annast í samráði við dr. Þor-
kel Þorkelsson, en Veðurstof
an tekur einnig þátt í þess-i
um rannsóknum.
Þá verða einnig gerðah
ýmsar athuganir í sambandi
við óbein áhrif gossins.Prófi
jessorar í læknisfræði, ásamti
landlækni fylgjast með áhrif
jum vatns og lofts á fólkið a,
gossvæðunum. Dýra- og fiski,
jfræðingar athugi dýralíf ái
landi og í sjó og. grasafræð-
ingar gróður.
Áhrif öskunnar á jarðveg,
verða einnig rannsökuð.
Miðstöð fyrir rannsóknirn-
ar er í Reykjavík, í Atvinnu-
deild háskólans og þar verð-
ur veitt móttaka sýnishorn-
um og öllum upplýsingumi
varðandi gosið. Ennfremuh
verður komið á fót stöðvumí
í námunda við gosstöðvamar„
til athugana á gosinu.
888 sækja um
88 íbúðir í bæjarhús-
unum við Skúlagötu
Á FUNDI bæjarráðs, sem haldinn var í gær, voru lagð-
ar fram 888 umsóknir um íbúðir í bæjarbyggingunum við
Skúlagötu 68 til 80. Borgarstjóri skýrði frá því á fundin-
um, að hann, að nákvæmlega athuguðu máli, myndi leggja
til, að við úthlutun íbúðanna yrði höfð fjögur aðalsjónar-
mið.
Að svo mæltu gerði borg-
arstjóri grein fyrir hverju
þeirra og eru þau þessi:
Að sjáfsögðu komi ekki
aðrir umsækjendur til greina
en þeir, sem búi nú í alveg ó-
viðunandi og heilsuspillandi
andi húnsnæði, að dómi hjer-
aðslæknis, eða eru með öllu
húsnæðislausir.
Að úthlutun íbúðanna skuli
fyrst og fremst miða við
barnafjölda umsækjenda
(innan 16 ára), en þó jafn-
framt haft í huga að rýma
„bragga“-hverfi.
Að umsækjendur, sem hafi
flutt til Reykjavíkur árið
1941 eða síðar, komi ekki til
til greina við úthlutunina.
Að umsækendur, sem hafi
ekki 2 börn eða fleiri á fram
færi, komi ekki til greina,
hvernig sem ástæður eru að
öðru leyti.
Á fundinum var borgar-
stjóra falið að leita álits heil
brigðisnefndar um umsóknir,
svo og að fá sannprófað, eft-
ir föngum, að umsækendur*
hafi gefið rjettar upplýsing-
ar um hagi sína.
Hekluaska fellur
víðsvegar í Evrépu
Frá mörgum Evrópulönd-
um, meðal annars Sviss 0g
Finnlandi berast fregnir um'
öskufall frá Heklu. Snjórinni
á aðal skíðastöðum í Sviss
var rauðleitur í gær.