Morgunblaðið - 23.04.1947, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.04.1947, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 23. apríl 194T5 Aíít breytt, nema vebráttan, segir Þorfinnur Kristjánsson HJER HAFA ALLIR hlutir breyst, nema veðráttan, sagði Þorfinnur Kristjánsson, prent ari, er hann leit inn til mín á dögunum. Þá var útsynning- urinn í algleymingi, ýmist regn eða hagljel með stormi, en sá til sólar við og við. — Þorfinnur kannaðist við þetta frá hinni gömlu Reykjavík. En þegar jeg geng um hin nýju hverfi bæjarins, þar sem voru annað hvort grjótholt eða mýrar áður en jeg fór, finnst mjer jeg alls ekki vera kominn til Reykjavíkur. Til þess að sannfæra mig um að svo sje, þarf jeg að sjá til Esjunnar eða hafa aðra fjalla sýn. Þorfinnur fór til Hafnar árið 1918, og hefur ekki kom- ið heim síðan þangað til nú, að nokkrir vinir hans buðu honum heim, til þess að sitja 50 ára afmæli Prentarafje- lagsins. Hann hefur ekki frá neinu að hverfa í Höfn á með an þar er prentaraverkfall. Aðaldeiluefnið þar, er um vinnutímann, er prentarafje- lagið í Höfn vill að verði stytt ur, en vinnuveitendafjelagið er á móti stytting vinnutím- ans vegna þess að það lítur svo á, að Danir þurfi mikið á sig að leggja, til þess að hægt verði að rjetta við fjárhag þjóðarinnar, og því sje þetta óhentugur tími til að fækka vinnustundum manna. En það var ekki um þetta, sem við Þorfinnur töluðum, heldur um starf hans í Höfn. Hann hefur mestallan tím- ann, síðan hann kom þangað, verið starfsmaður hjá prent- smiðju S. L. Möllers, er lengi var til liúsa í Hestemölle- stræde, en er nú fyrir mörg- um árum flutt í nýtísku hús- næði í Rosenörens Allé. — Er það mikið fyrirtæki. En ís- lenskar bækur, sem þar eru prentaðar, eru nú orðnar fáar á ári hverju. Hefur Þorfinn- ur lengi verið eini íslenski setjarinn sem þar hefur starfað. Nokkrum árum fyrir stríð setti Þorfinnur á fót frietta- stofu fyrir íslenskar frjettir handa blöðum og öðrum stofn unum í Danmörku. — Kvaðst hann fá öll helstu blöðin hjeð an að heiman, og semja stutt- an útdrátt úr þeim. Sendir hann út frjettatilkynningar sínar tvisvar á mánuði. Með því móti að hafa frjettaút- idrátt þenna stuttan og gagn- orðan, nota blöðin hann. En lítið er það, sem Þorfinnur fær í aðra hönd fyrir þessa frjettaþjónustu sína og land- kynning. Á síðastliðnu ári tók Þor- finnur að gefa út lítið mán- aðarblað er hann nefnir Ileima og erlendis. Fjallar blaðið um fslendinga í Dan- mörku bæði fyrr og síðar. Tildrögin til þessa blaðs míns voru þau segir hann að Georg heit. ólafsson, banka- stjóri, mæltist til þess, að jeg yrði Dansk-islandsk Samfund til aðstoðar, við að safna afni í bók um fslendinga í Dan- mörku. Leitaði jeg til all- margra manna, og bað um upplýsingar. En svörin komu dræmt. Sá jeg að ekkert gat orðið úr, að fá á skömmum tíma efni í slíka bók. Og þá datt mjer í hug að gefa út blað. Þar sem efni þetta kæmi út smátt og smátt og varð- veittist á þann hátt. Hefur þessu litla blaði mínu verið vel tekið. Síðan tók Þorfinnur að lýsa því fyrir mjer, hvernig hann minntist Reykjavíkur eins og hún var, þegar hann fór hjeð- an. — Þá var hafnargerðin skammt á veg komin, engin rafveita, og Nathan og Olsens hús langstærsta húsið í bæn- um. En íbúatala bæjarins rjettur þriðjungur á við það sem hún er nú. Síðan þetta var eru þó ekki liðin full 30 ár. Þorfinnur bað mig að skila þakklæti sínu til þeirra blaða- útgefenda, sem hafa styrkt frjettastarfsemi hans, með því að senda honum blöð sín ókeypis. Kvaðst hann vonast eftir því að hann gæti í fram- tíðinni aukið svo þessa starf- semi sína, að hún kæmi að meiri notum en hingað til. Mikil aðsókn að æskulýðsfundi á Akureyri Frá frjettaritara vorum á Akureyri, mánudag. Æskulýsfundur var haldinn í Skjaldborg s.l. sunnudag. Til fundarins var stofnað með sama hætti og æskulýðsfundur- inn 1 Tjarnarbíó í Reykjavík. Hjer var fundur þessi hald- inn á vegum kirkjunnar og , templara. Aðsókn var eins mik- il og húsrúm leyfði. Dagskráin j hófst með því að ungfrú Þór- | gunnur Ingimundardóttir og Guðrún Kristinsdóttir ljeku fjór hent á píanó. Þá söng Jóhann Konráðsson einsöng með undir- leik Askels Jónassonar. Ræðu flutti sr. Pjetur Sigurgeirsson. Talaði hann um Krist, hina sögulegu staðrcynd um komu hans í heiminn cr* hvernig kristindómurinn væri raunveru lega kominn til þess að vera hjálpræðisvegur mannsins frá eymd og synd. Kallaði hann á æskuna til þess að láta Krist verða raunverulegan í þeirra eigin lífi, því hún ætti að setja hæst, að æskan ætti að erfa ís- land og það væri æskan, sem ætti að vinna þjóðina fyrir Krist. Mikil þátttaka var í almenn- um söng. Loks var kvikmynda- sýning, þar sem sýndar voru myndir frá útlöndum og frá ýmsum merkum atburðum í Reykjavík og víðar. H. Vald. Tollar lækkaðir á heimilisvjelum FJÁRHAGSNEFND N.D. flutti fyrir nokkru, samkv. beiðni fjármálaráðuneytisins, frumvarp um breytingu á tollskránni, og var þar farið fram á nokkrar lagfæringar. Aðaltillaga nefndarinnar er lækkun tolla á heimilisvjel- um og búsáhöldum, hvort sem þau eru rekin fyrir raf- magni eða ekki. Árið 1945 var verðtollur á þvottavjelum og hrærivjel- um lækkaður úr 30% í 10%. Nú er lagt til að þessi toll- ur lækki í 8%, og auk þess sje lækkaður verðtollur á öðr um heimilisrafmagnsvjelum og búsáhöldum úr 30% í 8%. Sigfús Sigurhjartarson bar frant þá brtt., að verðtollur- inn á heimilisvjelum skyldi lækkaður í 2%, en aðeins af þeim vjelum og búsáhöldum, sem reknar eru fyrir raf- magni. Litlar umræður urðu um frv. þetta í gær. Var Sigfúsi bent á að þótt yfirboðstillög- ur hans gengju lengra til lækkunar, yrði útkoman síst betri, því að í tillögum nefnd- arinnar væru teknar upp all- ar vjelar og búsáhöld, hvort sem þau eru rekin með raf- magni eða ekki. Voru síðan tillögur nefnd- arinnar samþykktar og frv. vísað til 3. umræðu. Lög Fern lög voru afgreidd frá Alþingi í gær. í Ed. breyting á lögum um tannlækningakennslu við Há- skólann: að miða skuli kennslu og próf við það að tannlækninganáminu verði lokið á 4—5 árum í stað 7 nú. f öðru lagi breyting á raf- orkulögunum. Eru það smá- vægilegar leiðrjettingar. í Nd. lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja Ól- afsfjarðarkaupstað jörðina Hringverskot í ölvusi og heimild til að selja Dalvíkur- hreppi jörðina Böggvisstaði. Leitað að júgósiavn- eskum glæpa- mönnum Rómaborg í gærkvöldi. BRESK herlögregla og ítalskir lögreglumenn leita nú að 16 júgóslavneskum glæpa- mönnum, sem leystir voru úr haldi í gærkvöldi, er 1,000 Júgóslavar, sem andvígir eru Tito, rjeðust á lest þá, sem flytja átti afbrotamennina til Lipari-eyjar. Hinir þúsund Júgóslavar voru á leið frá breskum búð- um í námunda við Neapel til breska hernámssvæðisins í Þýskalandi. Lest sú, sem þeir voru í, stoppaði við hliðina á lest afbrotamannanna, um 80 mílum fyrir sunnan Róm. Þegar hinir þúsund kom- ust að því, að landar þeirra voru fangar í hinni lestinni, rjeðust þeir á hana og leystu þá úi' haldi. — Reuter. Víðavangshlaupið 1947 \Vavan Jptct V ' ttuuit tt tut/f jR-hój'ií 3 gLant/okðhkifkjt <* iTjofrVXS Örvarnar sína leiðina, sem hlaupin verður. Víðavangshlaup ÍR 1947, það 32 í röðinni, fer fram, eins og venjulega, á sumardaginn fyrsta 24. þ. m. og verður nú keppt bæði í 3. og 5 manna sveitum. Af tryggð við þá hefð, sem komin er á, að hlaupið endi sem næst miðbænum, er enn verið að reyna að velja hlaupa- leiðina þannig, að svo geti ver- ið. En sí og æ keppast skipu- lagsyfirvöld bæjarins við það, að útiloka alla möguleika til þess að nokkur slíkur kappleik- ur geti verið tengdur við mið- bæinn. — Þrjú síðastliðin ár var þolanlega mögulegt að koma þessu fyrir, þó með miklu lagi í fyrra. Og nú er svo komið, að eftir mikla leit fannst aðeins eitt einasta, þó fremur þröngt, sund í húsa- og gatna-krans út- hverfa bæjarins, þar sem unnt var að koma hlaupinu fyrir. Þó er þarna mikið af girðingum og skurðum, braggatóftum og fl., sem óþægindum veldur. Hjer er nú kort yfir hlaupa- leiðina í ár. Geta bæði keppend- ur og áhorfendur áttað sig á leiðinni, eftir kortinu. — Um leið vil jeg minnast á nokkur atriði við alla þá, sem langar til að horfa á hlauparana, og vilja að hlaupið geti farið fram fallega og óhindrað, — en að því vona jeg að alljr vilji stuðla eftir bestu getu. Það hefir oft viljað brenna við, að áhorfendur hafa þrengt svo mjög að hlaupurunum, að þeir hafa átt ervitt með að kom ast í mark. Jafnvel hefir það borið við, að síðustu mönnunum hefir verið algerlegai varnað það. Þetta má ekki eiga sjer stað. Viljum við enn reyna að treysta því, að allir áhorfendur geri sitt til að koma í veg fyrir slík leik- spjöll. Það geta þeir best gert með því að troðast ekki of nærri sjálfir og með því að minna aðra á það. Munið, að þegar sjónar- hornið er stærra, þá sjer mað- ur meira og yfir stærra svæði. Reynið því að standa ekkl nærri hlaupabrautinni. Og at- hugið annað, allir þið sem hærri eruð! Lofið þeim, sem lægrí eru, að standa fyrir framan ykk ur, einkum börnum, og hrindið þeim svo ekki fram með þvi að leggjast eða þrýsta á þá. Á dálitlum bletti verður hlaupið nú að fara fram á brautum í Hljómskálagarðin- um. Áhorfendur! Farið ekkert niður í garðinn! Standið aðeins á Sóleyjargötunni. Ef þið raðið ykkur þar á vestur-gangstjett- ina, á þann hátt, er jeg nefndi hjer á undan, þá geta mörg þúsund manna sjeð hlauparana í garðinum — og sjeð þá vel —• svo að á betra verður ekki kos- ið, og það einmitt einhvem skemmtilegasta hluta hlaupsins, þegar úrslitin eru að ráðast. Þeir, sem verða með bíla sína á ferðinni, eru beðnir að gæta þess vel, að vera ekki í vegi fyr- ir hlaupurunum, nje renna inn á milli þeirra; og fara aldrei það nærri þeim að ryk frá bílaum- ferðinni geti rokið á hlaupar- ang eða bílaumferðin hindrað þá eða truílað á nokkurn hátt. Á Sóleyj argötunni biðjum við þá, sem með bíla sína eru, að stöðva þá þar ekki eða vera> þar með þá, nema þá í einfaldri röð við austur gangstjettina. Hlaupaleiðin verður vel merkt með smáflöggum, áletruð um, eins og í fyrra. Gætið þessf þið, sem nærri þeim komið, —* og áminnið börnin um það líka — að hreifa ekki þessi flögg fyr en hlaupið er húið. Þá mega börnin eiga flöggin og leika sjei; að þeim. Hittumst svo heil á sumardag inn fyrsta með „gleðilegt sum- ar“ í huga hvernig sem viðra kann. ÍR-ingur,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.