Morgunblaðið - 30.04.1947, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. apríl 1947
- Ufför Danakonungs
Framh. af bls. 1
500 krónur fyrir gluggaútsýni.
Frá Hallarkirkjunni fer lík-
fylgdin yfir Höjbro, Strik-
ið, Ráðhústorgið og Vesterbro-
gade að aðaljárnbrautarstöð-
inni.
Fyrir löngu er búið að leigja
út alla glugga meðfram götum
þeim, sem konungslíkfylgdin
fer um og hafa sumir gluggar
verið leigðir fyrir allt að 500
krónur, en svalir fyrir allt að
2000 krónur.
Tveir þjóðhöfðingjar.
Tveir erlendir þjóðhöfðingj-
ar verða viðstaddir útför kon-
ungs. Eru það Hákon Noregs-
konungur og Sveinn Björnsson
forseti Islands. Auk þess verða
viðstaddir jarðarförina Olav
Noregsprins og Gustav Adolf
krónprins Svía, en auk þess eru
margir fulltrúar þjóðhöfðingja
og ríkisstjórna komnir til Kaup
mannahafnar.
Útfararathöfnin.
Útfararathöfnin hefst með
stuttri minningarathöfn í Hall-
arkirkjunni, þar sem Fuglsang-
Damgaard biskup flytur bæn.
Þar næst hefst sorgargangan og
fara fyrir henni riddarar úr líf
verði konungs og þá sveit
breskra sjóliða og danskra sjó-
liða.
Hirðmarskálkurinn gengur
næstur líkvagninum að framan,
en sex hestar ganga fyrir vagn-
inum og 24 liðsforingjar sitt
hvoru megin við vagninn.
Reiðhestur konungs kemur
næstur á eftir líkvagninum. Þá
kemur Friðrik konungur og
karlar af konungsættum og því
næst fulltrúar erlendis frá. —
Þá koma í líkfylgdinni konur
af konungsættum.
Neiiendam biskup prjedikar
í Hróarskeldu dómkirkju, en
Rosendal biskup kastar rekun-
um.
Öllum skemtistöðum í Dan-
mörku verður lokað í dag.
Sýslufundur N-ísa-
fjarðarsýslu að heij-
asf
SÝSLUFUNDUR Norður
Isafjarðarsýslu verður settur á
Isafirði í dag. Mörg mál liggja
fyrir fundinum.
Mikil harðindi og snjór ligg
ur yfir allri jörð hjer við Djúp.
Hefir ekki komið jafn mikill
snjór hjer síðan 1910, er harð
indaútlit hið mesta, þó mun
heyskortur ekki verða tilfinn-
anlegur fyr en kemur fram í
maí ef harðindi haldast, þá
byrja örðugleikar aðallega ef
harðindin haldast fram á sauð
burð. I dag er logn og sólskin
en frost að nóttu og kalt loft.
Páill Pálsson.
FORSTJÓRI DÉUTSCHE LUFT-
HANSA DÆMDUR
BERLlN: — Dr. Kurt Wigelt, for-
stjóri þýska flugfélagsins Deutsche
Lufihansa, hefur verið dæmdur í
tveggja ára fangelsi.og 1,250 ster-
lingspunda sekt, fyrir að selja hluta-
hréf. Hemámsstjóm bandamanna
héftir bannað sölu og yfirfærslu
hltótabréfa, þar til öðruvísi verður
ókveðið.
Þáitur úr Álfafelli.
<9
Leikfjelag Rcykjavíkur hefir nú sýnt æfintýraleikinn Álfa-
fell fjórum sinnum fyrir fullu húsi og við góðar undirtekt-
ir. Þessi mynd er úr fyrra þætti og eru á henni: Erna Sig-
urleifsdóttir sem Frostrós, Þorgrímur Einarsson í hlutverki
Svals, þá Róbert Arnfinnsson í hlutverki Ólafs og Guðjón
R. Einarsson sem Tófa. Næsta sýning verður á morgun kl.
4 í Iðnó.
Rannsókn út af byggingar-
kostnaði nýju síldarverk-
smiðjanna
MARGIR þingmenn í efri deild kröfðust þess mjög einbeitt-
lega í gær,, að hafin yrði nú þegar rannsókn á byggingu nýju
síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði og Skagaströnd, svo að úr
yrði skorið, hvað valdið hefir hinum gífurlega kostnaði, sem
orðið hefir við þessar framkvæmdir.
Fjármálaráðherrann, sem þessi mál heyra undir, lýsti yfir,
að þessi rannsókn yrði látin fram fara og væri hún þegar hafin.
Til umræðu var í Ed. í gær
frv. um hækkun á ríkisábyrgð
fyrir lání^vegna þessara fram-
kvæmda. Kom fram brtt. um
að ábyrgðarheimildin yrði enn
hækkuð úr 38 milj. kr. upp í 43
milj. kr. Var tillaga þessi fram
borin fyrir tilmæli stjórnar
Síldarverksmiðja ríkisins, og
rökstudd með því, að byggja
þyrfti upp aftur skemmu þá
hina miklu á Siglufirði, sem
hundi á dögunum.
Fjárhagsnefnd deildarinnar
fjelst á, að ábyrgðarheimildin
yrði hækkuð eins og um var
beðið.
Miklar umræður urðu um
málið í deildinni. Þar upplýstist
m. a., að upphaflega hefði kostn
aðurinn við þessar framkvæmd
ir verið áætlaður 10 milj. kr.
og ábyrgðarheimildin miðuð við
þá upphæð. Svo hefði verið far
ið fram á að hækka ábyrgðina
upp í 15 milj. kr., þar næst í
27 milj. og enn í 38 milj. Og
nú væri ábyrgðin komin í 13
milj. kr.
Komu fram í ræðum margra
þingmanna (Bernh. Stef., Þ. Þ.,
G. J., P. Zoph., Herm. J.) mjög
sterk gagnrýni á störf bygging-
arnefndar, sem hafði þessar
framkvæmdir með höndum fyr
ir ríkið. Kröfðust þeir ýtarlegr-
ar og gagngerðrar rannsóknar á
öHum gangi málsins. Jafnfamt
tóku sumir svo djúpt í árinni,
að þeir kröfðust sakamálsrann-
sóknar.
Töldu þessir þingmenn, að
ekki væri verjandi, að lögfesta
ábyrgðarheimildina nema ráð-
í'---------------------------
herra lýsti yfir, að rannsókn
yrði látin fram fara.
Fjármálaráðherra upplýsti að
ráðuneytinu hefði þegar borist
krafa um rannsókn frá stjórn
L. I. Ú. En áður en sú krafa
kom fram, hefði ráðun. skift
um yfirstjórn bygginganna, tek
ið hana úr höndum byggingar-
nefndar og fengið hana stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins og fal
ið henni að hraða byggingunum
svo að þæ£ gætu orðið nothæfar
« næstu síldarvertíð. Ennfrem-
ur hefði ráðuneytið falið stjórn
Síldarverksmiðjanna að rann-
saka alla kostnaðarliði við
byggingarnar og reyna að finna
orsakir þess, að kostnaðurinn
varð svo gífurlegur, sem raun
ber vitni.
Taldi ráðherra eðlilegt að
fram kæmi krafa um rannsókn
á þessu máli, enda væri þegar
gerðar ráðstafanir í þá átt.
Fráskilin kona kvik-
myndaframieiðanda
fær 3,250.000 dollara.
Los Angeles í gær.
LOUIS B. Mayer, forstjóri
Metro Goldwyn Mayer kvik-
myndafjelagsins, fjekk í gær
skilnað við konu sína, sem er
62 ára að aldri.
Kona Mayers mun fá 3,250.
000 dollara, en þessi 'heims-
þekti kvikmyndaframleiðandi
er hæst launaði maður Banda-
ríkjanna. — Reuter.
Kunnustu bridge-spilarar Breta
koma til íslands í næstu viku
Millilandakepni milli Bretlands og íslands
í NÆSTU VIKU eru væntahlegir hingað til lands fjórir kunn-
ústu bridge-spilarar Breta. Ætla þeir að keppa hjer í millilanda
leik í bridge við íslendinga. Hafa farið fram samningar um þetta
milli „The British Bridge League“ og Bridgefjelags Reykjavíkur.
Móttökunefndin.
Sjerstök móttökunefnd hefur
verið skipuð fyrir alllöngu og
eiga. sæti í henni þeir: Pjetur
Sigurðsson, Pjetur Halldórs-
son og Hörður Þórðarson.
Hefur svo verið ákveðið, að
fyrst skuli fara fram millilanda
kepni í bridge; milli Stóra-
Bretlands og Islands, og er það
í fyrsta sinn að ísland heyjir
millilandakepni í bridge, og má
segja, að ekki sje þá ráðist á
garðinn þar sem hann er lægst
ur. Kepni þessi mun hefjast um
8. maí, og mun verða kept í
Tjarnarlundi. Ekki hefur enn-
þá verið ákveðið um nánari til-
högun millilandakepninnar, en
að henni lokinni, mun bridge-
meistarar Islands keppa og síð-
ar önnur lið, er til þess munu
valin. Keppnisstjórn skipa þeir:
Pjetur Sigurðsson, Hermann
Jónsson og Zóphonías Pjeturs-
son.
Foringi landsliðsins hefur
verið valin Arni M. Jónsson,
en auk hans hafa verið valdir
til þess að skipa landsliðið
þessir menn: Benedikt Jóhanns
sont Einar Þorfiflsson, Gunnar
Pálsson, Hörður Þórðarson og
Lárus Karlsson. Eru þetta allt
svo þektir spilarar og keppnis-
menn, að óþarfi er að kynna þá
nánar.
Bresku spilararnir.
Bretarnir, sem hingað koma
eru eihverjir bestu bridgespil-
arar er þeir eiga völ á. Sann-
kallað úrvalslið. Þeir eru M.
Harrison-Gray, S. J. Simon,
Jack Marx, Ewart Kempson og
John Hastie.
Foringi fararinnar er M.
Harrison-Gray, frægasti spil-
ari Englands. Hann hefur tekið
þátt í öllum millilanda og al-
þjóðakeppnum Breta frá 1936.
Lið það er hann hefur verið
foringi fyrir hefur unnið nær
allar keppnir er þeir hafa þátt I
í frá árin 1936. Hann er núver-
andi meistari í einmennings-
keppni. Ritstjóri er hann að
besta breska bridgetímaritinu,
„Contract Bridge Journal“.
Hann er álitin tvímælalaust
besti bridgemaður í London.
S. J. Simson er heimsþektur
undir nafninu „Skid“. Hann
hefur verið ,,makker“ Harri-
son-Gray’s frá 1935 og hefur
tekið þátt í mörgum alþjóða-
keppnum bæði á Englandi og
erlendis. Hann hefur eins og
Harrison-Gray skrifað mikið
um bridge, en heimsfrægð hef-
ur hann hlotið fyrir metsölu-
bók sína um bridge „Why You
Lose at Bridge“. Sú bók er
mjög vel kunn meðal bridge-
spilara hjer heima.
J. Marx hefur verið í liði
með þeim Harrison og Simon
síðan 1935. Hann er álitin besti
bridgegagnrýnandi Englands.
Hann var í hernum i stríðinu
og dvaldi þá um tíma á ís-
landi. Simon er talinn sjötti
besti spilari í London en Marx
sá áttundi.
E. Kempson er tvímælalaust
besti bridgespilari Norður-Eng
lands og mjög þektur fyrir rit
sín um bridge.
J. Hastie er besti bridge-spil
ari Skotlands.
Það er mjög gleðilegt að
„Bridgefjelag Reykjavíkur“
skyldi eiga þann stórhug að
bjóða heim slíkum stórmeist-
urum, og þessir bresku spilar-
ar eru. Varla má búast við
sigri gegn slíku liði í fyrsta
sinn er við keppum við erlenda
stórmeistára eins og þessa, en
vonandi standa okkar menn
sig með heiðri, og ekki er hægt
að spyrja um fyr en að leiks-
lokum.
Aðalatriðið er þó að við mun
um mikið af þessari fyrstu
heimsókn læra, og verða betur
undirbúnir slíka leiki í fram-
tiðinni.
Kínverjar lá skip
frá Bandaríkjimum
Washing’ton í gærkvöldi.
TILKYNT hefur verið í
Washington, að Bandaríkja-
stjórn muni láta kínversku
stjórnina fá allmörg herskip
og fljótandi þurrkvíar. —
Bandaríkin munu og taka að
sjer að þjálfa menn á skipin,
auk þess sem þau hafa í
hyggju að lána 100 liðsfor-
ingja og 200,óbreytta sjóliða,
til að kenna Kínverjum ýmis-
konar flotastörf.
Tala skipa þeirra, sem kín-
verska stjórnin á að fá, hef-
ur ekki verið tilkynt, Vitað
er þó, að meðal þeirra eru
flugvjelaskip, orustuskip,
tundurspillar og kafbátar.
— Reuter.
Verslaniropnartll
kl. 7 á fösludag
I SAMNINGUM verslunar
fólks i Reykjavík, sem gerðir
voru s.l. haust kveður svo á
um, að sumartími verslana
skuli lengjast um einn mánuð,
það er að verslunum skuli lok
að kl. 7 e.h. á föstudögum og
kl. 12 á hádegi á laugardögum.
Byrjar sumartíminn nú 1. maí
og stendur til 30. sept. n.k.
Samkvæmt þessu verða versl
anir bæjarins opnar til. kl. 7
á föstudagskvöld og til
kl. 12 á hádegi á laugardag. —
Verslunarskrifstofum verður
binsvegar lokað á þessu tima-
bili ki. 6 e.h. á föstudögum og
12 á hádegi á laugardögum.