Morgunblaðið - 13.05.1947, Side 1
16 síður
34. árgangur 105. tbl. -—- Þriðjudagur 13. maí 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f.
(haplin.
Charlie Chaplin og kona hans (t. h.) Oona 0'JISeil, dóttir
rithöfundarins og Mary Picford siást hjer á myndinni, sem
tekin var í hófi eftir að frumsýning hafði farið fram í ÍSew
York á nýustu kvikmynd Chaplins, „Monsieur Verdoux“.
Ohugnanlegur matvælaskortur
á breska hernámssvæðinu
Veldur minkandi afköslum verkamanna
LONDON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HECTOR MCNEIL, innanríkisráðherra Bretlands, ræddi í dag
á fundi í neðri málstofu breska þingsins um matvælaástándið
í Þýskalandi. Sagði hann, að matarskorturinn á hernámssvæði
Breta væri meiri en menn hefðu gert sjer grein fyrir. Einkum
væru þó menn í Ruhrhjeraðinu illa staddir, enda hefði
kolaframleiðslan þar minkað úr 237 þúsund smálestum á dag
niður í 221 þúsund.
Dreifingarörðugleikar og lítill
innflutningur.
McNeil sagði, að ýmsar orsakir
lægju til þess mikla skorts.
En þó væri einkum tvennt, sem
mestu hefði þar um valdið. í
fyrsta lagði hefðu mjög miklir
örðugleikar verið á dreifingu
matvælanna innan hernáms-
svæðisins. Og í öðru lágði hefði
innflutningur matvæla ekki
numið eins miklu og menn
höfðu leyft sjer að vona.
Ástandið rannsakað.
Pakenham lávarður, breski
ráðherrann, sem fer með Þýska
landsmálin, kom í dag til Lon-
don úr þriggja daga ferðalagi
um hernámssvaeði Breta, Rann-
sakaði hann matvælaástandið
og átti tal við helstu stjórnvöld
Þj'óðverja, meðal annars mat-
vælaráðherrann í Ruhr. Mun
hann hafa fengið ófagrar lýs-
ingar á matvælaástandinu. —
Pakenham ræddi við Ernest
Bevin, utanríkisráðherra Breta
í dag.
Á . SUNNUDAGINN fór
fram landskeppni í knatt-
spyrnu milli Italíu og Ung-
verjalands.
Leikar fóru þannig, að Italir
unnu með 3:2.
Bjargasi í fallhlíf
úr þrýsliloffsflug-
vjel
London í gærkvöldi.
BRESKUR flugmaður varð í
dag fyrsti maðurinn, sem tek-
ist hefur að bjargast úr fall-
hlíf úr flugvjel, sem drifin er
með þrýstiloftshreyfli.
Flugvjelin fór með 400
mílna hraða, þegar flugmaður
inn, sem frægur er úr styrjöld
inni, fjell í yfirlið. Þegar hann
rankaði við sjer, sá hann báða
vængi vjelarinnar falla af
henni. Tókst honum, þrátt fyr
ir hraðann, að opna stýrishús
vjelarinnar og komast út, en
sveif síðan í fallhlíf til jarðar.
— Reuter.
Verslaði á svörtum markaði.
HAMBORG: — Breskur liðs
foringi í Þýskalandi hefur ver
ið dæmdun í sex mánaða fang-
elsi og 1000 sterlingspunda
sekt, fyrir að versla með sígar-
ettur á svörtum markaði. —
Hann mun hafa selt um 10.000
sígarettur.
SNARPAR
GYÐINGA í
DEILUR ARARA 0G
STJÚRNMÁLANEFND
Dean Acheson læl-
ur af sförfum að-
Fundarstjóri átelur
útúrdúra þeirra
Washington í gærkvöldi.
ÞAÐ var opinberlcga tilkynt
í Washington í dag, að Dean
Acheson hefði látið af störfum
sem aðstoðarutanríkisráöherra
Bandaríkjanna, og er búist við,
að hann taki nú upp að nýju
lögfræðistörf, sem hann hafði
með höndum, áður en hann
varð ráðherra. — Eftirmaður
Achesons hefur verið skipaður
Robert A. Lawatt bankastjóri,
sem áður var aðstoðarflugmála
ráðherra Bandaríkjanna.
— Reuter.
Fjórtán drukkna
í bifreið
Cairo í gærkveldi.
FJÓRTÁN manns, þar, á
meðal konur og börn, drukn-
uðu í dag, er langferðabifreið
rann á hálum vegi fyrir norð-
austan Cairo og steyptist of-
an í skurð, senv fullur var af
vatni.
Bifreiðastjórinn og tveir far-
þegar komust af.
•— Reuter.
Sænsk samninga-
nefnd í Berlín
Berlin í gærkvöldi.
SÆNSK samninganefnd kom
í dag flugleiðis til Berlínar, og
dvelst nefndin í hinum rúss-
neska hluta borgarinnar.
Samninganefndin, sem er
undir forystu B. Eng, mun á
morgun (þriðjudag) hefja um
ræður um viðskifti Svía og rúss
neska hernámssvæðisins í
Þýskalandi. — Reuter.
Flugvalla bygging
í Alaska
Washington í gær.
BANDARlKJASTJÓRN er
að láta tryggja hervarnir lands
ins í norðri, með því að byggja
8,125,000 dollar sprengjuflug-
vjelabækistöð í Alaska.-
Samkvæmt tilkynningu banda
ríska hermálaráðuneytisins, er
einnig hafin bygging samskon-
ar bækistöðvar í Maine, Banda
ríkjunum. — Reuter.
NEW YORK í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
STJÓRNMÁLANEFND sameinuðu þjóðanna ákvað í dag
með 29 atkvæðum gegn 14, að rannsóknarnefnd sú, sem á að
kynna sjer Palestínuvandamálið, skuli ekki gera það með end-
anlegt sjálfstæði landsins’í huga. Er atkvæðagreiðslan fór fram
um þetta, sátu fulltrúar tíu ríkja hjá, en tveir voru ekki við-
staddir.
Mikil fagnaðarlæli
við heimkomu
bresku konungs-
fjölskyldunnar
London í gærkvöldi.
MOGUR manns fagnaði kon
ungsfjölskyldunni bresku í dag
er hún ók um götur London til
Buchinghamhallar. Bjöllum
Westminster Abbey var hringt
í fagnaðarskyni, en síðar komu
konungshjónin og dætur þeirra
fram á svalir hallar sinnar, til
að heilsa fagnandi mannfjöld-
anum.
Frjettamenn segja, að mann-
mergðin á götum Lundúna
hafi verið áþekkust því, er loka
sigri bandamanna var fagnað.
Skip konungsfjölskyldunnar,
herskipið Vanguard, kom til
Portsmouth í gærkvöldi, og
tók um hálf miljón manna á
móti þvi. Hefur Georg konung
ur, drottning hans og dætur
áls ferðast um 20,000 mílur.
I báðum deildum breska
þingsins voru í dag fluttar ræð
ur, þar sem konungsfjölskyld-
an var boðin velkomin heim.
Ljet Attlee þau orð falla í ræðu
sinni, að ferð hennar til Suður
Afriku hefði tekist með afbrigð
um vel. —- Reuter.
Líðan forsetans góð
SAMKVÆMT símskeyti sem
utanríkisráðuneytinu hefir bor
ist frá Jóhanni Sæmundssyni
yfirlækni og Vilhjálmi Finsen,
sendiherra, framkvæmdi pró-
fessor John Hellström á Karo-
linska Sjukhuset í Stockholm,
9. þ. m. minniháttar aðgerð á
forseta íslands út af lasleika,
sem gerði vart við sig í des.
s.l. Tókst aðgerðin vel og er for
seti hress og hitalaus og líðan
hans óaðfinnanlegt. Ráðgert er,
að forseti verði enn nokkra
daga á sjúkrahúsi, en dvelji því
næst eitthvað sjer til hressingar
í Svíþjóð.
Harðar umræður.
All róstusamt hefur verið á
fundi stjórnmálanefndarinnar
í dag, og þurfti fundarstjóri,
Lester Pearson, tvívegis að
grípa fram í ræðu Emil
Ghoury aðalritara Æðstaráðs
Araba, og biðja hann að halda
sjer við staðreyndirnar.
Deilt á Múftann.
Ghoury veittist harkalega að
Gyðingum, fyrir ummæli full-
trúa þeirra um Múftann af
Jerúsalem. Hafði Gyðingafull-
trúinn fordæmt Múftann fyrir
makk hans við Hitler á styrj-
aldarárunum.
Ghoury svaraði þessum á-
deilum með því, að Gyðingum
færist ekki að átelja aðgerðir
Múftans, þar sem þeir hefðu
krossfest leiðtoga kristinna
manna. Varð dauðaþögn í fund
arsalnum, er aðalritarinn sagði
þetta.
Þungar sakargiftir.
Fundarstjóri greip hjer fram
í fyrir Arabafulltrúanum í
annað skifti, og bað hann að
koma ekki með yfirlýsingar,
sem leitt gætu af sjer jefnvel
naprari andsvör. Sagði hann
að ummæli Gyðinga um Múft
ann, hefðu haft það í för með
sjer, að jafnvel ennþá þyngri
sakargiftir hefðu nú komið
fram frá Aröbum. *
Tillaga Rússa.
-Stjórnmálanefndin mun næst
taka fyrir þá tillögu Rússa, að
Palestína verði strax gerð að
sjálfstæðu ríki. Er talið full-
víst, að hún verði feld.
311 stig
KAUPLAGSNEFND og Hag-
stofan hafa reiknað út vísitölu
framfærslu kostnaðar fyrir maí
mánuð. Reyndist hún vera 311
stig, eða einu stigi hærra en
verið hefir síðustu 3 mánuði.
Ríkisstjórnin mun ' greiða
niður 10 stig, en þetta eina seni
nú bættist við verður ekki
greitt niður þennan mánuð
a. m. k.