Morgunblaðið - 13.05.1947, Page 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
SUNNAN kaldi. — Skúrir.
Breiarnir sigruðu
Reykjavíkurmeisi-
arana og sveii
Dungals
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
sigruðu bresku bridgespilararn
i) bridgemeistara Reykjavíkur
með 3560 stigum, en í gær-
kveldi sigruðifcþeir sveit Hall-
dórs Dungal með 5100 stigum
yíir. 1 báðum þessum keppn-
um voi*u spiluð 60 spil.
I sveit Dungals eru auk hans
Pjetur Halldórsson, Ingólfur
Ásmundsson, Helgi Þórarins-
son og Lúðvíg Rjarnason.
1 dag spila tvær sveitir við
Bretana. Hefst fyrri keppnin
kl. 2 e.h. við sveit Brynjólfs
Stefánssonar, en í henni eru
auk hans Stefán Stefánsson,
Guðmundur Guðmundsson og
Gunnar Guðmundsson. I kvöld
spila þeir svo við sveit Gunn-
geirs Pjeturssonar, en í henni
eru auk Gunngeirs, Skarphjeð-
inn Pjetursson, Einar Ágústs-
son, Sigurhjörtur Pjetursson,
Einar Ágústsson og örn Guð-
mundsson.
Aðgangur að keppninni kost
ar kr. 10, og gildir allan daginn
Skemtilegur kapp-
ieikur í kvöld
I KVÖLD kl. 8,30 fer fram
á íþróttavellinum kappleikur
milli tveggja úrvalsliða úr öll-
um Reykjavikurfjelögunum.
Knattspyrnumenn ætla að láta
in ngangseyri renna óskiftan til
Þórunnar litlu Jóhannsdóttur
píanósnillings, sem er við nám
» London,'en hún varð ipikill
vinur þeirra, er knattspyrnu-
flokkurinn fór til Bretlands á
s.l. ári.
Sú nýbreytni verður tekin
upp við þennan leik, að þar
mætast tveir „bændur“. Þeir
eru Óli B. Jónsson KR og Sig-
urður Ólafsson úr Val. Hafa
þeir valið menn hver í sitt lið.
í liði Óla B. verða Anton Sig-
urðsson, Karl Guðmundsson,
Daníel Sigurðsson, Kjartan Ein
arsson, Birgir Guðjónsson,
„hóndinn“, Þórhallur Einars-
son, Bjarni Guðnason, Albert
Guðmundsson, Hörður Ólafs-
son og Ellert Sölvason.
I liði Sigurðar Ólafssonar
verða: Hermann Hermannsson
Guðbjörn Jónsson, Jón Þórar-
insson, Sæmundur Gíslason,
„bóndinn“, Kristján Ólafsson,
Óiafur Hannesson, Ari Gísla-
. son, Magnús Ágústsson, Guð-
brandur Jakobsson og Hafliði
Guðmundsson.
Dómari Sigurjón Jónsson og
Jínuverðir Jón Eiríksson og
Örn Eiðsson.
ÞJÓDVERJAR í RÚSSNESKA
IIERNUM
LONDON: — Vitað er nú
með vissu; að meir en 3000
fyrverandi þýskir liðsforingj-
ar gegna nú herþjónustu í rúss
neska hernum. Margir, sem
þegar hafa notið þjálfunar hjá
Rússum, hafa verið skipaðir í
mikilvæg embætti á hernáms-
svæði þeirra í Þýskalandi.
Prestar og Pandiltar biðja fyrir frelsi indlands
Mikil liátiS fór nýlega fram hfá Hindúum í /ndlanili rneií öílurn heim austurlitásku si&um
og serimoníum, sem við eiga. Hindúaprestar og Pandíttar komu saman í Bombay til að
biðja fyrir frelsi Indlands, siálfsUvði og friði. — Myndin hjer að fan var tekin við þella
lœkifœri.
Úfvarpsumræðurn-
ar í gærkvöldi
ÞRIÐJU umræðu um fjár-
hagsráð í neðri deild Alþingis
var útvarpað í gærkveldi. Fóru
fram tvær umferðir.
Jóhann Þ. Jósefsson, fjár-
málaráðherra, tók þátt í um-
ræðunum fyrir hönd Sjálfstæð
isflokksins, Skúli Guðmunds-
son fyrir Framsóknarflokkinn,
Ásgeir Ásgeirsson fyrir Alþýðu
flokkinn og Einar Olgeirsson
fyrir Sósíalistaflokkinn, — Röð
flokkanna var þessi: Framsókn
arflokkur, Sjálfstæðisflokkur,
Sósíalistaflokkur og Alþýðu-
flokkur.
Æskulýðsfundur
kirkju og femplara
á Akureyri
Akureyri, mánudag.
ANNAR æskulýðsfundur á
vegum kirkjunnar og templara
á Akureyri var haldinn s.l.
sunnudag í samkomuhúsi bæj-
arins. Var aðsókn svo mikil
sem húsrúm leyfði. Auk æsku-
lýðsins var þar allmargt full-
orðinna manna. Gestur fund-
arins var sr. Friðrik Friðriks-
son.
Erindi fluttu Magnús Jóns-
son. ritstjóri, og Jónas Jónsson
kennari. Jóhann Konráðsson
söng einsöng, þrjár Mentaskóla
stúlkur sungu nokkur lög. Enn
fremur var almennur söngur.
Ungur piltur ljek á harmoniku,
Friðrik Friðriksson sagði sögu,
en síðast var sýnd kvikmynd.
— Sjera Pjetur Sigurgeirsson
stjórnaði æskulýðsfundinum af
hinni mestu prýði. Er enginn
vafi á því að þannig lagaðar
samkomur eru til mestu bless-
unar fyrir börn og unglinga.
— H. \ ald.
Sænskt handknattleikslið
keimir hingað
Hraðkeppni Ármanns á uppsfigningardag.
ÁKEÐIÐ hefir verið að sænskt handknattleikslið komi hing-
að til bæjarins og keppi hjer við Islendinga. Koma Sviarnir
29. maí n.k. og keppa hjer að minsta kosti þrjá leiki.
Þá hefir Handknattleiksráð
Reykjavíkur ákveðið að láta
frammistöðu manna í hrað-
keppni Ármanns, sem fram
fer n.k. fimtudag, uppstigning
ardag, ráða um hverjir verði
valdir i Reykjavíkurlið til að
keppa við Svíana, en hráð-
keppnin er hjer eina útikeppni
karla í handknattleik.
20 flokkar frá níu fjelögum
taka þátt í hraðkeppninnið en
þar er keppt í þremur flokkum,
meistara,- I.- og Il.-flokki karla
Fjelögin, sem senda keppendur
eru: Vikingur, Ármann, IR,
Valur, Fram og KR úr Reykja-
vík, FH og Haukar frá Hafnar
firði og íþróttabandalag Akra-
ness.
Drukkinn maður
ekur bíl úl af
hafnargarði
Á sunnudagsnótt munaði
minstu að drukkinn maður æki
bíl út í höfnina. Þetta gerðist
vestur við hraðfrystihús fiski-
málanefndar. Bílstjórinn mun
alveg hafa mist stjórn á bílnum
og fóru framhjólin út af garð-
inum, en þar staðnæmdist bíll-
inn. Bílstjórinn var hlaupinn á
brott er lögreglan kom, en
stúlka, sem með honum var,
einnig drukkin, sagði til hans.
Svíakonungur heiðr-
ar Einar Jönsson
SVÍAKONUNGUR samdi þ.
22. apríl s.l. prófessor Einar
Jónsson myndhöggvara heiðurs
peningi Eugens prins fyrir fram
úrskarandi listastörf. — Sendi-
herra Islands í Stokkhólmi
veitti heiðurspeningnum mót-
töku fyrir hönd myndhöggvar-
ans i miðdegisveislu hjá Eugen
prins.
Farmiðasafa Sam-
einaða
SENDIRÁÐ íslands í Kaup-
mannahöfn hefir tilkynt, að
Sameinaða gufuskipafjelagið
hafi breytt reglum sínum- um
farmiðasölu, og gildi framvegis
þessar reglur:
Farmiða frá Kaupmannahöfn
til Reykjavíkur skal sækja og
greiða í síðasta lagi mánuði
fyrir áætlunardag brottferðar.
Þó má ógilda miða og endur-
greiða, ef um það er beðið í
síðasta lagi 8 dögum fyrir brott-
för. —=- Undanþágur má þó af-
greiðslan veita, þó að skemmra
sje en 8 dagar til brottfarar, ef
um sannanleg forföll, veikindi
eða aðrar veigamiklar ástæður
er að ræða.
t
Sjálfhoðaliðar
hreinsa í Hlíðar-
endakoti
ÞRlR reykviskir Ra ngæing-
ar tóku sig til um síðustu helgi
og söfnuðu liði til öskuhrems-
unar í Fljótshlíð. Voru það þeir
Guðmundur Guðjónsson skrif-
stofumaður, Guðjón Jónsson,
trjesmiður og Gunnar Guðna-
son stöðvareigandi.
Það urðu alls 26 manns, sem
fóru austur á laugardag og var
haldið að Hlíðarendakoti. Þeg-
ar austur kom var strax tekið
til starfa við að hreinsa vikur
og ösku. Var unnið langt fram
á kvöld á laugardag og svo all
an sunnudag. Hreinsað var
kring um bæinn og í grend-og
var alls ekið brott 140 bílhlöss
um. Voru sjálfboðaliðarnir
mjög ánægðir að loknu dags-
v.erkinu, enda þótt þeir findu
til þreytu.
Þess skal getið, að Gunnar
Guðnason eigandi B. S. I. lagði
' til 22 manna bil til fararinnar,
endurgjaldslaust. *
ísfiskur fyrir 2,2
milj. kr.
FYRSTU daga þessa mánað
ar seldu átta skip ísfisk á Bret-
landsmarkað. Að þessu sinni
voru það eingöngu togarar sem
seldu. Var úr þeim landað 27\
151 kit af fiski og samanlagt
söluverð skipanna nam því
sem næst kr. 2.203.378.
Reykjavíkurtogarinn Ingólf-
úr Arnarson er meðal þessara
togara, en þess hefur þegar ver,
ið getið hjer í blaðinu að í þess.
ari ferð sinni bætti hann fyrra
sölumet sitt. Með næst-hæstu
sölu er Júpiter frá Hafnarfirði,
en hann er jafnframt aflahæsí
ur.
1 Fleetwood seldu Viðey 3147Í
kit fyrir 9902 sterlingspund,
Skinfaxi með 2628 kit fyrirí
8126 pund, þar seldi Ingólfur
Arnarson afla sinn 5403 kit
fyrir 13.965 pund. Júpiter
3658 kit fyrir 12,216 pund og
Óli Garða 2747 kit fyrir 8971,
Skallagrimur seldi i Grimsby]
3440 kit fyrir 11.055 pund og
þar seldi einnig Júní 2830 kit
fyrir 9302 pund. í Hull seldi
Gyllir 3298 kit fyrir 10.916
sterlingspund.
Breska liðið keppir
hjer 4 leiki
ÁKVEIÐIÐ hefir verið, að hið
breska knattspyrnumannalið,
Queens Park Rangers, sem
kemur hingað 2. júní næstkom-
andi keppi fjóra leiki hjer f
bænum.
Fyrsti leikurinn fer fram
kvöldið eftir komu þeirrá
hingað. Þá keppa þeir við úrval
úr knattspyrnufjelögum bæjar-
ins. Annar leikur þeirra verður
við Fram og hinn þriðji við K.
R. Fjórði leikur Bretanna verð-
ur við úrval manna úr knatt-
spyrnufjelögunum, eins og
fyrsti leikur þessarar milli-
landakepni.