Morgunblaðið - 22.05.1947, Side 1
—----------------------—--------7
34. árgangur
107. tbl. — Fimmtudagur 22. maí 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Umberio fyrv. konungur í brúðkaupi
FYRIR nokkrum dögum var haldið brúðkaup Victoriu Calvi
di Bergolo prinsessu, sem er frænka Umberto fyrverandi Ítalíu-
konungs og Guarienti greifa. Fór það fram í Kairo. Umberto og
systir hans, Giovanna fyrverandi Búlgaríudrottning og dóttir
hennar komu til borgarinnar í tilefni af brúðkaupinu. Var þessi
mynd tekin af þeim á flugvellinum.
Bretar liyggja ekki á nýjar
lántökur í Bandaríkjunum
LONDON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÞRÁLÁTAR fregnir, sem birst hafa í blöðum í Bretlandi og
Bandaríkjunum, þess efnis, að Hector McNeil, innanríkisráð-
herra Bretlands, væri á förum til Washington til þess að semja
um nýtt lán Bandaríkjamanna til Breta, hafa nú verið bornar
til baka. Talsmaður bresku stjórnarinnar lýsti því yfir.í dag,
að Bretar hefðu alls ekki í hyggju að leita hófanna um nýjar
lántökur í Bandaríkjunum.
Talsmaðurinn ljet þess einnig
getið, að Bretar myndu ekki
fara fram á það við Bandaríkja
menn, að gildistíð láns- og leigu
viðskipta yrði framlengd í þágu
Breta.
Takmarkanir á dollara-
eyðslunni.
' Hinsvegar sagði talsmaður-
inn, að bresku stjórninni væri
það áhyggjuefni, hve dollara-
eyðsla Breta væri mikil, og
Væri nú til athugunar, hverjar
leiðir væru færar til þess að
draga úr þessari eyðslu.
EKKI MEIRI DOLLARALÁN
TIL BRETA.
WASHINGTON: — Douglas,
sendiherra Bandaríkjanna í
London, hefir látið þess getið
við blaðamenn, að honum sje
ekki kunnugt um, að Banda-
ríkjamenn hugsi sjer að veita
Bretum nýtt dollaralán í ná-
inni framtíð.
ákveðin skipun á
skaðabótagreiðslum
Japana
Tokio í gærkveldi.
AUSTUR-ASÍURÁÐ banda-
manna hefir samþykkt tilhögun
á greiðslu stríðsskaðabóta úr
hendi Japana. Skal bótunum
skipt milli þeirra ríkja, sem
áttu í styrjöld við Japana, í
hlutfalli við það tjón, sem hvert
ríki hefir beðið af þeirra völd-
um. Ennfremur skal hafa til
hliðsjónar, hvað hvert einstakt
ríki lagði af mörkum til þess,
að sigur ynnist á Japönum. Á-
kveðið var, að ekki skyldi ganga
svo nærri Japönum, að afvopn-
un þjóðarinnar biði hnekki við
eða kjör alþýðu manna yrðu
mjög kröpp. Þá skal og þess
gæta, að þjóðin hafi nægilegt
gjaldþol til greiðslu kostnaðar,
sem af hernámi Japan leiðir.
—Reutei..
HVAÐ HEFIR ORÐIÐ AF
STRÍÐSFÖNGUM RÚSSA?
--------------------------®
„Jeg er ekki ung-
lingur, heldur
níræður"
London í gærkveld.
BERNARD SHAW, rithöf-
undurinn heimsfrægi, hefir af-
þakkað boð um að flytja ávarp
á alþjóðaæskulýðsmóti' í Prag í
sumar. I svari sínu segir Shaw:
,,Jeg er enginn unglingur. Jeg
er níutíu ára. Jeg flyt aldrei
ávörp, og það, sem jeg hef að
segja, hef jeg þegar sagt í bók-
um mínum. Þið getið lesið bæk
urnar mínar, þær fást ennþá í
bókaverslununum. Látið þið
mig svo í íriði“. — Reuter.
Miðlunartillaga í
danska prenfara-
verkfallinu
K.höfn í gærkveldi.
Frá frjettaritara vorum.
ER sáttaumleitanir í danska
prentaraverkfallinu höfðu stað-
ið yfir í einn sólarhring, lagði
sáttasemjari ríkisins fram miðl-
unartillögu. — Er þar gert ráð
fyrir sjö stunda vinnutíma fyr-
ir prentara, sem vinna á kvöld-
in og nóttunni, en átta stunda
vinnutíma fyrir þá, sem vinna
á daginn, og er þá gert ráð fyr-
ir óbreyttum dagvinnutíma frá
því sem áður var. Gert er ráð
fyrir 8 króna hækkun á viku-
kaupi allra faglærðra prentara,
6 króna hækkun fyrir ófag-
lærða karlmenn í prentiðn, en
5 króna hækkun fyrir ófag-
lærðar konur. — Prentsmiðju-
eigendur munu senda svar við
tillögunni 30. maí, en vafasamt
er talið, að þeir fallist á hana.
— Ríkisstjórnin mun ekki sker
ast í leikinn, þótt tillagan verði
felld.
Nitli mislekst sljóm-
armyndun í ítalíu
Róm í gærkveldi.
FRANCESCO NITTI til-
kynnti Niccola, forseta Ítalíu, í
dag, að tilraunir sínar til stjórn
armyndunar hefðu mistekist.
Sósíalistar vildu ekki taka þátt
í annarskonar stjórn en sam-
steypystjórn allra flokka, en
smærri flokkarnir vildu ekki
semja um slíkt. Stjórn de
Gasperi baðst lausnar fyrir átta
dögum, en situr þó áfram, þar
til ný stjórn hefir verið mynd-
uð. Landið hefir því raunveru-
lega verið stjórnlaust í átta
«daga. — Reuter.
Voru taldir 2 miljónir
en Rússar segja þá nú
tæplega 900 þúsund
Á FUNDI í neðri málstofu breska þingsins í gær kvaddi
Stokes, einn af þingmönnum Verkamannaflokksins, sjer
hljóðs til þess að spyrjast fyrir um afdrif stríðsfanga,
sem Rússar hefðu tekið á styrjaldarárunum. Á fundi
utanríkisráðherranna í Moskva hefði verið svo um talað,
að allir stríðsfangar skyldu hafa verið látnir lausir fyrir
árslok 1948. Þá hefði fjöldi stríðsfanga Rússa verið á-
ætlaður um tvær milljónir, en nú væri því lýst yfir af
hálfu Rússa, að stríðsfangarnir væru ekki nema um
890 þúsund talsins.
Jinnah ræólr um ríki.
Múhameðslrúar-
manna
New Dehli í gærkveldi.
JINNAH, leiðtogi Múhameðs
trúarmanna í ‘Indlandi, ræddi
í dag við blaðamenn um fyrir-
hugað sjerstakt ríki Múhameðs
trúarmanna í Indlandi, en frá
kröfunum um slíkt ríki myndi
aldrei verða horfið. Sagði hann,
að ríkið myndi kosta kapps um
að halda vinsamlegum sam-
skiptum við Bretland og ríki
Hindúa, sem sett yrði á stofn í
Indlandi jafnframt ríki Mú-
hameðstrúarmanna. Hindúar og
Múhameðstrúarmenn yrðu vit-
anlega að hafa náin samskipti,
en áhersla yrði þó lögð á það,
að Múhameðstrúarmenn myndu
sækja um upptöku í Sameinuðu
þjóðirnir, strax og það hefði
verið stofnað. — Reuter.
Bretar mótmæla
fangelsan rúm-
enskra bænda-
flokksmanna
London í gærkveldi.
FULLTRÚI bresku stjórnar-
innar í Bukarest hefir borið
fram mótmæli stjórnar sinnar
við rúmensku stjórnina vegna
fangelsunar 1500 meðlima þjóð
lega bændaflokksins í Rúmeníu.
Hafa menn þéssir allir verið
handteknir síðan í marsmánuði
s. 1. Bresku stjórninni hafði
áður borist orðsending frá leið-
togum bændaflokksins, þar
sem greint er frá handtökum
þessum og beðist ásjár.
Sagði Stokes, að full ástæða
væri til þess að rannsaka, hver
afdrif þessara fanga hefðu orð-
ið, til dæmis, hvort þeir hefðu
verið sveltir til bana eða teknir
í rússneska herinn.
Osennileg tala.
Mayhew, aðstoðarutanríkis-
ráðherra tók til máls fyrir hönd
ríkisstjörnarinnar. Sagði hann,
að mjög væri það ólíklegt. að
Rússar hefðu ekki tekið fleiri
stríðsfanga en 890 þúsund, svo
marga og mikla sigra, sem þeir
hefðu unnið í styrjöldinni. En
hinsvegar væri ekki á færi ann
arra en Rússa sjálfra að til-
greina tölu stríðsfanganna með
fullri vissu.
Eitt dæmi.
Mayhew sagði, að Bretar
vissu þó dæm’i til þess, að menn
sem hefðu komist í hendur
Rússa, hefðu sætt einkenni-
legri meðferð. Breskur liðsfor-
ingi, Barrett að nafni, hefði
til dæmis leitað á náðir rúss-
neska hersins 1 desember 1944,
en Barrett hafði sloppið úr
fangelsi í Ungverjalandi, þar
sem hann var í haldi sem stríðs
fangi.
Eftirgrenslanir
árangurslausar.
Mayhew sagði, að ekkert
hefði til Barretts spurst síðan,
enda þótt bréska sendiráðinu í
Moskva hefði verið falið að
spyrjast fyrir um hann. Meira
að segja hefði Bevin utanríkis-
ráðherra skrifað Molotov, utan
ríkisráðherra Sovjetríkjanna,
brjef, þar sem farið var fram
á, að Molotow hlutaðist per-
sónulega til um það, að Barrett
yrði fundinn. Svarbrjef Molo-
tovs var á þá leið, að ekkert
hefði til Barretts spurst þrátt
fyrir ítrekaðar eftirgrenslanir.
Framh. á bls. 2