Morgunblaðið - 03.07.1947, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.07.1947, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 3. júlí 1947 MORGUIÍBLAÐIfl rr’?~r Are Waerland flutti fyrirlestur á íslensku Are Waerland flutti fyrsta fyrirlestur sinn á sunnudags- kvöld í Tripoli leikhúsinu fyrir fullu húsi. Jónas Kristjánsson kynti fyrirlesarann með nokkr- um orðum. Taldi hann Waer- Iand mesta brautryðjanda, sem yæri uppi á sviði heilbrigðis- málanna og væri hann nú orð- inn kunnur af ritum sínum um þau efni. Sagði Jónas að Waer- land væri nú á næstunni boðinn til fyrirlestrahalds í Ameríku, Ástralíu, Nýja Sjálands og víð- ar. Fyrirlestra sína hjer mundi hann flytja á íslensku, hefði hann þó ekki byrjað að læra málið fyrr en fyrir tæpum þrem mánuðum og. haft til þess að- eins stutta stund daglega. Væri þetta eitt m. a. til marks um þrek og afkastamátt þessa rúm- lega sjötuga manns. Þegar hinn unglegi ræðumað- ur gekk að ræðustólnum, gerðu áheyrendur sjer augsýnilega ekki háar vonir um málfærið. En við fyrstu orðin var sem steini væri ljett af þeim og í 1 klst. hjelt fyrirlesarinn merki- lega og skemtilega frásögn af baráttu hans við eigin vanheilsu og leit sinni að heilbrigði, sem enginn læknir gat vísað honum á. Hann skýrði írá því á mjög greinilegri íslensku, að vísu með erlendum hreim, hvernig hann fór að ráða gátu sinna eigin sjúkdóma og finna jafnframt allsherjar lausn á hinu mikla vandamáli mannlegra sjúk- dóma. Síðan ræddi hann um þau lögmál, sem þessi lausn er byggð á. Minnismerki druknaðra sjómanna við Veslmannaeyjar og hrapaðra í björgum Aætiunarferðir Reykjavík— Amgerðareyri hafnar Frá frjettaritara Mbl. Á ÞRIÐJUDAGINN var hóf- ust sjerleyfisferðir á leiðinni Reykjavík — Arngerðareyri og í sambandi verða bátsferðir milli Isafjarðarkaupstaðar og Arngerðareyrar. Frá ísafjarðarkaupstað fer báturinn á iniðvikudögum og laugardögum kl. 6 árd., en frá Reykjavík fer áætlunarbifreið- in á þriðjudags og föstudags- morgna. Þegar þetta skipulag er kom- ið á mun ferðin milli Reykja- víkur og Isafjarðarkaupstaðar ekki taka nema dagleið. Verð- ur mikil samgöngubót að þessu ekki aðeins fyrir kaupstaðinn, heldur og fyrir alla byggðina í kring. Á Arngerðareyri er langt komið smíði bryggju svo að stærri skip en áður geta lagst þar. Þar er einnig starfrækt gistihús og greiðasala af Hall- dóri Víglundssyni og er þar nú hinn ákjósanlegasti sumardval arstaður. Bátsferðirnar eru reknar með tveimur bátum, Fagranesi, sem er 70 tonn og Pólstjörnunni, sem er 24 tonn. ÞAR SEM í seinni tíð hefur verið mjög hljótt um málefni þetta, vil jeg rita nokkur orð til þeirra, sem sýnt hafa málefn- inu góðhug og stutt að fram- gangi þess, sem og gjöra heyr- um kunnugt viðleitni vora, þótt um langt skeið hafi ekki verið birt opinberlega tilraunir til að ná settu marki. ★ Á síðari árum, eða með auk- inni velmegun bæjarbúa, má með sanni segja að mjög hafi dregið úr því að sjóðnum bær- ust gjafir, og að í þeim efnum hafi gjörsamlega „dregið fyrir sól.“ — Á fyrsta sjómannadegi hjer samþykti sjómannadagsráð ið að veita drukknuðum stjett- arbræðrum sínum heiður, með því að leggja sjóðnum til 15% af tekjum dagsins til minnis- varðans. Og þar sem treglega hefur gengið um fjársöfnun var þessi hugmynd mjög þakkar og virðingar verð. Stjórn sjóðsins skildi samþykt þessa þannig að framlag þetta yrði veitt uns ! minnisvarðinn yrði reistur. — Sjóðstjórninni eru það von- brigöi að sjómannadagsráðið hefur aðeins einu sinni fram- fylgt þessari samþykt sinni. En með því að alt bendir til að bæj- arbúar, það er atvinnurekendur, ætli útgerðarmönnum 'og sjó- mönnum (að ógleymdum þeim sem heiðrað hafa minningu drukknaðra ástvina) einum að heiðra 'minningu drkknaðra sjó- manna og hrapaðra, og reisa þeim Minnisvarðann, leyfi jeg mjer að fara þess á leit við hátt- virt sjómannadagsráð, að það endurskoði hina veglyndu sam- þykt sína, málefni þessu til brautargengis. Samtímis gjör- ist jeg svo djarfur að beina þeim tilmœlum til atvinnufyrirtœkja bæjarins í hvaöa grein sem starfað er, að yfirvega nú að- stöðu sína til þessa málefnis, þar sem þau að einu undan- skildu hafa ekki Ijeð því lið- sinni. Það væri æskilegt að allir Vestmanneyingar, mættu taka höndum saman um að ljúka þessu málefni, til verðugs heið- urs þeim, sem horfnir eru, og hjeraðinu til sæmdar. ★ Sjóðurinn var stofnaður hinn 11. ágúst 1935; næstkomandi ágústmánuð er því tólf ára við- leitni að baki. Fyrir því taldi undirritaður tímabært að vinna nú þegar að því að ljúka þessu máli, og kallaði meðstjórnendur á fund í síðastl. mánuði, til þess að bera fram lokatillögur. Hafa þær hugmyndir borið hinn á- kjósanlegasta árangur, eins og skýrt skal frá. Eins og Vestmannaeyingum er kunnugt, hefur sjóðstjórn- ina skort fje til að reisa hið fagra Minnismerki, sem hr. húsameistari Hörður Bjarnason teiknaði, og margir hjer hafa sjeð. Af ofangreindum ástæðum samþykti stjórnin að fela for- manhi að leita fyrir sjer um teikningar á Norðurlöndum af minnismerki sem samboðið væri tilgangi þessarar hugsjónar, og að sjálfsögðu með hliðsjón af fjárhag sjóðsins. Nú hafa borist teikningar frá Danmörku, og fyrir milligöngu sænska sendi- herrans 1 Reykjavík, eigum vjer kost á að leita fyrir okkur hjá mörgum sænskum firmum í þessari iðngrein. Það liggur því beint fyrir að ,,ganga“ á milli þessara „góðbúa“ og leita þar til vjer höfum fundið það, sem við má una. Lokatillögur stofnanda sjóðsins voru því með hliðsjón af hinni löngu reynslu, að leita persónulega fyrir sjer erlendis, og festa kaup á minn- ismerki fyrir það fje, sem sjóð- urinn á. Þá að skrifa hæstvirt- um fjármálaráðherra Jóhanni Þ. Jósefssyni, og fara fram á að fjármálaráðuneytinu mætti þóknast að veita undanþágu á aðflutningstollum á minnisvarð anum, en tollarnir nema um 30% af kostnaðarverði. Hefur nú borist brjef frá ráðuneytinu þar sem undanþágan er góðfús- lega veitt. Fyrir vora hönd og Vestmanneyinga, flyt jeg ráð- herranum alúðarfylstu þakkir hjeraðs hans, fyrir þessa hugul- sömu aðstoð. Á Fiskiþingi íslands haustið 1945 flutti undirritaður, ásamt aðalfulltrúa Reykjavíkur-deild- arinnar, tillögu, þar sem farið var fram á að Fiskiþingið sam- þykti áskorun til Alþingis að veita af fjárlögum 1946 fje til að reisa í höfuðstað landsins minnismerki um drukknaða menn og konur, sem væri tákn- rænt merki og sameign allrar þjóðarinnar. Sá hluti tillögur.n- ar, er varðaði Vestmannaeyjar, var gjörður á þeim grundvelli, að sjómenn víðsvegar af land- inu hafa drukknað við Vest- mannaeyjar, og væri því minn- ismerki drukknaðra reist í Vestmannaeyjum, ekki einvörð ungu hjeraðsmál, og frambæri legt að fara fram á aðstoð hins háa Alþingis. Tillagan var sam- þykt með samhljóða atkvæðum Fiskiþingsins. En fjárveitinga- nefnd Alþingis, sá sjer ekki fœrt — þrátt fyrir um eða yfir 200 milljóna kr. tekjur ríkissjóðs, — að verða við áskoruninni, og synjaði um hið umbeðna, kr. 25,000.00. Þá átti undirritaður viðræður við „Eimskip“, herra framkvæmdastjóra Guðmund Vilhjálmsson, og leitaði fyrir sjer, hvert hugsanlegt væri að Eimskip vildi flytja minnis- merkið heim okkur að kostnað- arlausu. Hinum góðkunna fram- kvæmarstjóra var heyranlega sönn ánægja að styðja þetta málefni, og lofaði að flytja fyr- ir okkur minnismerkið kostn- aðarlaust heim til Eyja. Vjer flytjum honum og einlægar þakkir vorar. En þessar hend- ur, sem okkur svo drengilega hafa verið rjettar yfir hafið, gjöra okkur kleift að vinna loka sigurinn. ★ Hjer hefur þá verið sögð saga minnismerkis-málefnisins, eins og hún liggur fyrir í dag. Samtímis vil jeg geta þess að jeg tel hjer komið að leiðarlok- um, og vek athygli á, að það er algjörlega á valdi Vestmanna- eyinga, hve veglegt þetta tákn salcnaðar og minninganna verð- ur. Þar um ræður frjáls vilji, hugur og hjarta einstaklingsins. Vm. á sjómannadaginn 1947. PÁLL ODDGEIRSSON. Stúlka vön matarlagningu óskast nú þegar. Fyrirspurnum ekki svarað' í síma. J(jöt J Cjrœnmeti Hringbraut 56. í Höfðahverfinu er til sölu hálft hús. Allt laust til íbúðar. I hús h.f. Nýja Bíó, 3. hæð, inngangur frá Lækjargötu x Velmentuð skrifstofustúika, sem getur vjelritað íslensku, dönsku, ensku og frönsku óskast nú þegar til ríkisstofnunar. Umsóknir merktar „Velmentuð" sendist afgreiðslu <| blaðsins fyrir 6. júlí n.k. Veitingasalur í Austurbænum til sölu. Salurinn rúmar í sæti 90— 100 manns, honum fylgir eldhús, eitt íbúðarherbergi, 4 snyrtiklefar og auk þess öll áhöld til veitingasölu. í húsnæði þessu er rekin matsala fyrir 100 manns. Greiðsluskilmálar mjög hagkvæmir. Nánari upplýsingar gefur ~j}fmenna j^aóteicjnaóalan Bankastræti 7, símar: 6063 og 7324. < > < > Sænski heilsufræðingurinn Are Vaerland flytur fyrirlestur á islensku í Góðtemplarahúsinu í Hafn- arfirði kl. 8,30 í kvöld. Aðgöngumiðar við innganginn. Náttúrulækmngafielag íslands. VJELAR Hef fyrirliggjandi á lager í Osló nýja og notaða Gufu katla, Gufuvjelar, Þrýstisuðupotta, Dieselmótora, Ljósavjela-samstæður, Rafmagnsmótora, Vinnuvjel- ar (verkfæravjelar), Dælur, Gi’jótmulningsvjelar, Steypuhrærivjelar, Loftpressur. Allt til bygginga- framkvæmda og fleira. UóiptJnf. Oslo, Postboks 2412. Símnefni: „Sildolje“. ^orten JíaclmaJi Best á auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.