Morgunblaðið - 03.07.1947, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.07.1947, Blaðsíða 6
MORGtnnsliAÐIÐ Fimmtudagur 3; júlí 1947 Uf0tllíll>WíÍI> Útg.: H.f. Árvakur, Rf-yltjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands. kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Kommúnistar vargar í vjeum verkalýðs- samtakanna ALDREI HEFIR skemdarstarfsemi kommúnista innan verkalýðshreyfingarinnar komið eins berlega i ljós og í sambandi við yfirstandandi verkfall. Eftir að núverandi stjóm hafði setið skamman tíma að völ^um skáru kommúnistar upp herör og hjetu á launþega- samtökin að snúast gegn stjóminni. Einar Olgeirsson talaði um að löggjöf stjórnarinnar skyldi mætt með mótmælaöldu verkalýðsins. Alt var þetta upphaf og undirbúningur að því að koma til leiðar pólitísku verkfalli, sem fyrst og fremst væri stefnt gegn löglegri stjórn landsins, ekki með hagsmuni verkalýðsins fyrir augum, heldur stjórnarandstöðunnar, Kommúnistaflokksins. Kommúnistar hafa komist nokkuð áleiðis í áformum sín- um. Þeir hafa staðið fyrir verkfalli Dagsbrúnar og lögleys- um Þróttar á Siglufirði. Þeir hafa pantað bróðurlegar sam- úðarkveðjur frá hinum og þessum fjelögum. En alt þetta brölt hefir haft aðrar verkanir en til var ætlast. Það hefir ekki veikt ríkisstjórnina í sessi, en það hefir betur en annað opnað augu fjölmargra fjelagasamtaka verkalýðsins fyrir því, hversu háskasamlega stefnir um velferð verkalýðssamtakanna og þjóðarhag með aðra eins menn í fyrirrúmi og kommúnistar hafa á oddanum innan verkalýðssamtakanna. Kommúnistar riðla verkalýðssamtökin með brölti sínu og hafa mörg hinna einstöku fjelaga risið upp og mótmælt ófagnaði þeirra eða afturkallað glappaskot, sem kommún- istarnir hafa stofnað til. í verkalýðsfjelaginu á ísafirði hafa verið samþykkt mót- mæli gegn því „að verkalýðssamtökunum sje misbeitt með því að stofna til pólitískra verkfalla í þeirra nafni“ og fjelagið talið slíkar vinnudeilur sjer með öllu óvið- komandi. Á Akranesi hafa verkamenn skorað „eindregið á stjórn Alþýðusambands íslands að hefja þegar í stað alhliða samstarf við núverandi ríkisstjórn og öll stjetta- samtök landsins um að ráða bót á dýrtíðinni og tryggja þannig þær margvíslegu kjarabætur fjelagslegar og efna- hagslegar, sem launþegum landsins hefir hlotnast á und- anförnum árum“. Eins hefir fundur verkamanna í Grinda- vík skorað mjög eindregið á stjórn Alþýðusambandsins að „hefja nú þegar samvinnu við ríkisstjórnina um lausn dýrtíðarmálanna, því að það eitt getur tryggt verkalýðn- um raunverulegar kjarabætur“. Mótmælin gegn því að draga verkalýðssamtökin inn í pólitíska baráttu komm- únista hafa streymt víða frá. Frá verkalýðsfjelaginu Vík- ingur í Mýrdal. Frá Árvak á Eskifirði. Úr Eyjum, frá verkalýðsfjelagi Vestmannaeyja. Frá Flatevri, Eyrar- bakka, Keflavík og Seyðisfirði. Og annars staðar hafa verkamenn tekið ráðin af kommúnistum, eins og í Borg- arnesi, þar sem aflýst var verkfalli sem kommúnistar höfðu komið til leiðar. Önnur verkalýðsfjelög semja með friðsemd um kjör sín, eins og í Ólafsfirði, þó að komm- únistar panti uppsögn samninga og óspektir. Loks er þess að minnast að ýmsar samþykktir til styrktar áform- um kommúnista, sem slegið hefir verið upp í Þjóðvilj- anum eru kannske gerðar á 5—10 manna klíkufundum þar sem annars eru margir og sumstaðar svo hundruðum skiptir í verkalýðsfjelögunum. Nú eru einnig nýjustu frjettir að búið er að semja um kjör sjómanna á öllum síldarflotanum. Samt halda kommúnistiskir ráðamenn verkamönnun- um áfram í úlfakreppu Dagsbrúnarverkfallsins. Þes’ái ófögnuður þarf að enda og með þeim hætti, að verkamenn og þjóðarheildin hljóti af minni skaða en kommúnistar hafa stofnað til. ÚR DAGLEGA LÍFINU Snorri fjekk ekki landvist. ÞETTA ÁTTI þá fyrir Snorra gamla Sturlusyni að liggja, að fá ekki landvist á gamla land- inu. Það er ekki hægt að segja annað en að Snorri hafi verið gerður landrækur — og hefði einhverntíma þótt saga til næsta bæjar. Snorri á samt í- tök í þjóðinni og þeir eru sem betur fer ekki margir, sem myndu samþykkja. að úthýsa honum, þótt þeir hafi ráðið í þetta sinn. Trúlegt er, að ef almenningi hefði verið kunn- ugt um þessa fruntalegu með- ferð á gamla manninum, þá hefði hann fengið betri mót- tökur og komið á land. ' • Hvað ætli þeir haldi að þeir sjeu? HVAÐ ÆTLI þeir haldi ann ars að þeir sjeu þessir kónar, sem gera landi sínu og þjóð svona skömm til, að hindra það með ofbeldishótunum, að tekið sje við einhverri kærkomn- ustu vinagjöf, sem íslensku þjóðinni hefir borist frá frænd- þjóð. Þeir halda kannski að þeir geti bætt úr skömminni með því að setja upp líkneski af Sigurði Guðnasyni í Reyk- holti? Það væri svo sem eftir öðrum hugmyndum þeirra um sjálfa sig og sína menn. • Farið að fljóta yfir. „NÚ ERU þeir orðnir band- vitlausir, kommúnistarnir“, sögðu flestir er þeir heyrðu, að Snorrastyttan hefði verið send aftur út til Noregs. — Já, það er b^ra merkilegt, að menn skuli ekki hafa sjeð þetta fyr. Því sannleikurinn er sá, að þeir_ eru ekkert vitlausari nú en þeir hafa altaf verið og það er ekki nokkur von að þeim batni. En það er ekki nema eðlilegt, að mönnum þyki að nú sje farið að fljóta yfir — og að nóg sje komið. • Verður að bæta skaðann. NÚ. ÞAÐ var ekki við öðru að búast en að kommarnir yrðu þjóðinni til skammar. Það vissu allir, sem ekki játa blint hina gersku trú. En nú verður að bæta úr þeim skaða, sem þeir hafa unnið. Um það eru allir sannir íslendingar sam- mála. Vjð getum ekki og viljum ekki vera þektir fyrir, að hundsa þá ágætu menn, sem sýnt hafa okkur vináttu, með því að slá á þeirra útrjettu hönd. Þetta vita Norðmenn og taka því ekki eins hart á þeim mistökum, sem orðið hafa. Það má ekki koma fyrir, að Snorrahátíðin falli niður og hinir góðu gestir, sem væntan- legir eru til landsins í heim- sókn munu finna, að hjer eru þeir aufúsugestir. • Lægðir úr öllum ÞAÐ ER HELDUR skemtilegt að hlusta á veðurfregnirnar þessa dagana, eða hitt þó held- ur. Ekkert að hafa nema lægð- ir, — lægðir úr öllum áttum og allar' eru þær á hreyfipgu til Einbúans í Atlantshafi. Hjer áður fyr þótti nóg að það væri lægð á leiðinni frá Grænlandi til að eyðileggja fyrir manni blíðuna, en nú sækja þær að sunnan úr löndum líka. Einu sinni fengum við af því óorð í Englandi, að frá íslandi væri ekkert að hafa nema lægð ir. En jeg býst við að flestir sjeu sammála um, að það sje betra að hafa óorðið, en að verða sjálfur fyrir barðinu á bannsettum lægðunum. • Húsmæðrasýning. Á LANDBÚNAÐARSÝNING UNNI er ein deild, sem hús- mæður bæjarins myndu hafa gaman af áð sjá og dvelja lengi við. Það er húsmæðrakennara- fjelagið ,,Hússtjórn“, sem hef- ir sjeð um hana og ungfrú Helga Sigurðsson og nemend- ur hennar í Húsmæðrakennara skóla íslands eiga mestan veg og vanda af henni. Deild þessi er innst í aðal- sýningaskálanum, rjett við fossinn. Þar er hægt að sjá alls konar íslenska niðursuðu úr ís lensku grænmeti og berjum og þar er hægt að smakka á margs konar góðgæti. Fróðlegt er að sjá uppbúið borð með mat fyrir einn mann í heilan dag og sýni kennsluklefinn er hreint ekki ómerkilegur, en þar fer fram sýnikensla við og við allan dag- ; inn. Húsmæður bæjarins ættu að sjá þessa sýningu og þær geta mikið af henni lært. • Ógurlega dýrt land. ÚTLENDINGAR, sem koma hingpð til landsins kvarta sár- an vfir dýrtíðinni. Sumir segj ast aldrei hafa lagt upp í Is- landsferð ef þeir hefðu haft hugmynd um verðlagið og marg ir fara miklu fyr en þeir höfðu gert ráð fyrir vegna dýrtíð- arinnar. Það er að komast á okkur það orð, að við sjeum svo ógur- lega dýrt land, að hingað sje ekki komandi og er það ekki nema eðlilegt. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Miskunnsami Samverjinn við Sieinafjall í MÖRG ÁR hefur fólk í ná- grenni Steinafjalls (Stone Mountain) í Georgíu kallað Elías D. Nour „gamla fjalla- manninn", þótt hann sje nú ekki eldri en 32. ára gamall. Hann þekkir fjallið með öllum þess klettum betur en nokkur annar, og allt frá því hann var smádrengur hefur hann verið einskonar opinber björgunar- maður allra þeirra fjallgöngu- manna, sem komust í ógöngur í hömrum fjallsins. Ef einhver hefur komist í vandræði í fjallinu, er Elías sá maður, sem fyrst er kallað á. Og hann bjargar ekki aðeins mönnum. Sem dæmi um það er að eitt síðasta verk hans var að bjarga hundgarmi einum, sem með einhverju móti hafði komist upp á klettasyllu. en það var verra að komast niður. Skemtilegur gamall siður. Það er gamall siður í Georgiu ríki, að ef einhver unglingur ætlar að fara að hiðja sjer konu, þá fer hann með stúlk- una sína upp í Steinafjall og þar við hæsta tindinn krýpur hann á knje fyrir framan hana og hefur upp bónorð sitt. En þarna kemur líka hin dökka hlið mannlífsins í ljós, því að Steinafjall er líka stað- ur sjálfsmorðingja og Elías verður að gera tilraunir til að bjarga þeim, þó að það sje oft miklum erfiðleikum bund- ið. — Fyrir nokkrum árum fleygði kona ein sjer fram af hinni bröttu hlið fjallsins. Það voru nokkrir fjallgöngumenn, sem fundu regnhlíf hennar og tösku og gerðu lögreglunni að- vart, sem fjekk Elías þegar í lið með sjer. Elías segir frá: — Við fundum hatt hennar þar sem hún hafði hengt hann á járnstöng. Þann dag leituð- um við í allri hlíðinni en klukk an sex um kvöldið höfðum við enn ekkert fundið. Jeg fór þá enn upp .á toppin og klifraði niður að staðnum, þar sem regnhlífin hafði legið. Jeg klifr aði beint niður af því og kom jeg brátt auga á kirsuberjatrje, sem var með brotnar greinar. Þegar jeg kom að því sá jeg að hún lá þar í mosanum. Ef greinarnar hefðu ekki verið brotnar er ekkert víst að við hefðum fundið hana. En oftast bjargár Elías samt fólki ,sem héfur verið óvarkárt eða óheppið. Hann segir, að feitar konur missi oftast hand- festu og verði fyrir mestum slysum. En auk þess er skóla- fólk, er reynir jafnan við erfið- ustu staðina. Stundum kemur það einnig fyrir að börn týn- ast frá foreldrum sínum. Ætlaði að fara í bíl upp á tind. ' Drukknir menn eru í flokk I út af fyrir sig. Einn þeirra hafði ákafa löngun til að keyra í bílnum sínum upp á topp á fjallinu. Hann reyndi til þess og komst nokkuð upp í hlíðina, en þar rakst bíllinn á viðarbol. Steinfjall hefur jafnan eitt- hvað aðdráttarafl við sig, aðal lega vegna þess að altaf er eitt hvað nýtt að gerast þar og eng inn getur sagt um hvað kem- ur fyrir þar. Einu sinni á stríðsárunum kom það fyrir að Elías bjarg- aði Hitler. Það var nú raunar aðeins útstoppuð brúða, sem líktist manni í þokunni, sem þá var yfir. Sternflokkurinn jáfar JERÚSALEM — Sternflokk urinn í Palestínu hefir birt til- kynningu, þar sem hann játar að hafa beitt sjer fyrir drápi j fjögurra breskra hermanna I um s. 1. helgi. Hann segist hafa (gert þetta, vegna þess að Pal- I estínustjórn hafi rofið heit sitt ! um vopnahlje, meðan ranri- ^ sóknarnefnd Sameinuðu þjóð- anna er í landinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.