Morgunblaðið - 03.07.1947, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimrntudagur 3. júlí 1947 ,
90 ára
Hallfríður í Efstabæ
Fimm mínúfna krossgáfan
SKÝRINGAR
Lárjett: — 1 ýtir undir — 6
biblíunafn — 8 tveir hljóðstaf-
ir — 10 hæð — 11 puntuð —
12 skvaldur — 13 fangamark
1— 14 kvenmannsnafn — 16
óhreinindin.
Lóðrjett: — 2 verkfæri þf.
1— 3 land í Evrópu — 4 leikur
— 5 meðalið — 7 kærleikur-
inn — 9 fjalls — 10 í sjó —
14 fangamark — 15 töluorð erl.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 Satan — 6 kýs
— 8 aó — 10 te — 11 steggur
— 12 tt — 13 G. K. — 14 ætt
— 16 stara.
Lóðrjett: — 2 ak — 3 Týs-
gata — 4 A. S. — 5 fasta —
7 verka — 9 ótt — 10 tug —
14 æt — 15 tr.
Höfum ^fyrirliggjandi: I
I Pentavjelar I
| Smurningsolíur nr. 20
og 30,
i Tilkeyrsluolía,
i Stýrisútbúnaður með
i ratti,
i Rurðargrindur á
bíltoppa,
i Bensínbrúsar, 20 1.
! COLUMBUS H. F. í
Sænska frystihúsinu
Símar 6460 og 6660.
I Bílamiðlunin
i Bankastræti 7. Sími 6063
i er miðstöð bifreiðakauna
1 DAG verður níræð merkis-
konan Hallfríður Ólafsdóttir í
Efstabæ á Akranesi. Hallfríð-
ur var gift Birni Guðmundssyni
sjómanni, hinum besta dreng,
en hann ljest fyrir nokkrum ár-
um og höfðu þau Hallfríður og
Björn þá lifað í farsælu hjóna-
bandi á fimta áratug.
Hallfríður hefur gengt hús-
freyjustörfum í Efstabæ um 50
ára skeið.
Hallfríður er hin mesta mynd
ar og dugnaðarkona, fríð sýnum
og gjörfuleg. Ber hún aldurinn
vel, enda hefur hún haft mikl-
um manni að má.
Hallfríður er kona vinföst og
trygglynd. Dvaldi á heimili
þeirra hjóna um 40 ára skeið,
einstæðingskona, þeim óskyld,
sem nú er nýlega látin í hárri
elli.
Ljetu þau Hallfríður og Björn
sjer mjög ant um vellíðan henn-
ar. Eftir lát manns síns veitti
Hallfríður henni einstaka að-
hlynningu og hjúkrun síðustu
árin, sem hún lifði.
Hallfríður er Skagfirsk að
ætt. Er hún fædd í Brekku í
Víðimýrarsókn. Fluttist hún
með foreldrum sínum, Ólafi
Gunnarssyni og Guðrúnu Guð-
varðsdóttur, 6 ára gömul frá
Brekku vestur í Húnavatns-
sýslu. Þaðan fluttist hún með
foreldrum sínum eftir skamma
dvöl þar til Suðurlands. Bjuggu
foreldrar hennar þar í nokkr-
um stöðum en lengst á Litla-
sandi í Hvalfjarðarstrandar-
hreppi.
Á Hallfríður í fórum sínum
passa eða prestseðil, sem sókn-
arprestur H. Jónsson í Glaum-
bæ Ijet föður hennar í tje er
hann flutti úr sóknum hans. Seg
ir þar, „að foreldrar Hallfríðar
víki frá Brekku með góðu mann
orði og óhindruð að njóta síns
andlega frelsis.“ Eru á seðli
þessum talin upp börn þeirra
hjóna og hvað liði námi þeirra í
lsristnum fræðum. Um Hallfriði
segir að- hún, þá 6 ára gömul,
þekki stafina. Passa þessum,
sem er undirritaður í Glaumbæ
5. nóvember 1863, lýkur með
þessum orðum:
„Ofannefnd hjón ásamt börn-
um þeirra, leiði góður guð á
vegi sannrar farsældar og á-
nægju og meðtaki þau til sín að
lyktum.“
Hallfríði eru í barns minni
ýmsar frásagnir að norðan, sem
lifðu á vörum foreldra hennar.
Skal hjer getið tveggja atburða
er foreldrar Hallfriðar sögðu
frá og henni urðu minnisstæðir.
Langafi Hallfríðar, Magnús
að nafni, bjó í Móðuharðindun-
um í Vatnshlíð á Vatnsskarði.
Er sú jörð á sýslumótum Húna-
vatns- og Skagafjarðarsýslna,
Húnavatnssýslu-megin. Var það
algengur viðburður þar á þess-
um árum, að kýrnar væru mjólk
aðar um miðjan dag til þess að
næra vergangsfólk, sem bar þar
að garði aðfram komið af sulti.
Um þessar mundir skeði sá
atburður í Vatnshlíð að eitt sinn
er fjósamaður kom í fjósið að
morgni dags, fann hann korn-
ungt barn, sem enginn vissi
deili á, bundið við eina fjós-
birsluna. Fjekk barnið hina
bestu hjúkrun og var það alið
upp í Vatnshlíð og komst til
fullorðinsára.
Hallfríður hefur gott minni
og kann hún frá mörgu að segja
er hún hefur heyrt frá skýrt og
við hefur borið á langri lífsleið
þessarar athugulu skírleiks-
konu.
Vinir og kunningjar Hallfríð-
ar munu senda henni hlýjar
kveðjur og árnaðaróskir á ní-
ræðisafmælinu. P. O.
Jónsmessuhálíð á
Akureyri
KVENFJELAGIÐ Framtíðin
efndi til Jónsmessuhátíðar á
Akureyri s.l. laugardag og hófst
kl. -8,30 e. h. á Iþróttasvæðinu
sunnan við sundlaugina.
Þá um kvöldið ljek Lúðrasveit
Akureyrar, fyrst nokkur lög
undir stjórn Áskels -Jónssonar.
Sýnt var leikrit á palli þeim,
er var komið fyrir á hátíðar-
svæðinu, Jónsmessudraumur. —
Skátar höfðu varðelda og stig-
inn var dans. Daginn eftir,
sunnudag hófst hátíðin kl. 2 e.
h. Þá Ijek lúðrasveitin, formað-
ur Framtíðarinnar, frú Gunn-
hildur Ryel, flutti ávarp. Sjera
Pjetur Sigurgeirsson hjelt ræðu,
sýndir voru gömlu og nýju tím-
arnir af dansfplki. Leikritið
Jónsmessudraumur var og þá
endurtekið. Lúðrasveitin ljek
aftur, og karlakórar bæjarins
skemmtu með söng um daginn.
Ýmislegt fleira var þarna til
skemmtunar, en er leið á sunnu-
daginn gerði talsverða rigningu
svo að hætta varð samkomunni
á þeim stað, er hún var haldin.
En síðar um kvöldið var stig-
inn dans að Hótel Norðurland.
Mjög margt fólk sótti Jóns-
messuhátíðina. Var kaffi selt í
Gagnfræðaskólanum, sem þar
er skammt frá. Eins og venja
hefur verið fyrirfarandi ár, er
Kvenfjelagið Framtíðin hefur
stofnað til skemmtana rann all-
ur ágóði af hátíðinni til nýju
sjúkrahússbyggingarinnar á Ak
ureyri. — H. Vald.
— Hól skipasmiða
Framh. af bls. 7
er að smíða þar og verður 25
þús. smálestir. Þaðan var full-
trúunum boðið út í Skerjagarð-
inn að skoða 3 skipasmíðastöðv-
ar í Hálsö, Knippla og Mar-
strand. íslendingar munu kann-
ast við þessi nöfn, þær byggðu
hluta af Svíþjóðarbátunum. —
Þessi kynnisferð var mjög á-
nægjuleg og veður var hið besta.
Áður en störfum ráðstefnunn
ar lauk, var stofnað Samband
norrænna skipasmiða og kosin
fyrir það bráðabirgðastjórn. —
Þetta samband heitir á sænsku:
Skandinaviskt Tráskepps- och
bátbyggare forbund. í stjórn
þess eiga sæti fulltrúar frá Nor-
egi, Danmörku og Svíþjóð. ís-
lendingar og Finnar gátu ekki
tekið þátt i stofnun þess, því
hvorki hjer eða í Finnlandi hafa
skipasmíðameistarar myndað
með sjer f jelagsskap og gátu því
ekki gengio inn í sambandið að
svo stöddu. En íslensku fulltrú-
arnir munu taka þetta mál til
athugunar hjer heima meðal
stjettarbræðra sinna.
Að lokum sagði Arnór, að
móttökurnar í Svíþjóð hefðu
verið hinar ákjósanlegustu bæði
af hálfu hins opinbera svo og
einstakra stofnana. Það hafi
verið íslensku fulltrúunum til
mikils gagns að taka þátt í þess
ari fyrstu ráðstefnu fiskiskipa-
smiða.
Herbergi —
Hreingerning j
| 1 eða 2 reglusamar stúlk- |
\ ur geta fengið gott for- 1
í stofuherbergi í miðbæn- §
= um til leigu. Verða að I
1 tak-a að sjer hreingerning- |
i ar í sama húsi. — Tilboð I
I merkt: „Herbergi hrein- 1’
I gerning — 2071“ leggist á \
\ afgr. Morgunbl.
Sjáið sýningu <£rneáto VUaÍJoza
í Tjarnarbíó í kvöld kl. 11,30
ISTæst síðasta sinn
Aðgöngumiðar í Tjarnarbíó frá kl. 1 í dag.
|1 ----- - - --------------------------------- --- , ■ _ • • i ...- -
X-f ‘a - a a & a EffirRobertSform
' n " n ,r " " 1 1 " “ " " " ” ■ m n - - - ■ ■------ ■■ ———
? KRUM41, THI& WHOLE TMlNO 1
I-5 100 PAT! L00K$ LIKE A
FRA/V1E...MAME V0UR FlNGERPRlNT
/VIAN 60 0VE(? THE INTERlOR OF
THAT CL0&ET— ITMI6HT HOLP
N THE KEV. TO THl£ MV£TERV ‘
.. BUT, LIVER-LIP$.“
WHAT DIFFERENCE
D0E£ IT MAKE WHAT
JlME we mailep
THE LETTER T V
f vou DOLT! IF THE N
MtDlCAL EXAMINER
PROVEE’ THE TIME OF^
DEATH, THEV’LL know
that pleed couldn't
HAVE MAILED THAT
L LETTER BLAMlNó
corriöAn ! y
Bing: — Þetta liggur allt saman opið fyrir. —
LítUr út fyrir, að einhver sje að reyna að fá Phil
dæmdah saklausan. — Láttu athuga fingraförin á
skápnum ýijerna. Þar kunnum við að finna lyktina
að leyndarmálinu. — En um líkt leyti og þetta
skeður, er Kalli kyssimunnur óður og uppvægur út
í bæ. — Jói: En Kalli, hvaða máli skiftir það, hve
nær við póstuðum brjefið? — Kalli: Asninn þinn!
Ef læknirinn sannar það, hvenær Pleed dó, hlýtur
lögreglan að sjá, að hann hefði ekki getað sett
brjefið í póst. Og þá sjer lögreglan, að Corrigan
getur ekki verið morðinginn. — En umrætt brjef
liggur ennþá í póstkassanum. Á því kann að veltá
líf eða dauði Phil Corrigan.