Morgunblaðið - 09.08.1947, Blaðsíða 1
Skrípakosningar í Ungverjalandi
900 ÞÚS. SVIPTIR KOSNINGARJETTI
-<s>
Slíia Rússar sljérn-
agamir i
Aþena í gærkvöldi.
SENDIFULLTRÚI Sovjet-
rikjanna í Aþenu hefur sent
gríska utanrikisráðuneytinu
mótmælaskjal í tilefni „ýmissa
athafna grískra stjórnarvalda,
sem ósanlræmanlegar eru því,
að stjórnmáiasamband haldist
með Grikklandi og Sovjetríkj-
unum“, eins og komist er að
orði í skjalinu.
Frjettariturum þykir þessi
atburður benda til þess, að
Rússar muni vera i þann veg-
inn að slíta stjórnmálasam-
bandi við Grikki, og benda í
því sambandi á það, að am-
bassadör Rússa í Aþenu fór
heim til Rússlands 10. apríl s.
1. án þess að sækja til grískra
: : % . "■
stjórnvalda um leyfi til þess að Myndin er tekin af fótgönguliði grísku stjómarinnar, sem
konia til landsins aftur. | sækir fram gegn uppreisnarmönnum.
— Reuter.
ámerísk herpgn Sil
Grikkja
Aþena í gærkvoldi.
I DAG kom til Pireus 6165
smálesta amerískt flutninga-
skip, „Hastings“. Flutti það
meðal annars hergögn handa
grísku stjórnarhersveitunum.
Er þetta annað skipið, sem flyt
ur birgðir til Grikklands sam-
kvæmt ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar um aðstoð við Grikki.
Búist er við þrem vöruflutn-
ingaskipum í viðbót til Grikk-
lands innan skamms. — Reuter
London , gærkvöldi.
JOHN Strachey, matvælaráð
herra Breta, skýrði blaðamönn
um svo frá, að frá og með 17.
ágúst myndi verða minnkað
matvælamagn það, sem hverj-
um cinstaklingi er heimilt að
kaupa umfram skammtinn.
Nemur lækkunin einum átt-
unda. — Ennfremur sagði ráð
herrann, að Bretar myndu
hætta að kaupa matvæli , af
þeim ríkjum, sem ekki tækju
við sterlirrgspundum ' sem
greiðslu. Verslunarsamningar
hefðu verið gerðir við Dani,
Pólverja og Hollendinga, og
vonast væri til, að samningar
gætu einnig tekist við Júgó-
slava, Ungverja og Eire.
— Reuter.
Bresku stjórninni
fengin stóraukin völd
StjérnarandslæSingar lelja 'hana nú ein-
?a!da um skipulagningu framlei^slunnar
eg hagnýtingu vinnuaflslns.
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
AÐ LOKNUM mjög hörðum umræðum samþykkti neðri mál
stofa breska þingsins með 251 atkv. gegn 148 frumvarp um að
fá stjórninni geysileg völd, sem hún telur sig þurfa til þess að
ráða fram úr efnahagsörðugleikum bresku þjóðarinnar. Stjórn
arandstæðingar, og margir þingmenn Verkamannaflokksins
reyndar líka, telja, að með þessu framvarpi sje stjórninni fengið
fullkomið einræðisvald um skipulagningu framleiðslunnar í
landinu og hagnýtingu vinnuaflsins.
Winston Churchill, sem tók^
til máls af hálfu íhaldsmanna, og sama er að segja um einn
sagði, að breska þjóðin, sem þingmann Verkamannaflokks-
hefði búið við frelsi, gæti ekki ins Crossman, sem til máls tók
þolað, að stjórninni yrði fengið við umræðurnar.
slíkt einræðisvald, allra síst Flerbert Morrison varafor-
stjórn, sem með skammsýni sætisráðherra hóf umræðurnar
sinni og dugleysi hefði búið Sagði hann, að stjórninni væri
þjóðinni enn ömurlegri kjör en nauðsynlegt að fá svo mikil
hún átti við að búa á styrjald völd til þess að hún gæti unn-
arárunum, ef frá væru skildar bug á kreppunni. Stjórnin
blóðsúthellingarnar. Ef frum- ]lefgi ckki hugsað sjer að láta
varpið yrði að lögum, væri vald á þessu stigi málsins yfirheyra
þingsins úr sögunni og einræð s]g ; þaufa um það, hvernig
isstjórn komin a í landinu. jhún hyggðist nota þessi auknu
Clement Davis, leiðtogi Frjáls völd. Hún myndi beita þeim
lynda flokksins, var einnig ’ eins og árangursríkast þætti,
þeirrar skoðunar, að stjórninni en standa þinginu reikningskil
væri hjer fengið of mikið vald, gjörða sinna.
Mótmæli frá fulltrúum
þriggja stjórnmálaflokka
BUDAPEST.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FULLTRÚAR Smábændaflokksins og Sósíal-demókrataflokks
ins hafa borið fram mótmæli fyrir innanrikisráðherrann Laeslo
Rajk vegna órjettlætis við undirbúning kjörskráa undir þing-
kosningarnar, sem fram eiga að fara 31. ágúst.
áffee ræílr við
Reklsmenn sína
London í gærkvöldi.
TILKYNNT hefur verið, að
Attlee, forsætisráðherra Bret-
lands, muni á mánudaginn
halda lokaðan fund með þing-
mönnum Verkamannaflokks-
ins. En margir þingmannanna
höfðu óskað þess að ræða nán-
ar fvrirhugaðar aðgerðir stjórn
arinnar í efnahagsmálunum,
áður en þinghlje verður á mið
vikudaginn. — Reuter.
Sprenging í bresku
skipi
Melbourne í gærkvöldi.
I DAG varð mikil sprenging
í ‘ bresku flutningaskipi,
„Mahia“, þar sem það lá í
höfninni í Melbourne. Spreng
ingin varð við það, að tvær
tunnur með natríumnítrati rák
ust saman. —- Vitað er um, að
sex menn hafa farist í spreng
ingunni, en tun afdrif 10
manna er enn ókunnugt.
Þeirra er nú leitað. — Eldur
kom upp í skipinu, en varð
slökktur. Skipið sökk skömmu
síðar. — Reuter.
Ofbeldismenn ræna
' Jerúsalem í gærkvöldi.
GRtMUKLÆDDlR ofbeldis
menn úr hópi Gyðinga rjeðust
í dag inn í banka einn i borg-
inni Ramatgan, sem er skammt
frá Telaviv. Ógnuðu þeir starfs
mönnum bankans með byssum
Ofbeldismönnum tókst að kom
ast burt með nokkur þúsund
sterlingspund. — Reuter.
Washington
Ástralía 45« meðlimurinn
WASHINGTON: — Ástralía hef-
ur gerst 45. aðilinn að alþjóða-
bankanum og gjaldeyrissjóðnum.
Framiag Ástraliu til sjóðsins nem-
ur 200 milljónum dollara, en í bank
anum hefur Ástralía keypt 2000
hlutabrjef að nafnverði 200 millj.
dollarar.
’ Eitthvað milli átta hundruð
þúsund og níu hundruð þúsund
ungverskir borgar hafa verið
sviptir kosningarjetti.
„Kannske44 verða einhverjir
teknir aftur inn.
Rajk svaraði fulltrúunum
því að hann skyldi gera allt
sem hann gæti til að koma í
veg fyrir órjettlæti í kosning-
unum, og að ef til vill yrðu
einbverjir af þeim sem strikað
ir hafa verið út af kjörskrám
aftur teknir inn á þær. Þó
bætti hann við að lokum, að
ekki kæmi til mála að hægt
væri að taka nema 250 þúsund
aftur upp i skrárnar.
Bannað að prenta fyrir
andstöðuflokka.
Zoltan Pfeiffer fyrverandi
ráðherra fyrir Smábændaflokk
inn og núverandi leiðtogi
„Sjálfstæða andstöðuflokksins“
lýsti þvi yfir í dag, að þótt
flokki hans hefði verið leyft að
gefa út kosningabaéklinga
kæmi það að litlu haldi þvi að
prenturum hefði verið bannað
að prenta þá.
Brelar vilja gera
aSra liiraan ti! aS ná
samkciRulagi
HAROLD Wilson ráðherra
utanríkisverslunar Breta kom
til London í dag eftir samninga
umleitanirnar við Rússa í
Moskva. Hann sagði að sam-
ræður milli þjóðanna hefðu
farið út um þúfur í bili en Bret
ar hefðu sent fyrirspurn um
það til Moskva, hvort engan
grundvöll sje hægt að finna fyr
ir framhaldandi samræðum og
bíði þeir nú eftir svari.
Wilson lýsti því yfir, að það
væri helbert slúður, sem hefði
komið fram í rússneskum blöð
um, að Bretar hefðu ekki vilj
að semja vegna áhrifa frá
Ban darík j amönnum.
Hann sagði, að fyrsta krafa
Breta ef samningar ættu að
nást, væri að Rússar stæðu við
sanminga sina fram til ársloka
1946. — Reutér.