Morgunblaðið - 30.08.1947, Síða 2

Morgunblaðið - 30.08.1947, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 30. ágúst 1947Í | S.Í.F. hefur að frumkvæði sjávar- útvegsmálaráðherra tekið á leigu skipasmíðahús Landssmiðjunnar Þar verður komið upp stórri fiskverkunarstöð um, sem greiðir honum braut að þúsundum matborða í heit- um löndum sem köldum, til strjálustu byggða og borga sem þannig eru sett, að nýr og fryst- ur fiskur á engar opnar dyr að. Samtal við Krhfján Einarsson framkvstj. ÞAÐ hefur orðið að samkomulagi milli Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda og ríkisstjórnarinnar, að Sölusambandið taki á leigu skipasmíðahús Landsstniðjunnar við Elliðaárvog, en þar ætlar S.I.F. að koma upp stórvirkri fiskverkunarstöð. Kristján Einarsson framkvæmdastjóri S.I.F. skýrði Morgun- blaðinu frá þessu og fyrirætlunum Sölusambandsins í sambandi við stöðina. Þá er þurkaði saltfiskurinn óefað ein af þeim fæðutegund- um, sem þjóðunum virkilega geðjast að og vilja fá. Tek jeg það dæmi, að í Brasilíu og Argentínu hefur þurkaður salt- fiskur stundum verið seldur fyrir þrefalt hærra verð en besta kjöt. Portugal og Spánn salta og þurka mikinn hluta þorskafla síns. Hversvegna? Undirbúningur er þegar haf- inn, sagði Kristján og verður verkinu hraðað eftir föngum. Það var Jóhann Þ. Jósefsson sjávarútvegsmálaráðherra, er átti frumkvæðið að leigumál- um þessum. Húsin. Flatarmál húsa þeirra, er leigð hafa verið, er rúml. 2.100 m2, og hafa þau verið skoðuð og talin hæf af fróðum fiskverk unarmönnum. Er svo til ætlast að fiskþurkun geti hafist þar eftir tveggja mán. tíma, og á- ætlað að þurkhús þessi muni geta verkað 3—4000 smál. af saltfiski á ári, ef nægilegt verk- efni væri fyrir hendi allan tím ann. Með núverandi verðmis- mun á þurkuðum og óþurkuð- um saltfiski myndi þetta geta aukið erlendan gjaldeyri Is- lendinga um allt að 2 milljónir króna á ári, því bæði er það, að þurkaður saltfiskur er eft- irsóttari vara og seljanlegri, eg svo fengist erlendur gjaldeyrir fyrir allan þann vinnukostnað, er af verkuninni leiddi. Ársframleiðslan um 30—40 þús smál. Hefur nokkuð frekar verið aðhafst til þess að koma fisk- þurkuninni af stað að nýju? Já, strax í vor, er sjeð var að allmikið af saltfiski — eða um 30 — 40.000 smál — myndi verða framleiddur á þessu ári. Byrjaði Fisksölusambandið á því að hvetja fjelagsmenn sína til að þurka saltfisk á hvern þann hátt, sem þeim væri unnt. Skriður komst þó eigi á fisk- þurkunina svo heitið gæti, fyrr en ríkisstjórnin tók þá ákvörð- un að tryggja mönnum sölu- verð á hinum þurkaða fcski, hlutfallslega á sama hátt og hinn óþurkaði var tryggður. Eftir það hófst fiskþurkun á nokkrum stöðum víðsvegar á landinu, en þó víðast hvar í smáum stíl. Fiskþurkunarhúsin úti á landi. ' Hafa hin gömlu fiskþurkun- arhús eigi verið notuð? Aðeins tvö af hinum gömlu þurkhúsum hafa byrjað fisk- þurkun að nýju, þurkhúsið í Vestmannaeyjum og þurkhúsið í Keflavík. Því næst öll önnur þurkhús á landinu höfðu verið notuð sem vörugeymsluhús meðan á stríðinu stóð. Voru mörg þeirra einnig orðin úrelt, bæði hvað fyrirkomulag -snerti, svo hafa tæki þeirra mjög spillst á þeim 8 árum, sem þau eigi hafa verið notuð, eða verið viðhaldið. Er líklegt að þau sem hæf reynast verði starfrækt nú á næsta vetri. Nýjar fiskvcrkunaraðferðir. Þá ber að geta þess, að r>jáv- arútvegsmálaráðherra hefur skipað nefnd fróðra manna, sem hefur starfað í sumar að því að endurbæta fiskþurkunarað- ferðir þær, er til þessa hafa verið notaðar, og koma hinni nýju tækni meira að í þessum efnum, en hingað til hefur ver- ið. Eru allmiklar vonir til, að gagn verði að störfum nefndar þessarar. Þá hefur fiskimats- stjóri fest kaup á fiskþvotta- vjel í Bretlandi, sem væntan- leg er hingað í haust eða snemma í vetur. Hefur fje verið lagt til kaupa þessara af Fisk- sölusambandiisu og Fiskimála- nefnd. Saltfisk ncysla þjóðanna. Er ekki neysla á saltfiski yfir leitt að minnka í heiminum? Það hefur verið allsterk skoð un fjölda manna, að saltfisk- neyslan væri minnkandi og sumir Islendingar gengu svo langt meðan á stríðinu stóð að halda því fram, að saltfiskur yrði hjer aldrei framleiddur. Það er ekki hollt okkur ís- lendingum að vera svo fáfróðir um aðalframleiðsluvöru okkar. Ef teknar eru hagskýrslur fisk- framleiðsluþjóðanna frá 1914 til stríðsbyrjunar sjest, að saltfisk- framleiðslan í heiminum hafði hvorki meira eða minna en þre faldast, og allur var hann keypt ur og etinn. Svo heyrir maður fjöldann se^ja: saltfiskneyslan er að hverfa. Skýringin á þessu er sú, að þótt allir kysu heldur ferskan fisk eða frystán, sém nú ekki er, þá er örðugleikinn sá að fá hinn nýja fisk, og ennþá meiri að geyma hann. Hinsveg- ar er það geymsluþol þurfisks- ins og hversu auðfluttur hann er með öllum venjulegum tækj Saltfiskþnrkun verður að hefjast á ný. Ef ísland á að lifa, verður það að fiska — og fisk sinn verða þeir að selja þannig verk- aðan að sem flestir sem vilja hann geti keypt hann. íslensk- ir útvegsmenn verða því að gera sjer fulla grein fyrir því, að saltfiskþurkun verður að hefjast að nýju. Óhugsandi er að ísland geti komið þorskafla sínum í verð, ef hann á að mestu leyti að seljast úr landi sem ó- verkaður saltfiskur, því raun- verulega eru þau lönd, sem vön eru að nota fiskinn þannig, mjög fá — aðallega Ítalía og Grikkland. Hinsvegar er fjöldi markaða okkur lokaðir, ef við höfum ekki þurfisk á boðstól- um, svo sem Suður-Ameríka, Cuba og að mestu Spánn og Portugal. Þegar lönd þessi eru nefnd, getur hver og einn gert sjer það ljóst, að við íslending- ar megum ekki sjálfir loka okk ur út úr frá þessum góðu og gömlu markaðslöndum vorum, með því að geta ekki boðið þeim fisk okkar verkaðan á þann hátt, sem þeir hafa áður fengið hann, og vilja ennþá fá hann. Hvernig gengur sala á hinum óþurkaða saltfiski, sem fram- leiddur hefur verið í'ár? Nokkur hluti hans er þegar seldur, afskipaður og greidd- ur. Þá hefur verið samið um sölu á töluverðu fiskmagni nú síðustu daga. Hinsvegar óska jeg eftir að mega fresta ítar- legri frásögn um sölu saltfisks- ins nú um nokkurn tíma ennþá, vegna þess að sennilegt er, að þá sje hægt að gefa landsmönnum rjetta frásögn um hvenær það af fiski þeirra fer, sem nú er óselt, því vitað er að það er hið mikla áhyggjuefni hvers ein- staks fiskeiganda í landinu. Demöntum skilað FRANKFURT. Bandaríkjaher- inn í Þýskalandi sendi nýlega de- manta,-sem virtir eru á 2,5000,000 dollara og nasitsar stálu á sýnum tíma, til baka til rjettmætra eig- enda þeirra í Hollandi. Fjármálaráðherra svarar Vísi í LEIÐARA Vísis i fyrradag var grein með fyrirsögninni: „Úr hörðustu átt“. Skilst mjer að hún sje svargrein við ein- hverju, sem Einar Olgeirsson hafi látið frá sjer fara um ný- sköpunina, svokölluðu. Að því leyti, sem Vísis- greinin á ,við störf Nýbygg- ingarráðs, vildi jeg mega taka það fram, að ummælin um ,,að Einar Olgeirsson hafi haft þar mest ráð“, eiga ekki við rök að styðjast. I greininni segir: „Fram- kvæmd nýsköpunarinnar hefir aldrei verið nein fyrirmynd“. Þetta verður ekki skilið öðru vísi en svo, að hjer sje átt við störf Nýbyggingarráðs. Nú hef ur að vísu fyr hvinið svo í þeim skjá, og raunar fleirum, þaðan, er framkvæmdir Nýbyggingar- ráðs hafa aldrei verið -litnar rjettu auga. Ekki er það mitt að úrskurða hvort þessi Vísis dómur um framkvæmd nýsköpunarinnar sje rjettur. En hitt ætla jegf að væru þeir að spurðir, er á sín- um tíma áttu mest undir fyrir- greiðslu Nýbyggingarráðs — at hafnamennirnir í landinu — myndu þeir ekki allir taka undir þessi ummæli blaðsins eða önnur slík, varðandi Ný- byggingarráð og þau verkefni, er það hafði með höndum. Nýsköpunin, eða sú viðleitni til alhliða viðreisnar atvinnu- veganna, sem þar er átt við, var upp tekin undir forustu for- manns Sjálfstæðisflokksins, Ól- afs Thors, og hafði hann til þess 'traust Sjálfstæðismanna innan þings og utan. — Fram- kvæmd hennar hafði Nýbygg- ingarráð með höndum, eh því veitti jeg forstöðu frá byrjun og meðan því entist aldur. Með mjer sátu jafnan í ráðinu þrír menn, einn frá hverjum stjórn- málaflokki, eins og kunnugt er. Sjálfur mun jeg hafa starfað þar lengst allra ráðsmanna og bar vitaskuld sem formaður ráðsins ábyrgð á því, sem þar fór fram. Hvorki Einar Olgeirs son nje aðrir ráðsmenn, er jeg starfaði með seildust þar til meiri yfirráða en þeim bar. — Afgreiðslan öll, í höfuðatriðum, var með allra samþykki. Sam- vinna var hin besta alla tíð í Nýbyggingarráði. Gagnrýni á þeirri stjórnar- stefnu, sem hafði nýsköpunar- málin á oddinum, ber fyrst og j fremst að snúa að formanni Sjálfstæðisflokksins, en hvað við kemur framkvæmdinni, að svo miklu leyti, sem Nýbygg- ingarráð hafði hana með hönd- um, er sjálfsagt að jeg svari til saka. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins þarf ekki að óttast þá gagn rýni. Stjórnarstefna hans var raunhæf og framsýn, með al- menningsheill fyrir augum. — Nýbyggingarráð hefur heldur ekki ástæðu til að óttast gagn- rýni, því þó 'störfum okkar kunni á ýmsan hátt að hafa ver ið áfátt, þá er eitt víst, að við unnum af heilum hug að verk- efnum þeim, sem Nýbyggingar ráð hafði með hÖndum, og sem við álitum að væri í samræmí við stjórnarstefnu þeirrar rík- isstjórnar, er hafðj sett sjeí það mark, og mið að efla at- vinnulíf landsins, með því m. a. að afla nýrra og fullkomnarj atvinnutækja handa lands- mönnum, bæði til sjós og lands. Jeg vil ekki láta það þegj- andi fram hjá mjer fara, að stefna nýsköpunarinnar og störfl Nýbyggingarráðs sjeu svert S augum almennjngs, þó það sjð gert í sambandi við ádeilur á kommúnista. Nýsköpunin er bæði að því er varðar stefnu og framkvæmd fyrst og fremst afrek Sjálfstæðisflokksins. Jóhann Þ. Jósefsson, í dauðaslysuMsn og þjófnaðarmáli NÝLEGA hefur sakadómari kveðið upp þrjá dóma. Tveir þeirra eru í dauðasiysmálum og einn er í þjófnaðarmáli. Fyrsta málið er Rjettvísin og valdstjórnin gegn Sigurbirni Eyjólfssyni, Keflavík, Þann 19. maí s. 1., ók hann bíl sínum G-953 austur Skúlagötu og við gátnamót Vatnsstígs varð 3ja ,ára drengur, Gunnar Reynir Kristinsson, Lindargötu 62, fyr- ir bíl hans og beið samstunáis bana af. Sígurbjön var dæmdiir í 60 daga varðhald og sviptur öku- rjettindum í 3 ár. Þá vor hon- um gert að greiða málskostnað allan. Þótti Sigurbjörn með að- gæsluskorti, hafa verið með- valdur að dauðaslysi þessu. Hitt dauðaslysmálið er Rjett- vísin og valdstjórnin gegn Kristbirni B. Þórðarsyni, Hverfisgötu 98 hjer í bæ. Hann var dæmdur í 30 daga varðhald og sviptur ökurjettindum í 3 ár og gert að greiða kostnað sakarinnar. Atvik málsins eru þau, að hann ók bíl sínum R-2875 inn Hverfisgötu, 13. mars s. 1. Á! gatnamótum Rauðarárstígs og Hverfisgötu varð maður að nafni Rútur Magnússon frá Steinum í Austur-Eyjafjalla- hreppi fyrir bílnum og beið bana af. Rútur kom á reiðhjóli norðan Rauðarárstíg, er hann varð fyrir bíl Kristbjörns. Kristbjörn var talinn hafa orðið meðvaldur að dauða Rúts, svo að saknæmt væri. Þriðji dómurinn sem saka- dómari kvað upp, var Rjettvísin gegn Finnboga Bjai'nasyni og Jóni G. Pálssyni báðum til heimilis í Staðarsveit. Er þeir voru á ferð við Hvítá í Borgarfirði aðfaranótt 22. júlí s. 1. sáu þeir bát, er utanborðs- vjel var fest á. Slóu þeir eign. sinni á vjelina og höfðu með sjer hingað til Reykjavíkur. Þeir voru hver um sig dæmd- ir í 3ja mánaða fangelsi skil- orðsbundið og .sviptir kosninga- rjetti og kjörgengi til opinberra starfa og annara almennra kosninga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.