Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.09.1947, Blaðsíða 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. sept. 1947 MÁNADALUR Sí d ícliacja eftir Jfa c L JonJo n 10. dagur ,,Hlustið þið nú öll á mig“, sagði Bert. „Nóttin er löng. Við skulum nota tímann. Fyrst förum við á kaffistofu Pabst, og síðan eitthvað annað. Hvað segirðu um það, Billy? Hvað segir þú, Saxon? Mary vill þetta“. Saxon svaraði engu en hún beið þess með éftirvæntingu, hvað Billy mundi segja. „Nei, jeg vil það ekki“, sagði hann. „Jeg þarf að fara snemma á fætur á morgun og vinna allan daginn. Jeg býst við að stúlkurnar þurfi líka að vinna á morgun“. Saxon fyrirgaf honum það að hann gat ekki sungið. Svona áttu menn að vera. Slíkum manni hafði hana lengi lang- að til að kynnast. Hún var nú 22 ára að aldri og í fyrsta skifti hafði hennar verið beð- ið þegar hún var 16 ára — það var umsjónarmaður þvottahúss ins, gegn og góður maður, en nokkuð við aldur. En sá sem sat þarna hjá henni var góð- ur, glæsilegur og ungur. Æsk- an leitar helst æsku. Hefði hún tekið umsjónarmanninn hefði hún verið laus við vinn- una, en um enga ást hefði ver- ið að ræða. En þessi maður. — — — Hún gat á seinustu stundu stillt sig um það að þrýsta hönd hans. „Hann hefir rjett að mæla og þú mátt ekki freista okkar, Bert“, sagði Mary. „Við verð- um að fá svefn og hvíld. Við verðum að standa við borðið allan daginn á morgun“. Allt í einu datt Saxon það í hug að hún væri eldri en Billy, og sú hugsun skelfdi hana. Hún gaf honum hornauga. Jú, hann var drengur ennþá. Auðvitað mundi hann velja sjer konu, sem væri yngri en hann, og yngri en hún. Hvað skyldi hann vera gamall? Var það nú víst að hann væri of ungur fyrir hana? Það var eins og þessar hugleiðingar drægi hana enn fastar að honum. Hann var svo hraustur og góður. Hún rifjaði upp allt sem skeð hafði um daginn. Enginn minsti ljóður var á framkomu hans. Altaf hafði hann verið kurteis og nærgætinn við þær Mary. Og hann hafði rifið danskortið hennar í sundur til sanninda- merkis um það að hann vildi ekki dansa við neina aðra en hana. Honum geðjaðist vel að henni. Það var að minsta kosti alveg víst. Hún hreyfði ofurlítið hönd- ina, sem hann hjelt um, og fann þá hvað hönd hans var hrjúf. Það var undarleg til- kenning og dásamleg. Nú hreyfði hann höndina líka svo- lítið, eins og til að laga sig eft- ir hönd hennar. Hún beið í of- væni þess sem næst gerðist. Hún óskaði þess innilega að hann hagaði sjer ékki eins og aðrir karlmenn, og hún mundi hafa reiðst ef hann hefði dirfst að taka utan um hana. Hann gerði það ekki, og það var eins og henni hlýnaði allri vegna þess. Þetta sýndi hvað hann var nær gætin og siðsamur. Hann var Ólíkur Bert og öllum öðrum 'mönnum, sem hún hafði kynst. hafði kynst mönnum,,sem engin gleði var að minnast. Hún hafði aldrei kynst virðingu fyr ir göfgi og mannkostum kon- unnar. Og þetta var hnefaleikamað- ur. En hvað hann gat verið ó- líkur því, sem hún hafði hugs- að sjer hnefaleikamenn. Að vísu var hann orðinn leiður á þeirri íþrótt. Það hafði hann sagt henni. Hún afrjeð með sjálfri sjer að spyrja hann um hvernig á því stæ'ði — ef þau skyldi hittast aftur. Og þau hlutu að hittast aftur. Maður, sem dansaði við sömu stúlkuna alian daginn, og vildi ekki sjá neina aðra, var ekki líklegur til að sleppa sjónum af henni. Það væri nú annars gaman ef hann hjeldi áfram að vera hnefaleikari. Það var eitthvað dularfullt og kitlandi við hnefa leikamenn. Þeir voru ekki eins og aðrir menn — ekki eins og verkamenn og smiðir og múr- arar. Það var æfintýraljómi yf ir þeim. Þeir voru ímynd hins sterka. Þeir voru ekki- annara þrælar. Þeir gengu fram sem hetjur, þeir börðust sjálfs sín vegna og fengu aðra til að borga sjer fyrir það stórfje. Sumir þeirra áttu bíl og ferð- uðust um og höfðu um sig hóp þjóna og æfingameistara. Það gat sv'o sem verið að Billy hefði sagt það af yfirlætisleysi að hann væri hættur að berjast. En — siggið í lófunum á hon- um benti þó til þess að hann segði það satt. VI. KAFLI Þau kvöddust við garðshliðið. Billy fór hjá sjer og Saxon var feimin líka. Hann var ekki einn af þessum ungu mönnum, sem hjeldu að kvenfólkið væri til fyrir karlmennina. Þau stóðu þarna nokkra stund þegjandi. Saxon átti að fara inn, en hún beið þess með eftirvæntingu að hann segði eitthvað. „Hvenær eigum við að hitt- ast aftur?“ sagði hann og hjelt enn í hendina á henni. Hún hló ofurlítið til að láta í ljós að hún vildi hitta hann aftur. „Jeg á heima í Austurbæn- um“, sagði hann. „Þar er hest- húsið, og við höfum mest að gera í þeim bæjarhluta. Jeg á því sjaldan leið hjer fram hjá. En við skulum nú samt dansa saman aftur. Á miðvikudaginn er dansleikur í Orindore klúbbn um. Og ef þjer eigið ekki við- bundið —- eigið þjer nokkuð viðbundið þá?“ Hann tók fast- ara í hönd hennar. „Nei“, sagði hún. „Við hittumst þá aftur á mið vikudagskvöldið. Hvenær má jeg koma að sækja yður?“ spurði hann; Þegar það var afgert og hún hafði sett það skilyrði að hún mætti dansa við fleiri en hann einan, þá kvöddust þau enn einu sinni. Hann tók þjett í hönd hennar og dró hana að sjer. Hún stritaði á móti. Það var nú siðurinn — en helst hefði hún kosið að gera það ekki. En þá hefði hann máske misskilið hana. Hana sárlang- aði til að kyssa hana. Aldrei hafði hana langað svo mjög til þess að kyssa karlmann. Og svo kysti hann hana mjúkt og innilega. Þetta var saklaus koss, þaö fan,i> hún. Þar bjó ekkert undir. Hann var svo feiminn og drengjalegur að það var auð- fundið að hann hafði enga æf- ingu í því að kyssa kvenfólk. Hann var ekki annað eins dýr og allir aðrir karlmenn. „Góða nótt“, mælti hún lágt. Það ískraði í hliðargrindinni þegar hún opnaði hana og hún flýtti sjer heim að húsinu. „Á miðvikudagskvöldið“, kallaði hann á eftir henni. „Á miðvikudagskvö'ldið“, svaraði hún. Þegar hún var komin á hvarf staðnæmdist hún og hlustaði með hjartslætti á fótatak hans á gangstjettinni. Hún fór ekki inn fyr en hún heyrði ekki leng ur til hans. Hún læddist,inn í eldhúsið og inn í herbergi sitt. Hamingjunni sje lof að Sara var háttuð. Hún kveikti gasljósið og tók ' af sjer flauelshattinn. Hún fann ■ enn hvernig koss hans brann á vörum sjer. En þessi koss var þýðingarlaus. Allir ungir karl- menn vildu kyssa. Slíkan koss hafði hún þó aldrei fengið fyr. Hann hafði farið sem rafstraum ur um hana alla. Hvernig stóð á því? J Hún leit í spegilinn. Hún ætl aði varla að þekkja í sjer aug- un sem voru svo skær og tindr andi. Og hún var kafrjóð. Hún var sannarlega falleg á þessari ' stundu og hún fann það sjálf ! og brosti, svo að sá í tvær skín- 1 andi raðir af snjóhvítum tönn- um. Hví skyldi Billy ekki lít- ast á þetta andlit, sagði hún við sjálfa sig. Öðrum mönnum þótti það fagurt. Jafnvel stúlk urnar viðurkenndu það að hún væri falleg. Og ekki leist Char- ley Long illa á hapa, hann mundi annars ekki elta hana á röndum og hálfgert gera út j af við hana með áleitni sinni. Hún gaf speglinum hornauga. Þar var mynd af honum. Hún j gretti sig af viðbjóði þegar hún J leit á myndina. Það var grimd og villidýrsæði í þessu augna- | ráði. Hann var óþokki. í heilt ár hafði hann gert henni lífið að kvöl. Aðrir ungir menn voru j hræddir við að láta sjá sig með henni. Hann fældi þá frá henni. , Hann fór með hana eins og | ambátt sína. Hvernig fór með bókarann hjá þvottahúsinu, lag j legasta rnann með hvítar hend J ur og mjúkan málróm. Hann j hafði einu sinni boðið henni í leikhúsið. En þá kom Charley I og rjeðist á hann úti á götu. Hún gat ekkert gert við því. En síðan hafði hún altaf af- þakkað öll boð bókarans, að- eins af umhyggju fyrir hon- um sjálfum. - -VOiVX? Auglýsendur athugið! | að ísafold og Vörður er ! vinsælasta og fjölbreytt- | asta blaðið í sveitum lands : ins. Kemur út einu sinni : ! í viku — 16 síður. GULLNi SPORINN 95 Þetta var ákaflega sterklegur náungi, berhöfðaður og rjóður í andliti eftir hlaupin, en ósærður, að því jeg best fekk sjeð. Hann hefði hæglega getað gengið að mjer dauð- um, og í fyrstu bjóst jeg raunar við, að þetta mundi ske, en þegar hann kom auga á mig, kinkaði hann vingjarn- lega kolli, settist svo á steinahrúgu skammt frá dyrunum og fór úr öðru stígvjelinu til að leita að flís, sem hann hafði fengið í fótinn. „Þetta var harður leikur þarna yfir frá“, sagði hann rólega og benti með þumalfingrinum. Jeg gat heyrt á honum, að hann hafði þegar sjeð, að jeg var í liði konungsmanna, en það virtist ekki hafa hin minnstu áhrif á hann. „Hvað skeði?“ spurði jeg „Nú“, sagði hann og starði á fótinn á sjer, ,við höfðum komið okkur fyrir á allra ákjósanlegustu hæð, en menn konungsins rjeðust samt beint til atlögu og hröktu okk- ur á flótta. Það er það, sem skeði, og svo tóku þeir heil- mikið af föngum“. Hann fann flísina, dró hana úr fæt- inum, klæddi sig í stígvjelið og spurði svo: „Ertu konungsmaður?“ Jeg kinkaði kolli. „Já, í dag getið þið hlegið. Vertu blessaður!“ Og með það hljóp hann af stað, eins hratt og hann hafði komið. Nú leið um klukkustund, og þá kom annar þjótandi að kofanum. En í þetta skifti var þetta horaður og illúð- legur náungi, með tvö slæm sár, annað á enninu og hitt á fæti. Andlit hans var þakið blóði, og á öxlinni bar hann byssu. „Vatn, vatn!“ stundi hann. „Jeg er að dauða kominn!“ Hann ætlaði að fara að haltra fram hjá mjer inn í eld- húsið, þegar hann allt í einu nam staðar og hrópaði: „Þarna er þá einn af þessum erkidjöflum konungsins!“ Og áður en mjer gæfist tími til að svara, hafði hann lyft byssunni, og jeg þóttist þess fullviss, að dagar mínir væru taldir. fi/nii a mSsL ZTZl — Aha, svona lít jeg út þeg- ar það er búið að stoppa mig út cg hengja mig upp á vegg. ★ — Á hverju lifir þú? — Jeg lifi á brjefdúfu. — Brjefdúfu? — Já, jeg sel hana á hverj- um morgni. ★ — Heyrið þjer, læknir. Jeg vil að þjer segið mjer sann- leikann eins og hann er, útúr- dúralaust. Haldið þjer að jeg lifi uppskurðinn af? — Já, yður mun batna, skýrslur sýna, að af hverjum hundrað hefur einn það af. — Nú? — Og þjer eruð einmitt sá hundraðasti, sem jeg sker upp við þessu og enginn hinna lifði það af. I febrúar og mars 1947 gáfu hernámsyfirvöldin út frímerki til notkunar í Saarhjeraðinu. Á frímerltjum að verðgildi 15, 16,20 og 24 pfennig var mynd af tveimur verkamönnum, sem eru að vinnu í stálbræðslu. Nú hafa menn tekið eftir að á þessari teikningu er felumynd af Hitler. Má segja, að frímerk ið sje einskonar felumynd, því að ef því er snúið á höfuð, sjást greinilega andlitsdrættir Hitl- ers milli fóta ananrs manns- ins. Teiknarinn, sem teiknaði merkið hefur verið tekinn fast- ur, ásakaður um nasisma, en frí merkin er ekki hægt að taka aftur, þau eru fyrir löngu upp seld. ★ Sem betur fer er það sjald- gæft að kýr drukni í vatns- tunnum. Þó vildi þetta nýlega til á bæ einum í Dölunum í Svíþjóð í þurkunum í sumar. Kýrin hlýtur að hafa verið mjög þyrst og hún sá tunnuna og stakk hausnum ofan í hana. Vatnið var ekki mikið og hún varð að teygja sig langt nið- ur, en við það festi hún ann- að hornið og gat ekki losað sig og druknaði í lögginni. BEST AÐ AVGLÝSA / MORGVISBLAÐIÍSV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.