Morgunblaðið - 24.09.1947, Page 16
VEÐURÚTLITÍÐ: Faxaflói:
Stinningskaldi vesían eða norð
vesían — rigning eða þoku-
sú!d.
Grænlandsleiðangur Dana
Grænlandsleiðangur þeirra Ebbe Munck og Eigi! Knuth er nú
kominn aftur til Danrr.erkur eftir förina til Pearylands í sumar.
Gekk ferðirí að óskum. Iljer sjást tjaldbúðir leiðangursmanna
í Brönlundfirði.
Kvöldskemmtun HeimdaSlar
í Sjálfstæðishúsinu í kvufd
HEIMDALLUR, fjelag ungra Sjálfstæðismanna, heidur
kvöldskemmtun í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9. Þetta er
fyrsta kvöldskemmtun fjelagsins á þessu hausti. Þar mun
Jóhann Hafstein, alþm., flytja ræðu. Sjera Jón Thorarensen
lesa upp. Ólafur Magnússon frá Mosfelli synja einsöng. Vig-
fús Sigurgeirsson sýna íslenskar kvikmyndir í eðlilegum
litum, m.a. frá Heklugosinu og Sigfús Halldórsson leikur
einleik á flygel.
Fornmanna grafreitur
í Kræklingahlíð
Heslar og vopn í grafreHnum
KRISTJÁN ELDJÁRN fornfræðingur hefir undanfarna daga
unnið að rannsókn á fornmannagrafreit, sem fundist hefir í
túninu á Sílastöðum í Kræklingahlíð. Telur hann að grafreit-
urinn sje frá 9. öld. Er þetta að ýmsu leyti merkilegur fundur.
Tveir Danir
drnkkna
TVEIR ungir Danir, er voru
skipverjar á dönsku skipi. er
kom til Norðfjarðar, fyrir
nokkru síðan, hafa horfið og
eru allar líkur til þess að þeir
hafi báðir drukknað.
Skip það, sem piltarnir voru
á heitir Mogens S. frá Svend-
horg. Að kvöldi hins 18. þ. m.
fóru piltarnir í land úr skip-
inu, en það lá úti á firðin-
um. Ekki höfðu þeir fengið
landgönguleyfi hjá skipstjóra
sínum og aðeins einn maður í
skipinu vissi um ferðir þeirra,
en það var varðmaður skipsins.
Þetta var milli kl. 8 og 9 um
kvöldið. Veður var þá nokkuð
hvasst og mjög misvinda. —
Þeim hefur þó gengið vel að
landi og bundu bát sinn þar við
bryggju. Milli kl. 10 og 11 um
kvöldið sáust þeir á ferð í kaup-
staðnum, en síðar hefur ekkert
til þeirra spurst.
Bátur sá er þeir voru á hefur
uú fundist í fjöru fyrir utan
höfnina. Var hann hálffullur af
sjó og hafði hlið bátsins rifnað.
Nokkru þar frá fundust árarn-
ar.
Menn þar eystra hafa leitað
þeirra og slætt hefur verið, en
án nokkrus árangurs. Norð-
firðingar telja, að« piltarnir
hafi drukknað er þeir voru á
leið út að skipinu.
Kýr farþegasalur á
Keflavíkurflugvelli
NÝR farþegasalur er nú senn
fullgerður á Keflavíkurflugvell-
inum. Er hann byggður við blið
gömlu afgreiðslunnar og er stór
og rúmgóður. Afgreiðsluborð
eru þar fyrir farmiðasöluna,
toll og útlendingaeftirlit og
annað, sem að afgreiðslunni
lýtur.
Stórir gluggar eru út að íiug-
vellinum, þar sem þeir, sem
komnir eru til að taka á móti
farþegum, eða kveðja, geta
fylgst með komu og brottför
flugvjela. Er þessi salur mjög
líkur farþegaafgreiðslunni á
Ganderflugvellinum á New
Foundland.
Mjög batnar allur aðbúnaður
á vellinum við þessi nýju sal-
arkynni.
Byrjað á nýjum byggingum
Ameríska flugfjelagið Ameri-
can Overseas Airways er nú að
byrja að láta byggja ýmsar
byggingar, sem rísa eiga á
Keílavíkurflugvelli á næstunni.
Er þegar byrjað á einu stór-
hýsi og verið er að byrja á
grunninum að flugstöðinni
sjálfri, en það verður all-mikil
bygging með góðu útsýni yfir
sjálfan völlinn.
WASHINGTON: Stassen, sem
ef til vill' verður forsetaefni
republikana í Bandaríkjunum,
hefur lýst sig samþykkan því,
að kallað verði saman aukaþing
til að ræða tillögur Marshalls
um hjálp til handa Evrópu.
RANNSÓKN atburðanna að
Auraseli heldur enn áfram. I
gærkveldi höfðu engar frjettir
borist um hvað nenni miðaði
áfram.
Sýslumaðurinn í Rangárvalla
sýslu hefur farið þess á leit
við dómsmálaráðuneytið, að
hann verði aðstoðaður við rann
sókn málsins. Hefut ráðuneytið
falið Sigurði Magnússyni lög-
gæslumanni að fara sýslumanni
til aðstoðar og fór hann austur
í fyrrakyöid.
7 tenriiffdufl gsrð
ðvirk
SAMKVÆMT skýrslum frá
Árna Sigurjónssyni, Vík, Mýr-
dal, til Skipaútgcrðar ríkisins,
hefur Árni frá því semt í ágúst
ogrþar til um miðjan reptember
gert óvirk tundurdufl á eftir-
greindum stöðum:
3 á Höfðafjöru, Mýrdal, 1 á
Bolhraunsfjöru, Álftaveri, 1 á
Skógafjöru, Austur-Eyjafjöll-
um, 1 á Bakkafjöru, Austur-
Landeyjum, 1 á Þykkvabæjar-
fjöru í Holtum.
Heimdallur er nú að hefja
vetrarstarfsemi sína, en eins og
kunnugt er, þá er hún með allt
öðru sniði en sumarstarfsemin
þar sem þá er megin áhersla
lögð á kynnis- og skemmtiferð-
ir og hefur f jelagið í sumar efnt
til margra ferða víðsvegar um
land, er ailar hafa verið mjög
ánægjulegar og aukið kynningu
og treyst samstarf ungra Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík og
annarra staða á landinu.
í vetur verður aftur á móti
lögð áhersla á fundahöld, par
sem rædd verða stjórnmál,
kvöldskemmtanir með fjölbreytt
um skemmtiatriðum og svo
mun fjelagið efna til stjórn-
málanámskeiðs í nóvember.
Skemmtunin í kvöld er að-
eins fyrir Heimdellinga og
gesti þeirra. Og verða aðgöngu-
miðar seldir á skrifstoíu Sjálf-
stæðisflokksins í dag og kosta
15 krónur. Húsið verður opnað
kl. 8,30 og lokað kl. 10.
Er sennilegt að mikil aðsókn
verði að skemmtifundinum og
er því vissara fyrir þá, er hugsa
sjer að vera á skemmtuninni að
tryggja sjer aðgöngumiða í
tíma.
LANGVINN SKÖMMTUN.
LONDON: — Breska stjórnin er
þeirrar skoðunar, að matarskömmt-
unimii í Englandi ljúki ekki fyr en
í fyrsta lagi 1952.
Varð varf í vor.
Menn urðu þess varir í vor
sem leið, að þarna kynnu að
vera einhverjar fornleifar í
jörðu. Verið var að jafna lún-
skak með jarðýtu þar sem hól-
kollur nokkur stóð upp úr tún-
inu. Átti að jafna úr honum.
Var þá komið niður á manna-
bein, sem ýtan rótaði til. En
síðan var verkinu hætt, til þess
að minjar spilltust ekki, áður
en rannsókn gæti farið fram.
Kristján Eldjárn kom þaina
fyrir helgina, og hóf rannsokn-
ir á þeim. Þeim er ekki lokil.
5 grafir.
Fundist hafa þarna 5 grafir.
Eru beinagrindur manna í
tveim þeirra, en önnur rótaðist
til er grafreiturinn fannst. Hin
liggur óhögguð í sinni gröf.
hefur ekki verið tekin upp. í
gröfum þessum hafa fundist
tvær axir, tvö spjót, eitt sverð
og skjöldur.
Perlur finnast.
í þriðju gröfinni var ekiiert
nema hauskúpa. En með haus-
kúpunni voru all-margar perlur,
sem verið hafa á einhverjum
skartgrip. Perla ein nokkru
stærri en þessar, fannst í ann-
arri gröf með mannabeinunum.
í tveim gröfunum, sem fund-'
ist hafa, voru hrossabein, og
menjar þess, að hestarnir hafi
verið dysjaðir með reiðtýgjum,
því þar fundust naglar úr
hnökkum, og leifar af kjafta-
meljum úr beislum.
Nokkuð af hólnum er enn ó-
grafið, svo fleira getur fundist
þarna, sem merkilegt reymst,
áður en lýkur.
Haiisfmól Tailfjel-
agsins halió
HAUSTMÓT Taflfjelags
Reykjavíkur hófst. s. 1. sunnu-
dag. Þátttakendur í mótinu eru
43. Keppt er í meistaraflokki,
fyrsta og öðrum flokki. Mótið
fer fram í húsi Aiþýðubrauð-
gerðaVinnar.
Fyrsta umferð var tefld s. 1.
sunnudag og fóru leikar svo í
meistaraflokki, að Steingrímur
Guðmundsson sigraði Gilfer,
Guðjón M. Sigurðsson vann
Sigurgeir Gíslason. — Hitt urðu
biðskákir.
í kvöld verður önnur umferð
tefld.
SAKARUPPGJÖF
• BOÐIN
AÞENA: — Flugvjelar grísku
stjórnarinnar varpa nú flugmið
um yfir hjeruð í Norður-Grikk-
landi, og er skæruliðum boðin
sakaruppgjöf, ef þeir gefist upp
innan 30 daga. Aðeins fáir hafa
gefist upp til þessa.
70 metra gos úr gufuborliolu
Hverageríi
i
VirkjunarmöguleSkar ialdir mjög góölr
Frá frjettaritara vorum í Hveragerði.
EITT allra mesta vatnsgos, sem sjest hefur í Hveragerði varð
í gærdag. Gosið varð í gufuborholu hjá ríkisjörðinm. Reykjakot.
Telja kunnugir menn, að vatnssúlan muni hafa verið því sem
næst 70 metra há.
Rafmagnseftirlit ríkisins hef^
ur látið bora þessa holu, með
það fyrir augum að virkja hana
til raforku, en holan er skammt
frá gufurafstöðinni.
í gær er tveir menn er vinna
við borun holunnar, voru að
taka upp úr henni borstangir,
braust upp úr holunni feikna
vatnssúla og munaði minstu að
annar mannanna skaðbrendist.
Vatnssúlan hækkaði fljótlega
og er gosið hafði náð hámarki,
var súlan, eftir því sem næst
verður komist, um 70 metra há.
Fyrst í stað var vatnið úr
holunni óhreint, eins og við vs
búist, en síðar meir hreinsac
holan sig og vatnsgosið hjaðn
aði niður.
Þegar frjettaritari blaðsir
símaði þessa frjett, sagði hani
að feikna kraftur hefði veri
á gufunni er lagði upp úr hol
unni. Sagði hann menn ger
sjer miklar vonir um virkjun
armöguleika. Og að sennileg
ætti kraftur gufunnar eftir a
aukast, þegar bcrstangirna
hafa verið teknar upp úr hol
unni.