Morgunblaðið - 16.10.1947, Qupperneq 2
2
MORGUISBLAÐIÐ
Fimtudagur 16. okt. 1947
Finski sendilierrann vænt-
ir aukinna kynna Finna
og Islendinga
Segir Finna seint muni gleyma hjálp okkar
„FINNAR MUNU seint gleyma þeirri hjálp, bæð; peninga-
gjöíum og öðru, sem íslendingar veittu okkur þegar við áttum í
erfiðleikum,“ sagði sendiherra Finna, hr. Páivö K. Tarjanne, er
hann átti tal við blaðamenn í gær. ,,Og jeg vænti þess, að aukin
kynni milli íslendinga og Finna á ýmsum sviðum verði árangur
af starfi mínu sem sendiherra á lslandi.“
'Afhending
embœttisskilríkja
Sendiherrann og frú Tarjanne
ljetu bæði í ljós ár.ægju sír.a
yfir að vera komin hingað til
lands, en þau munu dvelja hjer
í nokkra daga. Sendiherrann a£-
hendir forseta íslands embættis-
skilríki sín á næstunni, „og þá
fyrst er jeg orðinn sendiherra
Finnlands á íslandi og þetta sam
tal við íslenska blaðamenn því
ekki nema hálfopinbert. En jeg
vildi ekki láta hjá líða að kynn-
ast blaðamönnum höfuðborgar-
irmar, því jeg vænti þess að í
framtíðinni geti tekist með okk-
ur góð samvinna.“
Gó'ð kynni
„Alt frá því að Finniand varð
sjálfstætt ríki 1918 höfum við
haft ræðismenn á íslandi, bæði
hjer í Reykjavík og úti á Tandi,“
sagði hr. Tarjanne. „Minnist jeg
í því sambandi sjerstaklega
Lúdvig Andersen aðalræðis-
irianns, sem hefur vcrið ræðis-
rrtaður okkar í 20 ár. Ræðismenn
okkar hafa haldið finska flagg-
inu á lofti hjer á íslandi.
Góð samvinna hefur verið
milli íslenskra og finskra í-
þróttamanna til þessa og verður
vonandi í framtíðinni.-menning
artengsl hafa verið talsverð og
viðskifti. Það má segja, að sam-
bandið milli okkar hafi verið
gott. En það má bæta enn, því
við, sem eritm minst af bræðra-
þjóðunum fimm á Norðurlönd-
um, eigum margt sameiginlegt
og áhugamál, sem við getum
unnið að.“
,Scndihrrraskifíi milli
Ísíands og Finnland .
Hr. Tarjanne sagðist vera sjer
staklega ánægður yfir því að
hafa féngið þetta tækifæri til að
kynnast íslandi og íslendingum
og hann kvaðst vænta góðs af
því, að nú hefði verið ákveðið
að íslendingar og Finnar skift-
ust á sendiherrum.
,,Mjer og konu minni þykir
að vísu leitt, að við skulum ekki
geta dvalið hjer alt árið, þar
sem við höfum aðsetur í Oslo,
en með hinum góðu flugsam-
göngum milli íslands og Noregs
eru brjef fljót á leiðinni og jeg
vænti þess að íslendingar, sem
hsfa á aðstoð minni að halda,
noti sjer það og snúi sjer til mín,
ef það er eitthvað, sem jeg get
gert,“ sagði Sendiherrann.
Hlakkar til dð kynnasl
íslenskum húsmœðrum
Sendiherrafrú Tarjanne, fríð
kona og viðmótshlý, er góður
fulltrúi finsku kvenþjóðarinnar,
eíns og maður hennar, hinn
karlmannlegi og íturvaxni sendi
herra er sannur fulltrúi finskra
karlmanna. — Hún sagði blaöa-
mönnum, að sig hefði lengi lang
að til að fá tækifæri til að koma
til íslands og kynnast ísiensk-
um húsmæðrum og íslenskum
heimilum.
Er frúin var að því spurð,
hvort Finnar vissu ekki lítið um
ísland alment, kvað hún það
mesta misskilning. Firsnar hefðu
mikinn áhuga fyrir íslandi og
íslendingum og öfluðu sjer upp-
lýsinga um land og þjóð eftir
föngum. En hitt væri rjett, að
það mætti bæta mikið úr þekk-
ingarskorti Finna á þessu sviði,
einmitt vegna þess hve þeir
væru vinveittir í garð íslend-
inga og vildu kynnast þeim sem
best.
Aður í Stokkhólmi
og Sviss
Tarjanne sendiherra er 44 ára.
Hann hiaut mentun í Helsing-
fors og tók lögfræðipróf við há-
skólann þar. Skömmu eftir að
hann hafði lokið námi gekk
hann í utanríkisþjónustu Finn-
lands 1929 og hefur starfað í
henni síðan. Hefur hann verið
fyrst ritari og síðan sendisveit-
arfulltrúi í Stokkhólmi og í
Genf. Starfaði hann um hríð við
nefnd frá finska utanríkisráðu-
neytinu, sem fylgdist með störf-
um Þjóðabandalagsins gamla.
A fundi utanríkisráðlierra
í gær gekk sendiherra á fund
Bjarna Benediktssonar utanrík-
isráðherra, en í gær var ekki vit
að hvenær forseti íslar.ds myndi
taka á móti honum.
Á blaðamannafundinum í
gær voru einnig viðstaddir vara-
ræðismaður Finna hjer, Eirík-
ur Leifsson og vararæðismaður
þeirra á Siglufirði, Alfons -Jóns-
son lögfræðingur.
FrúGddnýSen opnar
sýningu
SÝNING áú er frú Oddný
Sen ætlar að halda hjer í bæn
um í tilefni að þvi, að liðin eru
10 ár síðan hún kom hingað
til lands, verður opnuð í dag í
Listamannaskálanum.
Á þessari sýningu verða hin
ir sömu munir og frúin sýndi
á sýningu, er hún lijelt
skömmu eftir að hún kom hing
að. Láta mun nærri að sýning
ar-munirnir sjeu milli fimm og
600. Er þar margt merkilegt að
sjá og margt svo meistarlega
unnið að furðu sætir. Elst.i sýn
ingargripurinn er frá því um
200 fyrir Krist.
Allir á flugbátnum, sem nuuðlenti
I Itluntshifi, IjlffiiisS
hrjiegar og áhöfn voru 66
NEW YORK í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÞAÐ tók meir en 24 klukkustundir að bjarga hinum 69 far-
þegum úr flugbátnum Bermuda Sky Queen, sem í gær neyJdist
til að nauðlenda á miðju Atlantshafi. Flugbáturinn var á leið-
inni frá Bretlandi til Bandaríkjanna, en varð bensínlaus.
Æ! Það er kalt að vera vet-
lingalaus með skíðasleðann
sinn í snjónum og sú litía
Idæs í kaun sjer. (Ljósm. Mbl.
Ól. Magnússon).
Haustmól Tafffje-
lagsins
ÁTTUNDA umíerð í haust-
móti Taflfjelags Reykjavíkur
var tefld í fyrrakvöld.
Urslit í Meistaraflokki urðu
þau að Oli Valdimarsson vann
Eggert Gilfer. Guðjón M. Sig-
urösson vann Jón Ágústsson,
Bjarni Magnússon vann Guðm.
Pálmason, Sigurgeir Gíslason
vann Benóný Benediktsson. —
Biðskák var hjá Áka Pjeturs-
syni og' Steingrími Guðmunds-
syni. Efstir eru nú Guðjón N.
Sigurðsson með 5Vz vinning og
næstur Eggert Gilíer með 5 v.
Þriðji er Áki Pjetursson með
4 v. og tvær biðskákir.
Síðasta umferð í öðrum fl.
var einnig tefld þetta kvöld. —
Úrslit urðu þessi:
1.—2. Eiríkur Marelsson og
Valur Norðdahl 7Vz. 3.—4. Ing
var Ásmundsson, Kári Sól-
mur.dsson 7 v. 5. Gisli Þorsteins
son 6 Vz v. 6.—7. Sólm. Jóhann-
esson og Richard Ryel 6 v.
‘ Konur og hörn
Ráðherramorðmgiamir
í Biinna fyrir íjetti
Voru í vilorði meH fyrv. lorsætisráSherra
RANGOON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
RJETTARHÖLD hjeklu áfram hjer í Rangoon í dag í máli
U Savv, fyrverandi forsætisráðherra Burma, og annarra manna,
sem sakaðir eru um að hafa staðið fyrir morðum ráðherranna
sjö í júlí s.l. Vakti ræða ákærandans mikla athygli, enda kemur
ýmislegt fram i hepní sem ekki hefúr áður verið birt opinberlega
Vopnaðir vjelbyssum.
Ákærandinn hjelt því fram,
að meðal hinna ákærðu væru
þeir fjórir, sem framkvæmt
hefðu morðin. Segir hann, að
þeir hafi komið frá skrifstofu
U Saw, ráðist inn lil ráðherr-
anna og skotið þá til bana með
vjelbvssum.
„Sigur, sigur“.
Að ódæðisverkinu loknu, seg
ir ákærandinn, hjeldu morðingj
Fyrirtestur próless-
on Jolívef um
Marmier
PRÓFESSOR Jolivet, hinn
franski norrænufræðingur, sem
nú dvelur hjer á landi flutti í
gær fyrri háskólafyrirlestur
sinn. Fjallaði fyrirlesturinn um
bókmentafræðinginn Xavier
Marmier, sem ferðaðist um ís-
land til að kynna sjer land og
þjóð. Að afloknu ferðalaginu
skrifaði Marmier nokkrar bæk-
ur um ísland, svo sem söga og
bókmentasögu þjóðarinnar.
Dr. Símon Jóhannes Ágústs-
son, sem nú er forseti heim-
spekideildar háskólans kynti
prófessor Jolivet fyrir áheyrend
um og að því loknu hófst fyrir-
lesturinn.
Prófessorinn ræddi um Mar-
mier aðallega frá' þremur hlið-
um. — Fyrst um Marmier sem
ferðamann, síðan sem sagnarit-
ara og að lokum sem bókmenta-
fræðing. Sagði hann, að sjá megi
á öllum ritum Marmiers, að
hann hafi verið hrifinn af ís-
landi og íslensku þjóðinni. Eink
anlega vitnaði hann í bók Mar-
miers Lettres sur l’Islande.
Næsti fyrirlestur prófessors-
ins fjallar um Leconte de Lisle,
sem vrar þekt franskt ljóðskáld.
arnir í bifreið lil heimilis for-
sætisráðheri’ans fyrverandi.
Tók U Savv þar sjálfur á móli
þeim, og spurði, hvernig lilræð
ið hefði tekist. Er morðingjarn-
ir sögðu allt hafa gengið að
óskum, ú U Saw að liafa faðm
að þá að sjer og hrópað „Sigur,
sigur“.
Vopn þau, sem notuð voru til
að fremja ódæðisverkið, fund-
ust seinna í stöðuvatni skemmt
frá húsi U Saw.
Veður var vont, er flugvjelin
lenti á sjónum skamt frá veður-
athugunarskipi og telja menn að
flugstjóri hans hafi sýnt alveg
óvenjumikla leikni, er honum
tókst að lenda honum. Meðal far
þega, sem f’estir voru á leiðinní
til Kanada og Newfoundland,
voru konur og börn.
Erfið hjörgunarskilyrði
1 morgun tilkynti skipstjóri
veðurathugunarskipsins, að á-
höfn flugbátsins og allir farþeg-
ar væru komnir um borð í skip
sitt. Fór veður þá ennþá versn-
andi, en myrkur og sjógangur
hafði gert björguniria mjög erf-
iða. Var tekið til þess ráðs, er
sýnt þótti að ekki væri þorandi
að setja út bát, að láta fleka
reka að flugvjelinni, en hann var
svo dreginn til baka. Varð að
endurtaka þetta margsinnis.
Til New York
Fregnin um björgunina barst.
fyrst til sl randvarnarstöðvar í
New York. Var þá þegar vitað,
að um helmingi farþega flug-
bátsins hafði verið bjargað, en
óttast var um hina.
Fyrirleslrar SlgurSar
Þórarlnssonar um
Hekhigosið
SIGURÐUR Þórarinsson jarð
fræðingur er fyrir nokkru far-
inn í fyrirlestrarferð til Norð-
urlanda. Ætlar hann að tala um
Heklugosið í þrem höfuðborg-
um og sýna kvikmynd þá af
gosinu, sem sýnd var hjer í vik
unni sem leið, eg þótti ágæt.
Sigurður heldur fyrsta fyrir-
lestur sinn í Landfræðifjelag-
inu í Stokkhólmi þ. 17. okt. og
í Landfræðifjelaginu í Helsing
fors þ. 20. Þ. 23. flytur hann
fyrirlestur sinn fyrir jarðfræð-
ingum í Uppsölum og fyrir
jarðfræðingum í Stokkhólmi
daginn eftir, en síðan í Háskól-
anum í Stokkhólmi þ. 25. Þann
27. flytur hann fyrirlestur í
sænsk-íslenska fjelaginu. En
síðasti fyrirlesturinn sem ákveð
inn var áður en Sigurður fór,
verður í Oslo þ. 29. okt.
Sendiráð
sprengd í lofl upp
JERUSALEM: — Fjelagsskapur
Gyðinga, Hagana, telur að um 14,-
000 sýrlenskir liermenn hafi safn-
ast saman við norður-landamæri
Palestínu. Talsmaður Araba hef-
ur látið svo ummælt, að ræðis-
mannsskrifstofur Tjekkóslóvakíu
og' Frakklands kunni að verða
fyrir sp.rengjuárás eins og sendi-t
ráð Bandaríkjanna á dögunum.