Morgunblaðið - 19.10.1947, Qupperneq 2
2
MORGVISBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. okt. 1947 ,
Leikíjelag Reykjavíkur:
LÚNDUR OG BLÁSÝRA
Steinn Jónsson frá Skúfs-
læk. Minningarorð
leikur i þrem þátfum eilir
Jðsepþ Kesselring
Leisijóri: Haraidur Björnsson
Haraldur Björnison hefur sett
leikinn á svið og íiaft leikstjórn
1 jEIKFJELAG REYKJAVÍKUR
hóf vetrarstarf sitt að þessu
sinni á föstudagskvöldið er var
með frumsýningu í Iðnó á gam-
ardeiknum „Blúndur og blá-
sýra“, eftir ameríska rithöf-
undinn Joseph Kesselring. — Er
hann maður milli fertugs og
fímmtugs, hefur gefið sig að
ýmsum listgreinum, verið próf.
við tónlistarháskóia í Banda-
ríkjunum, leikhússtjóri og leik-
stjóri, ort ljóð og samið skáld-
sögur, en þó einkum leikrit hin
slðari ár. — Leikrit það, sem
hjer er um að ræða hefur tví-
mælalaust verið talið hið snjall-
asta er frá hendi þessa höfundar
hefur komið, enda verið sýnt
víða um heim við feikna aðsókn
og ágæta dóma gagnrýnenda. í
JMew York var það sýnt í mörg
ár samfleytt, einnig í London,
og í Kaupmannahöfn í nærfelt
tvö ár. Enda þótt leikritið sje
kaliað gamanleikur, er það að
efni alt annað en garnan, miklu
fremur óhugnanlegur „reyf-
ari“ — en það er frumlegt og
ágætlega samið, atvikin, sem
fyrir koma og samtölin oft svo
oinstæð og smellin, að ómögu-
legt er, — þrátt fyrir alt — að
verjast hlátri.
Leikurinn gerist haustið 1541
ó heimili Brewster-fjölskyld-
unnar í Brooklyn í New York.
Systurnar Abby og Martha
Brewster, aldraðar konur, búa
þar með bróðursyni sínum,
Teddy, en í heimsókn hjá þeim
er ungur maður og fjörlegur,
Mortimer, leikdómari, sem þær
bafa alið upp og látið í veðri
vaka að væri bróðir Teddys. —
Þriðja bróðurinn, Jónathan, sem
verið hefur víða um heim, og
mest í skuggahverfum stórborg-
anna, ber þar einnig að garði og
verður til þess að raska á mjög
óþægilegan hátt ró þessa „frið-
sa>Ia“ heimilis. — Alt er fólk
þetta, nema Mortimer, sálsjúkt
og lifir í heimi öfga og rang-
snúinna hugmynda. Teddy held-
ur að hann sje Theodor Roose-
velt, fyrv. forseti Bandaríkj-
•anna, Jonathan hefur gerst
f jöldamorðingi og systurnar eru
líka haldnar sínum „hugmynd-
um“ og eiga sín leyndarmál, sem
eru þungamiðja leiksins og því
er ekki vert að fai a fleiri orðum
um hjer.
á hendi. Virðist hor.um hafa tek
ist hvorttveggja mætavel, enda
heíur hann notið góðrar fyrir-
Valur Gíslason og
Valdemar Helgason.
(Ljósm.: Vignir).
myndar, þar sem var sviðsetn-
ing Bjarne Forehammer, á leikn
um í Folketeatret í Kaupmanna-
höfn fyrir skömmu.
Aðalhlutverkin, •— systurnar
Abby og Mörthu Brewster leika
Gestur Pálsson.
(Ljósm.: Vignir).
þær ungfrú Arndis Björnsdóttir
og frú Regína Þóröardóttir og
leysa þær báðar hlutverk sín vel
af hendi. Valur Gíslason er
skemtilegur sem Teddy „forseti“
en naut 'sín þó ekki til hlítar
vegna þrengsla á sviöinu, en
Ævar Kvaran, sem fer með hlut
verk Mortimers er tilgerðarleg-
ur og ósannur í leik sínum, eink
um fyrst framan af.
Væri óskandi að þessum unga
og áhugasama leikara tækist að
hrista af sjer tilgerðina, sem um
langan tíma hefur staðið leik
hans fyrir þrifum, enda ætti
l'.ann að hafa lært það ur.dir
handleiðslu hinna mætu kenn-
ara sinna við „The Royal Aca-
demy of Art“, að ekkert er fjar-
lægra og gagnstæðra sannri list,
en tilgerð og sjálfsánægja.
Ungfrú Helga Möller leikur
Elaine unnustu Mortimers, vel
og eðlilega. Sjera Harper föður
hennar leikur Þorsteimi Ö. Step
hensen, og gerir því litla hlut-
verki ágæt skil. Brynjólfur Jó-
hannesson fer með hlutverk Jon-
athans, hins sálsjúka morðingja.
Leysir Brynjólfur hlutverk sitt
vel af hendi, en gerfi hans þyk-
ii mjer fullýkt, svo að ekki sje
dýpra tekið í árinni. Dr. Ein-
stein, aðstoðarmann Jónathans
leikur Valdimar Helgason. Er
það vandasamt hlutverk og virð-
ist Valdimar ekki ráða við það.
Hinsvegar tekst Gesti Pálssyni
ágætlega hlutvqrk O’Hara lög-
regluþjóns og er mun betri en
kollega hans er fór með hlut-
verkið í Kaupmannahöfn. Hinir
lögregluþjónarnir þrír mintu
mig einna helst á lögregluþjón-
ana, sem maður sá svo oft í bíó
í gamla daga í skopmyndum
Mac Sennetts. Guöjón Einarsson
leikur Gibbs, gamlan mann, sem
falar herbergi hjá Brewstersystr
unum, og Haraldur Björnsson
leikur Witherspoon, forstjóra
geðveikrahælisins „Unaðsdalur"
af góðri smekkvísi.
Ævar Kvaran hefur þýtt leik-
inn. Hef jeg ekki átt kost á að
bera þýðinguna saman við frum
textann, en auðsær viðvanings-
bragur er á henni, málið óvand-
að og setningar oft næsta am-
bögulegar og óþjálar.
Haraldur Björnsson ber fram
þá ósk í greinarkorni 1 leik-
skránni, að leikrit þetta verði
ekki í mörg ár hjér á döfinni.
Ef til vill verður honum að ósk
sinni. — Þó verður það ekki
vegna þess að illa sje á leiknum
haldið yfirleitt, — heldur af því,
að jeg hygg, að slíkir ,,reyfarar“
munu íslenskum leikhúsgestum
lítt að skapi.
Að leikslokum þökkuðu áhorf
endur leikendum góða skemtun
með lófataki og blómvöndum.
Siguröur Grímsson.
Vill sameinast Breíum ög
Bandaríkjamönnum
PARÍS.: —• Bidault, utanríkisráð-
hcrra Frakka, íiefur látið svo um
mælt, að Frakkar ættu að sameina
hernámssvæði sitt í Þýskalandi við
hernámssvæði Breta og Banda-
ríkjamanna, ef utanríkisráðherra-
fundurinn í London kemst ekki að
samkomulagi um Þýskaland.
Á MORGUN verður borinn
til grafar einn af öidungum
þessa bæjar. Er það Steinn Jóns
son, oft kenndur við Skufslæk
í Flóa, því þar bjó hann um 20
ára skeið.. Hann dó á heimili
sínu hjer í bæ laugardaginn 11.
þ. m., 85 ára gamall. Hann var
fæddur í Unnarholti í Ytrihrepp
10. ágúst 1862. Foreldrar hans
voru: Jón, bóndi í Unnarholti,
fæddur 8. ágúst 1824, Oddsson,
b. í Austurhlíð í Eystrihrepp,
d. 1846, Jónssonar á Brúnastöð-
um í Flóa, d. 1830, Magnússon-
ar á HerjólfsstöSum í Álftaveri
og Hörgslandi á Síðu, d. 1785,
Jónssonar, f. 1696, Gunnarsson-
ar, og kona Jóns Margrjet, f.
5. desember 1824, Einarsdóttir,
b. í Laxárdal í Eystrihrepp, d.
18. júlí 1843, Jónssonar í Mið-
koti í Fljótshlíð. d. um 1772,
Eyjólfssonar í Selkoti undir
Eyjafjöllum, f. 1689, Teitsson-
ar á Raufarfelli og Selkoti, f.
1651, Þóroddssonar.
10 ára gamall fór Steinn úr
föðurgarði til sjera Jóns Eiríks-
sonar á Stóranúpi og var þar til
22 ára aldurs, en fór þá sem
ráðsmaður til Guðfinnu Þórar-
insdóttur í Miklaholti í Biskips
tungum og gengdi því starfi í
3 ár. Tók hann þá við jörðinni
og byrjaði búskap upp á eigin
spýtur. Kvongaðist þá og gekk
að eiga Ingunni Þorkelsdóttur
frá Sólheimum í Ytrihrepp og
lifir hún mann sinn. í Mikla-
holti bjó Steinn um 12 ára skeið
en fór þaðan að Skúfslæk í Flóa
og bjó þar í 20 ár, eins og áður
er sagt. Bjó hann þar góðu búi
og efnaðist vel, enda var dugn-
aði og eljusemi beggja hjóna við
brugðið, þar byggði hann upp
íbúðarhús og gripahús öll. 1920
seldi hann jörðina og hætti bú-
skap og fluttist til Hafnarfjarð-
ar, var þar í 14 ár, en síðustu
13 árin átti hann heima í
Reykjavík. Hjer stundaði hann
ýmsa vinnu. Meðal annars hafði
hann í 8 ár haft á hendi, fyrir
Dýraverndunarfjelag íslands,
eftirlit með fjárflutningum hing
að og til Hafnarfjarðar í slátur-
tíðinni. Rækti hann það starf,
sem og annað, með sjerstakri
alúð og samviskusemi.
Sambúð þeirra, Steins og Ing
unnar, var með ágætum, enda
voru þau samhent til starfa,
áhugasöm og samstillt um ýms
andleg hugðarefni. Þeim varð
6 barna auðið, sem öll eru á
lífi, 4 dætur og 2 synir, allt
myndarlegt og mannvænlegt
fólk.
Steinn sál. var hár maður
vexti, kraftalega vaxinn, bjart-
ur yfirlitum og fríður sýnum.
Líktist hann mjög móðurfrænd
um sínum, Laxárdalsmönnum.
Hann þótti með afbrigðum dug-
legur og nýtur bóndi, hjálpfús
og góður nágranni. glaðvær og
ljettur í skapi. Af öllum sam-
tíðarmönnum sínu.m var hann
áreiðanlega eftirsóttur fjelagi,
enda hvers manns hugljúfi og
hrókur alls fagnaðar. Er vissu-
lega ljúft að mmnast slíkra
manna sem Steinn var. Nú er
þessi góði drengur horfinn af
þessu jarðneska sjónarsvíði.
Vertu sæll, frændi, og hafðu
þökk fyrir yndæla og elsku-
lega viðkynningu.
Sigurður Hlíðar.
Vetrarsiarfiemi
Bridgefjelagsins
hefsi anna3 kvöid
Zepliiiiías Pjsfursson
líosino formaður fje-
lagsins.
AÐALFUNDUR Bridgefjelags
Reykjavíkur var haldinn mánu-
daginn 13. október kl. 8 e. h. —•
Var það rnjög fjölmennur fund-
ur, og rnikill áhugi ríkjandi með
al f jelagsmarma um hag f jelags-
ins. Stjórnin baðst undan endur-
kosningu, því stjórnarstarfið er
mjög umsvifamikið. Var henni
þakkað starfið, en þó sjerstak-
lega fyrir hið mikla verk, að fá
Bretana til að keppa hjer á s.l.
vori. Þar náðu íslendingar hin-
u.m ágætasta árangri, sem kunn-
ugt er. Voru þó í liði þessu þestu
bridgespilarar Breta, enda vann
lið Mr. Harrison-Gray lands-
keppni Englands nokkru eftir
að þeir komu heim úr íslands-
förinni.
Hina nýju stjórn fjelagsins
skipa Zophónías Pjetursson, for-
maður, Einar Guðjohnsen, gjald
keri og Örn Guðmundssón, rit-
ari. Liggur það verkefni m.a.
fyrir hinni nýju stjórn, að koma
til leiðar, að úrvalsliðið fái tæki-
færi til að keppa á Evrópumóti
í bridge, er haldið verður að
sumri í Kaupmannahöfn. Eru
flestar líkur til, að þeir myndu
standa sig ágætlega, og verða
mikil og góð auglýsing fyrir
land og þjóð. Gjaldeyri þarf
hinsvegar mjög lítin til farar-
innar, vegna þess að mótið er í
Kaupmannahöfn.
Öll vetrarstarfsemin fer að
þessu sinni fram í Breiðfirðinga
búð og hefst með spilakvöldí
annað kvöld, kl. 8. Einmennings
keppni í bridge hefst 27. þ. m.
og strax og henni líkur, keppni
í fyrsta flokki. Frestur til inn-
ritunar í einmenningskeppni er
til fimmtudagskvölds 23. þ. m,
Má búast við mikilli þátttöku
í keppnum þessum, því öllum
fjelagsmönnum er heimil þátt-
taka.
Ævar R. Kvaran, Arndís Björnsd., Brynjólfur Jóhanncs-
íon, Valdimar Helgason, Helga Möller og Regína Þórðard.
(Ljósm. Vignir).