Morgunblaðið - 19.10.1947, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. okt. 1947
Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.l
rrjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsíngar. Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
I lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura meS L*»bók.
Kefla víkurfl ugvöllurinn
ÞANN 7. nóvember í fyrrahaust var íslendingum af-
bentur hinn mikli flugvöllur við Keflavík til fullrar eign-
cii . Undanfari þess atburðar var flugvallarsamningurinn,
sem svo hefur verið kallaður. Aðalatriði þess samnings
var þó ailt annað en flugvöllurinn. Með samningi þessum
\ar niðurfelldur herverndarsamningurinn, sem íslend-
mgar gerðu við Bandaríkin sumarið 1941, en samkvæmt
honum höfðu Bandaríkjamenn hjer herlið öll stvrjaldar-
arin. Og þegar hann var niðurfeldur, var hjer enn amer-
iskt herlið
Það, sem fyrst og fremst vakti fyrir íslenskum stjórn-
arvöldum var að fá herverndarsamninginn niðurfeldan
og hið erlenda herlið flutt úr landi. Því takmarki var náð
með hinum nýja samningi. Það er kjarni þessa máls.
Flugvallarsamningurinm sem fól það takmark í sjer,
mun þvi jafnan verða talinn mikill sigur fyrir íslendinga.
Sá mun verða dómur sögunnar þótt nokkrir menn, og
þá fyrst og fremst nokkrir pólitískir kaupahjeðnar, efndu
til ofstækisfullra árása á þá, sem að samningsgerðinni
stóðu.
En hvað hefur gerst á Keflavíkurflugvelli á þessu tæpa
ári, sem hann hefur verið íslensk eign?
I samræmi við samninginn hafa bandarískar hernaðar-
flugvjelar komið þar við á leið sinni til hernámssvæðis
Bandaríkjanna í Þýskalandi. Þessar flugvjelar hafa þó
verið tiltölulega fáar En fjöldi farþegavjela frá ýmsum
iöndum hefur lagt leið sína þar um. Umferð um völlinn
er þannig heimil farþegaflugvjelum allra landa. Er að því
mikill styrkur fyrir flugsamgöngur yfirleitt og þá ekki
hvað síst fyrir íslendinga sjálfa.
Sama daginn og völlurinn var afhentur íslendingum
var sett þar upp íslensk löggæsla og tollgæsla og hefur
hún verið starfrækt þar síðan og aukin í samræmi við
aukinn rekstur.
Þá hefur verið hafist handa um ný mannvirki á vell-
inum. Var óhjákvæmilegt að skapa þar bætt skilyrði fyrir
íarþegaumferð en þau voru hin ófullkomnustu þegar ís-
lendingum var afhentur hann. Var því af hálfu íslend-
inga unnið að því, að bygð yrði ný flugstöð, en samkvæmt
samningnum bar Bandaríkjastjórn að standa straum af
kostnaði við slíka framkvæmd. Hlaut okkur að vera að
því mikill hagur að aðbúnaður á vellinum væri ekki landi
og þjóð til skammar.
Nú er að verða lokið byggingu bráðabirgðaflugstöðvar,
sem er hin sæmilegasta. Þá hafa og verið samþvkktir upp
cirættir að fullkominni framtíðarflugstöð og bygging
hennar hafin. Við allar þessar framkvæmdir hafa íslensk-
ir sjerfræðingar verið hafðir með í ráðum og beinlínis
ráðið veigamiklum atriðum um skipulag þeirra og gerð.
Verða þessi mannvirki eign íslendinga að samningstíma-
bilinu loknu.
Það er mjög þýðingarmikið atriði fvrir íslendinga að
\el sje sjeð fyrir þægindum farþega á flugvellinum. Þar
fara árlega þúsundir útlendinga um. Flestir þeirra kynn-
ast landinu aðeins af því, sem fyrir augun ber þar. Gott
gistihús og flugstöð er frumskilyrði þess, að sæmilega
fari um þá. Það ber þessvegna að fagna því, að fram-
kvæmdum í þessum efnum miðar svo vel á leið sem raun
ber vitni um.
Þátttaka íslendinga í allskonar störfum á vellinum fer
vaxandi. Okkur vantar að vísu sjerfróða menn til margs-
könar starfa þar. Mikil atvinna við aðrar framkvæmdir
hafa og valdið því, að færri íslenskir verkamenn en ella
hafa unnið að framkvæmdum þéim, sem á döfinni eru.
Heildarmyndin af því, sem gerst hefur þetta eina ár
síðan við eignuðumst völlinn, er sú, að samvinnan við
Bandaríkjastjórn og hið erlenda flugfjelag hefur verið
góð. Ýmiskonar reglur hafa verið settar um stjórn vall-
arins og þátttöku okkar í rekstri hans. Með aukinni
reynslu mun sú þátttaka verða fjölþættari.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Auglýst eftir
kunningsskap.
VIÐ OG VIÐ birtast í blöð-
unum auglýsingar frá einstæð-
ingum, sem vilja komast.í kunn
ingsskap við fólk. Venjulegast
er það svo, að karlmenn aug-
lýsa að þeir vilji kynnast kon-
um „með hjónaband fyrir aug-
um“. Hitt er sjaldgæfara að
konur auglýsi eftir kunnings-
skap karla, en það kemur þó
fyrir.
I flestum tilfellum er þetta í
alla staði í besta lagi og dæmi
eru til þess, að upp úr slíkum
auglýsingum hafa orðið góð og
farsæl hjónabönd.
•
Landssímastúlkur
í klípu.
Á DÖGUNUM birtist hjer í
blaðinu auglýsing frá stúlkum,
sem óskuðu eftir því að komast
í kynni við pilta á sínu reki og
það hefði engin rekistefna orð-
ið úr þessu, ef ekki hefði viljað
svo til, að þær skrifa undir
auglýsinguna „símastúlkur“.
Nú er sú stjett orðin nokkuð
fjölmenn hjer í bænum. Það
eru símastúlkur hjá ýmsum
fyrirtækjum og margar stúlk-
ur, sem alls ekki hafa atvinnu
af símavörslu gætu borið það
nafn með rjettu, því þær eru
altaf símalandi í símann.
En venjan hefir verið, að þeg
ar talað hefir verið um síma-
stúlkur hefir verið átt við stúlk
urnar á Landssímanum. Og þeg
ar þessi auglýsing kom í blað-
inu komust landssímastúlkurn-
ar í klípu.
•
Þær auglýstu ekki.
ÞAÐ HEFIR verið rannsakað
til hlýtar_ að það voru ekki
símanstúlkur hjá Landssíman,
sem auglýstu eftir kunnings-
skap pilta og þær vilja, að all-
ur almenningur viti af því, að
þær áttu ekkert í auglýsing-
unni.
í raun og veru ætti sú yfir-
lýsing að vera óþörf, því allir
þeir, sem þekkja til landssíma-
stúlknanna vita, að þær þurfa
ekki að auglýsa eftir karlmönn
um. Það hefir jafnan verið svo
frá því að Landssíminn tók íil
starfa, að framboðið hefir ver-
ið meira, en þær hafa viljað
sinna. Og tímarnir mega mikið
breytast, ef þær þurfa að fara
að auglýsa eftir kunningsskap
karla í blöðunum.
•
Fegrun bæjarins.
MIKIÐ VÆRI hægt að gera
til þess að auka á fegurð bæj-
arins frá því, sem nú er gert
með litlum tilkostnaði, ef því
væri gefinn gaumur.
Oft hefir mjer dottið í hug,
að gaman væri, ef komið væri
fyrir útbúnaði til að lýsa upp
sumar helstu byggingar í bæn-
um. Með sjerstökum rafmagns-
útbúnaði er hægt að lýsa upp
heilar byggingar, þannig, að
þær líta út eins og æfintýra-
hallir. Þetta ætti að gera á sjer-
stökum hátíðisdögum og fögr-
um kvöldum. Bærinn myndi fá
alt annan svip á slíkum stund-
um til ánægju fyrir bæjarbúa.
•
Til hátíðabrigða.
NOKKUR DÆMI mætti nefna
þar sem það ætti vel við að
lýsa upp helstu byggingar bæj-
arins að kvöldlagi. T. d. 1. des-
ember, á hádegisdegi stúdenta,
ætti að lýsa upp háskólabygg-
inguna og raunar alt háskóla-
hverfið. Þetta ættu stúdentar
að athuga fyrir næsta stúdenta-
dag.
Eða væri það ekki hátiðlegt,
að lýsa upp Alþingishúsið, dóm
kirkjuna og aðrar byggingar
við Austurvöll á hátíðisdögum.
Og lengur mætti telja.
Hreppstjórasnýtur.
ÞAÐ HEFÐU einhversstaðar
heyrst duglegar hreppstjóra-
snýtur úti í landsbygðinni í
fyrradag, þegar Einar Olgeirs-
son var að halda ræðu á Al-
þingi, ef ræðunni hefði verið
útvarpað og hreppstjórar lands
ins hefðu getað hlustað á orð
hans.
Þingmaðurinn hjelt því fram
að hreppstjórarnir ættu að
leggja útsvör á menn og þó
einkum á útlendinga, sem haf-
ast við á Suðurnesjum.
Þegar þingmanni var bent á,
að það hefði ekki til þessa verið
verk hreppstjóra að leggja út-
svör á einn eða neinn, innlend-
an mann eða útlendrn hvað
hann það sig engu ski'ta, en
það væri að minsta kosti ;ott að
fá það þá upplýst, hverjir það
væru sem legðu á útsvörin.
•
Hvernig gengur með
fánana í skólunum.
EINHVERNTÍMA var að því
vikið á þessum vettvangi, að
sjálfsagt væri, að í hverri ein-
ustu kenslustofu í hverjum ein-
asta skóla landsins væri ís-
lenskur fáni og að kennarar
hefðu það hlutverk, að kenna
nemendum sínum að bera virð-
ingu fyrir fánanum. Það var
yfirleitt tekið vel í þessa hug-
mynd af skólamönnum, en úr
framkvæmdum hefir víst orðið
minna.
Það er nú svo, að í kennara-
stjett eru margir menn, sem
ekki kærðu sig um, að íslensk-
ir unglingar fengju ofurást á
fána sínum. En það á ekki að
fara eftir þeirra hugmyndum í
þessu efni. Fræðslumálastjórn-
in á að taka málið 1 sínar hend-
ur og láta öllum skólum í tje
íslenska fána og fylgja því fast
eftir, að þjóðarmerkinu sje full
ur sómi sýndur.
meðal~annára~örða77. .~|
--~~ | Eftir G. ]. Á. |----
Nauðlending á Aflanfshafi - Marshalláætlunin og fleira
ÞAÐ var fluglistin, sem færði
okkur „mest spennandi frjett
vikunnar“. Klukkan tíu á
þriðjudagsmorgun voru 69
menn, konur og börn bjargar-
laus á miðju Atlantshafi.
Fyrstu fregnir af slysinu
gáfu í skyn, að mjög tvísýnt
væri um björgun. Óhappið var
óvenjulegt á þessari flugleið.
Bermuda Sky Queen, eign
International Airwaýs, hafði
orðið bensínlaus á leið sinni frá
Bretlandi til Bandaríkjanna.
• •
Veður var vont og fór versn-
andi, þegar stjórnandi flugbáts
ins afrjeð að gera tilraun til að
nauðlenda á hafinu. í grend-
inni, vissi flugmaðurinn, var
veðurathugunarskip, og með
velhepnaðri lendingu og skjótri
aðstoð skipsins var von um
björgun.
Lendingin tókst ágætlega —
björgunin reyndist erfiðari. En
eftir 24 klukkustunda kviða og
sjóveiki og eftir að leki var
kominn að flugbátnum, tókst
að koma farþegum og áhöfn
um borð í veðurathugunarskip-
ið. _ —
I gær hermdu svo fregnir,
að skýrteini flugvjelarinnar
hefði ekki verið í lagi. Rann-
sókn var fyrirskipuð.
unin sje eina von þeirra.
KOMMÚNISTAR OG
MARSHALLÁÆTL-
UNIN
Bók James F. Byrnes, fyr-
verandi utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, kom út s. 1.
fimmtudag. Bókin fjallar um
tímabilið frá Yaltaráðstefn-
unni 1945, þar til Byrnes hætti
ráðherrastörfum í janúar 1946.
Bókin heitir Speaking Frank
ly. Hún snýst í meginatriðum
um sambúð Bandaríkjanna og
Rússlands — og kommúnism-
ann. Af frjettum má ætla, að
hún gefi nokkuð góða hugmynd
um baráttu þá, sem nú er háð
milli Vestur- og Austur-Ev-
rópu.
Marshalláætlunin er brenni-
púnktur átakanna. Lokatak-
mark kommúnista, segir Byrn-
es, er að ná yfirráðum yfir allri
Evrópu. En það er enginn asi
á þeim. Þá skortir þjálfaða leið
toga, og aðstaða þeirra er í
ýmsum löndum á þann veg, að
þeir geta alið á óánægja og
ógnað með verkfallsvopninu og
látið til sín taka á stjórnmála-
sviðinu, án þess að geta talist
ábyrgir leiðtogar.
Marshalláætlunin er megin-
vopnið gegn þeim. Hún grund-
vallast á skjótum endurreisn-
arframkvæmdum og sjálfs-
bjargarkenningunni. Margir
eru nú þeirrar skoðunar, að
Evrópa verði á næstu tveim til
þrem árum að velja á milli
Bandaríkjahjálparinnar og við
reisnarinnar annars vegar og
kommúnismans hins vegar.
• •
NIÐURRIF
VERKSMIÐ J A
Niðurrif þýskra verksmiðja
Framh. á bls. 8