Morgunblaðið - 19.10.1947, Qupperneq 7
Sunnudagur 19. okt. 1947
MORGVISBLAÐIÐ
7
REYKJAVÍKURBRJEF ‘TÍT
1 Tímamót í sögu Komm-
únistaflokksins.
KOMMÚNISTAFLOKKUR-
INN stendur nú á tímamótum.
Síðustu vikur hafa verið við-
burðaríkif' dagar fyrir þann
flokk. Á jeg þar ekki sjerstak-
lega við hina fámennu íslensku
flokksdeild. Heldur flokkinn í
heild sinni. Þann stjórnmála-
flokk, sém nær með arma sína
um ílest ef ekki öll lönd heims-
ins.
Reynt hefir verið að leyna því
að stórviðburðir hafi gerst ein-
mitt nú, með hinni íslensku
flokksdeild. Helstu málpípu ís-
lenskra kommúmsta hefir að
vísu orðið orðfall í fyrsta sinn
á ævinni, er hann átti að tala
í áhreyrn alþjóðar. Þá brá nýrra
við.
Málgagn íslensku .kommún-
istanna hefir líka nýlega hald-
ið því fram með mikilli alvöru,
að íslenskur kommúnistaflokk-
ur væri ekki til. Hann hefði
fyrir nokkrum árum síðan verið
lagður niður. Menn brosa að
svona fáráðlingshætti. Að vilja
ekki kannast við flokk sinn.
Halda því fram að flokkur, sem
heldur uppi sífeldum gaura-
gangi sje þurkaður út af yfir-
borði jarðar. Og sú uppgufun
hafi gerst með lííilfjörlegri en
lítið frumlegri nafnbreytingu.
Að vísu má það til sanns veg-
ar færa, að íslenskur kommún-
istaflokkur sje ekki lengur til.
Því flokksdeildin hjer á landi
tapar óðum einkennum þess að
vera íslensk.
Telja má það til tíðinda frá
flokki þessum, að hann hefir
nú tekið upp þann hátt að nota
skjalafals eða skjalastuld í
hinni pólitísku baráttu sinni.
Þetta er þó ekkert undarlegt.
Því annað eins og meira gera
ýmsar flokksdeildirnar í öðrum
löndum sem fjarlægir þær frá
því, er velsæmi kallast í siðuð-
um löndum.
Hefðu þeir sem Þjóðviljann
skrifa ekki notað á undanförn-
um missirum svæsnustu ó-
kvæðisdrð sem þeir kunna á ís-
lensku um andstæðinga sína þá
væri viðbúið að Þjóðviljinn
hefði verið ennþá skömmóttari
uppá síðkastið en áður. En þetta
er ekki hægt. Því orðbragðið
getur ekki orðið klunnalegra
eða klúrara en það hefir verið
um langt skeið í pennum Þjóð-
viljamanna.
Gamalt brjef og nýjar
athafnir.
STÓRTÍÐINDIN sem gerst
hafa innan kommúnistaflokks-
ins hafa átt sjer stað langt frá
íslandi. Þau áttu upptök sín suð
ur í Varsjá. Þar sátu margir
háttsottir fiílltrúar kommún-
istaflokksins á fundi er safnast
höfðu saman úr ýmsum lönd-
um álfunnar. Þar voru nokkrir
helstu foringjarnir frá Moskva.
Þaðan var send út tilkynning
um, að nú væri endurreist al-
þjóðasamband kommúnista,
flokkssambandið, sem Stalin
tilkynnti í maí 1943 að lagt yrði
niður. Frá því var svo gengið
í júní s. á.
Hin svonefnda „aiidlátsfregn“
alþjóðasambands kommúnista
barst heiminum með brjefi er
Stslin skrifaði frjettaritara
Reuters í Moskva. Segir Stalin
m. a. í brjefi sínu, að upplausn
þessa alþjóðasambands hafi m.
a. verið ákveðin til þess að
afhjúpa þær lygar Hitlerssinna
,,að Moskvastjórnin æalaði sjer
að blanda sjer í stjórnmál ann-
ara þjóða og hafa áhrif á þær í
bolsivistiska átt.“
Ennfremur sagði Stalin í
þessu brjefi, að upplausn al-
þjóðasambandsins ætti að gera
kommúnistum út um lönd auð-
veldara að vinna með öðrum
flokkum að framfaramálum
þjóðanna.
Þega rfregnin barst út nú um
stofnun hins „nýja“ eða end-
urreista sambands, tilkynti út-
varpið í Moskva, að þannig
væri litið á atburð þenna meðal
ráðandi manna þar að hann
væri sá merkasti er gerst hefði
í stjórnmálunum, síðan Stalin
sendi út brjefið sæla í maí 1943
um upplausn sambandsins.
Áhrifin.
AÐ visu voru menn ekki all-
ir jafn sannfærðir um, að upp-
lausnarbrjef Stalms vorið 1943
hefði markað skipulagsbreyt-
ingu i starfsemi kommúnista-
flokksins. Þetta gat verið skrípa
leikur, herbragð, til þess að
villa á sjer heimildir. Eftir að
kommúnistaflokkurinn var
ekki lengur opinberlega einn og
sami flokkur um allan heim,
með sameiginlegri stjórn og
steínuskrá, mátti vænta þess, að
hinar einstöku flokksdeildir eða
dreifðu fylgismenn ættu auð-
veldara með að umgangast og
vinna með öðrum flokkum og
mönnum sem stæðu víðsfjarri
kommúnistum og stefnu þeirra
í stjórnmálum.
Þetta kom líka á daginn. Jafn
vel á stöðum svo fjarlægum
Moskva sem íslandi. Við næstu
kosningar sem háðar voru hjer
á landi, eftir að kommúnista-
sambandið hafði verið uppleyst
í orði kveðnu, með brjefi Stal-
ins einræðisherrans, fjekk
kommúnistaflokkurinn hjer
langtum fleiri atkvæði, en hann
nokkru sinni hafði fengið áð-
ur.
En flokksmennirnir hjer á
landi notuðu sjer það frelsi, sem
þeir höfðu fengið undan hinum
fyrri járnharða folkksaga, til
þess að taka þátt í almennum
framfaramálum þjóðarinnar.
Enda hafa þeir þá kanski ekki
þurft á tímabili, að taka eins
nákvæmt og auðmjúkt tillit til
fyrirskipana frá miðstöðvunum
við Volgufljót.
Leynistarfsemi
KUNNUGUSTU menn starf-
semi kommúnistaflokksins full-
yrtu þó, er frá leið að „upp-
lausnar“ brjefið hefði ekki ver-
ið annað en skrípaleikur. Sam-
band kommúnistaflokksins
hjeldist, og væri með fullu lífi
eftir sem áður. Hinar miklu
spjaldskrár sem miðstjórn
flokksins í Moskva, hefði kom-
ið sjer upp, væri enn við lýði.
En þar eru allir þeir flokks-
menn skráðir með nöfnum, sem
unnið hafa í þágu flokksins
meira eða minna. Þar eru skráð
afrek þeirra allra og hvers megi
af þeim vænta.
Dulmáls sjerfræðingur rússn
esku sendisveitarmnar í Ottawa
Gouzenko, skýrði svo frá í rjett
arhöldunum út af njósnamál-
unum þar véstra. að alþjóða-
samband kommúnista væri
sífelt með góðu lífi. Þó sam-
bandið starfaði ekki lengur op-
inberlega. Kommúnistar um
gervallan heim lytu stjórn og
fyrirskipunum frá miðstjórn-
inni i Moskva. Miðstjórnin
þar gæti eftir sem áður fyrir-
skipað hverjum flokksmanni
um víða veröld að framkvæma
þau verk sem miðstjórninni
þóknaðist, alt eftir því sem hin-
um austrænu mónnum þætti
heiilavænlegast fyrir landvinn-
ingastefnu einvaldsstjórnarinn-
ar og sigur hins .austræna lýð
ræðis“ sem Islendingar nefna
með rjettu harðstjórn og ein-
ræði.
Stefnubreytingin.
í ENSKUM blöðum, sem birt
hafa og rætt Stalin-brjefið seg-
ir m. a. að þegar miðstjórnin í
Moskva hafi nú hætt að láta
a|'þjóc9asambandið starfa með
leynd, þá verði sú ráðabreytni
ekki skilin á annan veg en
þann, að nú eigi gagngert að
snúa við blaðinu. Að nú eigi
kommúnistadeildirnar út um
heim ekki lengur að skevta því,
eða leitast við, að hafa sam-
starf við aðra flokka, eða fást
við alménn framfaramál þjóða
sinna hver á sínum stað. Enda
hefir það ótvírætt verið gefið í
skyn að flokksdeildum hins
,,nýja“ sambands sje ætlað að
ráðast sjerstaklega að hverjurn
þeim stjórnmálaflokki sem iík-
legastur sje, til valda og áhrifa
með hverri þjóð.
Samræming starfsins.
í STARFSREGLUM þeim
sem hafa nú verið gefnar út
fyrir alþjóðasamband kommún-
ista, segir m. a. að því sve ætl-
að að samræma störf allra
flokksdeildanna svo þær vinni
allar markvist að hinu sama.
í blöðum nágrannaþjóða okk-
ar á Norðurlöndum hefir á það
verið bent rjettilega, að með
þeirri opinberu stefnuskrá hafi
kommúnistaflokkar allra landa
verið látnir skilja sig útúr öllu
samstarfi við alla þá flokka,
sem vinna að heill og velferð
fósturjarðar sinnar. Því það
liggur í augum uppi, að hver sá
stjórnmálaflokkur eða flokks-
brot, sem undirgengist hefir
slíka stefnuskrá, hann verður að
jafnaði að láta velferð fóstur-
jarðarinnar sitja á hakanum eða
jafnvel vinna gegn hagsmunum
lands síns og þjóðar hverju
sinni sem hann fær boð um
það frá yfirmönnum sínum.
Á móti endurreisninni.
EINSOG mönnum er kunn-
ugt, reis stjórn Rússlands upp
á afturfótunum þegar það kom
til orða að efnt yrði til ráðstefnu
i París í sumar, til þess að
leitast við að skipuleggja end-
urieisn Evrópu eftir hörmung-
ar og stórtjón stvrjaldarinnar.
Því ráðamennirnir fyrir austan
Járntjaldið vilja enga endur-
reisn Vestur-Evrópu ríkja.
Eftir þeirra áætl. á alt að vera
þar í volæði og eymd. Því eftir
því sem þjóðirnar i Vestur-Evr-
ópu eru þjakaðri, eftir því gera
hinir austrænu valdhafar sjer
meiri vonir um, að þeir geti
áður en langt líður, teygt ein-
veldi sitt vestur á Atlantshafs-
ströndina.
Andstaða hinnar austrænu
miðstjórnar kommúnistaflokks
ins gegn endurreisn Vestur-
Evrópuríkja e raðalstarf hennar
og markmið. Síðan sambandið
var endurreist með miðstöð í
Belgrad er engin leynd vfir því
lengur, að starf allra flokks-
deildanna verður samræmt, til
þess að vinna að þessu skemd-
arstarfi.
ísland.
HLUTVERK kommúnista-
flokksins ísl. í þessari alls-
herjar skemmdarstarfsemi er
ekki mikið frá alþjóðlegu stjón-
armiði. Að koma í veg fyrir að
þjóðin komist út úr vandræðum
verðbólgunnar. Eyðing verð-
bólgunnar, er sú endurreisn,
sem hjer kemur til greina og
sem hinni íslensku kommúnista-
deild hefur að sjálfsögðu verið
falið að koma í veg fyrir.
Kommúnistar hjer á landi
vita alveg eins vel eins og aðrir,
menn með nokkurn vegin fullu
viti, að verðbólgan er hið mesta
þjóðarböl og hættulegust fyrir
eignalaust verkafólk í hverju
landi sem er. .
Skilningur kommúnista á
þessu máli kemur greinilega í
ljós, í svohljóðandi ummælum í
málgagni flokksins hjer á landi,
„Þjóðviljanum".
Þar segir svo 4. sept. 1942:
„Fullkomin verðbólga þýðir
að allur þjóðarauður færist á
hendur þeirra manna, sem eiga
framleiðslutækin, jörð eða önn-
ur varanleg verðmæti. Allir þeir,
sem ekkert eiga af slíkum verð-
mætum, verða örsnauðir. Verð-
bólgan þýðir tvímælalaust at-
vinnuleysi í enn geigvænlegri
mynd, en áður hefur þekkst.
Verkaménn verða því að taka
upp forystuna gegn verðbólg-
unni“.
Þetta vita Þjóðviljamenn. En
þegar þeir fá fyrirskipun um, að
styðja verðbólguna, af því að
það passar í kram húsbænda
þeirra, til samræmingar við
stefnuna út um víða veröld, þá
er íslenskum kommúnistum
sama um hag verkalýðsins,
sama um hvert verðmætin safn-
ast, sama um þó yfir verkalýð
landsins dynji „atvinnuleysi
geigvænlegra en áður hefur
þekkst".
Samkvæmt skipun.
ÞEGAR Alþingi kom saman
að þessu sinni, ljet Einar Ol-
geirsson ekki á sjer standa að
lýsa megnri andúð sinni á end-
urreisn Vestur-Evrópu og Par-
ísarráðstefnunni. — Allt eftir
þeirri forskrift, sem allar flokks
deildir kommúnista hafa fengið
frá miðstöð sinni; sem nú er
sett upp í Belgrad.
Að sjálfsögðu er það ekkert
smámál hvort íslenska þjóðin á
að láta sín getið, þegar vest-
rænu þjóðirnar koma saman, til
þess að ræða um það, hvernig
hægt sje að ljetta hungri af
þeim þjóðum, sem enn stynja
undir áhrifum og eyðileggingp
styrjaldarinnar. Eða hvort við
íslendingar eigum, eins og
kommúnistar vilja, snúa baki
við þeim þjóðum, og bíða eftir
því, að „hinir góðu kaupmenn'*
í Moskva, hirði afurðir okkar,
fyrir það verð, sem þeim sýnist.
Þess vegna var það ákveðíð,
að umræðurnar um svívirðinga
tillögu Einars, í garð ríkisstjórn
arinnar, yrðu látnar fara fram
í alþjóðaráheyrn.
Vildi ekki tala.
SVO undarlega brá við ,að
þegar Einar Olgeirsson heyrði
að hann ætti að flytja mótmæli
sín gegn þáttöku íslendinga i
Parísarráðstefnunni fyrir fram-
an hljóðnemann þá varð hann
bálvondur. Kommúnistar höfðu
þó hvað efíir annað kvartað yíir
því, að þeim væri meinað að
tala til þjóðarinnar gegnum út-
varpið þegar þeim byði svo við
að horfa. En í þetta sinn vildi
„Fjandmaður viðreisnarinnar“,
Einar Olgeirsson, láta sem
minnst til sín heyra. Og þegar
til kom að hann varð að tala í
áheyrn alþjóðar, þá brast hanrv
tungutal, vildi ekki mæla.
Þegar málbeinið bilar í Einarl
Olgeirssyni, þá er bregður nýrra
við og má telja til stórtíðinda
með kommúnistaflokknum.
Á þingfundi á föstudag vildi
Einar sýna þingheimi að nú
hefði hann aftur tekið á heilum
sjer. Nú gæti hann talað. Er
hann fjekk orðið, malaði hann
það sem eftir var fundartímans,
svo ekki komust aðrir að á þeim
fundi. Hann var þá að ræða ura
flugvallarsamninginn. Eintíma
vitleysu. En hljóp síðan í fund-
arlokin til Þjóðviljans og Ijet
blaðið flytja þá fregn að nú
hefði hann loks staðið sig vel.
Nú hefði utanríkisráðherrann
litlu sem engu getað svarað.
En hann Ijet þess ekki getið
í blaðinu, að sjálfur hefði hann
að þessu sinni talað svo lengi,
að aðrir komust ekki að á þeim
fundi eftir að hann hafði lokið
máli sínu. ,
Skammaðist sín?
Einar Olgeirsson er meðai
þeirra íslenskra kommúnista,
sem notað hefur sjer einna rpesS
af því frjálsræði er flokksmenn
Stalins fengu er hann gaf út
brjefið sæla í maí 9143. Þar sem
hann breiðir yfir nafn og merlct
alþjóðabandalagsins og segir
kommúnistum út um heim, aÁ
nú skuli þeir nota sjer tækifærið
til þess að „veiða í landhelg.i"
og koma sjer inn undir hjá öðr-
um flokkum og vinna ættlönd-
um sínum gagn, því nú geti þeir
á yfirborðinu verið hvortveggja
í senn, kommúnistar og ætt-
jarðar vinir.
Þegar Einar Olgeirsson á
þriðjudagskvöldið 14. okt. var
dreginn nauðugur að heita mátti
fyrir útvarpstækið, þá var víð-
horfið fyrir hann gerbreytt írá
því sem áður var. Þá gat hann
ekki lengur komið fram sem
ættjarðarvinur, eins og hann
hefur látist vera um skeið. Þá
var hann ekki orðið annað en
númer í spjaldskránni miklu,
(Framhald á bls. 8)