Morgunblaðið - 25.10.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.10.1947, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 25. okt. 1947 rántiMðMft Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðann.1 Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlanda, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Stra umh vörí í stjórnmál- um Evrópu? ÝMISLEGT bendir til þess að straumhvörf sjeu fvrir dyrum í stjórnmálum Evrópu. Fyrst eftir að styrjöldinni lauk og skuggi hennar grúfði koldimmur yfir þjóðunum sýndu kosningaúrslit í mörg- um löndum mikla fyigisaukningu kommúnista og sósíal- istaflokkanna yfirleitl. í nokkrum löndum töpuðu sósíal- demokratar miklu af fylgi sínu yfir til kommúnista. En nú virðist þetta vera að breytast. Kommúnistar tapa nú hverjum kosningunum á fætur öðrum og fylgi sósíal- demokrata gengur einnig saman enda þótt þeir sjeu að vinna aftur það, sem þeir töpuðu til kommúnista. Heild- armyndin er sú að sósíalisminn í Evrópu er að tapa fylgi. Fyrsta dæmi þess eru kosningarnar, sem fram fóru á Ítalíu ekki alls fyrir löngu. Þar vann hinn frjálslyndi borgaráflokkur de Gasperis forsætisráðherra mikinn sig- ur.'Vinstri menn með kommúnista í broddi fylkingar höfðu talið sjer þar vísan sigur, Þá koma bæjarstjórnarkosningarnar í Frakklandi. Þar íær hrevfing de Gaulle nær fjörutíu af hundraði atkvæða. Þar með var kommúnistum þokað úr þeim sessi að vera stærsti flokkur Frakklands. Jafnhliða veikist aðstaða sósíaldemókrata stórlega. Seinasta dæmið eru bæjarstjórnarkosningarnar í Nor- egi. Einnig þar tapa kommúnistar stórlega og verka- mannaflokkur sósíal-demókrata bíður svipaðan ósigur, tapar hátt á annað hundrað bæjarfulltrúum og missir meirihluta í mörgum bæjar- og sveitarstjórnum. Er það mjög athyglisverð staðreynd þar sem flokkur sósíal-demo- krata hefur verið mjög sterkur í Noregi. En á. sama tíma sem vinstri flokkarnir norsku tapa mjög, eykst hægri flokkunum fylgi. Þetta fylgistap vinstri flokkanna í Evrópu er ekki ó- hliðstætt hinum mikla ósigri Demokrataflokksins í Banda- ríkjunum. Einnig þar liggur straumurinn til hægri. Hvað má ráða af þessari stefnubreytingu á sviði stjórn- 1 málanna? Fyrst og fremst það, að þegar almenningur hinna styrjaldarþreyttu landa sjer rofa örlítið til eftir myrkur og járnaga heimsstyrjaldaráranna, þverr trú hans á sósíalismann, ofurvald ríkisvaldsins yfir eignum þess, iífi og limum. Trúin á einstaklingsframtak og aukið athafnaífrelsi glæðist á ný. Á grundvelli þess verður hin mikla endur- reisnarbarátta háð. Vetrarsíldin SÍLDAR er fyrir nokkru orðið vart hjer við Faxaflóa og vestur í ísafjarðardjúpi er bersýnilega mikil síldar- gegnd. Hafa þegar veiðst þar nokkur þúsund mál og er bræðsla síldar hafin í Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglu- firði. Að sjálfsögðu er ómögulegt að vita það fyrirfram, hve mikið verður úr vetrarsíldveiði að þessu sinni. En sjálf- sagt er að gera allt, sem unnt er til þess að hagnýta sjer þessa haust- og vetrargöngu síldarinnar nú og framvegis. Við íslendingar höfum ekki mikla reynslu á slíkum síldveiðum Aðferðin við veiðina er allfrábrugðin því, sem gerist á sumarvertíð Oftast er síldin fundin með ýmis- konar lóðunaraðferðum. Er nauðsynlegt að nota þá aðferð þar sem hún ekki veður í sjóskorpunni. En hvaða aðferð er öruggust í þessum efnum? Notkun bergmálsdýptarmælis eða gamla síldarlóðsins? Koma ekki einnig aðrar aðferðir til greina? Þetta þarf að athuga eins gaumgæfilega og frekast er kostur á. Til þess ber brýna nauðsyn að allir möguleikar síldveið- anna verði sem örugglegast hagnýttir. Þessvegna þarf að gera sjerstakar ráðstafanir til þess að vetrarsíldinni verði mætt með sem skjótustum og fullkomnustum viðbúnaði. ÚR DAGLEGA LÍFINU Brennivínsberserkir. | ÞAÐ ERU einhver álög á lög gjafarsamkomu þjóðarinnar, j að þar er ekki hægt að þver- fóta fyrir brennivínsfrumvörp- um. Á hverju einasta þingi eru bornar fram meira og minna vitlaus brennivínsfrumvörp og það eru nokkrir þingmenn blátt áfram haldnir ^inhverri brenni vínsfrumvarpasýki, því þótt þeir skrifi aldrei undir íillögu um þjóðmál í þinginu, þá er það segín saga, að presturinn hefir ekki sagt amen við þing- setninguna áður en brennivíns- frumvörpin eru komni i há- mæli. Þau eru nú bara fimm fyrir þihginu núna — og sitt sýnist hýerjum hvað gera eigi. Þetta íeru nú meiri brenni- vínsbersérkirnir og þætti víst óhóf, efí um óreglumenn væri að ræða^ • í Moldviðrismælgi. OG SÚ mærð og sú mælgi og það moldviðri, sem þyrlað er upp um þesis svokölluðu á- fengismál. Inn í þingskjölin komast jafnvel auvirðilegustu kjaftasögur í sambandi við þessi áfengismál. Og nú er far- ið að ræða um það upp á kostn að skattþegnana, hvort ríkið eigi að greiða risnuáfengi fullu útsöluverði til Guðbrandar í ríkinu til þess að hann sendi það næsta dag í ríkiskassan, í stað þess að fá þó kostnaðar- verð áfengisins greitt hjá þeim embættismanninum, sem veitir gestum ríkisins. Risnuáfengið. í SKYNSAMLEGU brjefi um þessi mál, sem „Daglega lífinu“ hefir borist, segir m. a.: „Vit- að er, að yfirleitt hefir þess- um risnukaupum embættis- manna verið stillt í hóf. Upp- haflega er þessi ráðstöfun af- leiðing af því að ríkið sá sjer ekki fært að launa t. d. ráð- herra það ríflega, eða ætla þeim það mkiið risnufje, að sann- gjarnt væri að ríkið græddi á risnu, sem þessir aðiljar intu af hendi þjóðfjelagsins vegna. Eins og komið er verðlagi á- fengis nú yrðu það engar smá- fjárhæðir, sem fram kæmu á landsreikningi fyrir hverja stór veisluna, sem haldin yrði á veg uin hins opinbera. En manna á milli, þegar farið yrði að fleygja þeim tölum milli sín, myndi þá ekki á stundum verða gleymt að mest af þessu fje rennur aðra leið í ríkissjóð. En kjósi þingmenn heldur nafnsverð- leiðina, þá þeir um það. • Borgaði sig að breyta til? ,,Og ÓVÍST er hvort það borg aði sig í lokin fyrir íöð- urlandið að breyta til í þessu efni. Ýmsir opinberir starfs- menn, einkum þeir, sem mikil mök hafá þurft að hafa við út- lendinga á undanförnum árum, hafa orðið þeim mun ver sett- ir, sem verðlag áfengis hefir verið hækkað, en hið opinbera mun hinsvegar hvorki hafa viljað fallast á eða veita þeim undanþágur frá útsöluverði, nje heldur auka fje þeirra til risnu. En þegar til þess kæmi að rík- isstjórnin sjálf færi að kaupa fullu verði, mundi þá ekki geta bugsast að einhverjir aðrir írún aðarmenn yrðu djarfari um til- kostnað við risnu vegna stofn- ana, sem þeir veittu forstöðu. En meðan ríkið rekur áfeng- isverslun sem eina af aðaltekju stofnum sínum, verður ekki sjeð, að kom-ist verði hjá því að trúnaðarmenn hins opin- bera hafi áfengi um hönd í umgengni við menn frá þeim þjóðum, sem slíku eru vanir og betur kunna að umgangast á- fengi en margir okkár“. • Efni í sjötta brenni- vínsfrumvarpið. OG AÐ lokum kemur brjef- ritari með uppástungu að sjötta brennivínsfrumvarpinu, sem einhver gæti „slegið sjer upp á“ að bera fram á núverandi þingi. Hún er þetta: „Annars kyrini það að þykja snjallræði, að einhverjir þing- manna vildu eins og á stendur bera fram þingsályktunartil- lögu um, að íslendingar væru því aðeins samkvæmishæfir, að þeir neyttu eigi áfengis“. e Staurarnir við for- setaminnismerkið.' AUSTURV ÖLLUR er einn fegursti blettur í bænum. Þar hefir minnismerki Jóns Sig- urðssonar verið valinn staður, mjög svo smekklega. Þar leik- ur Lúðrasveit Reykjavíkur fyr- ir bæjarbúa á góðviðriskvöld- um og tyllidögum, en bæjarbú- ar ganga í kring um völlinn og hlusta misjafnlega hugfangn ir eins og gengur. Á Eskihlíð og víðar í út- hverfum _ bæjarins voru fisk- trönur miklar til að hengja á fisk, sem verið var að herða. Þessar trönur eru að að hverfa að mestu. Hvað orðið hefir urri alt það timbur, sem í írönurn- ar fór, skal ósagt látið, en hitt er víst, að tveir staurar úr fisk- trönunum lentu á Austurvelli við sitt hvora hlið forsetaminn- ísmerkisins. Og eru þar enn. . • Til lítillar prýði. NÚ ER það svo að fisktrönu- trje þykja heldur ljót, að minsta kosti ef ekki hangir á þeim fiskur. Og þegar staurum þess- um var stungið niður á Aust- urvelli fyrir einum tveimur ár- um, stungu menn saman nefj- um um, að nær hefði verið að koma fyrir rafmagnsleiðslum þeim, sem staurarnir halda uppi, neðan jarðar, einkum þar sem svo stóð á, að skömmu áð- ur hafði völlurinn allur verið grafinn upp. En þá var full- yrt að trjen væru þarna aðeins til bráðabirgða til þess að lúðra blásarnir gætu sjeð nóturnar sínar. Herra bæjarverkfræðingur. Þarf jeg að segja meira? | M EDAL~ ANNARA QRDA . . . . —■—-—-—-—■—■■ [ Eftir G. J. Á. | ———‘ 1 ■" ■—* Undirþjéðir eru éúú lengur í tísku Enn eru nokkrar þjóð- ir, sem balcla að það sje fínt að hafa nýlendur. ALLT frá því að steinaldar- maðurinn tók upp kylfu sína og barði á nábúanum og flæmdi hann úr hellisskúta sínum, hafa einstaklingarnir og loks þjóðirnar rekið sig æ betur á það. að það er auðveldara að taka en halda. Jafnvel stór- þjóðirnar og heimsveldin hafa að lokum orðið að klóra sjer vandræðalega bak við krúnuna og játa hið margbrotna grund- vallaratriði lýðræðiskenningar- innar, að allir menn sjeU jafn rjettháir komnir í þennan heim, hvort sem sveipað hefur verið um þá í vöggunni dýru silki eða, — ja, eða þá alls ekki neinu. Ekki svo að skilja, að þetta hafi ekki tekið langan tíma: jafnvel ítalir hanga enn í nýlendu- draumum sínum og eru tregir til að þurka yfirdrotnunarstír- ur Mussolinis úr augunum. En þetta er á leiðinni og þetta er það, sem koma skal. Litlu „stórveldin“. Einna nærtækustu. dæmin um þrjósku á þessu Sviði .herra þjóðar og þjónsþjóðar, ef svo mætti að orði komast, er þó að finna hjá þjóðum þeim, sem í engu eru ,,stórar“ nema fornri frægð. Portugaíar, sem enn oru ekki nær allir læsir og skrif- Gandhi barðist fyrir sjálfstæði Indlasds — cg sigraði. andi, þykjast þess um komnir að stjórna mannfólki austur í Asíu; Spánverjar, sem allt frá spánsk-ameríska stríðinu hafa verið næsta áhrifalitlir í heims málum, benda hreyknir yfir til stranda Norður Afríku og hrópa: Þetta eigum við og eng- inn gnnar. Jafnvel smáríkin í Suður Ameríku, sem hafa bylt- ingar sem nokkurskonar ,,hobby“, kútveltast hvert yfir annað í kröfukapphlaupi sínu til yfirráða yfir ísauðnum, sem enginn mennskur maður veit ennþá, hvort eru meira virði en ísinn hjerna á tjörninni þegar vetrarfrostin ganga í garð. • o Ekki dautt hjó Dönum. Danmörk, þykir mjer leitt að þurfa að segja, elur enn að mínu áliti þessa margþvældu stefnu í brjósti sjer. Fjærri væri mjer að vísu að vilja halda því fram, að Danir sjeu ekki læsir og skrifandi. Jafnfjærri væri það mjer að vilja á nokk- urn hátt setja blett á hið ó- (Framhald á bls. 12)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.