Morgunblaðið - 25.10.1947, Blaðsíða 15
Laugardagur 25. okt. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
15
Fjelagslíf
HEKLUFÖR
í fyrramálið (sunnudagsmorgun) kl.
9. Aðgöngumiðar sækist fyrir kl. 7
í kvöld. Ef til vill síðasta förin á
haustinu.
FerSaskrifstofa ríkisins.
Tilkynning
BF.TANIA
Misseraskiptasamkoma í kvöld H.
8,30. Allir velkomnir. Á morgun,
sunnudag: Kl. 2 sunnudagaskóli. Kl.
8,30 Aimenn samkoma. Cand theol.
Gunnar Sigurjónsson talar. Allir
velkomnir.
K. F. U. M.
Á morgun kl. 10 f.h. Sunnudaga-
skólinn. Kl. 1,30 Drengjadeildirnar.
Kl. 5 e.h. Unglingadeildin. Kl. 8,30
samkoma, ræða eftir Niemöller. All
ir \elkomnir.
FILADELFIA
Almenn samkoma laugard. og sunnu
dag kl. 8,30 Ræðumenn: Jónas Jakobs
son og Einar Gíslason. Allir velkomn
ir. )
Kristileg samkoma á Bræðraborgar
stíg 34 kl. 4 á morgun sunnudag.
Gunnlaugur Sigurðsson og fleiri tala
Allir hjartanlega velkomnir.
Mánudag kl. 9.
Blái bíllinn við Arnarlivol, senda
strax annað tb. kem ábyggilega.
Merktur K.S. 20.
r* t
-JL tS
I.
Barnastúkan Diana no. 54.
Fundur á morgun kl. 10 í.h. á Frí-
kirkjuyeg 11. Mætum öll.
Gœslumenn.
Kaup-Sala
Kaupi gull hiesta verði — Guð-
mundur, Laugaveg 50.
Notuð húsgögn
og lítið slitin jakkaföt keypt hæst
verði. Sótt lieim. Staðgreiðsla. Sími
5691. Förnverslunin, Grettisgötu 45.
SKRIFSTOFA SJÓMANNA-
DAGSRÁÐSINS,
Landsmiðjuhúsinu
tekur á móti gjöfum og áheitum til
Dvalarheimilis Sjómanna. Minnist
látinna vina með minningarspjöld-
um aldraðra sjómanna.’Fást á skrif-
stofunni alla virka daga milli kl.
111—12 og milli kl. 13,30—15,30. —
Sími 1680.
<2^ a cj I) 6 L’
Vinna
RÆSTINGASTÖÐIN.
okkur hreingerningar.
Kristján og Pjetur.
Tökum að
Sími 5113.
HREINGERNINGAR
Tökum að okkur hreingerningar.
Vanir menn. Fljót og góð vinna.
Pantið í tíma. Sími 4109.
TEK HREINGERNINGAR
Þorsteinn Ásmundsson. Uppl. í síma
4966.
HREINGERNINGAR
Vanir menn. — Pantið í tima.
• Sími 7768.
Árni og Þorsteinn.
Kensla
ENSIÍ UK F.NNSLA
Áhersla á talæfingar og skrift. Einn
ig dönskukennsla fyrir byrjendur. —
Vanur kennari. Uppl. Grettisgötu -16
SÍmi 7935.
298. tlagur ársins.
Flóð kl. 3,10 og 15,40.
Næturlæknir Lgeknavarðstof
an, sími 5030.
Næturvörður í Ingólfs Apó-
teki, sími 1330.
□ Edda 594710287—1.
Kínverska sýningin í Lista-
mannaskálanum opin kl. 10,30
til 11.
Málverkasýning Ástu Jó-
hannesdóttur í Breiðfirðinga-
búð kl. 1—11.
Messur á morgun:
Dóntkirkjan. Messað kl. 11
sr. Jón Auðuns (vetrarkoma,
altarisganga). — Ekki messað
kl. 5.
Hallgrímsprestakall. Messað
í Austurbæjarskólanum kl. 2
e. h. Sr. Sigurjón Árnason. -—-
Barnaguðsþjónusta kl. 11 f. h.
Sr. Jakob Jónsson.
Laugarnesprestakall. Ferm-
ing í Dómkirkjunni kl. 2 e. h.
Sjera Garðar Svavarsson. -—■
Barnaguðsþjónusta í Laugar-
neskirkju kl. 10 f. h.
Nesprestakall. Messa í kap-
ellu Háskólans kl. 2. Sr. Jón
Thorarensen.
Elliheimilið. Afmælisguðs-
þjónusta kl. 10 árd. Vígslu-
biskup sr. Bjarni Jónsson.
Sunnudagaskóli guðfræði-
deildar háskólans tekur til
starfa á morgun, 26. október,
kl. 10 f. h. Öll börn velkomin.
Þau, sem eiga barnasálmabók
hafi hana með sjer. Þær fást
einnig í guðfræðideildinni.
Frílcirkjan. Messað kl. 2
Ferming. Sr..Árni Sigurðsson
I kaþóísku kirkjunni i
Reykjavík, hámessa kl. 10; í
Hafnarfirði kl. 9.
Útskálar. Messað kl. 2. Valdi-
mar Eylands.
Bjarnastaðir. Messað kl. 2.
Sr. Garðar Þorsteinsson.
Brautarlioltskirkja. Messað
kl. 14, síra Hálfdán Helgason.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sr.
Bjarna Jónssyni, ungfrú Guð-
rún Guðlaug Sigurgeirsdóttir
og Jón Gunnar ívarsson versl-
unarmaður. Heimili þeirra er
á Kársnesbraut 2, Fossvogi.
Hjónaband. I dag verða gef
in saman í hjónaband af sr.
Árna Sigurðssyni, ungfr. Hulda
Hjörleifsdóttir frá Súlu, Holts-
hjáleigu í Flóa og Sveinbjörn
Einarsson, kennari, Brekkustíg
19. Heimili ungu hjónanna verð
ur á Brekkustíg 19.
Hjónaband. I dag verða gef-
in saman í hjónaband af sr.
Jóni Auðuns, Hulda Björgvins-
dóttir (Hermannssonar, hús-
gagnasmiðs) og Hallgrímur
Pjetursson verslunarmaður. —
Heimili ungu hjónanna verður
á Öldulóð 10, Hafnarfirði.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband ungfrú
Kristín Bjarnadóttir, Njarðar-
götu 45 og Geir Þórðarson, Ing-
ólfsstræti 7A. — Heimili ungu
hjónanna verður Ingólfsstræti
7A. .
Hjónaband. I dag verða gef-
in saman í hjónaband Ingibjörg
Karlsdóttir, Freyjugötu 9 og
Jens Jónsson, Stórholti 28. —
Heimili þeirra verður í Máfa-
hlíð 4.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sr.
Sigurjóni Þ. Árnasyni ungfrú
Guðfinna Stefánsdóttir frá Vest
mannaeyjum og Jóhannes Tóm
asson, bankaritari, einnig frá
Vestmannaeyjum. Brúðhjónin
munu dvelja um stundarsakir á
Hótel Skjaldbreið.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband að Mosfelli
í Mosfellssveit ungfrú Hrefna
Pjetursdóttir, Barónsstíg 51,
Reykjavík, og Ágúst Bjarna-
son, verkam., frá Grund, Kjal-
arnesi. Síra Hálfdán Helgason
prófastur gaf brúðhjónin sam-
an.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Gestheiður Guðmundsdóttir og
Páll Jóhannesson, sjómaður.
Finsku sendiherrahjónin, hr.
Tarejanne og frú, fóru í gær
með flugvjel AOA áleiðis til
Oslo. Ræðismaður Finna hjer,
Eiríkur Leifsson og frú fylgdu
þeim til flugvallarins í Kefla-
vík.
Atvinnumálanefnd Reykja-
víkurbæjar hefir beðið Morg-
unblaðið að vekja athygli at-
vinnuveitenda á, að þeir megi
ekki lengur draga að endur-
senda eyðublöðin, er nefndin
sendi þeim fyrir nokkru. Drátt-
ur- þessi getur vel tafið þetta
veigamikla starf nefndarinnar.
Gjöf til Kapellu Háskólans.
Prófessor Guðbrandur Jónsson
og frú hans hafa gefið Kapellu
Háskólans í tilefni af aldar-
afmæli Prestaskólans 2. þ. m.
forkunnar fagran hökul gjörð-
an í Lyon á Frakklandi. Hök-
ullinn er úr hvítu silki og lagð-
ur borðum gullbrókuðum.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
hinn bráðskemtilega gamanleik
Blúndur og blásýra annað
kvöld. Er það 5. sýningin. Að-
göngumiðasala er í dag, sbr.
augl. í blaðinu á öðrum stað.
ÚTVARPIÐ í DAG:
(Fyrsti vetrardagur).
14.00 Útvarp frá Háskóla ís-
lands: Háskólahátíðin 1947.
15.30—16.30 Miðdegisútvarp
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Þýskukennsla, 2. fl.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.20 Kvöldvaka.
22.00 Frjettir.
22.05 Danshljómsveit Bjarna
Böðvarssonar leikur og syng
ur. —
22.35 Danslög.
24.00 Dagskrárok.
Fundið
KarlmannsreiShjól hefir fundist.
Uppl. gefur Haraldur á ITálogalandi
Tapað
Tapast hefir brúnt' veski nieS 250
kr., matvælaseðli og húslykli, frá
Þóroddsstaðacampi að Barónsstíg.
Finnandi er vinsamlega beðinn að
skila þvi í Litla Fell við Þórodds-
Btaðacamp.
Bestu þakkir fyrir auðsýnda vináttu á 70 ára afmæli
mínu.
Gudmundur Sveinsson,
Kárastíg 3.
Við þökkum hjartanlega alla þá vinsemd, sem okkur
|> var sýnd á gullbrúðkaupsafmæli okkar 20. þ.m.
Reykjavik, 24. okt. 1947
k, Ingunn Guðbrandsdáttir, Helgi Finnbogason.
Stórt útflutningsfyrirtæki í New York
með sjer-deildir fyrir vefnað, pappír, hjólbarða, sjálfvirk tæki,
matvæli, iðnaðarvörur og allsk. smávörur. Æskilegur viðskipta-
vinur er kunnur umboðs- eða heildsali. Skrifið P.O. Box 1207
Grand Central Station, New York. N. Y.
Skósmiðir óilast
efnisskorf
Á FJÖLMENNUM fundi Skó-
smiðafjelags Reykjavíkur 21. þ.
m. var einróma samþykt svo-
hljóðandi áskorun til Viðskifta-
nefndar:
„Þar sem fyrirsjáanleg er lok-
un skósmiðavinnustofa bæjar
ins sökum efnisskorts, er byrgð-
ir þær, er nú eru fyrir hendi,
eru þrotnar og vitað er að út-
vegun efnis tekur að minsta
kosti 6—8 vikur,- eftir að leyfi
er fengið, skorar fundurinn á
háttvirta Viðskiftanefnd að
veita nú þegar nauðsynleg gjald
eyris- og innflutningsleyfi fyrir
sólaleðri og öðru eíni til skóvið-
gerða“.
HREIN VJEL
eykur afköstin
Notið endurbætta Veedol Motor Oil
Þjer fáið aukin afköst ef þjer notið
Veedol Motor Oil og ennfremur gang
þýðari vjel. Hið endurbætta Veedol
tryggir endingu .... bætir skemdir
og slit. Biðjið ávallt um Veedol og
verndið vjel yðar með þessari frá-
bæru smurningu,
ÖRYGGI FYRIR NYJA BlLA
VERND FYRIR GAMLA BlLA
Umboðsmaður: Jóli. Ólafsson & Co.,'Reykjavík
100% PURE PENNSYLVANIA MOTOR OIL
JÖN SIGURÐSSON,
Ingólfsstræti 21 B. andaðist á sjúkrahúsi Hvítabandsins
aðfaranótt 24. þ.m.
Fyrir hönd aðstandenda
Hallur Hermannsson.
Móðir okkar
SIGURBJÖRG PÁLSDÓTTIR
andaðist að St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 23. þ.m.
Fyrir hönd vandamanna
Páll Arnljótsson, Kristján Arnljótsson.
MAGNÚS FRIÐRIKSSON
frá Staðafelli, andaðist 23. þ.m.
Börn og barnabörn.
Jarðarför minnar elskuðu eiginkonu
GUÐRÚNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR
fer fram frá Aðventkirkjunni þriðjudaginn 28. október
og hefst með húskveðju að heimili okkar Baldursgötu
29 kl. 1,30.
Björn S. Jónsson, börn, tengdabörn og barnabörn.