Morgunblaðið - 25.10.1947, Side 11

Morgunblaðið - 25.10.1947, Side 11
Laugardagur 25. okt. 1947 MORGUl\BL4ÐlÐ 11 - RÖKVILLUR SÓSÍALISTA Me& andfœlum SÍÐARI skýrsla Fjárhagsráðs um gjaldeyrishorfur og fleira hefur orðið til þess, að Þjóð- viljinn, sem varla rumskaði” við fyrri skýrslunni, hefur nú hrokk ið upp með andfælum, og birtir tvö innlegg, langa grein í þriðju dagsblaði og forystugrein á mið- vikudaginn um „falsanir Fjár- hagsráðs“. . Sjálfsagt orsaka andfælurnar eitthvað af því óráðsbulli, sem blaðið gefur frá sjer, en annars kemur engUm á óvart, þó að þeir, sem uppi í skýjunum eru, fallist ekki á kaldar staðreyndir þessara tveggja skýrslna Fjár- hagsráðs. Myndi sjálfsagt rnargir, og þar á meðal þeir, er í Fjárhags- ráði eiga sæti og verða þar að kljást við erfiðleikana, óska þess, að tal sósíalista um gull og græna skóga, væpi satt og rjett, og að hvergi væri ský á fjármálahimninum. hvorki nú nje í vændum. En það hefur ekki hingað til þótt hyggilegt að ljúga að sjálfum sjer, og Þjóð- viljinn fær ekki íslendinga til að trúa því, að það sje farsælt bú- skaparlag. Þeir, sem þá stefnu aðhyllast eru andlega skyldari einhverjum öðrum en góðum og gömlum íslendingum. Tal nagrautur Öllum hagskýrslum fylgja þeir ókostir að þær verða að flytja mikið af tölum, oft háum og flóknum og erfiðum til lestr- ar og skilnings. í skýrslum Fjárhagsráðs hef- ur að vísu verið reynt mjög að draga úr þessum örðugleikum, með því, að setja málin fram á sem einfaldastan hátt. En þó hefur ekki heldur í þeim verið hægt að komast hjá all-miklu af tölum. Þetta nota sósíalistar sjer og leggja allt kapp á að villa um fyrir mönnum í þessu gjaldeyr- ismáli. Þeir taka þessar þáu tölur, sveifla þeim á ýmsa vegu og gera úr þeim þann hræri- graut, að enginn botni í þeim. Er þetta mjög í samræmi við aðra lýðfræðslu þeirra. Þar sem almenningi er þörf á leiðbein- ingum og skýringum gera þeir gerningaveður og villa um fyrir mönnum eftir föngum. Eitt dæmi þess er það, hvern- ig þeir fara með tölumar 175,8 millj., sem eftir er að greiða eða gera ráðstafanir til greiðslu á til ársloka, og svo 173 milljón- irnar, sem talin var hófleg gjald eyrisþörf 1. ágúst til ársloka. „Heldur laglegur sparnaður það“, segir Þjóðviljinn, ,að fyrri áætlunin er reiknuð með 170 millj. kr. innflutningi, en síðari 175“. Hver maður, sem lítur á skýrslur Fjárhagsráðs sjer, að hjer eru tvær tölur, sem alls ekki er unnt að bera saman, af því að þær eru ekki um sama efnL.Talan 170 (173) milljónir var áætlun um íninnstu nýjar innflutningsþarfir 1. ágúst til 31. des. 1947, en hin talan, 175 milljónir, er það, sem veita þarf 10. okt. til 31. des. 19Jt7, aö viö- bœttum þeim leyfum, sem t um- ferö eru.. 1) skrásett 1. ágúst, 2). veitt 1. ágúst til 10. okt. og Skrif þeirra 3 )væntanleg frá þeim tíma til ársloka.- Með svona aðferðum er hægt að komast að hjer um bil hvaða niðurstöðu, sem hver óskar. Sambærilega -talan við 173 milljóna áætlunina 1. ágúst til 31. des. er talan 122,5. sem er leyfin, veitt og væntanleg á sama tíma, 1. ágúst til 31. des. 1947. Og munur þeirra talna er, eins og í skýrslunni segir um 50 milljónir. Þetta vill Þjóðviljinn fela fyrir mönnum. Fyndni og alvara Einna fyndnast í hinum leið- inlegu greinum Þjóðviljans, er þetta, sem hann hampar bæði í greininni og leiðaranum, að Fjár hagsráð þykist spara 50 millj. með því einu að gera tvær á- ætlanir, með 50 milljón króna mun, og slær upp því, að Fjár- hag*sráð geri nú enn eina áætlun og spari það sem á vantar. Engin furða er þó að Þjóð- viijinn mæli svo, því að öll hans fjármálakennslá er einmitt í svona löguðum brellum fólgin. Nógur gjaldeyrir til! segir hann, og þá á hann að vera nógur. Sjálfsagt að halda nýsköpun- inni áfram í fullum krafti, kaupa tugi togara, reisa iðjuver og allt slíkt fyrir tugi og hundr- uð milljóna, segir hann — og reyndar fleiri — og þá er þetta allt auðvelt, þó að niðri á jörð- inni finnist varla peningur fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Sparnaðurinn, 50 milljónir kr. á innflutningi 5 síðustu mánaða ársins, er ekki fólginn í tveim miðsmunandi áæílunum, 173 milljóna áætlun og 122,5 millj. áætlun, héldur er œtlast til að honum verði náö meö óvœgileg- um niöurskurði innflutnings og annara gjaldeyrisþarfa. Þetta er engin fyndni og ekk- ert skemmtilegt, ekkert til þess að hafa í fíflskaparmálum eins og tráðar sósíalista virðast telja best við eiga. Og skömmtunin er liður í þessari sparnaðarviðleitni, því að þegar takmarkaður er inn- flutningur, verður jafnframt að reyna að tryggja sanngjarna dreifingu þess litla. sem inn er flutt. Hálmstráií5 Þó að grein Þjóðviljans sje löng og margt, sem drepið er á, er það í raun og veru aðeins eitt, sem miðar að því, að hnekkja skýrslu Fjárhagsráðs, ef rjett væri með farið, enda er á því kliíað bæði í greininni aftur og aftur og í forystugreininni. Má af öllu sjá, að það á að vera haldreipið, eða rjettara sagt hálmstráið, sem öll mál- færsla sósíalista hangir í. Og þetta haldreipi eða hálm- strá, er niðurföllnu leyfin, þ.e. þau gjaldeyrisleyfi, sem ekki koma til framkvæmda og því má stryka út, þegar rætt er urn það, hvaða gjaldeyrisskuldbind- ingum við þurfum að mæta með gjaldeyristekjum ársins. „Til þess að ná þessum ömur- lega árangri tilfærir Fjárhags- um reynslu ráð öll gjaldeyrisleyfi . . . sem eyddan gjaldeyri. . . . Þetta er að sjálfsögðu argasta fölsun“, segir í leiðaranum. Og í grein- inni stendur: „Veitt innflutn- ings- og gjaldeyrisleyfi segja vitanlega ekki nema mjög ó- nákvæmlega um gjaldeyrisnotk- unina. All-mikið af leyfum er aldrei notað“, o. s. frv. Og um síðari skýrsluna segir: „Hjer er byggt á sömu skekkjunni og í fyrri skýrslunni. Öll gjaideyris- leyfi í umferð eru talin til út- gjalda, þó að margföld reynsla sýni, að slíkt kemur ekki fyrir“. Hjer gæti verið um rök að tala, og því rjett að ræða þetta nokkru nánar og sýna, hve ráð- vendnislega sósíalistar fara með þetta atriði. Þess er þá fyrst að geta, að í báöum skýrslum Fjárhagsráös er þetta sama skýrt tekiö fram! 1 fyrri skýrslunni segir, einmitt í sambandi við þann útreikning, sem í greininni er nefndur: „Þess ber þó að gæta, að leyfi þau, sem í umferð eru, koma ekki öll til framkvæmda, að minnsta kosti ekki á þessu ári. Fer nú fram rannsókn á því máli, og verður ekki sagt, fyrr en henni er lokið, hve mikið af þessum leyfum fellur niður. Er varlegast að áætla sem fæst um þetta efni . . En þó mun þessi fjárhæð ekki hafa nein úrslita- áhrif á gjaldeyrisaðstöðuna“. í síðari skýrslunni er einn kaflinn beinlínis tilraun til að reikna þetta út eftir skrásetn- ingunni í ágúst, og hvarvetna í skýrslunum er þessu atriði gaumur gefinn. Af þesu má sjá, að það er fjarri sanni, þegar sósíalistar vilja láta líta svo út, sem þeir sjeu hjer með einhvern nýjan vísdóm. Allir menn, sem um þessi mál hafa fjallað, vita vel, að útgefin leyfi eru í sjálfu sjer ekki fullkominn mælikvarði á gjaldeyrisþörfina, og er fullt til- lit til þess tekið í báðum skýrsl- um Fjárhagsráðs. liandaskol og rökvillur En þegar sósíalistar svo fara að útfæra þetta, 1 sjálfu sjer rjetta og alkunna atriði, sem Fjárhagsráð alltaf reiknaði með, fer allt í handaskol og rökvillur, og það svo, að fullsæmandi er óvitrasta og óhlutvandasta blaði landsins. Höfuð málflutningurinn í báðum áminnstum greinum er þessi: Á árinu 1946 voru leyfi gefin yfir 800 milljónir króna, en inn- flutningurinn varð 4”43 milljónir. Þetta sýnir, að mismunurinn, 357 milljónir leyfa komu ekki til borgunar á áririu. Og svo segir: „Ef reikningsspeki Fjár- hagsráðs hefði verið hagnýtt það árið, hefði þjóðin átt að skulda 97,6 milljónir í árslok, en þá átti hún reyndar 223,1 milljón. Tölvísi Fjárhagsráðs hefur þann ig falsað ástandið til hins verra um 330 milljónir". Já, hvona hefði það verið, ef nokkur heil brú væri í röksemda færslunni. En hjer fór sem oft- Fjárhagsráðs ar, að því vitlausari sem for- sendurnar eru, því merkilegri verður nioursiaðan. Eftir „reikningsspeki“ sósíal- ista og „tölvísi", ættu þá af 500 milljóna leyfum yfirstandandi árs til 1. ágúst að vera fallnar niður eða falla niður um 223 milljónir, sem ekid kæmu til út- borgunar á þessu ári og ekki knýðu á um gjaldeyri.. En ef svo væri, þá væri hjer allt vaðandi í erlendum gjaldeyri. bankarnir með um það bil 150 milljónir í erlendum gjaldeyri í stað þess standa með 70—80 milljónir í kröfum, sem ekkert er til fyrir, og miklar kröfur fram undan. En sósíalistar hirða ekki um slíkar staðreyndir. ReiknaS meS röngum töhim Ógæfan stafar af þeirri ein- földu staðreynd, að sósíalistar reikna hjer sem oftar með röng- um tölum. Gjaldeyrisleyfi í sambandi við innflutning 1946 voru alls ekki neinar 800 milljónir króna, held ur um 557,5 milljónir. Hitt voru gjaldeyrisleyfi án innflutnings og yfirfærslur án levfa (og náðu þó aldrei samtals 800 milljón- um), sem ekki koma við sjálfum innflutningnum, og má því ekki bera saman við hann. En með þessu er öíll „rök- semlarfærslan“ hrunin til grunna. Heldur nær hefði verið að bera saman gjaldeyrisleyfin til inn- flutnings 557,5 milljónir og inn- flutninginn sjálfan, 443 millj., en þó nægir það engan veginn til þess að sjá, hvað niður hafi fallið að leyfum- og álykta að 114,5 milljónir hefðu fallið nið- ur, því að þar kemur fleira til greina. Má vísa hjer til 2. kafla í síðari skýrslu Fjárhagsráðs til þess að sýna, hve mörg atriði koma til greina ef finna skal niðurfallin leyfi. En þessi samanburður viö 19J/6, þessi regin vitleysa, þessi botnslausa fjarstœöa, byggö á alröngum forsendum, er svo mik iö megin atriði í málfærslu sósíal ista, aö þetta veröur megin uppi staöan í allri árás sósíalista á skýrslur fjárhaasráös. Ósamhærilegt við 1946 Eftir að þessi talnafölsun eða vanþekking sósíalist a hefur ver- ið afhjúpuð, og sýnt fram á, að niðurstaða þeirra um niðurfall- in leyfi 1946 er alveg út í bláinn, þarf í raun og veru ekki vitn- anna við frekar. En þó er rjett að láta það koma fram, að samanburöur í þessu efni milli útkomunnar 19Jf6 og skýrslu Fjárhagsráös, er gersamlega út i hött. Þó að búið væri að reikna ná- kvæmlega út, hve mikið af leyf- um ársins 1946 fjell niður, væri það alls ekki sambærilegt við skýrslur Fjárhagsráðs, einkum hina síðari. Og það stafar af því, að sú skýrsla byggir á skráningu leyf- anna í ágústmánuði í sumar. Skráning þessi var fullkom- inn hreinsunareldur á leyfin. - - Þaö sem ekki kom fram af leyf- um er úr sögunni. Eftir það koma aðeins ný leyfi. Og á þeim leyfum, sem þá voru skráö og þeim leyfum, sem síöan hafa veriö veitt, má ekki vænta neinna affalla, sem máli skipta. Eitthvaö af þeim dregst að vísu fram að áramótum og er þá niðurfallið, en mest af þeim verður vafalaust að endurnýja, vegna þess, að nú cru leyfisveit- ingarnar miklu takrnarlcaöri en áiöur, og varla til leyfi nema fyr- ir slíkum nauösynjum, sem leyfa veröur. Meö þessu eru því allar tylíi- vonir um bcetta afkomu vegna niöurfaUinna leyfa f ullkomlega úr sögunni, þ. e. a. s. í raunveru- leikanum, en vafalaust ekki í draumórum sósíalista. Ef menn þyrftu nokkrar frek- ari sannanir fyrir því, að það eru skýrslur og áætlanir Fjár- hagsráðs, en ekki draumsýnir sósíalista, sem eru í samræmi við veruleikann, ætti að nægja að líta á gjaldeyrisástandið eins og það lýsir sjer í afkomu bank- anna. Bankarnir eru gjaldeyris- lausir, um. það þýðir ekkj. að þrefa. Og einfalt dæmi má setja upi^ til þess að sýna, hvort nokkur von sje um margra tuga miljóna niður- fellingu ieyfa: milj. kr. Gjaldeyrisleyfin voru .. . 1. sept. .:................ 216.5 Veitt leyfi. 1. sept. til. . 10. október .............. 32,0 Samt. 248.5 Greitt eða geíin ábyrgð fvrir ................ 145,0 Ógreidd leyfi ........ 103.5 í bönkunum eru á sama tíma ógreidd leyfi um 68,0 Afgangurinn, um . . 35.5 milj. króna, er þá þau leyfi, sem í umferð eru. búið að veita, en ekki farið að sýna í banka. Þetta mun vera nærri sanni. Og vðrla má gera ráð fyrir, að mikið yfir 10—12 miljónir sje í leyfum, sem ekki ber að greiða fyrr en eftir áramót. THkostnaður og gjaldeyrir Það er auðvitað mým^'t fleira í þessum kyndugu skiíf- um sósíalisía, sem rangfærir skýrslur Fjárhagsráðs. En varla mun borga sig að elta ólar við það, enda sýna þessar rang- færslur það helst, hve vel þessar skýrslur Fjárhagsráðs standast heilbrigða og sannorða gagn- rýni. En eitt er þó það atriði, sem æ ofan í æ heíur sjest í skrifum þessara manna og það er sú reg- in firra, að kaupgjald hjer inn- anlands geti engin áhrif haít á gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Kaupgjaldið er vitanlega'einn megin kostnaðarliður framleiðsl unnari, þó að þar sje vafalaust fleira sem lagfæra þarf til þess að framleiðslan beri sig. En þaö mun seint takast uð samfæra menn um, aö tilkostn- aður við framleiðsluna skipti (Framhald á bls. 12)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.