Morgunblaðið - 31.10.1947, Blaðsíða 7
Föstudagur 31. okt. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
7 ’
„Lýðræði44 kommúnismans Lögin um fjelags-
heimili
Skugga-Baldri svarað
Stjórnarskrá „fyrirmyndarríkisins"
vifnar gegn þeim
KOMMÚNISTAR gera allt af
öðru hvoru tilraunir til að telja
þjóðinni trú um, að hið „aust-
ræna lý(ðræði“, eins og þeir
nefna það, sje hið eina sanna
lýðræði í heiminum.
Á æskulýðssíðu Þjóðviljans s.
1. laugardag er all-Iöng grein,
þar sem reynt er að sanna þetta
mál og í því sambandi vitnað í
stjórnarskrá Sovjetríkjanna og
prentaðar greinar upp úr henni.
Hefði mátt vænta að sá er
skrifaði greinina hefði til sam-
anburðar birt kafla úr íslensku
stjórnarskránni, er hann rjeðist
harkalega á, en það gerði hann
ekki, heldur ljet sjer nægja hug-
leiðingar sjálfs sín um hana, sem
voru eins og vænta mátti af
kommúnista, lítt í samræmi við
staðreyndirnar.
„AUSTRÆNT
LÝÐRÆÐI“
Það er nú vart ómaksins vert
að vera að svara slíkum fyrrum
sem þessum. Á hverjum degi
berast fregnir af framkvæmd
hins „austræna lýðræðis“, bæði
í Rússlandi og þeim ríkjum, er
kommúnistar hafa brotist ti)
valda í, þar sem þeir hafa misk-
unnarlaust brotið niður stjórn-
arandstöðuna, annað hvort
drepið andstæðingana eða flæmt
þá úr landi.
Kommúnistar treystast ekki
lengur til að ræða um fram-
kvæmd hins „austræna lýðræð-
is“, heldur reyna að sanna sitt
mál með því að vitna í stjórnar-
skrá Sovjetríkjanna í von um,
að þeir finni þar einhverja fót-
festu á hinum hála ís, er þeir
hafa leitt sig út á, í þeim til-
gangi að reyna að sanna að þeir
sjeu aðrir, en þeir í raun og
veru eru. Þó skal hjer sýnt fram
á, að þar verður aðstaða þeirra
engu betri.
STJÓRNARSKRÁIN
VITNAR GEGN
KOMMÚNISTUM
í 11. kafla stjórnarskrár
Sovjetríkjanna, 141. gr. segir:
„Rjettur til framboðs er
tryggður fjelagslegum samtök-
um alþýðunnar. Deildum komm-
únistaflokksins, verkalýðsfjelög-
um, samvinnufjelögum, æsku-
lýðsfjelögum og menningarfje-
lögum“.
Á þessu staklast kommúnist-
ar og þykjast með þessu hafa
sannað að um fullkomið lýð-
ræði sje að ræða í Rússlandi.
En hverjir eru það þá er
stjórna þessum svonefndu fje-
lagssamtökum alþýðunnar, sem
einum er leyft að bjóða fram?
1 10. kafla stjórnarskrárinnar,
126. grein segir:
Virkustu og þroslcuðustu
þegnarnir úr röðum verkalýðs-
ins og annárra alþýðustjetta
skipa sier í raöir kommúnista-
flokks Sovjetríkjanna, sem er
brjóstfylking alþýðunnar í bar-
áttu hennar fyrir efling og þró-
un hins sósíalistiska skipulags
og myndar forystuna í öllum
samtökum alþýðunnar, jafnt fje
lagslegum og opinberum.
Þarna er þá rjettvísin. — Það
eru bein fyrirmæli um það í
stjórnarskránni, að kommúnist-
ar skuli hafa forustu í öllum
þeim fjelögum og samtökum er
leyft er að bjóða fram.
Það er nú líklegt að kommún-
istar hjer neiti blákalt þessum
sannindum, og haldi áfram að
fullyrða, að lýðræði ríki í Rúss-
landi.
STAÐFESTING
STALINS
En þeim til skilningsauka
skal bent á það, að Stalin, á-
trúnaðargoð allra kommúnista,
viðurkennir fullkomlega að um
flokkslegt einræði sje að ræða í
Rússlandi.
í framsöguræðu sinni fyrir
stjórnskrá frumvarpinu segir
hann orðrjett:
„Jeg viðurkenni það, að stjórn
arskráfrumvarpið gerir ráð fyr-
ir því, að alræði alþýðustjett-
anna haldist og einnig forræðis-
aðstaða kommúnistaílokks
Sovjetríkjanna. Mjer þykir leitt
að hinir heiðruðu gagnrýnendur
skuli líta á þetta sem ágalla. Við
Bolsevikkar teljum það kost á
frumvarpinu".
Svo mörg eru þau orð. Skyldu
ung-kommúnistar leyí'a sjer að
rengja sjálfan Stalin?
Það er því þýðingarlítið fyrir
kommúnista að ætla að sanna
að lýðræði ríki í Rússlandi með
því að vitna í stjórnarskrá þess.
Því þar er flokkseinrœði komm-
únista lögleitt og staðfest af
Stalin í framsögurœðu hans
fyrir frumvarpinu.
Um hið efnahagslega lýðræði
er kommúnistar eru allt af að
tala og skrifa um og segja að
ekki sje til hjá lýðræðisþjóðum,
er það að segja að hvergi í
heiminum er jafn mikið mis-
rjetti á því sviði og í Rússlandi.
Þar sem einráð lögvernduð em-
.bættismannastjett fjefljettir fá-
tæka alþýðuna og neytir for-
rjettinda er hvergi eiga nje
hafa sinn líka, jafnvel ekki hjá
nasistunum í Þýskalandi. En á
það atriði verður ef til vill
minnst á síðar hjer á síðunni.
••iiiiimtiiMtiiiiMiitmtitimitiiiiiMiiimMmmiim
| Almenna fasteignasalan
| Bankastræti 7, sími 7324 i
i er miðstöð fasteignakaupa. I
IIMMMIMIIMIIIIIIMIIMMMMIMMMMMMMMMMIMMMMMMMM
VAFASAMT er hvort nokkur
maður hefur um langan tíma
gert sig að öðru eins fífli á op-
inberum vettvangi eins og
Daniel Ágústínusson hefur gert
sig að af sínum fáranlegu skrif-
um í Tímann um lögin um fje-
lagsheimih.
Hann hefur þar í grein eftir
grein haldið uppi þeirri von-
lausu iðju, að telja fólki trú um
að Framsóknarmenn hafi átt
frumkvæðið að setningu lag-
anna um fjelagsheimili.
Blekkingum hans hefur verið
hnekkt lið fyrir lið hjer á síð-
unni, í greinum, er skrifaðar
eru um þetta mál, 10. ágúst og
14. sept. s.l. og er þar leitt fram
hið sanna í málinu. En þessum
útbreiðslupostula framsóknar
er sýnilega sama um allar stað-
reyndir og sannleika, enda
sennilega óvanur því að taka
tillit til slíkra hluta - í áróðri
jsínum og hefur því alls ekki
áf ástæðulasU gerst vikapiltur
Hermanns Jónassonar. Er greini
lega tilgangslaust að ræða mál í
alvöru við slíkan mann sem
hann.
Það skal þó hjer enn einu
sinni tekið fram, að það voru
ungir Sjálfstœðismenn, er fyrst-
ir hófu baráttu fyrir þessu máli,
nálega tveimur árum áður en að
Framsóknarmcnn uppgötvuðu
nauðsy?* þess. Þessu getur eng-
inn neitað, jafnvel ekki Daniel
Ágútsínusson. Og því verður
heldur ekki á móti mœlt, að þaö
voru Sjálfstæðismenn, er fluttu
þetta mál fyrstir á Alþingi, í
því formi, er hugsanlegt var að
það yrði samþykkt, enda var
frumvarp stjórnarinnar sniðið
að mestu leyti eftir frumvarpi
Sjálfstœðismanna. Um þetta
vitna þingskjölin svo óvjeféngj-
anlegt er.
Það er því eins og sagt var í
grein um þetta mál hjer á síð-
unni eigi alls fyrir löngu. Fram-
sóknarmenn fengu fyrst veru-
legan áhuga á málinu eftir að
Sjálfstæðismenn höfðu fengið
það samþykkt á Alþingi.
„AÐALSTEINN" Æskulýðs-
fylkingarinuar hóf aftur upp
raust sína í barnadálki Þjóðvilj-
ans. Hann gerði að vísu enga til-
raun til að verjá gerðir komm-
únista, heldur tyggur upp sömu
ósannindin ;>g áður, en kryddar
þau með þýddum blaðagreinum,
sem lýsa á áíakanlegan hátt Ije-
legri kjörsókn negra í Missi-
sippi-fylki í Bandaríkjunum. —
Honum til fróðleiks skal þess
getið, að íslenskir Sjálfstæðis-
menn hafa á engan hátt latt
negra þess að kjósa og þeim
stendur hjartanlega á sama
hvort allir negrar eða enginn
negri kýs. En ef „Aðalsteinn"
ber hag þeirra svo nri'je fyrir
■ ----
brjosti, • skal honum ráoiagt að
leita annara landa, því ísland
ei fremur óheppilegur staður til
að berjast á fyrir mannrjettind-
um negra.
Þessi drengilegi maður ásakar
mig fyrir nufnleysi. Karlmann-
legra hefði þá verið fyrir hann
að skrifa siálfur ur.dir fullu
nafni, en því er ekki að heilsa,
hann felur sig undir dulnefni.
Jeg skal þó gera honum þann
greiða að riia nú undir fullu
nafni, en ætlast þá líka til, að
ef hann svarar grein minni, þá
geri hann það undir fullu nafni.
Jeg vil skora á „Aðalstein“
að upplýsa, hvar kynþátta„hat-
ur“ birtist í grein minni. Ef það
að kalla kynþættina sínum
rjettu nöfnum, sem var það eina
sem jeg gerði, er kynþáttahatur,
þá er það einhver ný útskýring
á því hugtaki, og kannast jeg
ekki við hana.
Hann er fremur seinheppinn
í hvað viðvikur Komitern. Að
vísu var það „lagt niður 1941,
en er nú afturgengið í allri sinni
clýrð. Og hvað það snertir að
Sósíalistaflokkurinn á íslandi
hafi aldrei verið í því, þá var
Kommúnistafl. íslenski í því, og
Sósíalistafl. er aðeins nýtt nafn
á Kommúnisrafl.
Hann minnist á kvislinga. Er
hann búinn að gleyma því, að'
fyrsti frægi föðurlandssvikar-
inn í þessu stríði var finski
kommúnistinn Kunsinen? Og
mikið er hugmyndaflug og í-
myndunarafl þessa manns, ef
hinn föðurlandslausi kommún-
isti Dimitrov verður ,rföðurlands
vinur“ í hars augum, en hinn
vinsæli foringi búlgarska bænda
flokksins að „fasista“ og „föður
landssvikara“.
Hann spyr mig hvort jeg
kannist við nöfnin Sacco og 5
Vanzetti? Já, það geri jeg, og |
jeg þekki mörg fleiri. Hvað varð
aí verklýðs’eiðtoganum Trot-
sky? Hvað voru margir þýskir
verkalýðsleiðtogar myrtir í
fangelsum hjá skoðanabræðrum
sínum í Rússlandi? Hvers vegna
voru þeir drepnir? Svaraðu, ef
þú ert maður til.
„Aðalsteinn“ virðist hafa les-
ið grein mina álíka vel og sá
gamli biblíana. Ein ,,rúsínan“,
sem hann þykist finna, er, aíl
stjettabarátta sje það sama og
kynþáttaofsóknir. Hvar stendur
þetta?. „Aðalst.“ heíur þama
rangfært og aflagað ummæli
mín. Jeg sagði, að stjettabarátta
leiddi til hins sama og kynþátta-
ofsókn, eins og líka hefur sýnt
sig að hún gerir. Barátta, ’ í
hverri mvnd sem er, hlýtur alt-
af leiða til niðurrifs.
Hann brigslar mjer bæði um
að flýja af íslenskum vettvangi
og kvartar undan því, að jeg
skuli ekki skrifa um amerísk
lán til annara þjóða. Mjer þætti
gott, ef hapn reyndi að vera sjálf
um sjer samkvæmari í næsta
skifti, sem hann tekur sjer
penna í hönd.
Hann segir, alveg rjettilega,
að ummæli þau, sem jeg tók upp
fjekk jeg úr „Islensk endur-
reisn“. Jeg fæ á engan hátt sjeð,
hvernig það rýrir gildi þeirra,
að þau skuli vera tekin þaðan.
Og ef „Aðalsteini“ er mjög í
mun að fá að vita, hvenær þess-
ir „kommúnistar“ (hví gæsa-
lappirnar) hafa látið þau frá
sjer fara, munu aðstandendur
þess blaðs áreiðanlega geta sagt
honum það. Hvað snertir ísL
kommúnista skal jeg nefna
tvenn ummæli. Önnur eftir
Björn Sigurðsson frá Veðramóti
„Hver sá, sem stendur upp eða
tekur ofan fyrir ísl. þjóðsöngn-
um er þýlynt yfirstjettar-ele-
ment“, hin eftir Ásgeir Blöndal
Magnússon: „Þjóðfáninn er her-
merki auðvaldsins?“ Lýsir þetta
mikilli ættjarðarást? Hvar eru
glamuryrði ykkar um „föður-
landssvikara“ og „hina 32“.
„Aðalsteinn“ er einn af þeim
mönnum, sem ekkert þýðir að
deila við. Hann kvartar um lítil
rök hjá andstæðingum, en notar
engin rök sjálfur. Hann endur-
tekur það sama aftur og aftur,
hversu oft sem það er rekið of-
an í hann. Hann heimtar and-
stæðing sinn fram í dagsljósið,
en sjálfur vill hann vega úr laun
sátri. Slíkt er innræti hans. —
Slíkum mönnum þýðir ekki að
svara með blaðagreinum.
Auglýsendur
athugið!
að ísafold og Vörður er
vinsælasta og fjölbreytt-
asta blaðið I sveitum lands
ins. Kemur út einu sinni
\ í viku — 16 síður.