Morgunblaðið - 01.11.1947, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.11.1947, Blaðsíða 15
Laugardagur 1. nóv. 1947 MORGUNBLAÐIÐ 15 »*$>$^<&3*Sx$>«xSx$x®xSx$x®x$k$xSx$<S>3^3>3 Fjelagslíf FRAM! II. fl. kappliðsmenn og varamenn. Mætið í dag kl. 2,30 á Iþróttavell- inum. Hekluferð verður á sunnudagsmorg un kl. 9. Ekið að Næfurholti og geng ið upp að hraunstraumnum. Þátt- taka tilkynnist í dag. Ferð í Þjórsár- dal sunnudag kl. 9. Dalurinn skoðað Ur um daginn (Stöng — Gjá '— Hjálparfoss) en er skyggja tekur verður haldið að Gaukshöfða og horft é eldana frá Heklu í myrkrinu, en þaðan blasa þeir vel við. Þátttaka tilkvnnist i dag. Ferðaskrifstofa rikisins. Fœðiskaupendafjelag Reykjavíkur heldur fund í húsnæði sínu í Camp Knox sunnudaginn 2. nóv. kl. 2, Rætt verður um mötuneytið og önn ur fjelagsmál. Stjórnin. Tilkynning HJÁLPRÆÐISHERINN Sunnudag kl. 11 Helgunarsamkoma. 8,30 Hjálpræðissamkoma, Kaptein Roos stjórnar. Allir velkomnir. Mánudag kl. 4 Heimilasambandið, Sjera Bjarni Jónsson talar. FILADELFIA 'Velkomnir á samkomuna í kvöld og annað kvöhl kl. 8,30. Almennar samkomur Boðun Fagnaðarerindisins er á sunnu dögum kl. 2 og kl. 8 e.h. Austurgötu 6, Hafnarfirði. >tC»»f>«»****»»*»***»» IO.G.T. Barnast. Diana nr. 54. Fundur á morgun kl. 10 f.h. á Frí- kirkjuveg 11. Fjölmennið Gœslumenn. Vinna Dugleg stúlka getur fengið góða at- vinnu við klæðaverksmiðjuna Álafoss í Mosfellssveit nú þegar. Gott kaup. Uppl. á afgr. Álafoss Þingholtsstræti 2, simi 2804. HREINGERNINGAR Tökurn að okkur hreingerningar á verslunum, skrifstofum og matsölum. Vanir menn. Fljót og góð vinna. Pantið í tima. Sími 4109. RÆSTINGASTÖÐIN. Tökum að okkur hreingerningar. Sími 5113. Kristján og Pjetur. Kaup-Sala FRlMERKI ,Vil skipta á íslenskum hátiðarmerkj- um góðgerðarstofnana merkjum, flug frímerkjum og öðrum verðmætum ís lenskum frímerkjum. Læt í staðinn verðmæt frímerki og seríur fró Evrópu, Afriku, Asíu. Enskum ,og frönskum nýlendum, Norður- og Suður-Ameriku, Nýja Sjálandi. Sendið merkin í dag til Holmqvist, Borgaregatan 17 C Nyköping Sviþjóð. NotuíS húsgögn og litið slitin jakkaföt keypt hæst verði. Sótt heim. Staðgreiðsla. Sími 5691. Fornverslunin, Grettisgötu 45. SKRIFSTOFA SJÓMANNA- DAGSRÁÐSINS, Landsmiðjuhúsinu tekur é móti gjöfum.og áheitum til Dvalarheimilis Sjómauna. Minnist látinna vina með minningarspjöld- >>m aldraðra sjómanna. Fást á skrif- Btoíunni alla virka daga inilli kl. 31—12 og milli kl. 13,30—15,30. — í>ími 1680. eJt)a (j !)óL 305. dagur ársins. Flóð kl. 6.45 og 19.25. Nælurlæknir Læknavarð- stofan. sími 5030. Næturvörður í Laugavegs- Apóteki, sími 1616. Málverkasýning Örlygs Sig- urðssonar opin kl. 11—11. MESSUR A MORGUN: Dómkirkjan: Á morgun kl. 2 e. h. Sjera Bjarni Jónsson. (Ferming). Laugarnesprestakall. Á morg un kl. 5 e. h. (Athugið breytt- an messutíma í þetta sinn). — Sjera Jón Þorvarðsson prófast ur í Vík í Mýrdal prjedikar. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Sjera Garðar Svavarsson. Fríkirkjan. Messað á morg- un kl. 5. Sjera Ingólfur Ást- marsson prjedikar. Hafnarfjarðarkirkja. Á morg un kl. 2. Sjera Garðar Þor- steinsson. í kaþólsku kirkjunni í Rvík Hámessa kl. 10, í Hafnarfirði kl. 9. Hjónaband. í dag verða gef in asman í hjónaband frk. Ragn heiður Árnadóttir (Sigfússonar frá Vestmannaeyjum) og Mr. Edwin Rogizh, starfsmaður við Keflavíkurflugvöllinn. Brúð- kaupið fer fram hjer í bænum. Hjónaband. í dag verða gef- in saman í hjónaband Hanna Ármann, Ásvallagötu 62 og Finnur Björnsson, flugvjela- virki, Akureyri. Heimili ungú hjónanna verður á Mánag. 17. Hjónaband.v í dag verða gef- in saman í hjónaband af sjera Árna Sigurðssyni, Kristín Sig- hvatsdóttir (Andrjessonar, bónda Ragnheiðarstöðum) og Kárl J. Karlsson rafvirki (Guð mundssonar, skipstjóra, Öldug. 4). — Hjónaband. í dag verað gef- in saman í hjónaband af sjera Sigurjóni Þ. Árnasyni, Oktavía Þ. Ólafsdóttir, Reykjahlíð 10 og Jón Finnbogason, starfsmað ur hjá Rafha, Hellisg. 3, Hafn- arfirði. Heimili þeirra verður Hellisg. 3, Hafnarfirði. Hjúskapur. I dag verða gef- in saman í hjónaband að Mos- felli, Mosfellssveit, Guðrún Eyjólfsdóttir, Sólhcimum, Dal. og Gunnar Sveinsson (Árna- sonar, Álafossi). Sjera Hálfdán Helgason gefur brúðþijónin saman. Hjónaband. í dag verða gef- in saman í hjónaband af sjera Bjarna Jónsyni, vígslubiskup, ungfrú Hanna Ó. Guðmunds- dóttir, Klapparstíg 11 og Magn 1 ús Eiriksson, bifreiðastjóri, Klappastíg 11. j Hjónaband. í dag verða gef- in saman í hjónaband af sjera Garðari Þorsteinssyni, Elín Frí mannsdóttir, símastúlka, Sel- ; vogsgötu 18 og Kristján Kristj ' ánsson, sjómaður, Vesturgötu 16, Hafnarfirði. Heimili ungu hjónanna verður að Jófríðar- staðarveg 6, Hafnarfirði. Hjónaband. Fyrsta vetrardag voru gefin saman í hjónaband af sjera Bjarna Jónssyni, Hulda Guðjónsdóttir og Sæmundur Þórarinsson. Heimili hjónanna verður í bragga R. 1 í Kamp Knox. Hjónaband. Nýlega hafa ver ið gefin saman í hjónaband ungfrú Kristín Árnadóttir, Fossi, Húsavík og Birgir Lúð- víksson, Húsavík. Tímaritið Úrval, 5. hefti, er nýkomið út fjölbreytt að vanda. Af greinum í heftinu má nefna: Hvers má vænta?, yfirlitsgrein um helstu nýjungar 1 vísind- um, sem nú er unnið að 1 heim inum, íbúar Suðurheimskauts- landanna, lýsing á lifnaðarhátt um mörgæsanna, Foringi fjögra miljóna hers, samtal við Ev- angeline Booth, hershöfðingja Hjálpræðishersins, Streptomyc in gegn berklum, Veðurspár lang't fram í tímann, Eintal í dýragarðinum, Svæfingar við sjúkdómum, í heimi skriffinsk unnar, Jeg talaði við krónprins inn, Er hægt að örva heila- starfsemina?, greinarflokkur, sem ber nafnið ,,Hvað er lífs- nautn?“, eru það fjögur er- indi, sem .flutt voru í breska útvarpið og heita: Líf í sam- ræmi við náttúruna, Heimspeki lífsnautnarinnar, Líf — eins og gengur og Hamingjuleit. Aft- ast er bókin Kím, útdráttur úr dagbók o gbrjefum dansks ung lingspilts, sem tekinn var af lífi á stríðsárunum. Heftið er 128 síður. Fjárgirðingin í Breiðholti verður smöluð á morgun kl. 12. Vegna prentvillu, sem varð í síðustu málgrein frjetta frá Alþingi í blaðinu í gær skal það tekið fram að málsgreinin átti að hljóða á þessa leið: í sam- bandi við frásögn Þjóðviljans um ólöglegan innflutning á drykkjarvörum til starfsfólks- ins á Keflavíkurflugvellinum, benti ráðherra á það, að sam- kvæmt flugvallarsamningnum væri því heimilt að flytja inn allar nauðsynjar sínar. Matsveina- og veitingaþjóna- fjelagið, hefur ákveðið, að fram reiðslumenn í veitingahúsum bæjarins skuli frá og með deg! inum í dag hætta öllum láns- viðskiftum til gesta. Frá höfninni. Hafsteinn, fær eyskur togari, kom af veiðum. Bjarni Ólafsson kom frá Eng- landi. Forsetinn kom af veið- um og fór til Englands. Skipafrjettir. — (Eimskip). Brúarfoss er í Kaupm.h. Lag- arfoss fór frá Patreksfirði 31. okt. til Rvíkur. Selfoss kom til London 30/10. frá Oscarshamn. Fjallfoss kom til Hull 30/10. frá Leith. Reykjafoss fer vænt anlega frá Rottredam 31/10. til Antwerpen. ■ Salmon Knot fór frá New York 29/10. til Rvíkur. True Knot fór frá Rvík 18/10. til New York. Lyngaa er í Ham borg. Horsa fór frá Hull 30/10. til Rvíkur. . Gefum Skátaheimilinu ís- lenskt bókasafn. — Tilmælum þeim, er fram komu hjer í blað inu' í gær, um að skátar og vel- unnarar þeirra ættu að gefa Skátaheimilinu íslenskar bæk- ur í tilefni af 35 ára afmæli fjelagsins, hefur verið vel tek- ið og m. a. hafa nokkrir bóka- útgefendur hjer í bænum heit- ið bókagjöfum. Gamlir skátar ættu að minnast góðra kynna í skátahóp, með því að senda eina bók hver, eða koma með hana sjálfir í Skátaheimilið við Hringbraut, en þar fer fram 35 ára afmælisfagnaður skáta í kvöld. ÚTVARPIÐ í DAG: 8.30—9.00 Morgunútvarp. 12,10—13,15 Hádegisútvarp. 15,30—16,30 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukensla, 2. flokkur. 19,00 Þýskpkensla, 2. fl. 19,25 Tónleikar: Samsöngur (plötur). 20.30 Leikþáttur: „Til þess eru reglugerðir .... “, efitr Jón shara (Þorsteinn Ö. Stephen- sen o. fl.). 21,00 Upplestur úr kvæðum og ritum Nordahls Grieg, í minningu um 45 ára afmæli skáldsins. (Frú Ólöf Nordal, Jón Sigurðsson frá Kaldað- arnesi). — Tónleikar. I UNGLINGA vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir- talin hverfi: BráðræSisholí Lindargafa Laugav. Efri Miðbæ ViS senclum blöðin heim til barnanna. Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600. Áætlunarferðir Reykjavík — Kjalarnes — Kjós 6 ferðir í viku frá Reykjavík sunnudaga kl. 9, mánu- daga, miðvikudaga, fimtudaga kl. 17, og laugardaga kl. 16. Frá Hálsi sunnudaga kl. 15, þriðjudaga, fimtudaga og föstudaga kl. 8 og laugardaga kl.*19. Ennfremur er farin aukaferð að Brautarholti mánudaga kl. 8 og þaðan aftur sama dag kl. 9. JÚLlUS JÓNSSON Ferðaskrifstofu rikisins. ?X$>^X^<S> *X$X$X$X® <í> €*$X$>®x®^®X^®X ÍHlltaf eitthvað » [nýtt, Guðlaugur Magnússon gullsm. ^ Laugav. 11. Sími 5272. Sökum efnisskorts get jeg ekki nú eins og undan- farin jól, framleitt hinar vinsælu jólaskeiðar, nema viðskiptavinir leggi til silf ur 60 gr. í stykkið. Pönt- unum veitt móttaka í versluninni kl. 4—6 e.h. hvern virkan dag. Hafnarfjörður Skemmtikvöld templara verður i kvöld i Goodtemplara húsinu og hesfst kl. 9 stundvíslega. Fjelagsvist. — Kaffidrykkja — Dans. Óskað að templarar fjölmenni og taki með sjer gesti. SKEMMTINEFNDIN. I Vefnaðarvöruverslun á góðum stað er til sölu. Nánari uppl. gcfur HÖRÐUR ÓLAFSSON hdl. Austurstræti 14 sími 7673. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför HANNESAR ÞÓRÐARSONAR ASstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.