Morgunblaðið - 07.11.1947, Qupperneq 15
Föstudagur 7. nóv. 1947
15
Fjelagslíf
FARFUGLAR!
' N.k. sunnudag verður
farin vinnuferð í Vala-
ból. Ekið verður alla
leið. Lagt af stað kl. 9
f.h. og komið aftur kl. 6 e.h. Þátt-
taka tilkynnist í síma 4072 á laugar-
dag.
" Nefndin.
Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til
Hekluferðar n.k. sunnudág kl. 8 f.h.
Þátttaka tilkynnist fyrir laugardags-
kvöld.
FerZaskrifstofa ríkisins.
I. O. G. T.
GuSspekinemar.
St. Septíma heldur fund í kvöld
kl. 8,30. Sjera Jakob Kristinsson flyt
úr erindi, framhald. Gestir velkomn-
ir.
SKRIFSTOFA
stOrstCkunnar
Wríkirkfuve g 11 (Templarahölliimi).
Stórtemplar til viðtals kl. 5-—6,30
olla þriðjudaga og íöstudaga.
Tilkynning
KRISTNIBOÐSVINIR
Kristniboðsfjelag kvenna, Reykja-
vik. heldur fjáröflunarkvöld í Kristni
bóðshúsinu Betaniu — Laufásveg 13
laugardagskvöldið 8. nóv. kl. 8%.
Efnisskrá:
Söngur.
Frlc. Lefdal ltristniboði segir frá
Kína.
Frú Astrid Hannesson (einsöngur)
Sjera Jóhann Hannesson( sjálf-
valið).
Einnig verður fleira, til fágnaðar.
Fjölmenniö! StyrkiS gott rnálefni!
STJÖRNIN
KaupSala
BARNAKERRA til sölu. Bakhúsið
Kirkjustræti 10 (Verkstæðið).
Kaupi gull hæsta verði.
SIGURÞÖIt,
Hafnarstræti 4.
Minningarspjöld * barnaspítalasjóSs
Hringsins eru afgrcidd í Verslun
Augústu Svendsen, Aðalstræti 12 og
Bókabúð Austurbæjar. Sími 4258.
MINNINGARSPJÖLD
Vinnuheimilssjóðs S.l.B.S.
fást á eftirtöldum stöðum: Hljóðfæra
yerslun Sigríðar Helgadóttur, Bóka-
yerslun Finns Einarssonar, Bókaversl
un KRON, Garðastræti 2, Bókverslun
Máls og Menningar, Laugaveg 19,
skrifstofu S.Í.B.S., Hverfisgötu 78,
Bókaverslun Lauganess og Verslun
Þorvaldar Bjarnasonar, Strandgötu
41. Ilafnarfirði.
Tapað
Grœnn sjálfblekungur tapaðist í gær
kl. 1, frá Barmahlíð 28 að Mjóuhlíð.
Skilist Barmahlíð 28 kjallara.
Viniia
HREINGERNINGAR
Tökum að okkur hreingerningar.
Vanir menn. Fljót og göð vinna.
Pantið í tíma. Simi 4109.
Hreingerningar — Gluggahreinsun.
Sínii 1327
Björn Jánsson.
HREINGERNINGAR
Pantið í tíma. Sími 5571.
GuSni Björnsson.
RÆSTINGASTÖÐIN. Tökum að
okkur hreingemmgar. Simi 5113,
Kristján og Pjetur.
MORGUNBLAÐIÐ
311. dagur ársins.
Næturlæknir er í Lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1B16.
I.O.D.F. 1 = 1291178% =
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sr.
Jakob Jónssyni frk. María
Sveinsdóttir frá Arnardal og
Þórólfur Jónsson, bygginga-
meistari frá Auðnum í Laxár-
dal. Heimili þeirra verður í
Drápuhlíð 26.
Hjónaband. I dag verða gef-
in saman í hjónaband ungfrú
Anna Bjarnaaóttir (Jónssonar
vígslubiskups) og Jón Eiríks-
son sölumaður.
Hjónaband. I dag verða gef-
in saman í hjónaband af sr.
Jakob Jónssyni ungfrú Svava
Þorsteinsdóttir, Köldukinn,
Holtum, og Sigurjón Skefing
Ólafsson, Grettisgötu 54. Brúð-
hjónin dve-lj'a þar næstu daga.
Hiónaefni. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Ingi-
björg Guðlaugsdóttir frá DalT
vík og Bjarni Kr. Bjarnason,
be'nsínafgreiðslumaður hjá K.
Á., Selfossi.
Hcimdallur heldur fulltrúa-
ráðsfund í Sjálfstæðishúsinu á
morgun kl. 3,30. — Fulltrúar,
mætið vel og stundvísíega.
Fulltrúafundur Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
heldur áfram í dag kl. 10.
Oscar Clausen flytur erindi
um síldina í Faxaflóa í útvarp-
inu kl. 9,15 í kvöld.
Til fólksins. sem brann hjá:
Hulda og Maja 100 kr., N.N. 40
kr, K.N. 100 kr, H.S. 100 kr.
Myndin af Dorian Gray eftir
hinni heimsfráegu samnefndu
skáldsögu Oscars Wilde, sem
sýnd var fyrir tveim árum í
Gamla Bíó, er nú komin hingað
aftur og verður í þetta sinn sýnd
í Trípolíbíó. Myndin af Dorian
Gray er frægasta verk Oscars
Wilde og mun vera von á bók-
inni í íslenskri þýðingu, en
jafnframt einn stórbrotnasti
harmleikur sem skrifaður hefir
verið í heiminum. Mörgum
mun hafa brugðið í brún er
myndin var alt í einu horfin af
tjaldinu, því það er svo með
það fólk, sem sækir verulega
góðar myndir, að margt þeirra
fer ekki sjerlega oft í bíó og
verður. svo of seint að komast
að. Það var því mjög vel til
fallið að fá þessa ágætu mynd
aftur svo allir sem óska geti
fengið að sjá hana.
Skátablaðið, 7.—8. tbl, 13.
árg, hefir borist blaðinu. Efni
er m. a.: Minningarorð um Pjet
ur Eggertsson, eftir P. H. P,
Sameiginlegt landsmót 1948,
eftir Tryggva Þorsteinsson,
Skátafelag Akureyrar, Nýjustu
skátasöngvarnir, Eitthvað nýtt
í skátastarfið, Kvenskátamótið í
Hindsgavl í Danmörku, eftir
Soffíu Stefánsdóttur, Heigull
eða hetja, smásaga eftir Bræ-
mer, Við tjaldskörina, Úr heimi
skáta, Rödd úr hópnum: Um
skátamótið 1948 o. m. fl. Auk
þess eru í blaðinu fjöldi mynda
úr skátalífinu.
Skipafrjettir: — (Eimskip):
Brúarfoss er í Gautaborg. Lag-
arfoss fór frá Reykjavík í gær-
kvöldi til Hull, Antwerpen;
Kaupmannahafnar og Göteborg.
Selfoss fór frá LOndon í gær. til
Immingham. Fjallfoss kom til
Reykjavíkur 5/11 frá Hull.
Reykjafoss fór frá Antwerpen
5/11 til Hull. Salmon Knot fór
frá New York 29/10 til Reykja-
víkur. True Knot er í New
York. Lyngaa kom til Helsing-
fors 3/11 frá.Hamborg. Horsa
kom til Reykjavíkur 4/11 frá
Hull,
ÚTVARPIÐ í DAG:
15.30—16.36 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukennsla, 1. fl. •
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.25 Útvarpssagan: ,,Stórræða
maður“ eftir Sigurð Heiðdal,
síðari hluti (Brynjólfur Jó-
hannesson leikari).
21.00 Píanókvintett útvarpsins:
Píanókvintett eftir Hummel.
21.15 Erindi: Síldin í Faxaflóa
(Oscar Clausen rithöfundur)
21.40 Tónlistarþáttur (Jón Þór-
arinsson).
22.00 Frjettir.
22.05 Symfóníutónleikar.
23.00 Dagskrárlok.
Náttúrulæknínga-
Sjelagið efnir til
happdrættis
NÁTTÚRULÆKNINGAFJE-
LAG íslands hefur efnt til happ-
drættis til ágóða fyrir heilsu-
hæli, sem það hyggst að koma
upp á jörð sinni, Gröf í Iiruna-
mannahreppi í Árnessýslu.
í happdrættinu eru þessir
vinningar:
1. Skoda-bifreið (4 manna),
2. Stórt málverk eftir Kjarval,
3. og 4. Isskápar, 5. Rafmagns-
þvottavjel, 6. Hrærivjel, 7. Strau
vjel, 8. Rafha-eldavjel (ný gerð)
9. Stáleldhúsborð; 10. Flugferð
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar.. Verð miðanna er 5 krónur.
Drátturinn fer fram á aðfanga-
dag, 24. des. n. k.
Það þarf mikið átak til að
koma upp þessu heilsuhæli. En
hjer er líka til mikils að vinna.
Ekki aðeins það, að bæta nokk-
uð úr hinum tilfinnanlega skorti
sjúkrahúss, heldur einnig að
sýna hverju má til leiðar koma,
sjúkum og þjáðum mönnum til
hjálpar, með náttúrulegum lækn
ingaaðferðum, þegar læknirinn
hefur aðstöðu til að beita þeim
til fulls og getur haft daglegt
eftirlit með mataræði og lifn-
aðarháttum sjúklingsins.
Þetta hæli stendur að sjálf-
sögðu opið öllum landsmönnum
og ef árangur þess og vinsældir
verða ekki lakari en raun hefur
orðið á um Matstofu fjelagsins,
þá hefur ekki verið unnið fyrir
gíg-
Framleiðendur tela
framlsiðslu sína
Frankfurt í gærkvöldi.
SIR Gordon MacReady, yfir-
maður efnahagsráðs bresk-
bandaríska hernámssvæðisins,
tjáði frjettamönnum í dag, að
það væri „meira en rjett“, að
þýskir framleiðendur hjeldu
miklu af vörum af markaðn-
um sökum þess hversu verð-
gildi þýska marksins væri nú
ótryggt.
MacReady ljet þess getið í
þessu sambandi, að hann áliti
að margra mánaða birgðir af
stáli væru enn geymdar í þýsk
um vöruhúsum, auk þess, sem
hann hefði heyrt þess getið, að
framleiðendur hefðu falið mikl
ar birgðir af skófatnaði.
•— Reuter.
Hugheilar þakkir sendi jeg vinum mímrni er gerðu <s>
I mjer áttatiu ára afmælið 1. nóvember s.l. ógleymanlegt.
|» Guð blessi ykkur öll.
Ingileif Tómasdóttir,
Brekkustíg 8.
UNGLINGA
vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir-
talin hverfi:
Bráðræðisholf
Aðalslræti
Miðbæ
Vi'S sendum blööin heim til barnanna.
Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600.
INNFLUTNINGS- OG GJALDEYRISLEYFI
fyrir amerískri fólksbifreið óskast. Tilboð merkt- „A—8“
leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir hádegi á
laugardag.
Blómaverslanir bæjarins
| verða lokaðar frá kl. 1—4 í dag, vegna jarðarfarar
frú Önnn Hallgrímsson.
Verslun vorri oy verkstæðum
verðiir lokað vegna jarðarfarar frá kl. 1—4 í dag.
kr
Lokaðí dag
omcu'erólupun
^Álaííc
cjPimSóou
Í44444444«Wi»>4t444W4«44W44444»W»44m4»w
Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
STEFANlA STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Þórsgötu 19, 6. þ.m.. Jarðar-
förin ákveðin síðar.
SigurSur Jónatansson, born, tengdabörn og barnabörn.