Morgunblaðið - 14.12.1947, Side 2
MORGV NBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. des. 1947' '1
r 2
Handknattleikskeppnin í Háioga
landi síðastliðinn miðvikudag
Brjef:
Læknaskorfurinn í nýhverfun-
um sfafar af apótekaskortinum
Handknattleikskeppnin að Há-
logalandi á miðvikudagskvöldið
var bæði hörð og skemmtileg,
eins og við var að búast, enda
ekki við öðru að búast, þegar
stillt er upp 20 einna bestu leik-
mönnum, sem við eigum.
Jafntefli hjá stúlkunum.
Keppnin nófst með leik í
meistaraflokki kyenna. — Bæði
liðin virtust í byrjun álíta sjálfa
sig jafn færa um að vinna, en
almennt mun þó hafa verið á-
litið, að Ármann-KK-liðið bæri
sjgur úr býtum. Svo fór nú samt
ekki, og í hálfleik hafði Fram-
iR-liðið sett 2 mörk, en hitt lið-
ið ekkert. En í byrjun seinni
hálfleiks hófu Ármann-KR-
stúlkurnar all-mikla sókn og
„kvittuðu“ á fyrstu 4 mínútun-
um. Þegar hálf mínúta var eftir
af leiktíma stóðu leikar þannig,
að Fram-ÍR-liðið hafði sett 5
mörk, en Ármann-KR-3iðið 4
mörk. Hjeldu því margir aö
hinar fyrrnefndu myndu sigra,
en þegar eftir voru aðeins tíu
tekúndur af leiktímanum settu
Ármann-KR-stúlkurnar 5. mark
íð og lauk því leiknum með jafn
tefli. Óhætt mun vera að segja,
að þetta sjeu sanngjörn úrslit,
því liðin voru yfirleitt jöfn.
Dómari í þessum leik var Sig-
urður Sigurjónsson úr FH. Á
dómi hans var nokkur viðvan-
ingsbragur, þ.e.a.s. hann dæmdi
ekki hlutdrægt, heldur dæmdi
hann oft og tíðum of lítið. En
slíkt er ekki nema eðlilegt, þegar
um jafn nýjan dómara er að
ræða.
,Jtau3stakkar“ — „Blástakkar“
Seinni leikurinn, sem var í
meistaraílokki karla, var ekki
síður spennandi og harður en sá
fyrri. Það er best í byrjun, að
kalla Ármann-KR-Valur-liðið
„rauðstakka“, eftir búningnum,
en Fram-ÍR-Víkings-liðið „bfá-
stakka (Fyrrnefnda liðið var í
rauðum peysum, en hið síðara í
bláum).
Af áhorfendum var almennt
búist við sigri „rauðstakka“ og
jafnvel ,,bursti“, þar eð þessi
fjelög urðu númer 1, 2 og 5. í
Reykjavíkurmótinu en lið „blá-
stakkanna" númer 3, 4, og 6. En
„bálstakkar" höfðu æft nokkr-
um sinnum fyrir keppnina og
Jxar sem liðin hafa haft sama
þjálfarann í sumar, var e.t.v.
auðveldara fyrir þau að leika
saman, en auk þess ljek hann
sjálfur með þeim og átti ekki
hvað minnstan þátt í að þeim
tókst að sigra. Aftur á móti
höfðu „rauðstakkar" ekki æft
saman fyrir leikinn, og e.t.v.
ekki þurft þess, þ.e. í þeirra liði
voru það margir menn úr sama
íjelagi.
Fyrri hálfleikur
Svo virtist í byrjun, sem bæði
liðin ætluðu eltki að tefla í neina
tvtsýnu, því að mínu áliti stilltu
þau bæði upp sínu sterkasta liði
strax í byrjun. — Leikurinn í
f yrstu 3—4 mínúturnar var all-
fálmkendur og ekki laust við að
sumir leiltmanria væru dálítið
,nervösir“, en á fimmtu mínútu
leiksins tókst vinstri framherja
,blástakkanna“ (Jóhanni, Vík-
ing), að leika sig frían alveg
upp við markteig „rauðstakka"
og setja fyrsta marltið. En „rauð
stakkar“ náðu brátt leiknum í
sínar hendur, og þegar liðnar
voru um 12—15 mín. af fyrri
hálfleik stóð markaf jöldi 4 gegn
2 þeim í vil, Skömmu síðar
tókst svo Henning að leilta sig
frían upp eftir hægra kantin-
um og hoppaði upp og ætlaði að
skjóta í mark, en vinstri bak-
vörður ,,rauðstakkanna“ (Hauk
ur, Ármann), kom þannig að
honum að hann fjell flatur inn
fyrir markteig. — Dómarinn
dæmdi þetta fríkast, sem var
þó án efa vítakasts vert. Rjett
eftir þetta var svo skipt um
menn í framlínunum og kom þá
greinilega í ljós, hve „rauðstakk
arnir“ voru betri í heild og jafn
ari, því nú settu þeir 3 mörk en
„blástakkar" ekkert. — „Rauð-
stakkarnir" höfðu því um tíma
5 mörk yfir hina (7 gegn 2). En
skömmu fyrir lok fyrri hálf-
leiks, náðu „blástakkar" sjer dá
lítið á strik og settu 4 mörk, en
rauðstakar eitt.
Fyrri hálfleikur endaði því
með 8 gegn 6, „rauðstökkum" í
vil. 1 fyrri hálfleik sýndu ,rauð ■
stakkar“ betri leik og jafnari en
óhætt er að segja að „blástakk-
ar“ hafi verið nokkru óheppnari
með markskot, t.d. skutu þeir 3
svar í marksúlurnar, og einu
sinni var mark dæmt af þeim,
en þó var þeirn dæmt fríkast á
eftir.
Seinni hálfleikur
Fyrstu 10—15 mínúturnar í
seinni hálfleik skiftust liðin á
um að hafa yfirhöndina og þeg-
ar eftir voru um 10 mínútur var
markafjöldinn 13 gegn 10 „rauð
stökkum" í vil. En eftir það virt-
ust „blástakkar" taka nokkurs-
konar endasprett og þegar eftir
voru um 4 mínútur af leiknum
var markafjöldinn 14 gegn 13
þeim í vil. Þegar leikar stóðu
þannig, gerðu Jblástakkar" það
viljandi að tefja tímann með því
að leika knettinum á milli sín,
reyna ekki að skora mark.
SÍíkt er mjög misjafnlega sjeð
meðal áhorfenda og einnig leik
manna, en er í sjálfu sjer ekki
nema eðlilegt þegar um er að
ræða harðan og tvísýnan leik.
En einmitt meðan leikmenn
„blástakka" Ijeku svona tókst
einum „rauðstakkanna" að ná
boltanum og skora mark. Þegar
eins og hálf mínúta var eftir
af leiktíma var því jafntefli.
En á þessum augnablikum,
þegar leikurinn var sem mest
,,spennandi“ fjekk einn af leik-
mönnum ,,blástakka“ (Bjarni,
Víking), áminningu fyrir ósæmi
lega framkomu við dómarann.
Það vakti því ekki litla hrifn-
ingu meðal áhangenda „blá-
stakka“, þegar „blástakkar“ ná
knettinum úr dómarakastinu eft
ir áminninguna, og senda hann
til Bjarna og hann skorar sigur-
markið.
Dómarinn
Dómari í þessum leik var Hall
dór Erlendsson, þjálfari KR. —
Margir álitu að ekki væri hægt
að láta mann dæma, sem ætti
ítök í því liði sem væri að keppa.
Það er að vísu rjett, að best
væri að svo væri ekki, en þegar
ekki er um annað að velja þýðir
ekki að tala um það.
Hann dæmdi yfirleitt vel og
sýndi það, að hann er nú orðið
okkar besti handknattleiksdóm-
ari.
Áhorfendur 300—400
Áhorfendur voru um 3—400.
Leikir, sem þessir eru mjög
skemmtilegir og um leið gagn-
legir, því óneitanlega hljóta að
koma fram í þessum leikjum
okkar bestu leikmenn, og gerir
það auðveldara að velja saman
menn í úrvalslið.
Henning Isachsen.
Ekki er hægt fyrir áhorfend-
ur annað en að taka eftir einum
leikmanna „blástakka“, Henning
Isachen. Hann hefur verið þjálf-
ari þeirra um nokkurt skeið,
eins og áður er getið. Leikur
hans var all-frábrugðinn leik
hinna leikmannanna, einkum
-virðist hann vera leikinn í að
leika á mótherja sinn, en gerir
það stundum of mikið.
Ennfremur virðist hann nota
fullkomlega þann tíma, sem
hann hefur yfir að ráða (þ.e. 3
sek. í einu með boltann) og ætl-
ast þá til að á þeim tíma sjeu
samleikmenn hans búnir að
leika sig fría, en slíkt kemur
ekki að notum nema meðspilar-
ar notfæri sjer það og skilji til
hvers er verið að leika þannig.
Að öðru leyti virðist hann
leika jafnvel í sókn sem vörn og
er enginn vafi á því að hann
átti einna mestan þátt í því að
„blástakkar" unnu.
S. M.
Herra ritstjóri:
MARGIR spyrja á þessa leið:
Hvers vegna eru allir læknar
bæjarins með stofur sínar inni í
miðbænum?
Hvers vegna er nauðsynlegt, að
þvælast með börn um þyeran og
endilangan bæinn, ef fara þarf
með þau í læknisskoðun, Ijósbað
eða til tannlækninga? Bæjar-
stjórn hefur reist dýra skóla í
nýhverfunum. Kaupmenn setja
þar á fót fjölmargar sölubúðir,
og á ýmsan annan hátt flytjast
almenningsstofnanir þangað.
Ilvers vegna koma læknarnir
ekki þangað einnig með stofur
sínar?
Svarið er: Apótekin eru inni í
miðbænum og læknarnir eiga ó-
hægt ,með að hafa stofur sínar
fjarri þeim. Meðan lyfjafræðing-
um er ekki leyft að leysa úr
apótekaskortinum með stofnun
nýrra apóteka í nýhverfunum,
er ekki líklegt, að læknar setjist
að með laekningastofur sínar þar.
Apótekin urðu fjögur árið 1928
og voru byggð fyrir þarfir 25
þús. íbúa. Þau voru og staðsett
fyrir það, sem þá var vesturbær,
miðbær og austurbær. A þeim
20 árum, sem liðin eru, hefur
íbúatala bæjarins aukist úr 25.
þús. upp í 51. þús. og bæjar-
byggðin aukist svo mjög, að nú
standa apótekin inni í miðjum
bænum. Þær kröfur, sem gerðar
eru til apótekanna, eru svo mikl-
ar, að segja má að dagleg störf
eða afköst þeirra líkist því, sem
mest var í farsóttum, áður fyrr,
er fjöldi apótekanna svaraði til
eðlilegra þarfa bæjarbúa. Ef
þetta ástand er ekki hættulegt
að dómi heilbrigðisstjórnarinnar,
verð jeg að telja, að hún sje
gædd óvenjulegri og óeðlilegri
bjartsýni að jeg ekki segi ljettúð
hvað varðar heilsufarslegt ör-
yggi almennings.
Apótekin eru í eðli sínu og eiga
að vera nábýlisstofnanir, þ. e.
þau eiga að vera staðsett þar,
sem íbúarnir eiga auðveldast með
að ná til þeirra. Þau eru ekki í
eðli sínu viðskiptastofnanir, sem
eðlilegast sje að standi í helsta
verslunarhverfi bæjarins. Þau
eru á sama hátt í þjónustu al-
mennings eins og læknarnir og
þurfa að vera í svo nánum tengsl
um við íbúðahverfin og umferða-
æðarnar sem auðið er.
Tala lækna hefur góðu heilli
aukist jafnt og þjett undanfarin
20 ár, en læknum hefur verið
varnað þess að setja upp stofur
sínar fjarri miðbænum af þeirri
einföldu ástæðu, að í miðbæn-
um eru öll apótek bæjarins sam-
an komin og þangað verður fólk-
ið að fara með lyfseðla sína. Þótt
lækningastofur kæmu í nýhverf-
in, yrðu menn að fara inn í mið-
bæinn með lyfseðla sína eftir
sem áður.
Og svo lengi sem það óskiljan-
lega og heimsfurðulega ástand
rikir, að heilbrigðisstjórnin leyf-
ir lyf jafræðingum ekki að fjölga
apótekunum svo sem eðlilegar
þarfir þó krefjast, verða bæjar-
búar að taka því sem alvisku-
legri ráðstöfun hennar, að þeir
þurfi að þjóta inn í miðbæinn
á nóttu sem degi í farartækjum,
sem til falla, eða fótgangandi
nokkra kílómetra leið, verði þeir
að vitja læknis eða apóteks og
sjeu svo „ólánsamir“ að búa í
einhverju nýhvcrfanna svo sem
Kleppsholtsbyggðirmi, Laugarnes
hverfinu, Miðtúnunum, Norður-
mýrinni, Hlíðahverfinu, Mela-
byggðinni, Kaplaskjólunum o. s.
frv.
Til þessa hefur þvílíkt ástand
verið talið til einna höfuðann-
marka dreifbýlis í sveitum en
varla verið talið eiga við í borg-
um.
Það er mikill kostur, ef lækn-
ar geta verið í nánu nágrenni
apóteka. Best er, ef hægt er að>
koma því við, að læknar hafi
stofur sínar í byggingum þeim,
sem hýsa apótekin. Einkum á
þetta yið um úthverfin eins og
Kleppsholtsbyggðina. Ef Klepps-
holtið er tekið sem sjálfstæð
heild er það annár eða þriðji.
stærsti bær á landinu, en þar er
hvorki læknir nje apótek.
Það væri æskilegast eins og
raunar allsstaðar annarsstaðar,
að í byggingu apóteks, sem i
Kleppsholti væri stofnað, væri
stofa eins eða tveggja lækna,
ljósþaðstofa og tannlækninga-
stofa. Apótekið þjrfti ekki að
vera stórt en hins vegar vel út-
búið. En seint verður hafist
handa, ef landlæknir dregur sí-
fellt að stíga fyrsta skrefið, með
því að auglýsa apóteksleyfin
lyfjafræðingum til umsóknar.
Það tekur minnst eitt ár og
sennilega þó lengri tíma eins og
nú er orðið ástatt að útvega fje
l og efni til byggingar, kaupa eða
leigu á húsnæði, að útvega áhöld
og tæki og annað það, sem þarf
til stofnunar nýs apóteks.
Heilbrigðisstjórnin hefur látið
góðæri undanfarinna ára renna
út í sandinn, hvað þetta snertir,
og nú tekur allt lengri tíma en
verið hefði þá. En enginn lyfja-
fræðingur getur gert ráðstafan-
ir til undirbúnings stofnunar
apóteks, meðan heilbrigðisstjórn-
in leyfir ekki að gengið sje til
verks í þessu skyni.
Fyrsta skrefið til framkvæmda
verður heilbrigðisstjórnin að
stíga með auglýsingu apóteksleyf
anna. Hvað tefur hana ár eftir
ár frá því að stíga það skref?
Matthías Ingibergsson,
lyfjafræðingur.
Frli. af bls. 1.
hluti liðsins, sem sent var til
Arnhem, 8000 lágu eftir fallnir,
særðir eða herteknir. Þeir höfðu
fært sína fórn, — og ekki til
einskis.
Af þessari sögulegu viðureign
hafa Bretar nú látið gera kvik-
mynd. Ari eftir orustuna voru
herdeildir sendar til Arnhem í
þessu skyni. Borgin var þá auð’
og yfirgefin, eins og þegar þjóð-
verjar skildust við hana. Allir
þeir, sem sendir voru til mynda-
tökunnar, höfðu barist við Arn-
hem; þeir voru látnir leika sín
eigin afrek, lifa á ný mestu ör-
lagastundir sínar. Sumt í mynd-
inni, eins og fallbyssugnýrinn
og sprengjudunurnar, var tekið
meðan orustan sjálf geisaði. Alt
annað var leikið eins nákvæm-
lega og auðið var eftir sjálfum
atburðunum, hvar þeir gerðust
og hvernig. Enginn atvinnuleik-
ari er í myndinni, aðeins menn-
irnir, sem börðust við Arnhem,
venjulegir menn, eins og gengur
og gerist í þjóðherjum nútímans.
Fyrir því er kvikmyndin af or-
ustunni við Arnhem talin ein
merkilegasta, besta og sannasta
mynd úr síðustu styrjöld.
Myndin heitir á ensku „Theirs
is the Glory“, þeir drýgðu dáð-
ir. Hún er komin hingað til lands
og verður sýnd bráðlega í Tjarn-
arbíó.
BAGNAR JÓNSSON
I hæstarjettarlögmaður.
| Laugavegi 8. Sími 7752.
í Lögfræðistörf og eigna-
I umsýsla.
BEST AÐ AVGLTSA
! MORGLTiBLAÐim j
„Komdu og skoðaðu
í kistuna mína!“
Rósamáldðir kislar. Skemmíileg jólagjöf.
Skiltagerðin
SkólavÖrðustíg 8.
BEST AÐ AVGLÝSA I MORGVNBLAÐINV