Morgunblaðið - 03.01.1948, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.1948, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 3. janúar 1948 J Útp.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið 75 aura með Lesbók. Verðlag og vísitala lækkar RÁÐSTAFANIR ríkisstjórnarinnar til stöðvunar á verðbólg- unni og lækkunar á dýrtíðinni hafa nú verið auglýstar fyrir alþjóð manna. Á þeim vörum, sem áhrif hafa á vísitöluna, hefur verðið verið lækkað það mikið, að vísitalan, er var 328 stig, mun lækka niður fyrir 320 stig. Auk þess kemur svo lækkun á húsaleigunni um 10% o.fl: Á öðrum stað hjer í blaðinu í dag, er gerð grein fyrir því, hve mikið verðið hefur verið lækkað á landbúnaðarafurð- unum. En kjöt hefur lækkað um nálega 1 krónu kílóið. Mjólk um 6 aura á lítra, ostur um kr. 1,25, sú tegundin, sem mest er notuð, egg um krónu kílóið og þar fram eftir götum. Svo íramleiðendur landbúnaðarafurða hafa tekið á sig sinn skerf, til þess að spyrna fæti við áframhaldandi verðbólgu, sem allt myndi gleypa, kaup manna og atvinnuna, ef hún fengi að halda áfram. Kommúnistar gerðu sjer vonir um, að hinn nýi söluskattur myndi hækka verðlagið á ýmsum vörum, og með honum myndi, eftirlæti þeirra, dýrtíðin aukast. En svo verður ekki Því álagningin á vörumar hefur verið lækkuð, að því skapi. Þó söluskatturinn leggist á, verður útsöluverðið á vörunum ekki hærra en það var áður. Þetta eru þá staðreyndirnar, sem fyrir liggja, og eru í hinu mesta ósamræmi við fullyrðingar Brynjólfs Bjarnasonar á þingi um daginn. Þar fullyrti hann, að ráðstafanir ríkisstjórn arinnar myndu verða til þess, að dýrtíðarvísitalan hækkaði upp í 350 stig. Hún sem sje lækkar niður fyrir 320 stig. Nú er það þjóðarinnar að skera úr því, hver stefnan sje heillavænlegri, að láta verðbólguna halda áfram, eins og kommúnistar vilja, eða stuðla að því að áform ríkisstjórnar- innar fái að koma að gagni Dýrtíðinni verði haldið í skefj- um þar sem hún nú er, og þannig lagður grundvöllur að þjóðarhagsæld í framtíðinni. Trúlegt væri, að engir aðrir en þeir, sem fylla hinn fjar- stýrða flokk kommúnista, muni hafa hug á því, að fórna vel- terð þjóðarinnar á altari verðbólgunnar. Ólætin á gamlárskvöld ÓLÆTIN á götum Miðbæjarins á gamlárskvöld, voru með þeim hætti, að til vansa er fyrir bæjarbúa. Svo skefjalaus voru þau og lýstu ótvíræðri skemmdarfýsn og skrilsæði. Sem betur fer, voru það ekki nema tiltölulega fáir, sem beinan þátt tóku í ólátum þessum. En þeir margfallt fleiri, sem af forvitni hópuðust utanum skemmdarseggina. — Er talið, að alls hafi verið á ferli í Miðbænum um 1000 manns. En sá mannfjöldi var nægilega mikill til þess, að þeir, sem höfðu vítaverð ólæti í frammi, gátu skýlt sjer í þeim fjölda, svo lögreglan gat síður haft hendur í hári þeirra. Þeir, sem fylgdust best með ólátunum fullyrða, að óróaseggirnir hafi flestir verið innan við tvítugt. Drengir, sem nýlega eru sloppnir úr skólum bæjarins, og bera uppeldisáhrifunum ó- skemmtilega vitni. Þó ólætin væru með illkynjaðasta móti, þá var fjarri því, að lögregluliðið hefði ekki vald yfir götulýð þessum í aðai- atriðum og hefði á hvaða stund sem var, getað rutt göturn- ar, ef þörf hefði þótt á því að beita slíkri harðleikni. En hún hefði með því móti á óverðskuldaðan hátt komið óþægi- lega við saklausa borgara. — Var það ráð því ekki tekið, enda óhæfilegt, nema ótvíræð nauðsyn bæri til. Lærdómurinn af þessu gamlárskvöldi verður sá: Að sporna verður gegn því með öllum ráðum, að óhlutvandir ærslabelgir geti útbúið sjer hættulegar sprengjur, eins og þær, sem notaðar voru á götunum þetta kvöld og hefðu getað valdið meira tjóni og slysum en urðu að þessu sinni, m.a. ineð því að banna sölu á sprengiefni þvi, sem í þessi skemmd- artól eru notuð. 1 Eins ættu bæjarbúar að hafa það ennþá meira á bak við eyrað, en hingað til, að stilla svo forvitni sinni í hóf, að þeir f jölmenntu ekki sem áhorfendur að göíuóspektum og torvelai á þann hátt nauðsynleg störf lögreglunnar. DAGLEGA LÍFINU Smánarleg skrílslæti. ÞAÐ ER ^nú komið svo að það er lífshætta fyrir borgara þessa bæjar að koma út fyrir hússins dyr á gamlárskvöld og jafnvel inni í húsum eru menn ekki óhultir fyrir skríl, sem veður um bæinn með skemd- aræði á þessu síðasta kvöldi ársins. Skrílslætin á gamlárskvöld að bessu sinni voru svo alvar- leg, að yfirvöldin verða að taka í taumana og gera ráðstaf anir sem duga til þess að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. Það er óþarfi að rekja hvað skeði hjer á gamlárskvöld. Það e'r gert í frjettum blaðsins. En um það mun allur þorri borg- ara þesas bæjar sammála að það hafi verið smánarleg skríls læti, sem ekki sje hægt að þola í siðuðu þjóðfjelagi. • Lífshætta á almannafæri. ÞAÐ HEFIR löngum verið siður að menn lyftu sjer upp, sem kallað er, á gamlárskvöld og oft hefir verið allmikill galsi í mönnum og enda siður að fyrirgefa, þótt fólki hafi orð ið á að gefa sjer lausan taum- inn á gamlárskvöld. En því má ekki gleyma, að gamlárskvöld er hátíð og það er mikill fjöldi bæjarbúa, sem vill fá að vera í friði þetta kvöld. eins og á öðrum hátíð- um. — Áður fyr var það siður, að bæjarbúar söfnuðust saman á götunum og allir voru glaðir og kátir. Á miðnætti var venja að fara niður að höfn og hlusta á eimflautur skipanna og sjá er skptið var rakettum frá skip unum. Þótti þetta góð skemt- un og eftirminnileg. — En nú er bað lífshætta að koma út á göturnar. • Örfáir ofbeldisseggir. ÞAÐ SANNAST hjer, að ekki þarf meira en einn gikk- inn í hverja veiðistöð. Það eru ekki nema tiltölulega fáir of- beldisseggir, sem að skemdar- verkunum standa, en mann- fjöldinn eltir og þessvegna lít- ur betta ver út, en það er í raun og veru. Það er nærri ógerningur, að hafa hendur í hári skemdar- verkamannanna, en hitt hlýtur að vera hægt að gera með góð- um undirbúningi, að dreifa mannfjölda, sem safnast sam- an og það á lögreglan að gera miskunnarlaust. • Mikil verðmæti í súginn. ÞAÐ ERU ekki svo lítil verð mæti, sem fara í súginn á kvöldi. eins og síðasta gaml- ársdag. Margir komu heim með rifna brók, brenda yfir- höfn, höfuðfatslausir og illa til fara. Nú á þessum skömmt- unartímum er ekki auðvelt að bæta það tjón. Rúðugler er lítt fáanlegt, eða ófáanlegt og verður ekki gott að bæta úr tjóni vegna rúðu- brota, bæði að Hótel Borg og víðar. Þá er ótalið það tjón, sem þeir urðu fyrir er hlutu meiðsl, brendust af sprengjum. Sum ir munu bera ör eftir þann hrottaleik alla sína ævi. • Öfund og illgirni. ÞAÐ HEFIR verið föst venja undanfarin ár, að skríll hefir safnast saman við Hótel Borg á gamlárskvöld, en þar er jafn an haldinn dansleikur. Skríll- inn hefir til þessa látið sjer nægja, að reyna að hrekkja fólkið, sem hefir verið að koma á dansleikinn. Æpa að því. kasta sprengjum og reyna að velta .bílum. En. í þetta sinn var gengið feti lengra og ráðist að veitinga- sölunum með sprengjukasti. Það var með öðrum orðum framið húsbrot. Glæpur fram- in, sem þung hegning liggur við að landslögum. Slíkt má aldrei koma fyrir aftur og það er krafa borgar- anna, að lögreglan noti þau tæki, sem hún býr yfir. til að tryggja öryggi bæjarbúa, jafnt á þppsum síðasta degi ársins, sem öðrum. • Sitt hvað skemmtun eða skemmdarverk. ÞAÐ ER samt ekki nóg að banna eingöngu. Það mætti sjá almeningi fyrir einhverri ára- mótaskemmtun. Ef til vúl væri hægt að gera einhverjar þær ráðstafanir, sem duga til þess að koma í veg fyrir skríls lætin. Það mætti til dæmis hafa álfa dans og brennu á íþróttaveilin- um á gamlárskvöld, bar sem skotið væri flugeldum, iúðra- sveit ljeki og svo framvegis. Það er sitthvað skemtun eða' skemdarverk. En eitthvað verður að gera. Það. sem skeði hjer á gamiárs kvöld, má aldrei endurtaka sig. • Ekki var það áícngið. NÚ VÆRI það ef til vill skilianlegt, að æði gripi raenn og mannfjölda, sem væri viti sínu fjær af áfengi. En lög- regluþjónn, sem fylgdist vel með atburðunum á gamlárs- kvöld fullyrðir við mig, að það hafi ekki verið ölvaðir menn, sem að ólætunum stóðu. Mt st voru það unglingsstrákar á gelgiuskeiði. Og að þessu sinni var alls ekki óvenjulega mikil ölvun á almannafæri. Misheppnuð súpa. ÞEIR ERU margir útvarps- hlustendur, sem voru gramir er beir hlustuðu á dagsskrána ó g.amlárskvöld. Það vav súpa, sem mishepnaðist algjörlóga. Það var blandað saman há- tíðlegu efni og gríni á ósrnekk- legan hátt og auglýsingavað- allinn var alveg óþolandi. Hvrrsvegna gengur Ríkís- útvarpið ekki á undan með góðu eftirdæmi og hefir góða hátíðlega dagsskrá síðustu stundir ársins, sem er að kve.ðja? Það er hægt að byrja ólæt- in o.g gargið eftir .miðnætti þegar mesti hátíðablærinn er farinn að heimilunum. Það er nefnilega svo enn, að á fjölda mörgum heimilum í landinu er gamlárskvöld hátíðlegasta stund ársins. Og það er góður siður, sem vonandi leggst eki:i niður. MEÐAL ANNÁrL ORÐÁ . . . . J ------j Eftir G. /. A. |-—-—----- ----- Sumir fenp ekkerf nema skrámur EINHVERN heyrði jeg segja það í gær, að sjálfsagt hefði enginn verið ófullur hjer á gamlárskvöld nema börn og gamalmenni. Þetta er varla með öllu rjett, en sannleikur er það þó, að sjaldan hafa víst fleiri verið við skál í Reykja- vík en einmitt þetta kvöld. „Stemningin" á skemtistöð- unum mun þó hafa verið góð, að minsta kosti framan af. All- ir voru prúðbúnir á böllunum, og margar stúlkurnar skreyttu sig í fyrsta skifti eftir nýju tískunni. * • SÖNGUR. „Nú árið er líðið í aldanna skaut“ var sungið klukkan tólf eins og vera bar. í háskólanum höfðu menn jafnvel verið svo forsjálir að láta prenta kvæðið allt, svo gestirnir gátu hver einn og einasti kinnroðalaust tekið undir, án þess að tönglast sí og æ á fyrstu vísunni, en meira kunna víst fæstir. e • KOSSAR. Kossarnir voru ótalmargir þessa stundina. Það virðist vera orðin nokkurs konar hefð að kyssa allt og alla á slaginu tólf, og þótt ekkert sje við þessu að fárast í raun og veru, hefir heyrst um nokkur handalög- mál. sem upptök sín áttu í gaml árskvöldskossunum. En þetta kvöld og nóttin með var bó allt annað en saklaus skemtun fyrir suma borgara þessa bæjar. Á öðrum stað hjer í blaðinu er skýrt frá því, hvað skeður þegar skrílsæðið grípur menn cg skemdar og fólsku- fýsnin kemur upp í þeim. • • SLYS. Og bifreiðaslys urðu þessa nótt eins og aðrar nætur. Inni í Langholti þeyttist bifreið lan"a leið út af veginum og gjöreyðilagðist. Menn, sen komu þarna fyrstir að, fundu meðvitundarlausan mann í bíln um. Hann var alblóðugur og klemdur fastur. Tilraunir til að losa hann reyndust árangurs lausar, þar til tekist hafði að ná saman nógu mörgu fólki til að reisa bifreiðina við. Lög- reglumenn, sem komu þarna á' vettvang með sjúkrabörur, sögðu, að oft hefðu þeir sjeð illa útleikna bíla, en aldrei eins slæma og þennan. Það má heita að enginn hlutur sje heill í honum. • o SKRÁMUR. Gamlárskvöld var þannig alt annað en. skemtikvöld fyrir suma bæjarmenn. Og enda þótt þeir hafi sjálfsagt skemt sjer vel, sem bröltu heim til sín snemma á fimtudagsmorguninn 1948. voru þeir þó margir, sem ekkert höfðu upp úr krafsinu nema skrámur og önnur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.