Morgunblaðið - 14.01.1948, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. janúar 1943
Útp.: H.f. Ár/akur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árr_. Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Finsk reynsla
RITARI finnska jafnaðarmannaflokksins, Leskinen, hóf fyr-
irlestrarferð um Svíþjóð nú eftir áramótin. Hann hefur skýrt
frá, hvernig finnskir jafnaðarmenn hafa komið í veg fyrir að
eins færi fyrir Finnum, eins og þeim nágrannaþjóðum ein-
ræðisríkisins, þar sem kommúnistar hafa náð öllum völdum
i sínar hendur.
Hann segir m.a. eftir því sem Svenska Dagbladet hermir:
Kommúnistum hefur mistekist að ná völdum í verkalýðs-
sambandinu finnska. Þeim var það ljóst, að með því, að ná
völdunum í þeim fjelagsskap, voru mestar líkur til þess að
þeir kynnu að geta gripið til óþingræðislegra aðgerða, ef
þeim byði svo við að horfa.
Við tilraunir sinar til valdatöku í verkalýðssambandinu
neyttu kommúnistar allra bragða. Þeir reyndu að koma fram
kosningasvikum í stórum stíl. 1 Tammarfors gripu þeir ti'
hkamlegs ofbeldis, er þeir gátu ekki á annan hátt komið í
veg fyrir, að jafnaðarmenn fengju að flytja þar ræður.
I Aabo sendu þeir kommúnista, sem eru í þjónustu ríkis-
lögreglunnar heim til jafnaðarmannaforingja, til þess að
hræða hann, með hótunum um það, sem myndi gerast, þann
dag sem jafnaðarmenn tækju við völdum í Finnlandi.
I þeim verkalýðsf jelögum, sem kommúnistar náðu völdum
var komið á hinum strangasta einræðisaga og skoðanakúgun.
Voru jafnaðarmenn ófsóttir, með margskonar hætti, og jafn-
vel hent út af fundum með handafli.
I ársbyrjun 1947 urðu straumhvörf í afstöðu almennings
til kommúnistanna. Þá sáu allir að kommúnistarnir meintu
ekki annað með lýðræðistali sínu, en að þeir einir ættu að
hafa frjálsræði til að gera það sem þeim sýndist. Nafnið
lýðræði var í þeirra munni ekki annað en skálkaskjól, sem
þeir reyndu að nota sjer, til þess að dylja fyrri og núverandi
stefnu sína og starfsaðferðir. En allt er það hið sama og upp-
runalega. Að koma fram málum sinum, með einræði og of-
beldisverkum.
En það má segja flokki mínum til hróss, sagði Leskinen,
að hann hefur aldrei keypt sjer frið við kommúnista með því
að víkja frá rjettum lýðræðisreglum og frelsishugsjónum,
eins og þeim er lifa í hugum norrænna þjóða.
Engu er líkara en ritstjóri Þjóðviljans, sá er kvartaði yfir
því um áramótin, að hann hefði á árinu sem leið verið of
„miskunnsamur‘‘, hafi haft veður af þeim starfsaðferðum,
sem flokksbræður hans hafa viðhaft í Finnlandi. Og hann
hugsi sjer • að reyna þau brögð, sem kommúnistar hafa
reynt með Finnum. En það mega kommúnistar vita, að þegai
þeir taka upp þær ofbeldisaðferðir, sem Leskinen lýsir, þá
úti um allt fylgi þeirra hjer.
Reykjavík og sveitirnar
RITSTJÓRI Tímans segir í gær, að fólk hafi flúið sveitirnar
og sest að hjer í Reykjavík m.a. vegna þess að hjer sje meire
brask og óhagstæðari viðskipti, en annarsstaðar á landinu
Eftir venjulegum skilningi, ætti óhagstæð verslun, að verð<*
til þess, að fæla menn frá þeim stöðum. Enda munu vera þesr
dæmi, að einmitt þær orsakir hafi átt sinn þátt í því að fóll
hefur flúið sumar sveitir.
Fólk, sem flutt hefur hingað til Reykjavíkur á undan
fömum árum kallar Tíminn ,,útkjálkalýð“ og ,,eyjafífl“. Ei
hann má vera einn um þá nafngift. Sjálfstæðismenn lít.
hinsvegar svo á, að meginhlutinn af því fólki, sem hinga
hefur flutt á undanförnum árum, sje fólk, sem á engin bjána
leg uppnefni skilið og brottflutningur þeirra úr sveitunur
hafi stafað af því að menn hafi sjeð sjer þann kostinn væns
an, að hverfa þaðan.
Þá hefur Tíminn í gær komist að þeirri vísindalegu niðu,
stöðu að dælur Hitaveitunnar á Reykjum „rífi upp ýms efr.
sem myndi hrúður í pípunum". 1 Vísi stóð nýlega að í pí.
unum myndist mosi, sem verði að sementi þegar hai
þorni(!) Vísindamennskan hjá báðum bendir á mikinn an
legan skyldleika.
\Jibverjl óhrifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Kvartað yfir
hirðuleysi.
ÞAÐ ER alkunna, að við ís-
lendingar erum hinir mestu
skussar við að svara sendibrjef
um. Það þarf ekki að koma
svo mikið að sök hjer innan-
lands, eða milli kunningja og
vina. Þá er það einkamál, en
öðru máli er að gegna í við-
skiftum við útlönd. Gamlar
verslunarþjóðir eru mjög ná-
kvæmar í þessum efnum og er
skrifað er til viðskiftavinar er
ætlast til að hann svari, þótt
ekki sje nema til að staðfesta
móttöku brjefs.
Breskur maður, sem dvalið
hefir hjer á landi lengi og hefir
oft sýnt vinarhug sinn í garð
okkar, skrifar mjer alllangt
brjef, sem við höfum gott af
að lesa og þýði jeg það því í
heild.
Höfundur brjefsins er Jam-
es Whittaker og brjef hans er
á þessa leið:
e
Vingjarnleg
ábending.
„JEG ÆTTI ekki að þurfa
að skýra það nánar, að jeg er
vinur íslands. Skrif mín, út-
varpsstarfsemi og annað ætti að
sanna það svo öllum sje ljóst.
Jeg skrifa því þetta aðfinnslu-
brjef með vinarhug og í þeirri
von, að það verði öllum aðilum
er hlut eiga að máli til góðs.
ísland á það sameiginlegt
með -mörgum öðrum löndum —
sem eru miklu stærri en Is-
land — að það á í fjárhags-
legum erfiðleikum eins og
stendur.
Hjer í Bretlandi skiljum við
þetta ástand manna best. því
það leiddi af framlagi okkar
og fórnum í styrjöldinni, að við
eigum við mjög mikla erfið-
leika að stríða.
•
Erfitt að eiga við-
skifti við íslend-
inga. —
„FJÁRHAGSÁSTANDIÐ á
Islandi síðastl. ár, afturköllun
innflutningsleyfa og hömlur á
yfirfærslu gjaldeyris, hafa
bæði ruglað bresk fyrirtæki og
valdið því, að það er næstum
ómögulegt að eiga eðlileg við-
skifti við íslendinga.
En jeg leyfi mjer að halda
því fram, að oft hefði verið
hægt að firra vandræðum og
koma í veg fryir misskilning,
ef íslenskir kaupsýslumenn
hefðu aðeins svarað brjefum
enskra viðskiftavina.
Margar fyrir-
spurnir.
„VÍÐA UM Bretlandseyjar
hefi jeg orð fyrir að vera vin-
ur íslands og maður, sem hef-
ur áhuga fyrir íslandi. Dag
eftir dag og mánuð eftir mán-
uð hefir verið hringt til mín
frá fyrirtækjum (sem jeg hefi
annars ekkert samband við),
eða skrifað til mín til þess að
biðja_ um upplýsingar um ís-
land.
„Það eru stöðugar kvartan-
ir og.ástæðan til þess, að fyrir-
tækin snúa sjer til mín er oft-
ast sú, að þau vilja fá að vita
hvernig á því standi, að við-
skiftavinir þeirra á íslandi
svara ekki brjefum“.
' •
Hversvegna svara
þeir ekki?
„HJER á dögunum var jeg
staddur hjá vel þekktu og
merku bresku verslunarfyrir-
tæki. Þar sá jeg afrit af þrem-
ur brjefum og tvö skeytaafrit,
sem send hafði verið til versl-
unarfyrirtækis í Reykjavík síð
ustu. þrjá mánuði — það var
enn beðið eftir svari við brjef
unum og skeytunum.
Jeg hefi oft rekist á þetta
sama í viðskiftum mínum við
Islendinga. Hvernig stendur á
því að íslenskir kaupsýslumenn
svara ekki sendibrjefum um
viðskiftamál. Þögn þeirra er
oft misskilin. Kaupsýslumenn
hjer hugsa á þá leið, að ef til
vill sjeu þessi íslensku fyrir-
tæki ekki lengur til. Þau sjeu
orðin gjaldþrota. Það er ekki
hægt að skilja þögnina öðru-
vísi en að eitthvað alvarlegt
hafi komið fyrir. Mjer er kunn
ugt um, að engin hætta er á
ferðum, en hvernig eiga bresk-
ir kaupsýslumenn, sem litla
þekkingu hafa á Islandi og ís-
lenskum málum, að skilja
þetta“.
•
Leið til úrlausnar.
AÐ LOKUM segir hr. Whitt-
aker, að það sje aðeins ein leið
til úrlausnar í þessu efni og
þ.gð sjeu, að íslenskir kaup-
sýslumenn, sem viðskifti hafa
við útlönd geri sjer að reglu
að svara verslunarbrjefum og
skýra erfiðleika sína.
Það er ábyggilegt, að brjef-
ritara gengur gott eitt til með
aðfinnslum sínum og ábending
um og það er eins og gamalt
máltæki segir:
„Sá er vinur er til vamms
segir“.
•
Þrengir að?
FYRIR SKÖMMU var það
haft eftir erlendu blaði, að
sænskur læknir hefði með ein-
föltium heilauppskurði læknað
sjóðvitlausan kommúnista. Það
þurfti ekki nema rjett að ljetta
þunga af nokkrum taugum í
kollinum á honum. Manntetrið
sem var að verða brjálaður af
kommúnisma, hlaut lækningu í
tíma og líður nú vel. (En það er
meira en sagt verður um suma
hjer).
Kommúnistablaðið tekur það
illa upp hjá mjer að vera
að segja frá þessu og skrifar
eins og eitthvað þrengi að viss
um taugum hjá þeim. aumingj-
unum.
Ætti að vera
gleðifregn.
ÞAÐ MÆTTI annars halda,
að þegar sjúkum mönnum eru
sögð þau tíðindi, að búið sje
að finna upp ráð til að lækna
þá, verði þeir slíkum frjettum
fegnir í stað þess að reiðast.
En það er eins og Halldór
Kilian Laxness segir einhvers-
staðar: „Mannanna börn eru
merkileg .......“.
i MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . I
i------— I
+-------1 EftirG.J.Á. |—---------------------*
Um atomwpn og sýklahernað
Ýmsar þjóðir vinna af
kappi að atomrann-
sóknum — og þær
verða búnar að leysa
vandamálið innan ör-
fárra ára.
í GÆR var birt í Washing-
ton skýrsla, sem flugmálanefnd
Trumans forseta hefur tekið
iaman, og lýtur að loftvörnum
Bandaríkjanna, ýmsum vopna-
eg’^idum, sem líklegt er talið
ð almennt verði teknar í notk
n á næstu úrum, og stefnu
eirri, sem nefndin telur að
andaríkjastjórn beri að taka
op til að ganga sem best frá
ryf?i landsins. Á öðrum stað
ier í blaðinu er í frjett skýrt
tillega frá niðurstöðum nefnd
'innar, en rjett þykir að fara
'arlegar út í skýrsluna hjer.
•» bá sjerstaklega þann hluta
onnar, sem fjallar um atom-
% sýklavopn.
• •
AÐRAR ÞJÓÐIR
„ÓMÖGULEGT er að vita fyr
r víst“, segir í skýrslunni, ,,hve
nær aðrar þjóðir (en Banda-
ríkin) eignast atomvopn, enj
ekki er nema rjett að gera ráð
fyrir að þær sjeu enn sem kom
ið er ekki farnar að framleiða
slík vopn svo nokkru nemi.
Nsfndin gerir sjer Ijóst, hversu
mikil ábyrgð felst í þessari yf-
irlýsingu. Hún birtir hana því
aðeins sökum þess, að henni'
Rannsc. • s." fnd Trumans var
ar við nýjum níorðvopnum.
hefur tekist að afla sjer margra
gagna, sem styðja þessa skoðun
hennar ....
Vitað er að ýmsar þjóðir
vinna af kappi að atomrannsókn
um, að þær hafa nokkuð af
nauðsynlegum hráefnum fyrir
hendi .... og að þær hafa
mönnum á að skipa, sem leyst
geta hin mörgu, flóknu vanda
mál, sem hjer er um að raöða.
• •
ÁRSLOK 1952
.... ÓHÆTT mun að gera
ráð fyrir, að þjóðir þær, sem
kun^a að reynast okkur óvin-
veittar hafi ekki, fyrir árslok
1952, byrjað framleiðslu á
atomvopnum, svo nokkru ráði
nemi. En við viljum vekja at-
hygli á því, að með þessu er
■íkki gengið út frá, að þessar
bjóðir kunni ekki að hafa eitt
hvað af atomvopnum fyrir
þennan tíma.
• •
SÝKLAHERNAÐUR
Nefnd forsetans ræðir einn-
ig í skýrslu sinni möguleikana
Frh. á bls. 8.