Morgunblaðið - 29.01.1948, Qupperneq 1
35. árgangur
23. tbl. — Fimmtudaginn 29. janúar 1948.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
lítlil fyrir ai franska stjórnin falli
Um þessar mundir eru 21 stúdent frá Danmörltu, Noregi, Svíþjóð
og Finnlandi á ferðalagi um Bandaríkin í boði Norræna fjelagsins
(SAS) og The Nett> York Metropolitan School Study Council. —
Hjer sjást stúdentarnir er þeir komu á La Guardia flugvöllinn í
New York. Ferðalágið stendur yfir í ZV% mánuð.
Samrýming kolafram-
leiðslu Saar og franska
efnahagsins samþykt
ar sasa m
PARÍS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
TALSMAÐUR franska utanríkisráðuneytisins staðfesti í dag
fregnir þess efnis, að samningar hefðu tekist milli Frakka,
Bandaríkjamanna og Breta um að samræma kolaframleiðslu
Saar-hjeraðanna og fjárhag Frakklands. Flutningur kola, sem
framleidd eru í Saar-hjeruðunum, til Vestur-Þýskalands verður
stöðugt minnkaður þannig að í apríl 1949 verður framleiðslan
öll í höndum Frakka, en það eru um 12 milljón tonn á ári.
Framkvæmdir ákvörðunarinnar ‘
að byrja
Kolaframleiðslunefnd Evrópu
hefur verið skýrt frá ákvörðun
þessari og sagt, að draga sína
eigin ályktanir varðandi hana.
Þegar talsmaður ráðuneytis-
ins var spurður hve mikil vinna
væri eftir til þess að fram-
kvæma ákvörðun þessa svaraði
hann: „Mjög lítil“.
Afstaða Saar-hjeraðanna
Enn á eftir að gera nauðsyn-
legar ráðstafanir um hver versl-
unarafstaða Saar-hjeraðanna
verður til annarra landa í Evr-
ópu og þá sjerstaklega Þýska-
lands, en þó mun ekki langt líða
u.ns þær hafa einnig verið á-
kveðnar.
33 farasl í flugslysi í
Kaliforniu
Fresno í gærkveldi.
33 FARÞEGAR fórust í dag
þegar flugvjel rakst á fjallgarð
nálægt hjer og brann til kaldra
kola. Yfirmenn flugvallarins í
Oakland skýrðu svo frá að í
morgun hefði flugvjel með 28
landbúnaðarverkamönnum og
álröfninni farið þaðan. Björgun
arsveitir höfðu þegar náð 19 lík
um úr flaki vjelarinnar og var
talið fullvíst að enginn af þeim
sem enn voru í vjelinni gætu
verið á lífi. — Reuter.
Stokkhólmur miijónaborg.
Stokkhólmi — Stokkhólmur er
nú um það bil að verða miljóna-
borg og voru íbúar borgarinnar
árið 1947, 850,000 sem er 22,500
hærra en 1946.
Vppreisnarmenn fara hallloka.
Washington — Zervas hers-
höfðingi, leiðtogi gríska þjóðar-
flokksins, nýkominn hingað í
mánaðarheimsókn, tjáði blajða-
mönnum, að hann væri vel á-
nægður með sókn stjórnarinnar
gegn uppreisnarmönnum.
159 gesfir á Kefla-
víkurfiugvelli
159 GESTIR komu á Kefla-
víkurflugvöll í gær til þess að
skoða risaflugvirkin, sem þar
voru. Hafði verið tilkynnt, að
gestir mættu sköða þessar flug-
vjelar, en svo stóð á, að um
síðustu helgi laskaðist skrúfu-
blað risaflugvirkis, sem var að
koma frá Bandaríkjunum og í
gær kom annaö risaflugvirki
frá Múnchen í Þýskalandi með
nýtt skrúfublað.
Flugvjelinni frá Þýskalandi
seinkaði nokkuð og varð það til
þess, að Sumir gestanna fóru
aftur áður en vjelin kom, en
þeir, sem biðu, skoðuðu flug-
vjelina og foringi hennar
skýrði út fyrir gestum þin
ýmsu atriði hennar.
Síðar skoðuðu gestirnir hinar
nýju byggingar á vellinum.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt er öllum heim.ilt að koma
á Keflavíkurflugvöllinn hve-
nær sem er og skoða það, sem
þeim sýnist þar.
Bandarískir Gyðing-
ar fil aðsloðar
Paleslínu-Gyð-
ingum
París í gær.
NEFND amerískra Gyðinga
kom hjer við í dag á leiðinnni
til Palestínu til þess að athuga
ástandio þar. Formaður nefnd-
arinnar er Henry Morgenthau
jr. fyrverandi fjármálaráðherra
Bandaríkjanna. — Sagði Morg-
enthau að það væri' tilgangur
nefndarinnar að at.huga hvern-
ig best væri fyrir Gyðinga í
Ameríku að hjálpa bræðrum
sínum í Palestínu. — Reuter.
Hörð andstaða gegn
gjaldmiðilsfrumvarpi
stjórnarinnar
PARÍS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
ALLMIKLAR umræður hafa farið fram í franska þinginu í dag
og í kvöld um ákvörðun frönsku stjórnarinnar að leyfa frjálsa
verslun í gulli og öðrum alþjóðagjaldmiðil. Milli morguns- og
kvöldfundanna ræddu þeir Schuman, forsætisráðherra, Rene
Meyer, fjármálaráðherra og Bidault, utanríkisráðherra, við leið-
toga sósíalista, en þeir, að undanskildum kommúnistum, hafa
veitt frumvarpinu mesta andstöðu. Sósíalistar sögðu að fundinum
loknum að þeir myndu greiða atkvæði gegn frjálsri verslun í gulli,
en greiða ekki atkvæði í kosningum um önnur atriði frumvarps-
ins. Stjórnin hefur gefið út tilkynningu um að hún geti ekki
starfað, ef frumvarpið falli.
Belgía, Holiand og
Luxenburg ræða
samningstilboð
Luxemburg í gærkvöldi.
ÁREIÐANLEGAR heimildir
herma, að ráðherrafundur sá,
sem Belgíá, Holland og Luxem-
burg stofna til í dag, muni svara
boði Frakka og Breta og ræðu
þeirri, sem Bevin, utanríkisráð-
herra, hjelt í neðri deild breska
þingsins í s.l. viku og fjallaði
um bandalag Vestur-Evrópu.
Fundurinn mun stefna að því
að algjört efnahagslegt sam-
ræmi náist milli hinna þriggja
þjóða og hafa þær þegar gert
með sjer tollabandalag.
—- Reuter.
Franskir kommúnistar tapa
í nefndarkosningum
"®Litlar líkur til þess að
samkomulag náist
Erlendir frjettaritarar telja
að litlar líkur sjeu til þess að
framvarpið nái fram að ganga
vegna þess að sósíalistar og
kommúnistar ásamt nokkrum
hægrimönnum eru á móti því.
Telja kommúnistar að frúm-
varpið muni hafa verðhækkun,
og aukinn svartamarkað í för
með sjer.
Frjáls verslun í gulli nauðsynleg
stýfingu frankans.
Stjórn Frakklands hefur neit-
að þeim orðrómi sem gengið hef
ur að það sjeu Bretar sem standi
á bak við ákvörðun hennar.
Sagði í tilkynningu í dag að ef
þessi liður frumvarpsins, þ. e.
a. s., frjáls verslun í gulli verði
ekki samþykkt þá komi verð-
stýfing frankans að engu haldi,
og stjórnin muni segja af sjer
ef það fáist ekki samþykkt.
Stjórnin hliðar fyrir kröfum
jafnaðarmanna
Margir frjettamenn hafa lát-
ið þá skoðun í ljósi að hugsan-
legt sje að stjórnin muni hliðra
til að nokkru til þess að halda
fylgi jafnaðarmanna en það er
þó ekki taliö nóg til þess að
samþykki fáist í þinginu. C.G.T.
verkalýðssambandið er andvígt
frumvarpinu.
Missa mikilvægar formannaslöSur
PARÍS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
í KOSNINGUM, sem fram fóru í franska þinginu í dag, töpuðu
kommúnistar þremur forsetastöðum í nefndum innan þingsins.
Hefur fylgi þeirra farið minnkandi þar vegna ítrekaðar mótstöðu
þeirra gegn frumvörpum stjórnarinnar gegn dýrtíðinni. Stöður
þær, sem þeir misstu eru afar mikilsverðar innan þingsins.
Stöður þær, sem kommúnistar
töpuðu
Þegar kosningar fóru fram
um formann utanríkismálanefnd
ar var Eduard Donnevur, radi-
kali, kosinn í stað kommúnistans
Marcel Cachin. Raymond Mous-
su, meðlimur þjóðlega lýðræðis-;
flokksins, hlaut kosningu sem
formaður landbúnaðarnefndar í
stað Rochet, kommúnista, og
Denis Courvonnier, sosialisti,
hlaut kosningu sem formaður
innanríkismálanefndar í stað
kommúnistans Emanuel De Vi-
gerie.
Breskir Iþrófla-
men koma hingað
r
I
r r
I REUTERS-SKEYTI,
sem blaðinu barst í gœr- •
kveldi, er skýrt frá því, að
breska íþróttasambandið
hafi ákveðið að senda
frjálsíþróttamenn til kepni
á íslandi 29. maí næst
koroandi.
Er tekið fram í skeytinu
að hjer sje aðeins um fáa
menn að ræða, en cngin
nöfn nefnd í því sam-
bandi.
j