Morgunblaðið - 02.04.1948, Síða 10

Morgunblaðið - 02.04.1948, Síða 10
10 MORGVNBLAÐIb fostudagur 2. apríl 1948. KENJA KONA Cftir Een ^4mee 'Willu Uamá 45. dagur Frú Harlow sagði vingjarn- lega: „Þjer hafið eytt mörgum bestq árum yðar til þess að lifa fyrir gamlan mann. Þjer mun- uð einhvern tíma uppskera yð ar laun fyrir það, góða mín“. Frú Thatcher hló svö hjart- anlega, að ekki var hægt að reiðast henni fyrir það. „Þier eigið við það að hún fái sín laun þegar Mr. Poster deyr“, sagði hún. „Það er sagt að hann sje með rikustu mönn- um í borginni". Gamla konan svaraði í ávít- unarrómi: „Það sæmir þjer ekki að tala þannig, Becca“. Svo klappaði hún á höndina á Jenny. „Auð- vitag er þetta blessáð barn ekki að hugsa um nein slík laun. Jeg held að það sje eðlj hennar að vera góð við gamalt fólk — eins og hún hefir verið góð og hugs- unarsöm við mig núna“. Jenny brosti og sagði: „Mjer þykir vænt um gamalt fólk. Það gr svo einmana og ósjálf- bjarga. Það hlýtur að vera hraeðilegt að verða svo gamall að allir jafnaldrar, sem maður unni, eru komnir undir græna torfu.“. Frú Harlow kinkaði kolli. „Og þegar maður er orðinn baggj á öllum“, sagði hún. Naf Harlow hló og lagði hönd ina á öxl hénnar. -,,Þú ert lagleg kerling“, sagði hann. „Þetta segirðu til þess að við förum að hrósa þjer. Þú veist ósköp vel að okkur þykir \-ænst um þig af öllum“. Frú Littlefield hafði ekki komist að, en nú tók hún til máls: „Jeg tel það ákaflega mikils virði að haldnir sje góðir fyrir- lestrar og fólk komi að hlusta á.þá. Sjerstaklega fyrirlestrar um bókmentir. Jeg held að við hljótum ölí að hafa gott af bók- mentum“. Frú Thatcher hló og sagði: „Jeg hefði meira gaman að bókum ef söguhetjurnar væri eitthvað svipaðar því fólki, sem jeg þekki. Það ætti að bera meira á magaverkjum hjá því og minna á uppgerðar kurteisi“. Jenny sagði þá að bækurnar væri.til þess að vjer gleymum öllum leiðindum hvers dags lífs ins, þar á meðal magaverkjum. „Jpg er á sama máli og frú Littlefield“, sagði hún. „Ef við gætum fengið karlmennina til að lesa góðar bækur, bá mundu þeir eyða færri stundum í knaspunum. Vjer getum hvort sem er ekki stöðvað rommsöl- una með því að stofna hófsemd arfjelög og ekki heldur með lögum“. Frú Harlow dæsti: „Jeg hefi andstygð á þeim kaupmönnum, sem selja á- fengi“, sagði hún. „Og ef allir væri sama sinnis, þá mundi áfengissalan fljótt hverfa úr sögunni“. Sonur hennar reyndi að draga úr þessu. „Þú getur ekki vænst þess að stöðvá áfengissölu á meðan til gru tnenn. sem þykir gott að fá sjer nokkur staup á dag“. Jenny greip fram i: „Frú Harlow hefir rjett að r»aela“, sagði hún, „og frú Éitflefield hefir líká rjett að mæla. Með góðum fyrirlestrum og hljómleikum ættum vjer smátt og smátt að geta vanið menn af því að sitja á knæpum. Jeg er viss um það“. Og frú Harlow tók undir það með ákefð. „Einmitt, þjer vitið hvað þjer segið“, sagði hún. „Enginn mað ur hefir nokkru sinni tekið knæpuna fram yfir gott heim- ili. Ef giftur maður fer að drekka, þá er ástæðunnar að leita þar sem konan er. En sje konan góð, þá er það óhöppum í viðskiftum að kenna“. Hún hló þessum einkennilega nið- andj hlátri, sem einkennir gam alt fólk. „Jeg hefi sjeð fjölda manna fara í hundana af romm drykkju", sagði hún. „Það var nú til dæmis Jim Budge — sem venjulega var nefndur Budge kapteinn. Hann drakk sig í hel árið áður en þjer giftust Poster. Hann var foringi í borgarastyr j öldinni og stóð sig vel tíu ár eftir það. En svo varð hann gjaldþrota og svo byTjaði hann að drekki og var seinast með drykkjuæði. Hann var orðinn svo slæmur að hann stal öllu, sem hönd á festi. Einhverju sinni gaf Tom Bartlett honum sex saltfiska gegn því loforði að hann stæli ekki frá sjer í viku. Daginn eftir kom Budge til Tom og sagði: „Hana, hjema eru fiskarnir þínir, jeg get bjargað mjer betur á annan hátt“.“ Allir hlógu að þessari sögu. Gamla konan mælti enn: „Það mundu fáir gerast drykkjumenn ef þeir vissu bet- ur, nema þá að þeir sje haldnir af illum anda“. Frú Thatcher mælti snjalt: „Jeg held nú að þeir sjeu flest ir haldnir af illum öndum. En jeg held að það saki engan, þótt hann drekki sig fullan við og við“. Hún leit brosandi til bónda síns. „Það er ekki svo að skilja að Nat geri það. Hann veit á hverju hann ætti þá von. En þegar menn drekka sig fulla þá eru þeir timbraðir og sár- iðrandi daginn eftir og fullir af góðum ásetningum. Mjer finst gaman að mönnum, sem hafa samviskubit". GamTa konan hló ofurlítið. „Harlow hafði það til að skvetta í sig — það gerðu allir þegar jeg var ung. En góðir menn komu af þeim sið“, sagði hún. „En það er merkilegt að við konurnar skulum aldrei geta losnað við ávirðingar okk ar. Karlmaður getur verið mesti ópokki í æsku, en orðið góður maður áður en lýkur. En drepi konan fingri niður í tjöru þá er hún öll orðin kolsvört“. „Það er máske vegna þess að henni hafi þótt gaman að byrj- uninni og haft hugrekki til þess að halda áfram“, sagði frú Thatcher og hló. „En karlmenn verða altaf hræddir ef þeir hafa gert eitthvað af sjer. Þeir eru allir raggeitur að mínum dómi". IV. Gufuskiplð hafði komið við í Castine, síðan siglt yfir til Belfast og var nú á leiðinni heim. Þá var farið að hvessa svo að fæstir farþegar voru uppi á þiljum. Jenny og Ephr- aim stóðu í skjóli fram í stafni j óg hölluðust fram á borðstokk- inn._ Enginn maður var nærri þeim. Jenny leit gletnislega út undan sjer til hans og sagði: „Jeg - held að frú Thatcher hafi haft rjett fyrir sjer. Allir karlmenn eru raggeitur“. „Hverjir eru það sem berjast og yinna sigur í orustum?" sagði hann. „Það þarf ekki hugrekki til að berjast", sagði hún. „Menn eru reknir áfram og þora ekki annað". Svo horfði hún dreymandi út yfir fljótið og sagði: „Þú elskar mig og þú veist að jeg elska þig, en samt skammastu þín fyrir það. Þú hefir forðast mig eins og heit- an eldinn síðan Isaiah varð veikur. Síðan við játuðum hvort öðru ást okkar, hefir þú farið snemma að heiman og komið seint heim aftur, eða þá að bú hefir setið allan daginn inni hjá Isaiah til þess að forð- ast mig. En nú éruð við hjer ein“. „Við erum ekki ein“, sagði hann og horfði skelfdur í kring um sig. „Það eru sjálfsagt fim- tíu menn, sem horfa á okkur“ „Já, en heyra ekki hvað við segjum11, sagði hún. Hann var sem á nálum. „Minstu ekki á þetta, Jenny. Jeg hefi fyrirlitið sjálfan mig síðan mjer varð það á að segja að jeg elskaði þig“, sagði hann. „Var það lygi?“ spurði hún hvatskeytlega. Hann svaraði í örvæntingar- tón: „Nei, það var satt. En jeg hefði. ekki átt að segja það“. „Það er enginn skaði skeður. Isaiah getur ekki lifað nema nokkra daga, fáar vikur eða fáa mánuði, en við eigum lífið fyr- ir okkur, Ephraim. Því mégum við ekki hugsa um framtíðina og búa okkur undir hana?“ „Við getum ekkert gert“. Hún brosti gremjulega. „Til hafa verið þeir menn, sem unnu konum svo heitt, að þeir ljetu ekkert standa í vegi fyrir ástina — fyrir ást okk- ar?“ „Hjónabandið er heilagt", svaraði hann og vissi þó varla hvað hann átti að segja. Hún svaraði hörkulega: „Það er ekkert heilagt við það að láta skorpinn og tann- lausan karl vera að kyssa sig og fara um sig loppum, sem eru eins og á afturgöngu. Ef þú værir. ekki hræddur við hann föður þinn þá neyddirðu mig ekki til að segja þetta". „Hvað get jeg þá gert?" sagði hann. „Taktu það, sem þú átt“, sagði hún. Hann þagði nokkra stund og sagði svo í bænarrómi: „Heyrðu nú, Jenny. Við er- um ung. Við getum biðið. Faðir minn lifir ekki lengi úr þessu". „Hver mínúta er löng. Hver klukkustund er long. Hvér dag- ur er langur", sagði hún lágt. . Ephraim, það er ekki mikið líf í honum- Það þarf ekki nema að anda á það og þá sloknar það. Til hvers á hann að lifa lengur?" Það. fór nístingshrollur um hann. En honum vildi það til happs að þau Thatcher og frú komu rjett í þessu og gáfu sig á tal við þau. Loftleiðir tilkynna: Loftleiðir munu halda uppi reglubundnum áætlunar- ferðum vikulega á sumri komanda með Heklu til Bret lands og Danmerkur. Æskilegt að væntanlegir farþegar tali sem fyrst við skrifstofu fjelagsins. ; oCojtleiÍir h.j Vontar sem fyrst! Tvö samliggjandi herbergi, mega vera lítil. Gæti lánað afnot af shna. Góð umgengni. Tilboðum skilað til afgr. blaðsins fyrir 5. apríl merkt: ,,Vor 113“. Laghentur unglingur getur komist að sem lærlingur við prentverk. Þeir sem stundað hafa nám við Inskóla látnir sitja fyrir. Eigíu- handarumsókn ásamt mynd, merkt: ,,Lærlingxn:“, send ist blaðinu. lippoð sem auglýst var í blaðinu í gær um sölu á kúm hjá H.f. Búkollu, Laxnesi, 13. apríl, fellur niður. Sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu 1/4. 1948. Guðniundur í. Guðmundsson. a >WJl : Rúmgóð og björt 3ja herbergja ■ ■, Kjallaraíbúð : ; ! í nýju húsi í Lauganeshverfinu er til sölu. Uppl. gefux ; : í BALDVIN JÓNSSON hdl. Austurstræti 12, sími 5545. 3 ■ : >i ÍlAinMliNtHHmMIHHHMH'nimiMlWMtMmilUI....... óskast strax. Ekki svarað í síma. CCsóáauerhsmiÍjan, Borgartúni 1. ■>■■■••■»ii ■■■■••••

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.