Morgunblaðið - 21.05.1948, Side 1

Morgunblaðið - 21.05.1948, Side 1
lé síðizr Árabar hóta að eyða heilu borgarhverfi GySlngar verjasl enn í Jerúsalem Jerúsalem í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. 1 I .EÍÐTOGI ARABANNA, sem sækja inn í gamla borgarhverfið í Jerúsalem, lýsti þvi yfir í dag, að ef Gyðingar þar gæfust ekki ' upp,. mundi hann láta gereyða 'þeitn" hluta hyen.fisins, sem Gyð- - ingarnir hafast við í. Álitið er, að hjer sjeu um 500 menn að ræðá úr Haganah, Irgun Zvai Leumi og Stern-flokknúm. Brefar munu ekki láta flæma sig frá Berlín Nýr lands!jóri ; Fiiilbyssur og sprengjuvörpur. ! , Harðir bardagar geysa nú víða í Jerúsalem, og erfitt er að . átta sig á herraðarstöðunni. Arabar beyta mikið fallbyssum r og sprengjuvörpum, en þeim virðist þó í dag hafa orðið held- . ur litið ágengt í borginni. Ekki er enn hægt að sjá að neinir helgir staðir hafi orðið fyrir . skemmdum, en nokkur stór hús , hafa brunnið til grunna og önn- , ur hrunið. 7 Herflugvjelar. Framsókn Arabaherjanna í , Palestínu er hæg og hvergi hef- ur enn komið til stórorustu. Gyðingar beittu flugvjelum sín- , um í fyrsta skipti í gær og segja að þær hafi allar komið , heilu og höldnu til baka til bækistöðva sinna. Sýrlendingar eru þeim þó ekki sammála, og segjast hafa skotið niður þrjár vjelar. Egyptskar flugvjelar gerðu enn loftárás á Tel Aviv í dag, en skemdir munu hafa orðið óverulegar. Satneinuðu þjóðirnar. Menn gera sjer nú litlár von- ir um, að takist að jafna deilu- mál Araba og Gyðinga, en mál- ið er þó enn á dagskrá Samein- uðu þjóðanna. Þar lýsti Aléx- andre Parodi, fulltrúi Frakka, því yfir í dag, að hann mundi styðja tillögu Bandaríkjanna um að beita jafnvel hervaldi til ’ að fá deiluaðila til að fallast á úrskurð S. Þ. Vantraust á Leino Helsingfors í gærkveldi. FINSKA þingið samþykkti í dag með 88 atkvæðum gegn 51 að lýsa yfir vantrausti á Yrjoe Leino, hinum kommúnistiska innanríkisráðherra Finnlands. Þingið krafðist þess einnig, að ráðherranum yrði þegar í stað vikið úr embætti. — Reuter. Hervarnir Bretiands, Frakklands og Beneluxlanda London í gærkveldi. STJÓRNMÁLARITARAR hjer í London telja, að umræður Bretlands, Frakklands og Bene- luxlanda um sameiginlegar her varnir hafi til þessa gengið að óskum. Hefur hernaðarnefnd þessara landa að undanförnu haldið vikulega fundi í London, með góðum árangri. Hernaðarnefndin var stofn- uð, er ofangreind lönd gerðu með sjer bandalag. — Reuter. 12,800 kílómetra æfing- arflug bandarískrar sprengjuflugvjelar Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. EINN af talsmönnum bandaríska flughersins skýrði frá því í dag, e.ð nú hefði verið sannprófað, að bandarískar flugvjelar með bækistöðvar í Bandaríkjunum geti gert sprengjuárásir á þvínær hverja einustu mikilvæga hernaðarstöð í heiminum. Sex hreyflar. Flugherinn heíur að undan- ’förnu látið fara fram margs- konar tilraunaflug með stærstu sprengjuflugvjelum sínum, en þær eru með sex hreyflum. Flaug ein þessara vjela fyrir skömmu síðan í æfingaflugi 12,800 kílómetra með sprengju- farm. hari hcfur verið skipaður eftir- Sir Chakravanty Rajagopolac- maður Mountbattens lávarðar scm landstjóri í Indlandi. Bretar keyptu mest SAMKVÆMT upplýsingum frá Hagstofunni beindist út- flutningsverslunin í aprílmán- uði mest til Brtetlands, þar næst til Hollands og þriðja í röðinni var Tjekkóslóvakía. Bretar keyptu af okkur af- prðir fyrir 15 milj. 264 þús. Hollendingar fyrir 7,5 milj. kr. Tjekkar fyrir 4,1 milj. kr. Til Rússlands fóru íslenskar afurð- ir fyrir 3,2 milj. Fimmta hæsta viðskiptalandið er Þýskaland, með 1,9 milj. Þá kerrfur Finn- land 1,6 milj kr. Svíþjóð með 344 þús. kr. Bandaríkin 253 þús. Til Póllands fóru vörur fyrir 245 þús. kr. Ítalíu 98: þús. kr. Danmörk 92 þús. kr. Eæreyjar 86 þús. kr. og til Paleátínu fóru vörur fyrir 28 þús. kr. Bevin segir hótanir Molotovs vera gagnslausar Utauríkisstefna bresku stjórnarinnar London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. ÁRSÞING breska verkamannaflokksins, sem nú stendur yfir, samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að lýsa yfir fylgi sínu við stefnu stjórnarinnar í utanríkismálum. Sam- þykkt þessi var gerð eftir að Ernest Bevin, utanríkisráðherra Breta, hafði flutt ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir utanríkis- stefnu stjórnarinnar og þá einkum sambúð Bretlands og Rúss- lands. Lýsti Bevin því meðal annars yfir í þessu sambandi, að hann væri andvígur hverskonar aðgerðum, sem haft gætu í för með sjer stríð við Rússa eða nokkra þjóð aðra, enda væri hgnn ekki einn af þeim, sem álitu að styrjöld væri óumflýjanleg. vegna flótta fjekkneskra flugmanna London í gærkveldi. ALLMARGTR menn hafa nú verið handteknir í Tjekkóslóva- kíu vegna flótta flugmannanna átta, sem komu til Bretlands í gær. Flugmennirnir komust und an á þann hátt, að þeir „lán- uðu“ flugvjel á flugvelli í Suð- ur Bæheimi. ' Tjekknesku stjórnarvöldin hafa nú krafist þess, að flug- vjelinnf verði skilað aftur, og líklegt ér; að Bretar verði við þeirri kröfu. — Reuter. Alger eyðilegging eða stórfeldar framfarir Truman talar um „atomöldina" Philadelphia í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TRUMAN forseti flutti ræðu hjer í Philadelphiu í dag, og sagði meðal annars, að veröldin hefði nú um aðeins tvennt að velja — algera eyðileggingu eða mestu framfarir sögunnar. — Forsetinn flutti ræðu sína í Girandháskóla. Trúin á friðinn. Truman tók fram. að hann væri þeirrar skoðunar, að frið- ar ög framfaraleiðin yrði valin. Hann kallaði 20. öldina „atom- öldina“, og sagði að möguleikar hennar væru óteljandi og hefðu aldrei áður verið meiri. Bandaríkin. Um Bandaríkin hafði Truman það að segja, að þau innu mark- víst að þyí takmarki, að heim- urinn notfærði sjer þetta tæki- færi og að friður hjeldist sem lengst með öllum þjóðum. ^Afvopnum ólíkleg á næstunni Bevin kvað það skoðun sína, að óhugsanlegt væri að hefja afvopnunarframkvæmdir, fyr en heimurinn kæmi sjer saman um ráðstafanir, sem tryggðu heims- friðinn. Meðan svo væri ekki, yrðu Bretar að halda áfram að styrkja aðstöðu sína með samn- ingum á borð við þá, sem Bret- land, Frakkland og Benelux- löndin gerðu með sjer fvrir skömmu síðan. Hann skýrði jafnframt frá því, að unnið væri nú að því að samræma efnahag og hervarnir þessara fimm landa. Fara ekki frá Berlín Bevin kom annars víða við í ræðu sinni og minntist meðal annars á Þýskaland, Grikkland og Marshall-aðstoðina. — Um Þýskaland sagði utanríkisráo- herrann, að Bretar hefðu alls ekki í hyggju að láta neyða sig til að fara frá Berlín. — Hann vonaðist til þess, að lýðræðislegt stjórnskipulag kæmist að lokum á í Þýskalandi, en þá fyrst gæf- ist tækifæri til að binda varan- lega enda á hin lanvinnu ágrein- ingsmál Þjóðverja og Frakka. Marshall-aðstoðin Það hefði verið glæpur við bresku þjóðina, sagði Bevin, að hafna Marshall-hjálpinni og láta ógnanir Molotovs breyta af- stöðu Bretastjórnar til aðstoð- arinnar. — Sjálfur mundi hann aldrei beygja sig fyrir hótun- um. Grikkland I sambandi við dvöl breskm hermanna í Grikklandi og ; - standið þar í landi, sagði BevL., að breska stjórnin ætlaði ekki að snúa bakinu við Grikkjum og láta sömu atburðina eiga sjer stað hjá þeirn og í Tjekkósló- vakíu nýlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.