Morgunblaðið - 21.05.1948, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. maí 1948.
Sigríður Gilsdóttir
Minningarorð
SIGRÍÐUR GILSDÓTTIR fædd
ist 9. ágúst 1868 í Krossnesi í
Álftaneshreppi á Mýrum. For-
eldrar hennar voru hjónin Gils
Sigurðsson frá Hofstöðum og
Guðrún Andrjesdóttir frá Selj-
um, bæði af bændaættum á Mýr
um í marga liðu. Hún ólst upp
í stórum systkinahópi og vand-
ist snemma allri vinnu, sem þá
tíðkaðist. Úr foreldrahúsum fór
hún til Reykjavíkur og var síð-
an í ýmsum stöðum, þangað til
hún gerðist ráðskona í Laugar-
nesspítala vorið 1907. Mun það
hafa verið Sæmundur sál. Bjarn
hjeðinsson, er því rjeði að hún
var valin til þessa starfa. Hafði
hann haft orð á því síðar að
honum hefði eigi missýnst um
hæfileika hennar, er hún var
ráðin úr umsækjenda hópnum.
Var það þó eigi vandalaust verk
er hún þá tóks! á hendur. Spítal
inn fullskipaður og erfitt að
gera öllum til hæfis. En með
mannkostum sínum, frábærri
stjórnsemi og dugnaði tókst
henni að leysa þetta vandasama
starf af hendi þannig, að allir
undu vel og var hennar saknað
jafnt af stjórnendum spítalans,
starfsliði og sjúklingum þegar
hún hvarf frá sjúkrahúsinu.
Árið 1919 giftist Sigríður
Sigurði Pjeturssyni fangaverði.
Hann hafði þá fyrir nokkru
mist fyrri konu sína, sem var
systir Sigríðar, frá 7 börnum,
þeim yngstu í bernsku. Tók hún
þar við búsforráðum og hafði
þau á hendi til dauða manns
síns 1946. Þótt þau hjón væru
bæði komin á fullorðinsár þeg-
ar þau giftust varð hjónaband
þeirra hið farsælasta. Heimilið
var þeim báðum fyrir öllu. Eins
og vita mátti reyndist Sigríður
ágæt húsmóðir. Hún var óvenju
lega vel verki farin, að hverju
sem hún gekk. Ráðdeildarsöm,
dugleg og fjell aldrei verk úr
hendi. Hitt var þó máske mest
um vert, hver mannkostakona
hún var. Það er eigi vandalaust
verk að gerast stjúpa stórs
barnahóps. En hún var svo lán-
söm að stjúpbörn hennar kunnu
að meta umhyggju hennar og
ræktarsemi og nú, þegar leiðir
skilja, munu þau öll þakka
henni órofa trygð og margvís-
lega umhyggju fyrir velferð
þeirra. Og það munu allir þeir
gera, er hún batt vináttu við.
Sigríður var gerfileg kona að
vallarsýn, sviphrein og bauð
góðan þokka. Lengst af var hún
heilsuhraust og hafði mikið
starfsþrek. En eftir dauða
manns hennar þvarr heilsa
hennar fljótlega og síðustu mán
uðina dvaldi hún í sjúkrahúsi.
Það verður enginn hjeraðs-
brestur þótt kyrlát, áttræð kona
veðji þennan heim. Verk henn-
ar verða aldrei skráð á spjöld
sögunnar og eftir lítinn tíma
eru þau gleyrnd. Enginn skyldi
þó halda að sá hafi til einskis
lifað, sem langa æfi hefur unn-
ið hvert starf af alúð og skyldu-
rækni og haft það aðalsjónar-
mið í lífinu að láta gott af sjer
leiða. Áhríf hans vara ef til
vill lengur en menn alment
gera sjer grein fyrir.
Sigríður andaðist í Landakots
spítala 12. þ. m. og verður jarð-
sett í dag.
P. M.
— Slórkaupmenn
Frh. af bls. 5.
vinna lokasigurinn í baráttunni
fyrir því að gera verslun íslend-
inga íslenska.
Fjelag íslenskra stórkaup-
manna hefur nú þriðja áratug
sinn með bestu árnaðaróskum
allra, sem skilja hvaða þýðingu
frjáls verslunarstjett hefur haft
fyrir landið á liðnum tíma og
trúir á gildi hennar í framtíð-
inni.
Morðingja leitað.
AÞENA — Gríska stjórnin hefur
sent Bandaríkjastjórn orðsend-
ingu þess efnis að hún geri allt
í sínu valdi til þess að komast
fyrir um morð bandaríska blaða-
mannsins Polk sem nýlega var
myrtur þar. Hefur stjórnin boð-
ið 2,500 dollara laun fyrir upp-
lýsingar varðandi morðið.
— Meðal annara orða
Frh. af bls. 8.
menn áfram að lifa þótt þeir
deyi“. — Þá staðhæfir Stirnir,
„að misjafnlega sje langt í bíó,
eftir því hvar maður búi“. —
Um Friðrik Sigurbjörnsson seg
ir, að hann sje nefndur í sömu
andrá og Tyrone Power ,,og
er hægt að komast öllu lengra
fyrir einn dauðlegan Islend-
ing?“ spyrja Stjörnur í römm-
ustu alvöru.
• •
EFNIÐ ALLT JAFN
FÁRÁNLEGT
I þýddu greinunum — en
það eru mestmegnis þær, sem
fylla ritið — er og margt spak-
lega sagt, s. s.: ,,ekki verður
hjónaband úr öllum æfintýrun
um í Hollywood“. — Joan
Fontaine lýsir því yfir að Car
ens Bellegia ilmvatn sje gott
til bess að hressa sig á, Mit-
zuka Guerlains í veiðiferðir,
en L’Heure Bleue Guarlains
sje nú samt eiginlega best. —
Ekki er ónýtt fyjir íslenskar
fermingartelpur að vita það.
— Birtar eru Játningar Ro-
berts Taylors, sem játar blá-
kalt, að hann trúi á guð en
ekki annað líf — og kveðst ekki
vilja deyja ungur. En aum-
ingja Gary Cooper segist búa
við „stöðugan ótta“. Loks fá
lesendur þær stórmerkilegu
upplýsingar, að yfirvaraskegg
Clark Gable sje 10 ára, ein-
hver Jaqueline White sje 120
pund, Holywood leikarar taki
af sjer skóna þegar þeir hvíli
sig og Paulette Goddard leggi
ekki mikið upp úr matarkúrum.
Auk hins fáránlega efnis,
sem rit þetta flytur, úir og
grúir í því af málvillum, rit-
villum og prentvillum. Stund-
um eru kvikmyndir bannaðar
börnum. — Eru engin takmörk
fyrir því hvað má selja þeim
í tímaritaformi?
Auglýsendur
athugið!
a8 ísafold og Vörður er
vinsælasta og fjölbreytt-
asta blaðið ( sveitum landi
Ins. Kemur út elnu sinnl
í viku — 16 síður.
Þriðji leikur danska
handknattleiksliðsins
er í kvöld
ÞRIÐJI leikur danska hanknattleiksliðsins verður í íþróttahúsinu
við Hálogaland í kvöld og hefst kl. 8,30. Keppa Danirnir að þessu
sinni við ÍR, sem hefur styrkt lið sitt með þremur mönnum úr
öðrum fjelögum.
Innanfjelagskeppni
KR í fimleikum
HIN árlega keppni í fimleik-
um innanfjelags hjá Knatt-
spyrnufjelagi Reykjavíkur fór
fram seinast í apríl. Guðmund-
ur Guðjónsson varð hlutskarp-
astur og er þar með fimleika-
meistari KR 1948. Annar varð
Jón Júlíusson, þriðji Snorri
Guðmundsson og fjórði Árni
Kristjánsson. Keppnin var hörð
og úrslit tvísýn, enda keppend-
ur mjög líkir að getu.
Dómarar voru: Benedikt
Jakobsson, fimleikakennari,
Hannes M. Þórðarson, fimleika-
kennari og Sigurður Runólfsson
kennari. Þátttakendur voru
margir. í fyrra varð Guðmund-
ur Guðjónsson líka hlutskarp-
astur.
Keppni þessi vekur alltaf tölu
verða eftirtekt fimleikaunnenda
því að þetta er eina fimleika-
keppnin hjá áhugamönnum hjer
á landi núna síðari árin.
Nú í ár fór einnig fram
keppni í II. flokki karla, en
það mun vera fyrsta keppnin,
sem fram fer hjer á landi í
yngri fimleikaflokkum. Efstur
varð Guðmundur Erlingsson, og
fær hann auk verðlauna rjett
til að starfa með 1. flokki. Ann-
ar varð Almar Gestsson og
þriðji Birgir Björnsson.
Úrvalsflokkur fimleika-
manna úr KR efnir á næstunni
til sýninga í nágrenni Reykja-
víkur, sennilega á Akranesi, Eyr
arbakka og sunnudaginn 23.
maí í Keflavík og ef tími vinnst
til víðar um landið. Stjórnandi
flokksins verður Þórður Páls-
son, kennari, en hann hefur
kennt fimleika hjá KR í vetur.
Flokkurinn er nú skipaður að
nokkru leyti nýjum efnilegum
fimleikamönnum, sem hafa æft
hjá KR undanfarin ár, en sjald-
an komið fram á sýningum,
vegna þess hvað ungir þeir eru.
ÍR liðið verður þannig skipað:
Ingólfur Steinsson, Ingvi Guð-
mundsson, Gísli Ásmundsson,
Ingi Þorsteinsson, Jón Björns-
son, Henning Isachsen, Skúli
Ingibergssoll, Kjartan Magnús-
son (Ármann), Sigurður Norð-
dahl (Ármann) og Bjarni
Guðnason (Víking).
í danska liðinu verða sömu
menn og í fyrri leikjum Dan-
anna, eða Börge Hansen, Oscar
Clausen, Egon Gundahl, Jörgen
Larsen, Erik Vilbech, Jörgen
Jörgensen, Bent Romar, John
Christensen, Peter Tantholdt og
Mogens Helin.
Er þetta næst síðasti leikur
Dananna hjer, og má gera ráð
fyrir mikilli aðsókn, þar sem
áhugi manna á handknattleik er
nú mjög mikill.
—Abslrakt málarinn
Framh. af bls. 9
viðurkenningu meðal þeirra, er
best skyn bera á fagrar listir og
meðal almennings á hún vax-
andi vinsældum að fagna.
— Við höfum trú á því, segja
þau Else Alfelt og Carl Henn-
ing Pederssen að lokum, að ab-
strakt listin eigi mikla framtíð
fyrir sjer.
Fjölbreytt sýning
Svo sýna þessir ungu abstrakt
málarar mjer sýninguna, sem
er hin fjölbreyttasta. Margar
myndirnar eru ljómandi falleg-
ar og sjerstæðar eins og t. d.
Guðir hafsins og Tunglkarlinn
eftir Pedersen, Gjáin eftir Else
Alfelt og abstraktsjónir Ric-
hard Mortensen, sem er elsti
abstrakt málari Dana og mjög
vel þektur. Svavar Guðnason á
þarna einnig 6 myndir.
Hvað sem öllum deilum líður
um list þessara manna, sem vilja
nota litina eins og slaghörpu til
þess að túlka með mannlegar
tilfinningar, þá. er það þó víst,
að engan þarf að iðra þess að
eyða dálitlum tíma í að skoða
þessa sýningu. Að minsta kosti
leið mjer prýðilega þar inni og
þar sást engjnn dónaskapur upp
á veggjum. S. Bj.
lijRAPE-EV^
AND Ml$ AifM
HAVE JU$T
HIJACK0D
A SHlPAIÉNf
0P NEW .
CA?$ —
1 C0U10 6AT 'BM
WITH A «POOMlLOOK
at 'zm tme-jwr,
UKE THB 4EAT OP
" M BLVS 5£Röe
PANT^J^
X 4TIUL
THINK W6
SHOULDN'T
HAVE CHILLED
7HAT TRUCK
ORIVER l
mk
jyndicale, Inc , World riphtrrwffVfd. *
Maðurinn: Þeir eru svo girnilegir sð jeg gæti jetið
þá. Sjáðu hvernig þeir glansa — alveg eins og rass-
inn í buxunum mínum. Hinn maðurinn: Jeg held því
fram að við hefðum ekki átt að stúta vörubílstjór-
^-AND LBT m BLA0
(70 7HE BADOB BO'15'i WEtt V
HAV6 7HI4 DETROiT PASTRY
REPAINTED AND PEDDL6D
/Mie$ED»
Meanwhile
anum. Gullaldin: Og láta hann kjafta öllu í lög-
regluna. Við verðum búnir að mála og selja þessa
bíla áður en þeirra er saknað. Á meðan. Wilda: Ef
þetta hefði skeð í einni af bókum mínum, þá gæti
Effir Roberl Storm
IP THI4 WERE
0NE 0F MS N0VEL4/
I (0ULD WRITE UNDA
0UT 0F PHIL’4 LIFE -
BUT V0U CAN'T WRlTE
0FF A 6AL LIKE
LINDA' —
LUCK^
M0--
wrtH one
preak
X'LW
UN'PA
[ föitAft)
: 1.
'\> ^ «
3íiS>
A?
U
slíkt
r—-■ » i ___
jeg skrifað Lindu úr lífi Phils, en
að gera við stúlku eins og Lindu,
Lindu: ,
Lindu:.“
r/Jt
) stuiku eins og binau, i
.ef alt gengur að óskum