Morgunblaðið - 06.07.1948, Side 8
8
I
MORGUNBLAÐIÐ
. ,
Þriðjuaagur 6. júlí 1948.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Island og Marshall-
áætlunin
EINS og kunnugt er undirrituðu 16 Evrópuþjóðir hinn
Z 6. apríl s.l. samning í París við Bandaríki Norður Amoríku,
tem byggður var á grundvelli hinnar svokölluðu Marshall-
áætlunar. Með samningi þessum er sett á laggirnar stofnun,
sem hefur það markmið að leggja grundvöll að efnahags-
lpgri endurreisn Evrópu með náinni samvinnu þessara þjóða
og aðstoð Bandaríkjanna.
Síðan að þessi almenni sáttmáli var undirritaður af full-
trúum hinna 16 þjóða, sem sóttu Parísarráðstefnuna hafa
farið fram samningaviðræður milli ríkisstjórna hinna ein-
stöku þjóða, sem tóku þátt í henni, varðandi þátttöku þeirra
í endurreisnaráætluninni og aðstoð þá, sem þær þarfnast.
Var samningur um þau efni milli Islands og Bandaríkjanna
undirritaður hjer í Reykjavík af Bjarna Benediktssyni utan-
ríkisráðherra fyrir hönd Islands og sendiherra Bandaríkj-
anna fyrir þeirra hönd, s.l. laugardag. Er efni hans svipað
og þeirra samninga, sem aðrar Evrópuþjóðir, hafa gert
samkvæmt samkomulaginu í París. Af íslands hálfu þótti
þó nauðsynlegt að gera sjerstakan fyrirvara um íslenska
fiskveiða og atvinnulöggjöf, vegna sjerstöðu ckkar, sem fisk-
veiðiþjóðar, umfram það, sem aðrar þjóðir gerðu í samning-
um sínum. Með þeim fyrirvara er það tryggt að Bandaríkin
geta ekki samkvæmt fimmtu grein samningsins k^afist
samningaumleitana um breytingar á fiskveiðilöggjöf Islend-
inga, sem koma í bága við núgildandi fiskveiðilöggjöf.
Um samning þennan er það að öðru leyti að segja, að
hann er að öllu leyti í samræmi við þann vilja íslensku
þjóðarinnar að taka hiklausan þátt í því endurreisnarstarfi,
sem öll Vestur-Evrópa hefur ákveðið að hefja nána sam-
vinnu um við Bandaríkin. Þátttaka Islands í þessari sam-
vinnu er óhjákvæmileg afleiðing þeirrar staðreyndar að við
Islendingar eigum þess engan kost að einangra okkur eða
draga okkur í hlje þegar þjóðir Evrópu berjast fyrir við-
reisn efnahags síns.
En okkur gefst jafnframt tækifæri til þess sjálfum að
njóta nokkurrar aðstoðar Bandaríkjanna til þess að treysta
aðstöðu okkar eigin atvinnulífs með kaupum á nauðsynleg-
úm tækjum og með því að tryggja rekstur þeirra tækja,
sem hafa verið að koma til landsins undanfarið. Að því
miða ýms ákvæði samningsins. Er það ekki síður mikils virði
fyrir íslensku þjóðina, serrl af miklum stórhug hefur ráðist
í nýsköpun atvinnulífs sins. Að sjálfsögðu ber ekki að ganga
lengra en brýnasta nauðsyn krefur í að taka erlend lán,
enda leggur samningurinn engar skyldur á okkur til þess
að taka slík lán. Hann opnar aðeins möguleika til þess.
Kommúnistar lijer á Islandi og um allan heim hafa ráðist
heiftarlega á þessa samningsgerð og hafa reynt að læða
þeirri skoðun inn hjá almenningi að með aðstoð Banda-
ríkjanna við endurreisn Evrópu væri sjálfstæði Evrópu-
þjóðanna, sem þeirrar aðstoðar njóta, stefnt í mikla hættu.
Dollarinn hefur í málgögnum kommúnista orðið samnefnari
allrar svívirðu.
Engin þjóð á meginlandi Evrópu á dollarnum þó meira að
þakka en rússneska þjóðin og land hennar, Sovjet Rússland.
Þegar armur Hitlers teygði sig stöðugt lengra inn í land
hennar voru það hergögnin og dollararnir frá Bandrríkjun-
um, sem riðu baggamuninn. En kommúnistar eru einkenni-
lega innrætt fólk. Það er allt í lagi að Bandaríkin láni Rúss-
um dollara til þess að kaupa fyrir þá hergögn til þess að
drepa með nasista. Ekkert er eðlilegra og sjálfsagðára. En
hitt er Ijótt og skerðir fr^lsi Evrópuþjóða að lána þeim
fje'til þess að kaupa fyrir vjelar í orkuver, byggingarefni,
samgöngutæki, matvæli, framleiðslutæki,
M. ö. 0., Rússar mega fá dollara og kaupa fyrir þá kvað
sem þeir vilja, meira að segja drepa fyrir þá óvini sína, en
Islendingaf, Bretár, Erakkar, Svíar, Danir, Hollendingar o. s.
jfrv., glata sjálfstæði sínu ef þeir hafa samvinnu við Banda-
ríkip ,úm endurreisn efnahags síns.
Þannjg eru rök komrrmnista. En slíkum rökum beita ekki
nema þeir, sem álíta aðra ennþá verri fífl en þeir eru sjálfir.
UR DAGLEGA LIFINU
Mikill er sá munur ...
ÞAÐ ERU ekki ýkja mörg ár
síðan, að það var hægt að rekja
slóð ferðafólks á íslandi á því,
sem það ljet eftir sig á áninga-
stöðum í sveitum landsins. Það
var.hægt að sjá hvað ferðafólk
ið hafði haft með sjer í nesti.
Menn settust ekki svo niður
úti í guðsgrænni náttúrunni,
að ekki væri skilinn þar eftir
sorphaugur.
En nú hefir þetta breyst
mjög til batnaðar og mikill er
sá munur að sjá.
Meira að segja brennivíns-
flöskurnar og ölflöskurnar, sem
áður vörðuðu flesta þjóðvegi
landsins sjást nú ekki lengur.
Hvort, sem það nú stafar af
flöskuskorti og að glerin eru
komin í verð, eða af einhverju
öðru, þá er um framfarir að
ræða
•
ÞjóðgarSurinn.
REYKVÍKINGAR sækja mik
ið til Þingvalla á góðviðrisdög-
um. Þegar veður er gott á
helgidegi, eins og var á sunnu-
daginn var, skifta bifreiðarnar
hundruðum, sem eru hingað og
þangað í Þingvallalandi. Og
fólkið finnur sjer laut í skjóli
og nýtur náttúrufegurðarinnar
og veðurblíðunnar.
Þingvellir eru líka þjóðgarð-
ur. Helgur staður í augum okk_
ar Islendinga. Þann stað ná
eklu saurga. Það væru helgi-
spjöll.
Þessvegna er það ánægju-
legt, að sjá, að almenningur
virðist vera einhuga um, að
ganga vel um á Þingvöllum.
Að vísu eru undantekningar. ^
Það eru til sóðar, sem aldrei
láta sjer segjast. En þegar
menn fara að taka eftir því, að
aðrir ganga vel um á áninga-
stöðum, þá iíður ekki á löngu,
þar til sóðarnir fara líka að
skammast sín. — Þá er vel.
í kveðjusamsæti.
NORRÆNAFJELAGIÐ hjelt
Reumertshjónunum og Mogens
Wieth kveðjusamsæti að Hótel
Borg s. 1. laugardagskvöld.
Þar var glatt á hjalla, skemti
legar ræður fluttar og hinn
besti. mannfagnaður í alla
staði. Það kom greinilega fram
í ræðum hve þessir góðu gestir
eiga miklum vinsældum og að-
dáun að fagna hjer á landi. Að-
sóknin að leiksýningum þeirra
hjer s'annar það og. Á einum
mánuði hafa farið fram 17 leik-
sýningar, ávalt fyrir fullu húsi.
Það mun vera einsdæmi hjer á
landi, að heimamenn, -eða gest-
ir, sem hjer hafa sýnt leik njóti
jafn mikillrar hylli og Reum-
ershjónin og Mogens Wieth.
Feluleikur.
STUNDUM GETA menn vak .
ið á sjer athygli með fjarveru
sinni, Það þarf ekki að vera-, að
þeirra sje beinlínis sárt saknað,
eða að ekki sje hægt að vera án
þeirra. En samt er tekið eftir
því,. ef menn koma ekki, þar
sem búast mætti við þeim í
„embættiserindum“.
Þannig fór í kveðjusamsæt-
inu, sem hjer ræðir um að
framan. Það var ekki hægt að
komast hjá því, að veita því
athygli hve tiltölulega fáir
leikara okkar voru í samsæt-
inu. Það er að vísu svo, að á
þessum tíma árs er erfitt að
ná fólki saman og ekki síst á
laugardegi, þegar útlit er fyrir
sólskin og sumarblíðu. Formað
ur Leikarafjelagsins var mætt-
ur eins og vera bar og flutti
fallega og bráðsnjalla ræðu. En
stjó.rnendur Leikfjelags Reykja
víkur sáust ekki að einum und
anteknum.
„Gefum oltkur í Ijós“.
ÞAÐ VAR ekki hægt að kom
ast hjá því, að heyra, að fólk
var að hvísla um þenna felu-
leik. En eins og áður er sagt,
þá er þessi árstími einmitf sá
tími er menn eiga það til að
„hverfa fyrir horn“, en þeim
leik fylgir og að „gefa sig í
ljós“. Listin er að gera það á
hinu rjetta augnabliki.
0
Braggaómyndirnar.
ÞAÐ GENGUR illa að losna
við braggaómyndirnar með-
fram þjóðvegum landsins. Og
nú er Sölunefnd setuliðseigna
búin að gera upp reikninga sína
og ágóðinn af versluninni nem-
ur hvorki meira nje minna en
4,5 miljónum króna. Dálagleg-
ur ágóði það fyrir ríkiskassann.
En hefði nú ekki verið betra
að gróðinn hefði verið nokkr-
um krónum minni og hluti af
þessum ágóða notaður til að
rífa niður og jafna við jörðu
þessum leiðu braggaskömm-
um,, sem eru þjóðinni til skamm
ar og öllum til leiðinda, sem
þá sýá.
MEÐAL ANNARA ORÐA . . . .
Hvort var5 til fyrr, hænan eða eggið
Þú ættir að spyrja vin þinn:
Hvort varð til á undan eggið
eða hænan?
Auðvitað hænan, segir hann.
Nú? Hvernig stendur á því?
Jú, segir hann. Því að þegar
fyrsta eggið varð til, hlýtur ein
hver hæna að hafa verpt þessu
eggi-
Jæja, segir þú. En hvernig
hefði þessi hæna, sem verpti
fyrsta eggeinu þá átt að verða
til? Hún hlýtur þó að hafa kom
ið úr eggi.
Nú? Kannski það sje rjett.
Og spurningunni verður
seint svarað, hvort var til á
undan eggið eða hænan
• •
HVORT FÆR MAÐUR
FYR^TÓMA EÐA
FULLA FLÖSKU.
- Fyrirmokkru lá blaðafulltrúi
pólska sendiráðsins í London,
Kle.mens Dunin-Kemplicz, vak
andi 4 rúmi sínu og var heila
nótt að yelta líku viðfangsefni
fyrir sjef.
Daginn áður hafði hann
reynt að kaupa hjá nýlendu-
vörukaupmanninum flösku af
sítrón, en hann gat ekki fengið
hana nema hann Ijeti tóma
flösku í staðinn. Og hann gat
ekki fengið tóma flösku, nema
hann fengi að kaupa eina fulla.
í vandræðum sínum skrifaði
hann til Times og sagðist halda
að í stríðinu hefðu Bretar mist
alla heilbrigða skynsemi.
Dunin-Kemplicz sagði svo
frá: Mjer var sagt, að jeg gæti
fengið flösku með sítrón í, ef
jeg kæmi með tóma flösku í
staðinn. Jeg skýrði þeim frá
því, að jeg væri frá megin-
landinu, og að það væri erfitt
fyrir mig, þegar jeg ferðaðist
milli landa að draga altaf á
eftir mjer heila poka með sítrón
flöskum.
• •
ENGIN HEILBRIGÐ
SKYNSEMI.
En það var sama, hvaða rök
jeg bar fram. Það var eins og
afgreiðslumaðurinn væri án
allrar heilbrigðrar skynsemi.
Og hann gat ekki einu sinni
gefið mjer nein ráð um það
hvar eða hvernig jeg gæti út-
vegað mjer tóma flösku. Jeg
benti honum á það, að þegar
útlendingar kæmu hingað til
landsins fengju þeir skömmt-
unarmiða"og vegabrjef, en ekki
eina einustu tóma flösku.
Hann Ijet sem sjer kæmi það
ekki mikið mið og svo fór jeg
út úr búðinni flöskulaus og
sítrónlaus eins og jeg hafði kom
ið trúandi því, að geta ekki
fenyið fulla flösku nema með
því að hafa tóma flösku.
Eftir að þetta neyðaróp
pólska blaðafultrúans birtist í
Times streymdu ráðleggingarn
ar til blaðsins. Ungfrú Audrey
Scott sagði, að nokkuð líkt
hefði komið fyrir sig, en sagði,
að begar hún hefði verið á leið
út úr búðinni hefði afgreiðslu-
maðurinn hvíslað. Reynið þjer
að fara út í gosdrykkjagerðirn-
ar.
• •
IIVAR ER FLÖSK-
UNUM FLEYGT.
R. E. Smith frá Ilford ráð-
lagði blaðafulltrúanum að taka
sjer gönguferð gegnum ein-
hvern af skógunum í nágrenni
London. Jeg er viss um, sagði
hann. að ■ blaðafulltrúinn finn-
ur þar á skömmum tíma fleiri
flöskur en hann getur borið.
Daginn eftir skrifaði Dunin-
Kemplicz annað brjef til Times.
Þar sagði hann: Það hefir rignt
yfir mig brjefum. Síminn hefir
aldrei þagnað og jeg hefi feng-
ið keilt flóð heim til mín af
margskonar sítrónflöskum. Jeg
hefi orðið að gera samning við
skrifstofufjelag um að það ann
ist fyrir mig brjefaskriftir.
Mjer hefir verið boðið í te-
drykkju og sítrón-drykkju og
altaf verða flöskurnar fleiri og
fleiri.
Samúð sú, sem öll þjóðin sýn
ir útlending, þegar hann líður
skipbrot með þeim, hefir snert
mig. Gosdrykkj agerðirnar hafa
sent mjer heila kassa af flösk-
um, ekki tómum, heldur með
gosdrykkjum í, og jeg vona, að
á næstunni verði jeg ekki
í vandræðum með flöskur.
Þing sósíalisfa í París
í DAG hófst í París þing
franskra sósíalista. Vakti
nokkra undrun, að ákveðið var,
að halda fyrstu fundi fyrir lok-
uðum dyrum Var það vegna
þess, að fyrst verður að greiða
úr miklum ihnanflokksdeilum.
Aðalverkefni flokksþings
þessa verður að skera úr því,
hvort halda skuli áfram stjóm-
arsamvinnu við kaþólska flokk-
inn. — Reutér.