Morgunblaðið - 25.07.1948, Side 4
tóORGU NULAÐIÐ
Sunnudagur 25. júlí 1948, ]
Cripps hvetur verka-
menn til meiri kola-
vinnsiu
Vonar að Sietar geii siaðið hjálpar-
lausi_________________1952,
London í gær.
Einkaskeyti tii Morgunblaðsins frá Reuter.
.SIR STAFFORD CRIPPS, fjármálaráðherra Breta hjelt ræðu í
Eurham í dag, sem skyldi vera hvatning til kolanámumanna um
að hætta verkföllum, og minka f jarvistir í námunum. Sagði hann,
að fyrst og fremst yrði að auka kolavinnsluna og ef áætlanir
stjórnarinnar í þeim efnum heppnuðust væri. víst, að Bretar
myr.du bjargast af þegar Marshall áætluninni lyki 1952.
»Z)íi l ó L
Meiri kolavinnsla *
Auk Cripps töluðu Arthur
Horner — ritari kolamanna
sambandsins og Sir Hartley
Shavvcross. Fór Horner fram á
það að kolavinnslan, sem nú er
f jórar milljónir smálesta á viku
í öllu Bretlandi, yrði aukin, en
til þess þyrftu námumenn að
leggja enn meira að sjer en áð-
ur.
Ausírænar aðfcrðir
Shawcross sagði, að stjórnin
hefði til athugunar samræmingu
á vinnulaunum, og ef til vill
kæmi í ljós, að heppilegt væri
að taka upp það launakerfi, sem
notað er í löndum Austur-Ev-
rópu.
i
un á Selfossi
fiilöpr satnþykfar á
la -idsþingi ÍSl
HELSTU sambyktar tillögur á
árþingi Í.S í. á Þingvöllum.
Ársþing I.S.Í. haldið á Þing-
völlum 12. julí 1948, skorar á
JÞingvallanefnd að láta sljetta1
íem allra fyrst vellina neðan
'Fangbrekku, svo að lögleg leik-
ínót geti farið þar fram og helst
eigi síðar siðar en 1950, vegna
allsherjar íþróttamóts, sem þá
<;r fyrirhugað.
Ársþing ÍSÍ 1948 skorar á
Iræjarstjórn Reykjavíkur, að
ílýta sem mest má vera bygg-
ingu fyrirhugaðra íþróttamann-
virkja í Laugardalnum.
Ársþing ÍSÍ 11948 skorar á
ritstjórnir íþróttablaða og aðra
jpá, sem um íþróttir og íþrótta-
mál rita, að vanda sem best rit-
hátt sinn, og íorðast erlend og
orðatiltæki.
Ársþing ÍSÍ haldið á Þing-
völlum 1948 felur stjórn ÍSÍ að
ukipa minst 7 manna milliþinga
nefnd til athugunar á afstöðu
njersambandanna til í S í og
namræmingar á lögum sam-
bandsins með tilliti til þeirra.
Ljúki hún störfum svo snemma,
að tillögur hennar nái af-
yreiðslu á næsta ársþingi ÍSÍ.
•
Ársþing ÍSÍ 1948, haldið á
Þingvöllum, ítrekar áskorun
>ína um að næsta reglulegt Al-
úngi samþykki frumvarp Her-
) nanns Guðmundssonar um
f.lysatryggingu íþróttamanna.
Kaupfjelag Árnesinga ljet
bora eftir heitu vatni, á eign-
arjörð sinni, Laugardælum,
2—3 km. frá Selfossi. Bar það
þann árangur, að úr einni holu
fengust 15—20 sekúndulítrar
af nál. 70 gr. heitu vatni. Rjeð
ist þá fjelagið í að byggja hita-
veitukerfi frá horholurmi til
þorpsins. Var byrjað á því á
s. 1. ári og hefir verið unnið
við það síðan og enn. Er verkið
nú svo langt komið að lögð lief
ir verið aðalæð frá Laugardæl-
um í Selfossbíó. Þegar hefir ver
ið unnið töluvert að lagningu
heimæða og nokkur hús komin
í samband við veituna og vatn-
inu hlaypt á. Hugmyndin er að
flest eða öll hús í þorpinu, aust
an Ölfusár, verði tengd við
veituna á þessu ári.
Eins og fram var >:ekið er
það Kaupfjelag Árnesinga, sem
að hitaveitufiamkvæmdum hef
ir staðið, en opin leið er fyrir
Selfosshrepp að yfirtaka hita-
veituna, Jægar ástæður leyfa
Hefir aðallega staðið á því að
hreppurinn gæti fengið hag-
kvæmt lán til að standa undir
byggingarkostnaðinum. En þeg
ar það faest og athugað hefir
verið um framtíðarmöguleika
hvað rekstur snertir, er það hug
myndin að hreppurinn taki við
fyrirtækinu. S.
207. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 8,55.
Síðdegisflæði kl. 20,02.
Helgidagslæknir er Árni Pjeturs-
son, Faxaskjóli 10, sími 1900.
IX'æturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911.
Næturakstur annast Hreyfill, simi
6633.
Söfnin.
Landsbókasafnið er opið kl. 10—■
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga
nema laugardaga, þá kl. 10—12 og
1—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7
alla virka dagá. — ÞjóðminjasafniS
kl. 1—3 þriðjudaga, fimtudaga og
sunnudaga. — Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 é sunnu-
dögum. — Bæjarbókasafnið kl
10—10 alla virka daga nema laugar-
daga kl. 1—4. Nátturugripasafnið
opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju
daga og fimtudaga kl. 2—3.
Gengið.
Sterlingspund -.......
100 bandarískir dollarar
100 kanadiskir dollarar
100 sænskar krónur
100 danskar krónur ...
100 norskar krónur ___
100 hollensk gyllini ...
100 belgiskir frankar
1000 franskir frankar ...
100 svissneskir frankar
26,22
... 650,00
... 650,50
..... 181,00
..._ 135,57
.... 13',10
___ 245,51
... 14,86
... 30,35
... 152,20
Uppþol í Egypta-
landi
Cairo i gær.
TALSMAÐUR egyptska inn
anríkisráðuneytisins tilkynti í
dag, að lögreglan hefði fengið
ákveðnar fyrirskipanir um að
halda upp reglu í Egvptalandi
og koma i veg fyrir að uppþot
þau eoidurtaki sig, sem átt hafa
sjer stað i landinu undanfarna
daga. I uppþotnm þessum Ijet
meðal annars einn Randaríkia-
maður lífið og allmarfrir aðrir
útlendingar særðust ! múfjárás
um.
Yfir 300 manns, sem álitið
er að hafi aðallega beitt sier
fyrir uppþotunum. voru hand-
teknir í gærkvöldi. — Reuter.
T í s k a n
Afmæli.
87 ára er í dag ekkjan Bjarg-
hildur Magnúsdóttir, Njálsgötu 43.
Tvöfalt afmæli.
1 dag á Ólafur Ó. Jónsson bllstjóri,
Grjótagötu 12, fertugs afmæli, Á
þessum afmælisdegi hans ery ná-
kvæmlega liðin 20 ár síðan, að hann
fjekk bílstjóra rjettindi.
Ólafur er maður vel látinn hjer í
bænum og reyndar viðar og verða
kunningjar hans og vinir að láta sjer
nægja að hugsa með hlýhug til hans.
Ólafur lagði af stað snemma í morg-
un áleiðis til Sigufjarðar í bíl sínum.
Brúokanp.
í dag verða gefin saman i hjóna-
band i Odense í Danmörku ungfrú
Margrjet Jónsdóttir, hjúkrunarkona,
og Einar Larsen, garoyrkjumaður.
Brúðhjónin halda til að heimili brúð-
gumans í Odense, Store Glasvej 11,
uns þau halda hingað til Reykja-
víkur.
Gefin voru saman í hjónaband í
gær, af sjera Jóni Auðuns, ungfrú
Irtga Guðbrandsdóttir verslunarmær
og Jón Óskar Hjörleifsson, stud.
oceón. — Heimilj þeirra verður að
Hjallaveg 46.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina Unnur Sigurðardóttir, Hverfis-
götu 76B og Agnar Sigurðsson vjel-
smiður, Framnesveg 13.
Gunnar Ólafsson
konsúll í Vestmannaeyjum kom
inn á skrifstofu Morgunblaðsins í
gær, upp á gamlan kunningsskap.
Hann hefir verið hjer í bænum um
tima, til að heimsækja kunningjana,
en fer með ,stóra skipinu", eins og
hann orðaði það, Heklu, heim aftur.
Það er blátt áfram hressandi að
hitta Gunnar,. sikátan, rjett eins og
Iífið hafi leikið við hann alla hans
löngu ævi. Hann er nú 84 ára. Horf
ir á samtíðina með hliðsjón af liðna
tímanum, og gerir sinn samanburð.
Hvað er nú orðið langt síðan þú
fórst að sjá fyrir þjer sjálfur, segi
jeg við hann í gær. — Það var í
þorrabyrjun 1879 að jeg fór suður
Garð til sjóróðra. Var ráðinn upp á
hálfan hlut, en fjekk heilan hlut eft-
ir fjórða róðurinn. Það var eftir-
minnilogur dagur þegar jeg varð
fullgildur háseti, maður með mönn-
um, í fyrsta sinn. Ætli það sjeu ekki
margir, sem hafa sömu sögu að
segja.
Það væri gaman að geta sett -sig
fyllilega i spor þessa háseta Gunn-
ars frá Sumarliðabæ fyrir 70 árum
og hvaða framtíðarmöguleikar virt-
ust blasa við honum og jafnöldrum
hans.
Þessi sumarbúningru er í
fjórum hlutum: „Shorts“,
hrjósthaldari, rykkt pils með
stórum vasa og jakki. — Hann
er saumaður úr röndóttu baðm
ullarefni.
Eldur í m.s. Esju
1 gærmorgun kom upp eldur i ms.
Esju, en skipið liggur hjer i Reykja-
víkurhöfn. Slökkviliðinu var þegar
gert aðvart og er það kom á vett
vang, var talsverður eldur í borðsal
skipshafnarinnar, sem er hjá eldhús
inu. Slökkviliðinu tókst fljótlega að
slökkva eldinn, en skemdir urðu
nokkrar í borðsalnum.
Jeg er að velta
því fyrir mjer —
Hvort a<5 niaður, ?em
skilar ekki bókuni, er
hann fær lánaðar, sje
ekki góður bókbaldari.
S sniiiútii® kréiqáíi
SKÝRINGAR
Lárjett; — 1 vermir — 6 veiðar
færi — 8 tónn — 10 tvíhljóði — 11
lítill — 12 kaðall — 13 mynt — 14
ennþá — 16 fiskur.
Lóörjett: — 2 greinir — 3 kökuna
— 4 læti — 5 varpa — 7 ekki blauta
— 9 eldstæði — 10 fyrir utan — 14
keyri — 15 ósamstæðir.
Lausn á seinustu krossgátu:
Lárjett: — 1 píanó — 6 emm
8 fá — 10 kl. — 11 skúrana — 12
t.i — 13 ár — 14 skó — 16 blaði.
LóÖrjett: —- 2 ie —- 3 Ameríka ■
nm — 5 efsta — 7 Klara — 9 Áki
— 10 kná — 14 sl. — 15 óð.
Eitt er líkt
með Columbusi og Birni Blöndal-
Báðir fengust þeir við landaleit.
Sannleikurinn og
Akurey
I fyrradag sagði Þjóðviljinn að
starfsmenn hans legðu megin áherslu
á að leita uppi sannleikann.
í gær fóru þeir með Akurey upp í
Hvalfjörð.
Sannleikans vegna skila þeir vænt-
anlega eynni brátt aftur á sinn stað.
Samskot og áheit.
AS undanförnu hafa eftirtaldae
gjafir borist S.f.B.S.: Gjöf kr.
100,00, gjöf kr. 37,00 frá J. fsfeld.
Áheit: kr. 100,00 frá G. I. Garði,
100 kr. frá ónefndum, 50 kr. fr. B.B.
100 kr. frá K.K., 25 kr. frá M.J., 50
kr. frá S., 15 kr. frá Ingibjörgu Ás-
mundsdóttur, 100 kr. frá Þ. J., 100
kr. frá K.G.. 100 kr. frá G.O., 10 kr.j
20 kr. Gamalt áheit.
Skipafrjettir.
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss fór
frá Siglufirði 20/7 til Hamborgar.
Goðafoss fór frá Reykjavík 19/7 tíl
New York. Lagarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Reykjafoss er á Akra-
nesi. Selfoss fór frá Amsterdam 23/7
til Antwerpen. Tröllafoss kemur tíl
Reykjavíkur kl. 6—7 árd. í dag frá
Halifax. Horsa er á Sauðárkróki.
Madonna fór frá Reykjavík 22/7 til
Leith. Southernland fór frá Rotter-
dam 22/7 til Hull. Marinier fór frá
Reykjavík 22/7 til Leith. (Eimskip),
Útvarpið:
(Sunnudagur 25. júlí)
Kl. 8,30 Morgunútvarp. 10,10 Veð-
urfregnir. 11,00 Messa í Dómkirkj-
unni (sr. Jón Auðuns) 12,15—13,15
Hádegisútvarp. 15,15 • Miðdegistón-
leikar (plötur): a) Etudes op. 10 eft-
ir Sopin. b) Söngvar eftir Schubert.
c) Fiðlusónata í. G-dúr op. 30 nr. 3
eftir Beethoven. 16,15 Utvarp til Is-
lendinga erlendis: Frjettir, tónleikar,
erincli (frú Ragnhildur Pjetursdóttir).
16.45 Veðurfregnir. 18,30 Barnatími
(Þorsteinn ö. Stephensen o. fl.).
19,25 Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar:
„Pomona“ — lagaflokkur eftir Con-
stant Lambert (plötur). 19,45 Aug-
lýsingar. 20,00 Frjettir. 20,20 Ein-
leikur á celló (Pablo Casals): Sjö
tilbrigði eftir Beehoven um stef úr
„Töfraflautunni" eftir Mozart (plöt-
ur). 20,30 Erindi: Magnús Einarsson
organisi; hurtdrað ára minning
(Snorri Sigfússon námsstjóri). 20,55
ICórsöngur (Karlakórinn Geysir.
Ingimundur Árnason stjómar. Plöt-
ur). 21,05 Ferðaþáttur: Þoka í
Keflavík (Helgi Hjörvar). 21,25 Tón
leikar: ,Petroushka“ eftir Igor Straw
insky (plötur; verkið verður endur-
tekið næstk. miðvikudag). 22,00
Frjettir. 22,05 Danslög (plötur).
(22,30 Veðurfregnir). 23,30 Dagsltrár
lok.
Mánudagur 26. júli
Kl. 8,30 Morgunútvarp. 10,10 Veð-
urfregnir. 12,10—13,15 Hádegisút-
varp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,25
Veðurfregnir. 19,25 Veðurfregnir.
19,30 Tónleikar: Lög úr óperettum
og tónfilmum (plötur). 19,45 Aug-
lýsingar. 20,00 Frjettir. 20,30 (Jt-
varpshljómsveitin; Syrpa af lögum
um eftir íslenska höfunda (plötur).
20.45 Um daginn og veginn (Gylfi
Þ. Gíslason prófessor). 21,05 Einsöng
ur: Dóra Sigurðsson (plötur). 21,20
Erindi: Bókagjöf vestan um haf (Stef
án Jónsson námsstjóri). 21,45 Tón-
leikar (plötur). 21,50 Spurningar og
svör um náttúrufræði (Ástvaldur Ey-
dal licensiat). 22,00 Frjettir. 22,05
Síldveiðiskýrsla Fiskifjelags íslands
(Amór Guðmundsson skrifstofu-
stjóri). — Ljett lög (plötur). 22,30
Veðurfregnir. — Dagskrárlok.
Palestína
CAIRO: — Einn af talsmönnum
Gyðinga hefur nýlega haldið því
fram, að Gyðingahersveitir hafi.
lagt undir sig 493 fermílur af
landssvæði Araba áður en
vopnahljeð komst á í Palestínu.