Morgunblaðið - 24.08.1948, Síða 2
i\í r* í? r ri x n
Sextán klukkustunda hrakning
á smá björgunargrind
, SEINT að kvöldi laugardags,
vai:- barið að dyrum að Hjalla
viö Ölfusá. Þar var komið ferða-
fólk er bað um aðstoð, því tvo
menr. úr hópnum haíði hin
straumþunga Ölfusá hrifið með
sjer, á svolitlum „fleka ‘ og bor-
ið þá sem óðast til hafs.
Strax um morguninn var haf-
in skipulögð leit báta og flug-
vjel var og send af stað. Um há-
degisbilið hafði ekki tekist að
fínna mennina eða flekann og
gerðist fólk nú hrætt um afdrif
mannanna tveggja á flekanum.
— Laust eftir hádegi bárust svo
frjettir frá Stokkseyrarbátnum
Hásteinn, um að hann hefði fund
ið mennina lifandi á flekanum
um 5 sjómílur út af Krísuvíkur-
bjargi.A
ííjer í Reykjavík var mjög
rætt um þennan atburð á sunnu-
daginn, en fregnir af þessu voru
dljósar.
í gær átti Morgunblaðið tal
við Jóhann Gunnar Sigurðsson
verslunarmann, Herskólakampi
13, en hann var annar þeirra,
sem á flekanum var. Hinn heit-
ir Ólafur Bjarnason, Njálsgötu
108 hann er um tvítugt að aldri.
Jóhann Gunnar er nær þrltugu.
— Það er eiginlega ekkert um
þétta að segja, sagði Jóhann
Guimar, og bætti síðan við: —
É>etta var eins og hvert annað
óhapp, sem altaf getur hent.
ÆGuðu að renna
Við fórum austur að Ölfusá á
laugardaginn og vorum sex sam-
an, sagði Jóhann Gunnar Sig-
urðsson. Við höfðum veiðiáhöld
með okkur og ætluðum að renna
í ölfusá um flóð á sunnudags-
morgun. Eftir að hafa aflað okk
ur tílskyldra leyfa, tjölduðum
við skammt frá árósnum, um
það bil 10 mín. gang frá
Björgunargrindin
: Skammt frá tjaidstaðnum
fundum við dálítinn fieka, eða
pUu heldur björgunargrind. Hún
var gerð úr járnpípu, sem mynd
ar rjettan ferhyrning og er l1/*
fnetri á hvern veg. Vírar eru
strengdir á milli hliðanna, tveir
é hvern veg, svo þeir mynda
híu möskva innan í þessari járn
grind. Pípan sem myndar fer-
hyrninginn er úr járni, 30 cm.
að þvermáli og loftið í henni ger
r það að verkum að hún flýtur.
>etta er einhverskonar björgun-
imrind frá hernámsárunum. —
1 Jkkur datt strax í hug, að hún
nynrli koma sjer vel við veið-
na.
Við Ólafur Bjarnason settum
íana á flot í lygnu vatni. Við
etluðum að leggja flekanum
riotl þvi að reka langa spitu í
feegnum einn möskvanna og nið-
fir í botnleðju árinnar, svo flek-
ínn yrði fastur.
í Við Óiaíur vissum ekki fyrr
fn straumurinn hafði tekið okk-
hr og grindin var komin á fleygi
ferð á nokkrum augnablikum.
Viá reyndum að beita spítunni
og ná stjórn á grindinni, ea
stf .iuir.urinn var svo þungur að
þaö reyndist vita gagnslaust.
Á fáeinum mínútum vorum
við komnir fram að boðunum,
sem myndast undan árósunum.
Viö Iqgðum okkur niður eins og
Tvo Reykvíkinga rekur
tii hafs fra Ölfusá
við gátum og gegnum brimgarð-
inn komumst við heilu og
höldnu. Þá var klukkan um 9,30.
Æíluðu að synda *
Nokkru síðar datt okkur í
hug, sagði Jóhann Gunnar að
reyna að synda til lands. En það
var um 500 m., en við báðir vel
syndir. Við fórum nú í sjóinn,
en slepptum ekki flekanum og
reyndum að synda með flekan
að landi. Straumurinn var svo
þungur, að við komumst ekki á
móti honum. Urðum að hætta
við þetta, og klifra upp á flek-
ann aftur. Er hjer var komið,
var myrkur að skella yfir. Veðr-
ið var mjög sæmilegt.
Vc-rum rólegir
— Voruð þið ekki öruggir um
að björgun myndi berast?
— Við vissum strax að fje-
lagar okkar myndu sækja hjálp
og því vorum við rólegir.
Okkur bar óðfluga frá landi.
Sjórinn varð þyngri eftir því
sem dýpra kom. Um nóttina
reyndum við að halda á okkur
hita, með því að róa til skiptis
með spýtunni, þó róður þessi
væri alveg tilgangslaus að öðru
leyti. Við sátum þannig á flek-
anum, að við Ijetum fæturna
standa niður í sjó í gegnum
möskvana. Með þessu tókst okk
ur að gera flekann stöðugri.
Nóttin
— Sagði svefninn ekki til sín?
— Sannast að segja varð jeg
ekkert syfjaður. En fjelagi
minn Ólafur, gerðist þreyttur
og kaldur. Mátti jeg hafa mig
allan við að berja hann og á
þessum barsm'iðum gekk í nær-
fellt þrjá tíma. Báðum hitnaði
okkur við það. Einnig vorum
við talsvert uppteknir við, að
fylgjast með hrefnum, er sóttu
að flekanum í stórhópum og
sumar komu svo nærri, að ekki
var meira en faðmur að þeim.
Björgunin
— Skip hafið þið engin sjeð?
— Jú, einn bátur, sem var víst
að koma úr róðri, fór svo sem
í 100 m. fjarlægð frá okkur. Við
hrópuðum og kölluðum, en til
okkar heyrðist ekki. Engar eld-
spýtur höfðum við, því þær
blotnuðu strax er við fórum
gegnum boðana fram undan
ánni.
— Var flekinn stöðugur?
— Já, hann var það. Eftir því
sem fjær dróg landi tóku öldur
að ganga yfir okkur. Stjórnlaus
árabátur svo sem fjögurra
manna far, hefði ekki þolað þá
ágjöf.
— Hvað var ykkur helst í
huga þessa nótt?
—■ Ekkert nema það hvenær
okkur myndi berast hjálpin,
hvort hugsast gæti, að hún bær-
ist um nóttina eða í birtingu.
Vonbrigði
—- Hvar voruð þið þegar birta
tók?
: — Um birtingu tel jeg að við
höfum verið um 5 sjóm. út aí
Selvogsvita. Við sáum nokkui
skip í talsverðri fjarlægð, t. d
einn færeyskan kútter og einn
togara. Við sáum einn bát koms
út frá Stokkseyri og nú töldum
við víst að bráðlega yrði okkur
bjargað. En það átti eftir að
dragast. Jeg hafði ekki augun ai
þessum bát næstu klukkustund-
ir. Nokkru fyrir hádegi sáum
við hvar blár flugbátur kom og
var hann sýnilega að leita okk-
ar. En sú leit bar ekki árangur.
Ekki er þó svo að skilja, að
flugbáturinn hafi ekki flogið ná-
lægt okkur. Sannast að segja
sneri hann við rjett yfir höfð-
um okkar, og okkur Ólafi báð-
um tókst að greina flugmann-
inn. Við töldum víst, að flug-
maðurinn hefði sjeð okkur, og
nú gat björgun okkar ekki dreg-
ist mikið lengur úr þessu. Um
þetta ræddum við Ólafur aftur
og fram. En við áttum eftir að
verða fyrir vonbrigðum, og
björgun okkar að dragast í
hálfa þriðju klukkustund. En
það var um kl. 1,30 sem Stokks-
eyrarbáturinn Hásteinn tók
skyndilega stefnu til okkar.
Skipverjum á Hásteini sýnd-
ist í fyrstu, sem um sel væri að
ræða, að því er þeir sjálfir
skýrðu okkur frá eftir björgun-
ina.
16 klst. — 28 mílur
Þegar Hásteinn rendi að flek-
anum vorum við nákvæmlega
fimm mílur út af Krísuvíkur-
bjargi. Okkur hafði á þeim 16
klst., sem voru liðnar frá því að
grindin fór af stað með okkur,
hrakið 28 mílur.
Góðar viðtökur
Strákarnir á Hásteini tóku
mjög vel á móti okkur, færðu
sig úr fötum sínum, og ljetu okk
ur fá þau. Síðan var búið um
okkur í kojum og okkur færðir
hoffmansdropar og brennslu-
spritt. „Og hressandi var kog-
arinn, því ber ekki að leyna“,
sagði Jóhann. Skipverjar gerðu
allt sem í þeirra valdi stóð, til
að láta okkur líða sem best. Er
við komum til Stokkseyrar um
kl. 6 á sunnudagskvöld, voru
okkur færð fötin okkar, sem
búið var að þurka.
Hiálpsamt fólk
Nú kom til okkar Ragnar
Guðjónsson bílstjóri og ná-
granni Jóhanns. Hann sagðí frá
því; sem ferðafjelagarnir í landi
gerðu til þess að koma þeim
Jóhanni og Ólafi til bjargar. —
Sagði hann að fólkið i Þoriáks-
höfn, á Selfossi, á Eyrarbakka
og Stokkseyri, og að Hjalla,
hefði gert allt sem í þess valdi
stóð, til hjálpar og alla nóttina
voru menn að snúast með Ragn-
ari í ýmsú er viðkom björgun
þeirra Ólafs og Jóhanns. Báðu
þeir fjelagar Morgunblaðið að j
færa öllu þessu fólki þakkir!
fyrir.
Þriðjudagur 24. ágúst Í948 ]
Sjálfstæðismenn hjeldu
þrjú fjölmenn hjeraðs-
mót um síðustu he
B
UM SÍÐUSTU helgi hjeldu Sjálfstæðismenn þrjú hjeraðsmji, serd
öil voru mjög vel sótt og voru í alla staði hin ánægjulegustu,
Á laugardaginn var hjeraðsmót haldið á ísafirði, en á sunnudag-
inn í Reykjanesi við ísafjarðardjúp, og í Búðardal i Daiasýslu,
Hjeraðsmót Sjálfstæðismanna®
á Isafirði var haldið að Uppsöl- j
um s.l. laugardag og hófst kl.
9 síðdegis. Matthías Bjarnason
formaður Sjálfstæðisfjelags Is-
firðinga, setti mótið, en síðan
var sameiginleg kaffidrykkja.
Á meðan setið var að borð-
um flutti Jóhann Þ. Jósefsson,
fjarmálaráðherra ítarlega ræðu
um stjórnmálaviðhorfið. Var
ræðu ráðherrans mjög vel tek
ið. Næst ljek Bragi Hlíðberg
einleik á harmoniku og Alfreð
Andrjesson, leikari, flutti bráð-
skemmtilega ræðu um Þjóðleik
húsið. Síðan flutti Sigurður
Bjarnason, alþm., snjalla ræðu
en þar á eftir söng Alfreð j
Andrjesson' gamanvísur með
undirleik Braga Hliðberg. Loks
flutti svo frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins á Isafirði, Kjart
an Jóhannsson, læknir, ræðu
og var honum óspart fagnað.
Á milli atriða var hópsöngur
en þegar staðið var upp frá
borðum sýndi Kjartan Ó.
Bjarnason Heklukvikmynd sína
og einnig kvikmynd frá Vest-
mannaeyjum. Að því loknu
var dans stiginn fram eftir
nóttu.
Mótið fór prýðilega fram, og
var ræSumönnum og einnig
skemmtikröftum mjög vel fagn
að. Mótið sóttu samtals um 300
manns, en vegna rúmleysis var
mikill fjöldi frá að hverfa.
í Reykjanesi.
Hjeraðsmót Sjálfstæðismanna
í Reykjanesi var haldið s.l.
sunnudag og hófst kl. 2 e.h.
Formaður Fjelags ungra Sjálf
stæðismanna við ísafjarðardjúp
Baldur Bjarnason frá Vigur,
setti mótið með ræðu. Að henni
lokinni flutti fjármálaráðherra
Jóhann Þ. Jósefsson ræðu.
Þá fóru fram nokkur skemti
atriði og voru þar mættir sömu
skemmtikraftar og á Isafirði,
Alfreð Andrjesson með Þjóð-
leikhúsræðu sína og gamanvís
ur og Bragi Hlíðberg með har-
monikuleik.
Þá flutti Sigurður Bjarnason,
þingmaður kjördæmisins ræðu
en að henni lokinni sýndi
Kjartan Ó. Bjarnason Fleklu-
mynd, mvnd frá Vestmanna-
eyjum, úr Beykjavik og frá
Snorrahátíðinni. — Að lokum
var stiginn dans til kl. 10 e.h.
Ms. Fagranes og mb. Pól-
stjarnan fluttu fólk á mótið
bcggja vegna Djúps og sóttu
mótið nokkuð á fimmta hundr
að manns, Veður var frekar
kalt og versnaði, þegar leið á
kvöldið, en þrátt fyrir það
skemmtu menn sjer prýðilega.
Var ræðumönnum og skemmti-
kröftum tekið hjer afburðavel
eins og á Isafirði.
í Búðatdal
HJERAÐSMÓT Sjálfstæðis-
manna í Dalasýslu var haldið
s. 1. sunnudag og hófst kl. 5.30.
Þorsteinn Þorsteinsson, sýslu-
maður, setti mótið og bauð fólk
velkomið, en Sigtryggur Jóns-
son hreppstjóri, HrappstÖðum,
stjórnaði því.
Ræður fluttu Þorsteinn Þor-
steinsson, sýslumaður, Bjarni
Benediktsson, utanríkis- og
dómsmálaráðherra og Jóliann
Hafstein, alþm. Var ræðum
þeirra allra vel tekið. Brynjólf-
ur Jóhannesson, leikari, las uppi
og Ólafur Magnússon frá Mos-
felli, söng einsöng. Undirleik
annaðist Árni Björnsson, Vakti
hvortveggja mikla hrifningu
samkomugesta. Húsfyllir var og
mótið í alla staði hið ánægju-
legasta.
Vont veiðiveður
iyrir norðan
Siglufirði í gærkveldi.
NORÐAUSTAN stormur hef
ir verið hjer í dag og gær og
ekkert veiðiveður. Flotinn er
allur við land, mest hjer og á
Húsavík.
Yfir helgina, á laugardag og
sunnudag hafa Síldarverksmiðj
um ríkisins hjer borist 5600
mál og á Húsavík þrjú þúsund.
Til Rauðku hafa komið um 2
þús. mál.
Á laUgardag voru satlaðar
hjer 7295 tunnur og 1202 á
sunnudag. Alls er því búið a<5
salta á öllu landinu 76,700 tunn
ur.
Skipshafnir þriggja skipa
fóru í báta í morgun vestan
Tjörness, en fengu lítið, enda
veður ekki gött. Sjaldan hafa
fleiri skip verið hjer inni en
nú. — Guðjón.
Frá Hjalteyri er símað að
þar hafi landað á sunnudag':
Ólafur Bjarnason 51 mál, Stjarm
an 306, Rifsnes 43, Otur 63,
Ingvar Guðjónsson 47, Sverrir
237 og Ingólfur Arnarson 31
Erna var að landa þar í gær-
kveldi og Eldborg var væntan-
leg.
EFTIR því sem blaðið hefir
frjett hefir Albert Guð'munds-
son knattspyrnumaður undirris
að samning við knattspyrnu-
fjelag í Milano á ítaliu og et!
farinn þangað.
Albert hefir sem kunnugt eiT
leikið að undanförnu með
franska fjeiaginu Nancy, en viö
það fjelag gerði hann fyrsta
samning sinn sem atvinnumaði
ur í knattspyrnu. Hefir hann
getið sjer hinn besta orðstír mecj
í samkomuhúsinu á Búðardal i.Jc-ik sínum í FrakklancU, ,J