Morgunblaðið - 17.09.1948, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 17. sept. 1948.
Sjöiugur:
Þórarinn Sfefánsson hreppstj.
í Húsavík
ÞORARINN Stefánsson, hrepp-
stjóri í Húsavík, á í dag sjö-
tugsafmæli, en hann er fæddur
• 17. sept. 1878 að Grásíðu í
Kelduhverfi.
Þórarinn hreppstjóri, eins og
hann er kallaður í daglegu tali,
er meðal þeirra manna, sem er
mikil ánægja að kynnast og eiga
samxylgd með á lífsleiðinni. —
Hann er áreiðanlegur mann-
kostamaður, sem áunnið hefur
' sjer traust samborgaranna, sem
m. a. kemur fram í því, að slík-
um mönnum eru falin marg-
vísleg umboðsstörf í opinbera
þágu.
Þórarinn hefur nú verið
hreppstjóri í Húsavík í um 36
ára skeið, sem er enginn smá-
ræðis embættisaldur. Áður en
hann tók við hreppstjórastörf-
um hafði hann byrjað bóka-
verslun á Húsavík og stofnað
Ljósmyndastofu Húsavíkur. —
Bókaverslun sína rekur Þórar-
inn enn, en ljósmyndastofunni
hefur hin ágæta kona hans, frú
Sigríður Ingvarsdóttir veitt for-
stöðu lengst af, nema örfá fyrstu
árin.
Þórarinn hefur gegnt ýmsum
opinberum störfum í þágu
hreppsfjelagsins í Húsavík, átt
sæti í skólanefnd og sóknar-
nefnd og ýmsum fleiri nefnd-
' um, og verið mjög lengi for-
maður skattanefndar, auk þess
sem hann hefur tekið þátt :'
undirbúningi og stjórn ýmissa
framfaramála Húsvíkinga. —
Hann á sæti í stjórn sjúkra-
hússins í Húsavík og vann ötul-
lega að því að koma því upp,
hefur átt sseti í stjórn Spari-
sjóðs Húsavíkur og verið um-
boðsmaður stjórnar Síldarverk-
smiðja ríkisins, og framkvæmda
stjóri síldarverksmiðjunnar í
Húsavík.
Jeg býst við, að ýmsum þeim,
sem hafa átt samleið með Þór-
arni, finnist hann enginn á-
hlaupamaður, enda lætur hann
ekki mikið yfir sjer og er hlje-
drægur. Hinsvegar vita allir,
sem til þekkja, að þeim málum
ér vel komið, sem Þórarinn hef-
ur tekið að sjer að sinna. Hann
er öruggur málafylgjumaður og
kann sitt lag á því að koma sin-
’ um málum fram.
Þau hjónin Þórarinn og frú
Sigríður njóta einlægra og mik-
illa vinsælda meðal Húsvík-
inga, þar sem þeirra mörgu og
góðu störf hafa verið innt af
hendi, Heimili þeirra hefur ver-
ið til fyrirmyndar að reglu-
semi og prýði, og hefur verið
gott að njóta þar heimilisvin-
' áttu og gestrisni.
Eiga þau hjón tvo efnissyni
uppkomna, Ingvar og Stefán
en mistu eftirlætisdóttur, Mar-
'grjeti, barnunga.
'J 1 Sjálfstæðisflokkurinn hefur
'átt hauk í horni þar sem Þór-
árinn er. Sjálfstæðisflokkurinn
'hefur verið í minnihlutaaðstöðu
Jí hjeraðinu, en einmitt þess
vegna hafa trúnaðarmenn lians
1 Óft þurft að beita þrautsfegju og
' lægni — og þar hefur Þórarinn
aldrei bilað. Festa hans og rjett-
sýni mun einnig viðurkennd.
þótt leitað sje langt út í raðir
pólitískra andstæðinga.
Jeg vildi mega flytja hinum
sjötuga heiðursmanni bestu af ■
mælisóskir. Jeg veit, að allir
þeir, sem hafa haft kynni af
Þórarni, minnast í dag með
þakklæti hans mörgu og ágætu
mannkosta ,um leið og við ósk-
um þess, að þeirra megi lengi
við njóta.
Jóhann Hafstein
Nýtt smásagnasafn
FYRIR nokkru síðan kom úi
á vegum Helgafells, smásagna-
safnið Fljúgðu, fljúgðu klæði,
eftir Einar Guðmundsson. Höf-
undurinn er þegar orðinn ölluin
almenningi kunnur fyrir þjóð-
sagnasöfnun og á safn hans —
íslenskar þjóðsögur, miklum
vinsældum að fagna meðal allra
þeirra, sem þjóðsögum unna og
þær kunna að meta.
Þetta er hins vegar í fyrsta
sinn, sem Einar sendir frá sjer
frumsamdar sögur og er óhætt
að segja að hann fer vel af stað
í safninu eru 5 sögur og bera
þær þess allar glöggan vott, að
höfundurinn hefur náð meirl
þroska en títt er um byrjendur
á sviði smásagnagerðar. Hjer
skal ekki rakið efni þessara
sagna, aðeins minnst á fyrstu.
sögu bókarinnar, sem höfundur
inn nefnir — Plógurinn. — Er
það lýsing á linnulausri bar-
áttu bónda við óblíð náttúru-
öflin og trú hans á mátt ís-
lenskrar gróðurmoldar. Sagan
er með köflum svo snilldarlega
gerð, að jafnað verður til hins
besta í íslenskri smásagnagerð.
Yfir öllum sögunum hvílir
einhver rómantískur viðkvæmn
isblær, sem þó hvergi verður
væminn. Höfundinum virðist
vera óvenju vel sýnt um að
rita fagurt íslenskt mál.
Er þess að vænta, að almenn-
ingi gefist kostur á að sjá meira
af verkum þessa athyglisverða
höfundar á prenti áður en lang
ir tímar líða. V.
f
í ^>túfha
óskast í sjerverslun. Tilb.
merkt: „Verslun“ — 0342
sendist afgr. Mbl. fyrirg
laugardag.
Guðmundur Einarsson frá Miðdal:
1947-1948
Handa vinum yðar erlendis er ekki kostur á betri gjöf.
itiMiimiiiiMtiiimmmiMimfiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiin tni
Stofa
óskast til leigu. Fyrirfram-
greiðsla. — Upplýsingar í
síma 7779.
Zeiss, Ikon —
myndavjel j
í brúnni tösku, tapaðist sl. |
laugardagskvöld á bíla- f
stæði Hreyfils. Finnandi I
vinsamlega láti Stefán =
Jónsson vita í sima 3617 =
eða 2895. I
MimiiMtMMiiimmimiimiiiiMHMiimiiHmiHiiiiiiiiiif
500 kr.
Ungur drengur tíndi 500
kr. seðli úr vasa sínum í
fyrradag í Blesagróf eða
p leiðinni þaðan á Grensás
veg. Skilvís finnandi vin-
samlega beðinn að gera að
vart í síma 2567, gegn fund
arlaunum.
ll*H«lllrt«rHlinillllU*IIIIIHHIIIIHimil*»
I :
Vjelsturtur
Hefi til sölu vjelsturtur á
5 tonna International með
áföstum stálpalli. Einnig
talsvert af varahlutum í
Bedfoord og G. M. C. —
Uppl. í síma 4396.
llllllllimilllMHIMIMIIIMMIIMIIIIII
MIIIIIIMIIIIIIIIIIII
Einar Ásmundsson
hœztaréttarlögmaður
Skrlf
TJarnarröta 1* — 8önl HIJ
Fyrsta flokks
í 1/8 kútum og ógætar gulrófur í 1/1 og % sekkium,
verðið hagstætt.
Hverfisg. 52- Sími 1727.
Framhaldsaðalfundur
H.f. Kol, Tindum
verður haldinn í Tjarnarcafé, uppi, þriðjudaginn
28. þ. m. og hefst kl. 8.30 e. h.
Stjórnin.
Nokkur
getum við útvegað frá Englandi nú þegar gegn nauð-
synlegum innflutnings- og gjaldeyrisleyfum.
Cjídi Cda
allctoróóon
4UGLÝSING Ett GUL»
í LDI