Morgunblaðið - 10.11.1948, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10.:nóv, 1948.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
\Jíluerji óhrifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: fvar Guðmundsson,
Auglýsingar: Árui Garðar Kristinsson. '
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla.
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Fylgishrun komm únista
í Frakklandi
Á ÞESSU ári hafa kommúnistar beðið herfilega ósigra í
öllum þeim löndum, þar sem kosningar hafa farið fram.
Jafnvel í löndum eins og Finnlandi, sem eru undir handar-
iaðri Rússa, hafa þeir stórtapað fylgi vegna þess að lýð-
xæðisvenjum hefur verið fylgt.
En athyglisverðast er þó tap kommúnista í tveimur þeim
iöndum, sem þeir hafa verið sterkastir í allra Evrópulanda
utan Rússlands, ítalíu og Frakklandi. í ítalíu biðu komm-
únistar mikinn ósigur, enda þótt þeir hefðu þar kosninga-
bandalag við róttækari arm jafnaðarmannaflokksins. Hinn
írjálslyndi borgaraflokkur de Gasperis vann glæsilegan sig-
ur.
Síðasta dæmið um fylgishrun kommúnista í Evrópu eru
úrslitin í kosningunum til efri deildar franska þingsins, sem
fóru fram um síðustu helgi. Fyrir þær kosningar voru
kommúnistar fjölmennasti flokkur deildarinnar. En að kosn-
mgunum loknum hafa þeir aðeins 15 fulltrúa þar af 264
Þeir eru þannig orðnir minnsti flokkur efri deildarinnar
þegar frá eru skilin smá flokksbrot. Flokkur de Gaulle
liershöfðingja vann hinsvegar glæsilegan sigur í þessum
kosningum. Fjekk hann 107 fulltrúa og er þannig orðinn
langstærsti flokkur deildarinnar. Næstir honum að fylgi
koma radikalar, sem fengu 50 fulltrúa.
Það, sem mestu máli skiptir í sambandi við þessi kosn-
ingaúrslit er hið mikla fylgishrun kommúnista. Það er
eins og áður er sagt í algeru samræmi við það, sem hefur
verið að gerast í hverju einasta landi, þar sem kosningar
hafa farið fram í undanfarið. Þar gerist allstaðar sama sag-
an. Fylgið hrynur af kommúnistaflokkunum.
Það þarf enginn að fara í grafgötur með það, hvernig
á þessu standi. í allri Vestur Evrópu er það orðin almenn
^koðun að kommúnistaflokkarnir sjeu ekkert annað en auð-
virðileg leiguþý hins rússneska herveldis, fimmtaherdeild,
sem sje reiðubúin til þess að reka rýtinginn í bak þjóðum
sínum, hvenær, sem Kominform og Kremlmenn gefi þeim
skipun um það.
Þetta er skoðun almennings í öllum lýðfrjálsum löndum
Evrópu. Þar er litið á kommúnista, sem beina tilræðismenn
við lýðræði og sjálfstæði þjóðanna. Hugtökin sjálfstæði og
lýðræði eru þar talin gjörsamlega ósamrýmanlegkommún-
Furðuflugvjelar.
FREGNIR ÞÆR, sem undan-
farið hafa borist um furðuflug
vjelar yfir landinu eru slæm
tíðindi. Á friðartímum er það
venja flugmanna að tilkynna
fyrirfram um ferðir sínar og
biðja um leyfi til að fljúga yf-
ir önnur lönd, en sín eigin. Er
þetta ekki eingöngu gert í kurt
eisisskyni, heldur fremur af ör-
yggisástæðum.
íslendingar eru þátttakendur
í alþjóðásamtökum um flugmál
og þær erlendar þjóðir, sem
hingað eiga leið með flugvjelar
sínar geta fengið leyfi til að
fljúga yfir landið með lítillri
fyrirhöfn, ef erindi þeirra eru
nauðsynleg og skýring gefin á
tilgangi fararinnar.
•
Hversvegna með
leynd?
AF ÞESSUM ástæðum þykja
það slæm tíðindi, er erlendar
þjóðir sendi hingað flugvjelar
með leynd. Fljúga yfir flug-
velli í myrkri og reyna að leyna
ferðum sínum, eins og nýlega
átti sjer stað.
I hvaða tilgangi eru slíkar
flugferðir farnar og hversvegna
er verið að stofna öryggi flug-
manna og flugfarþega, sem
sigla hjer um loftin, í hættu
með slíku leyniflugi.
Eftir síðustu fregnirnar af
flugvjelinni rússnesku, sem
fanst á Grænlandsjökli er enn
meiri ástæða til að spyrja.
•
Níðurníðsla
Skálholts
ÞAÐ HEFIR LENGI verið á
almannavitorði, að hið forna
höfuðból og biskupssetur, Skál-
holt, hefir verið í niðurníðslu
og það svo, að til hneysu hefir
verið fyrir þjóð, sem vill kalla
sig söguþjóð, að láta viðgang-
ast.
Og eftir upplýsingar Gísla
Jónssonar, alþingismanns, er
mönnum ljóst, að við svo búið
má ekki lengur standa.
•
Verndun
sögustaða.
ÞAÐ HEFIR VANTAÐ mikið
á, að við sýndum sögustöðum
okkar þá rækt sem skyldi. —
Mætti nefna mörg dæmi um
það, þótt ekki verði gert að
sinni.
En það ætti að vera mönnum
ljóst, að tími er til kominn, að
hefjast handa um verndun
sögustaða og væri þá ekki ó-
viðeigandi, að byrja á Skál-
holti. Reisa þann stað úr rúst-
unum og byggja upp á sóma-
samlegan hátt. Skálholt er einn
af merkustu sögustöðum lands
ins og virðing fyrir honum kem
ur öllum landsmönnum við. en
ekki síst Sunnlendingum, sem
ættu að sjá sóma sinn í því, að
vernda hinar sögulegu menjar
á Skálholti.
•
Hvar eru nú
fjelögin?
OG HVAR eru nú öll fjelög-
in, sem stofnuð hafa verið til
að beita sjer fyrir bygðasöfn-
um og viðhaldi gamalla þjóð-
legra menja. Hjer er hlutverk
að vinna fyrir þau.
Það er búið að tala svo mikið
um niðurníðslu Skálholtsstað-
ar, að orðin tóm duga ekki leng
ur. Nú er að hefjast handa og
ef rjett er að farið, þarf ekki
að efa, að margir vilja leggja
til liðsinni til þess að hefja
Skálholt upp úr niðurlæging-
unni.
•
„Hútel Fold“.
FRÁ LESANDA „Daglega
lífsins“ í Kaupmannahöfn kem
ur tillaga um nafn flugvallar-
gistihúsinu nýja í Keflavík.
Guðrún Carlson leggur til að
gistihúsið verði nefnt Fold.
Vissulega er nafnið fallegt og
lætur vel í eyrum íslendinga,
sem minnast margra ljóða eft-
ir höfuðskáld okkar.
Það hefir og þann kost, að
það er stutt og útlendingar geta
borið það fram, án þess að af-
baka það, eða afskræma.
En eins og oft hefir verið á
bent, þá eru þetta einungis til-
lögur, sem bornar eru fram til
athugunar fyrir þá, sem þess-
um málum ráða.
•
Þökk fyrir hlýlegt
viðmót.
ÞAÐ ER ekki svo oft, sem
menn skrifa Víkverja til þess,
að hafa orð á því, sem betur
fer. að það er bara gaman, að
fá brjef eins og það, sem her
fer á eftir frá Á. B. — Hann
segir:
Kæri vinur:
Þú færð oft kvartanir.
Má jeg nú biðja þig að koma
á framfæri heillaóskum og
þakklæti til kurteisustu síma-
stúiku bæjarins, en mjer finst
altaf sjerstök ánægja, að fá að
tala við hana í símann.
Jeg efast ekki um, að þú þekk
ir hennar hlýlega viðmót sem
altaf mætir manni þegar maður
hringir í Reykjavíkurflugvöll.
•
Allur munurinn
ÞAÐ ER alveg rjett hjá ÁB.,
að það er mikill munur, þegar
símastúlkur eru kurteisar og
glaðlegar. — Og þær eru
þó nokkuð margar til hjá
ýmsum stofnunum í bænum. En
hitt er því miður of algengt, að
sím^istúlkur hjá sumum fyrir-
tækjum sjeu eins og snúnar upp
í hrútshorn, þegar þær svara.
Það er t. d. eins og ein vin-
stúlka mín í 1000, sem jeg.hefi
aldreí sjeð, svo jeg viti til, en
oft talað við. Það er verulega
gaman að hvað hún er hjálp-
söm og altaf í sama góða skap-
inu. Og sama er að sega um
þær flestar á langlínustöðinni.
Þannig eiga símastúlkur að
vera.
•••MMMiMimMM«M»i»MMMiMiiiMH.MiiiiiiMiiHHMiiiiiMiM»«»i»»M»»»mMMMMM»i»MMiMMMMM»iMMiMMHiiiMimMHiiMH«M»«MM«»»H»»iMMHiiiiiiiiHiHiniiiiiiiiiii»»»»niiiil»MiMiiii ^
I MEÐAL ANNARA ORÐA ....
'imiiiimMiMmimMiimiimiiMmMiiiiiiiiMiiiiiiiiiimiiMMmitiiiMmiiiiiiimiiimiiimimMiiimiiiiiiiiiiiii
Verkfallsáhlaup franskra kommúnisla mistcksf
rsmanum.
Af þessum ástæðum þurkar hver þjóðín á fætur öðrum
kommúnistaflokkana út úr þjóðþingum sínum. Barátta fólks-
ins fyrir öryggi sínu og sjálfstæði er beinlínis háð við þessi
alþjóðlegu skemmdarverkaöfl, sem bíða þess eins að geta
hleypt lokum frá dyrum þjóðanna og gengið í lið með er-
lendu ofbeldisliði.
Það skal ekki dregið í efa að hjer á landi sje svipuð þró-
un að gerast og í öðrum Evrópulöndum, að kommúnistar
sjeu að stórtapa hjer fylgi. En ósvífni fimmtuherdeildar
Kominform hjer á landi er jafnvel ennþá meiri hjer en víða
annarsstaðar. Hjer halda þessir menn því fram að þeir sjeu
hinir sönnu verndarar íslensks sjálfstæðis og öryggis al-
mennings.
Dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð,
berja þessir afglapar sjer á brjóst og krefjast þess að vera
álitnir „landvarnarmenn“ íslensku þjóðarinnar!!!
Sannleikurinn er sá að þótt þjóðsvikurum allra alda á ís-
landi væri safnað saman í einn hóp, þá væri svikræði þeirra
við íslenskt sjálfstæði og öryggi aðeins örlítið brot af því,
sem kommúnistar hafa þegar framið og ætla sjer að fremja,
hvenær, sem þeir fá tækifæri til þess.
íslenska þjóðin, sem vill halda sjálfstæði sínu og skapa
sjer öryggi í vályndum veðrum heimsstjórnmálanna, mun
þessvegna fara að dæmi annara Evrópuþjóða og þurka
íimmtuherdeild kommúnista út úr landi sínu þegar hún á
þess kost að ganga að kjörborði í frjálsum kosningum.
Kommúnistaflokkurinn í þéssu landi lifir þessvegna aðeins
gálgafrest. Han,n mun fara sömu leiðina og franski komm-
únistaflokkurinn, sem nú er að hrynja.
ÓSIGUR franskra kommún-
ista í kosningunum síðastliðinn
sunnudag undirstrikar þá stað-
reynd svo ekki verður um ef-
ast, að verkfallsáhlaup þeirra
á Marshallaðstoðina og við-
reisnaráætlun Frakklands er
farið út um þúfur. Franska
þjóðin hefir -fordæmt niðurrifs
áætlun kommúnista og ekki lát
ið blekkjast af falsspádómum
þeirra um ,,hættur“ Banda-
ríkjaaðstoðarinnar. Frakkar
hafa gefið kommúnistum verð-
skuldaða ráðningu með því að
neita að endurkjósa fulltrúa
þeirra á þing: í kosningunum til
efri deildar franska þingsins
síðastliðinn sunnudag fengu
kommúnistar aðeins 15 þing-
menn kjörna, en voru áður fjöl
mennastir með 85 þingmenn.
Fylgistap kommúnista í þing-
deildinni má því heita að vera
algert, en flokkur de Gaulle
hershöfðingja hefir hinsvegar
unnið mikinn sigur og fengið
107 af 264 fulltrúum.
• o
ÚRSLITAÁHLAUP
Verkfall kolanámumanna í
Frakklandi átti að vera upp-
haf úrslitasóknar kommúnista
gegn viðreisnaráætlun lands-
ins. í stað markvísra endurreisn
arátaka átti að koma upplausn
og glundroði. Og því verður
ekki neitað, að aðeins hugrekki
frönsku stjórnarvaldanna — og
kosningaúrslitin á sunnudag —
hafa komið í veg fyrir það, að
þetta tækist.
Meir en þrjú miljón tonn af
kolum töpuðust á verkfalli
námumanna. Taka varð af dýr-
mætum varabirgðum og nokkr
ar skemdir hafa orðið í sum-
um kolanámunum. Við þetta
bætist svo það, að kolavinsla
krefst nú mun meiri vinnuafls
en fyrir stríð. í L’Epoque.er
þannig áætlað að í dag sje
þörf á 610 mönnum til þess að
vinna úr jörðu 1000 tonn af
kolum en 380 nægðu 1938.
• o
TF.FUR ENDUR-
IíEISNINA
Enginn vafi er á því, að verk
fallið mun hafa tefjandi áhrif
á endurreisnina í Frakklandi.
Frönsku stjórnarvöldin neyðast
nú til að verja hluta að við-
reisnaraðstoð Bandaríkjamanna
til kaupa á erlendum kolum,
sem ekki hefði gerst þörf, ef af
vinnustöðvuninhi hefði ekki
orðið. Þessi kolakaup hljóta ó-
hjákvæmilega að fara fram á
kostnað annara nauðsynja, svo
sem vjela og matvæla. Kom-
múnistum hefir þannig tekist
að stöðva vísirana á viðreisn-
arklukkunni andartak — en
ekki heldur nema andartak.
o •
HÚRRAIIRÓP-
IN HLJÓÐNA
Dóm sinn fengu þeir í kosn-
ingunum síðastliðinn aunnudag.
Franska þjóðin er orðin þreytt
á þeim; hún er farin að gera
sjer það Ijóst, að aðgerðarleys-
ið mun aldrei og hvergi bæta
lífsafkomu fjöldans. Og fransk
ir verkamenn, sem eru að
minsta kosti ekki síður þjóð-
ræknir en verkamenn annara
landa, eiga jafnerfitt með það
og aðrir heiðarlegar menn að
taka undir húrrahróp kommún-
ista fyrir Stalin kommapabba
í Moskvu,
San Remo í gærkvöldi.
VINÁTTU-verslunar- og sigl
ingasamningur var undirritað-
ur hér í San Remo í dag, milli
Ítalíu og Grikklands. —Sam-
kvæmt honum láta Grikkir nið
ur falla allar kröfur á hendur'
ítölum um herskip, er þeir áttu
að fá . .. ;l