Morgunblaðið - 29.01.1949, Side 8

Morgunblaðið - 29.01.1949, Side 8
8 ea. O R G V N B I 4Ð IÐ Laugardagur 29. janúar 1949. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj. Sigfús Jónsson. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.), Frjettaritstjóri ívar Guðmundssor Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, inn&nland*, kr. 15.00 utanlands. f lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lecbók. Landbúnaðarvjelar og jeppar í BYRJUN þess Alþingis, er nú stendur yfir fluttu sveita- þingmenn Sjálfstæðisflokksins tvær þingsályktunartillögui um aukinn innflutning landbúnaðarvjeia og jeppa. Hefur allsherjarnefnd Sameinaðs þings fjallað um bæði þessi mái og orðið sammála um að tillögurnar verði báðar samþ ykktar með smávægilegum breytingum. Er ástæða til þess að fagna þeim undirtektum, sem þessi nauðsynjamál landbúnaðarins hafa fengið og er óhætt að fullyrða að Alþingi muni sam- þykkja báðar fyrrgreindar tillögur. Þrátt fyrir þessar undirtektir þingsins hafa þó heyrst raddir um það að það væri hæpið af Alþingi að lýsa yfir þeim vilja sínum að leyfður skuli verulega aukinn innflutn- ingur landbúnaðarvjela. Það geti verið varhugavert að binda hendur innflutnings- og gjaldeyrisyfirvalda með þingsam- þykktum um innflutning einstakra vörutegunda. í þessu felast nokkur almenn rök. En því fer þó fjarri að þau eigi við um innflutning þeirra tækja, sem hjer hefur verið rætt um og tillögur Sjálfstæðismanna fjölluðu um. íslenskur landbúnaður er nú þannig á vegi staddur að ef hann ekki fær stóraukinn vjelakost þá eru miklar líkur fyrir því að hið óheillavænlega útfall fólksins frá landbúnaðar- störfum aukist enn að miklum mun. Það væri hinsvegar mikil ógæfa fyrir þjóðina. Landbúnaðurinn gegnir því mik- ilvæga hlutverki að sjá þjóðinni fyrir rúmlega helmingi allra matvæla hennar. Þessi framleiðsla er þó alltof Mtil til þess að fullnægja þörfunum. Mjólkurframleiðslan þarf að aukast að miklum mun. Mikill mjólkurskortur ríkir í flesí- um kaupstöðum og sjávarþorpum landsins verulegan hluta ársins. Við þurfum ennfremur að flytja inn smjör og annaö feitmeti í stórum stíl. Við þurfum líka að flytja inn auðrækt- anlega garðávexti eins og kartöflur fyrir milljónir króna þrátt fyrir alla gjaldeyriserfiðleika. Nú er einnig svo komið að kjötframleiðsla okkar gerir ekki meira en að hrökkva fyrir neyslunni innanlands. Það er því auðsætt að í því felst stórkostleg hætta ef lai^ibúnaðarframleiðsla okkar dregst frekar saman. Það er vegna þessara staðreynda, sem Sjálfstæðismenn a Alþingi beittu sjer fyrir því í haust, í samræmi við sam- þykktir landsfundar flokksins á s.l. sumri, að greitt yrði fyrir auknum innflutningi jeppa og landbúnaðarvjela Það er vitað að jepparnir eru ein þau tæki, sem vinsælust hafa orðið í sveitum landsins. Eftir þeim er gífurleg eftirspurn. Bændur vantar einnig mikið af dráttarvjelum og margskonar öðrum ræktunartækjum. Þessi þörf landbúnaðarins er svo brýn að það er ekki hægt að bera hana saman við þörfina fyrir ýms tæki, sem sð vísu skapa aukin lífsþægindi, sem að sjálfsögðu verður að reyna að afla, en sem þó ráða ekki úrslitum um það, hvort þjóðin getur framleitt nauðsynlegustu matvæli sín. Það er mjög villandi að miða rjett landbúnaðarins til inn- ílutnings við þann skerf, sem hann leggur til útflutningsins. Hlutverk landbúnaðarins er alls ekki fyrst og fremst það, að afla gjaldeyristekna. Það er þvert á móti það að sja þjóðinni fyrir nægum matvælum. En það hlutverk er sann- arlega þýðingarmikið og mikið veltur á því að það sje rækt vel. Sjálfstæðisflokkurinn beitti sjer fyrir því í stjórnartið fyrrverandi ríkisstjórnar að hafinn var innflutningur á miklu af tækjum til landbúnaðarstarfa. Þá var meira flutt inn af slíkum tækjum en nokkru sinni fyrr. En til þess ber brýna nauðsyn að þeim innflutningi verði haldið áfram. Það er þýðingarlaust að kveina stöðugt undan þeirri hættu, sem felist í flóttanum frá landbúnaðinum. Það þarf fleira að koma til. Það þarf að gera raunhæfar ráðstafanir til þess að skapa bændum skilyrði til aukinnar ræktunar og fram- leiðslu, betri lífsskilyrðí í sveitum landsins. Það er sá kjarni málsins, sem alltof lengi hefur verið stiklað í kring um af Framsóknarmönnum, sem einir hafa viljað telja sig mál- syara og stuðningsmenn landbúnaðarins. ÚR DAGLEGA LÍFINU Hitamál útaf silfurref EINHVERNTÍMA varð mikið mál útaf eignarjetti á ýsubandi, sem rætt var um land allt og hæstirjettur dæmdi að lokum. Varð mikið rifrildi útaf dómi hæstarjettar, en mörgum þótti málið lítilfjörlegt. Annað mál um eignarjett hefur nýlega ver ið dæmt' í hæstarjetti og dóm- urinn vakið umtal og deilur. Utaf gamansögu, sem sögð var hjer í gær í sambandi við þetta mál, hefur vinur minn, sem er lögfræðingur, bent mjer á, að þetta sje ekki eins lítilfjörlegt mál og margur hyggur. Lögfræðingurinn telur dóm meirihluta hæstarjettar hár- rjettan.' Hann bendir á, að í Noregi ög Danmörku sjeu ekki til lög utn eignarrjett á dýrum, sem sleppa úr búri, en dómar sjeu til fyrir því, að eigandi dýra, sem úr búri sleppa eigi þau, þótt veiðimaður drepi skömmu eftir að þau sleppa úr haldi. Fræðimenn telji betta rjett. Sömu reglu er fylgt í Þýskalandi. Auðveld veiðiaðfcrð OG lögfræðingurinn bendir á með daémi hve refaveiðar yrðu auðveldar, ef skotmenn gætu helgað sjer belgi af refum, sem sleppa úr búri með því einu að skjóta þá. Það væri okkert auðveldara fyrir menn, en að opna búr á refabúum og hleypa skollunum út og skjóta þá síðan jafnóð- um og þeir losnuðu úr búrun- um. En ráeð dómi meirihluta hæstarjettar er girt fyrir slíka veiðiaðferð, sem löglega at- vinnugrein. • Þörf hugvekja ÞEGAR menn hafa lesið eftir- farandi brjef frá í. Þ. um vekj raraklukkuna og stundvísina, ætti þeim að skiljast hvað litl- ir hlutir geta verið þýðingar- miklir í daglegu lífi. En betri rök fyrir því, að það eigi að gefa mönnum kost á því að eignast vekjaraklukku, hefi jeg ekki sjeð og hjer fer á eftir þessi þarfa hugvekja um vekj- araklukkuna og stundvísina. „Við íslendingar höfum löng um fengið orð fyrir að vera ó- stundvísir. Ef til vill er óstund vísi eitthvað sem sjerstaklega fylgir hinu tómláta íslendings eðli, ef til vill arfur okkar gömlu dreifbýlismenningar, þegar hvert heimili var sjálf- stæð heild að mestu fjelags- lega óháð öðrum. Það gat verið algjörlega út af fyrir sig með alla vinnu og verkshátt. Hver einstakur heimilisfaðir gat alveg ráðið því sjálfur hvernig og á hvaða tíma dags hann vann eða ljet vinna störfin. í því tilliti þurfti hann ekki að taka tillit til annara eða ann- ars en hinnar duttlungafullu, íslensku veðráttu, sem sjaldan virðist reglubundin og stund- vís í háttum sínum. Á ekki lengur við ,,EN hvað sem þessu líður þá er víst, að nú á ekki lengur við þe'ssi há-íslenska, náttúru- lærða óstundvísi. Stundvísi heimtar nútíma lífið, ekki síst borgarlífið, ef ekki á að verða sífeldir árekstrar og glundroði í öllum störfum og fjelagslífi. Stundvísi er ein af þeim borg- aralegu dyggðum, sem hver íslendingur þarf að temja sjer, og af eðlilegum og hagnýttum ástæðum vilja. Því flestir á- stunda þá dyggð, eftir því sem þeir frekast geta. Vekjarinn „SJER til hjálpar í þeirri við- leitni hefur fólk eins og kunn- ugt er notað lítið áhald — vekjaraklukkuna. — í skjóli þessa heimilisvinar hefur fjöl- skyldan getað sofið áhyggju- laust, djúpum, rólegum svefni frá kvöldi til morguns. Engan taugaspennandi andvara þurft að hafa á sjer. Á nákvæmlega tilsettum tíma vekur litla klukkan húsbóndann til að fara í vinnu, börnin til að fara í skólann og húsfreyjuna til að veita þeim morgunhressing- una. Hvað virðist ykkur, finnst ykkur slíkt áhald vera nokkur „luxus“? Og þó vantar nú ein- mitt þenna litla heimilisvin á svo fjölmörg heimili, en ó- stundvísi í ýmsum myndum smokkar sjer þar inn í staðinn. Verkamenn og starfsfólk mæt- ir þráfaldlega of seint á vinnu- staði og skrifstofur og börnin í skólana vegna þess að vekj- arann vantar. • Andvari og andvökur „AUÐVITAÐ er auðsætt tjónið og óþægindin af slíku og fólk reynir að láta þetta ekki ske oft. Það reynir að hafa á sjer „andvara11, þorir tæplega að festa rólegan svefn eftir að líður á nóttina. Sumir rjúka eftilvill upp um miðjar nætur til að gá á úrið sitt og geta svo eftilvill ekki fest blund úr því. Samviskusöm börn eru sí- kvíðin og áhyggjufull út af því að koma of seint í skólann. Og þótt nú fólki takist með þessu að vakna að nafninu til í tæka tíð, er það oft miður sín á dag- inn — illa upplagt, — af því að það er svefnlaust. • Margir um boðið „JÁ, en því í ósköpunum fær þetta fólk sjer ekki klukku — almennilegan- vekjara? Nú, auðvitað af því að hann fæst ekki frekar en ýmsir aðrir nauð synja munir. Innflutningur á vekjurum er svo sparaður, að hundrað eftirspurnir eru um hvern einn vekjara, sem tekinn er upp. ef einhver verslun hef- ur tekist að klófesta nokkur stykki. Auðvitað er nauðsynlegt að spara gjaldeyri. En mig langar til að skjóta þeirrí spurningu til þeirra, sem hjer ráða fyrir, hvort ekki sje mögulegt að spara ennþá meir innflutning á einhverjum fánýtari hlutum, en gefa aftur þessum vökuvin- um heimilanna nokkru meir rúm á innflutningsskránni. Því að vissulega er sá gjald- eyrissparnaður varhugaverður, sem verður íil þess að fækka vinnustundum verkamannsins, lætur barnið vanrækja skólann og bætir ofan á þetta ljelegri hvíld og órólegum svefntím- um með þeim fylgifiskum fyrir daglega vellíðan og heilbrigði, sem slíkt getur haft í för með sjer“. millimniimMiinnnMniiwimiiiiiiiniinwiiwtiii - ..... -...iimnTHMMiiiimiiiinii' .. nwwwiwwwit’iiiiÉit VC MEÐAL ANNARA ORÐA 9 Sameignarbmkamirinn í Ungverjalandi Frá Peter Furst, frjettaritara Reuters. BUDAPEST — Ungverska stjórnin hefur nú fyrir álvöru hafist handa um að reyna að leysa það vandamál, sem sam- fara er sameignarbúskapi og svo oft hefur verið minnst á í blöðum og ræðum stjórnmála- leiðtogahna ungversku. Meðal þess síðasta, sem gert hefur verið í þessa átt, er sameining tveggja bændasamtaka í eina alsherjar hreyfingu — Sam- band starfandi smábænda og landbúnaðarverkamanna. Sam- kvæmt' stefnuskrá þessarar hreyfingar, á hún að stuðla að „endurskipulagningu ung- verska landbúnaðarkerfisins og framþróun sameignarbú- skaparins“. • • BEINT GEGN EFNAÐRI BÆNDUM SAMKVÆMT hinni nýju reglu gerð, sem kommúnistar hafa gefið út um samvinnubúskap, mega þeir einir vera meðlimir „sem sjálfir rækta landið, sem þeir leggja fram til sameignar- rekstursins“. Fjölskyldumeð- limir þeirra mega einnig starfa að ræktun þessa lands, en vinna á því er bönnuð með að- stoð landbúnaðarverkafólks. Þessu er sýnilega beint gegn hinni svokölluðu kúlakastjett, en það kalla Rússar þá bænd- ur, sem hafa launað starfsfólk. Þeir hafa, frá því kommúnist- ar tóku við völdum í Ungverja landi, ekki mátt gegna ábyrgð arstöðum á sameignarbúgörð- um. • • ÁRÓÐUR TIL þess að flýta fyrir fram- kvæmd áætlunarínnar um sam vinnubúskap, hafa hin nýju bændasamtök og verkamanna- flokkurinn ungverskj byrjað mikla áróðursherferð, söm mið ar að því að eyða ótta sveita- fólksins við sameignarbúskap- inn. Segja má að herferð þessi hafi byrjað með ræðu, sem Matyas Rakosi, leiðtogi komm únista, nýlega flutti, en þar sagði hann, að stjórnarvöldin hefðu til þessa sýnt þá glópsku, „að leyfa klerkum og kapítal- istum að fræða“ hina fátæku smábændur urh samvinnubú- skap, með þeim afleiðingum, að margir bændur hefðu „mynd að sjer algerlega rangar skoð- anir á sameignarbúgörðunum“. Rakosi skýrði ennfremur frá því að kvikmyndir um lifnaðarhætti á rússnesku sam eignarbúum yrðu sýndar í Ung verjalandi, auk þess sem smá- bændanefndir mundu fara í kynnisferðir til Sovjetríkjanna. • • ÁRÓÐURSMIÐ- STÖÐVAR KOMMÚNISTAR hafa síðan stríðinu lauk, béitt mörgum Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.