Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 14
14 MORGVNBLAD19 Laugardagur 29. janúar 1949. þeirra kaupa en þeim til mik- illar ánægju sáu þeir, að bát- urinn, sem þeir reru, var svo þjettur og góður, að þeir mundu geta komist í honum alla leði til Santa Marta. Annan dag febrúarmánaðar, cftir tveggja ára fangelsisvist stigu þeir á landi í Santa Marta, en það var fyrsti áfang inn á leið þeirra til frelsisins. í Santa Marta voru þeir frjáls ir-< ferða sinna, þar ætluðu þeir að koma fram hefndum og þar var ástarinnar að leita .... Ástar?, hugsaði Kit. Nei, því að mín ást er grafin í rauðum Jogum Seawitch. En hjer var að leita vináttu og ástúðar. Margir höfðu minna én það, og það var honum nóg. Jeg tofaði Biöncu a giftast engri annarri, á meðan hún væri á lifi. Jeg stend við það, hugs- aði Kit. Ef jeg sakna Rouge og ástarinnar, sem jeg bar til hennar," get jeg sætt mið við, aö þessar tilfinningar eru ekki eins ofsafengnar og þar af leið andi ef íil vill langlífari. Þeir voru komnir að húsi )' ranzisco Mendoza. Þeir þurftu ckki að spyrja oft, áður en þeinv var vísað þangað; því að svo að segja hvert mannsbarn í. Santa Madtá þekkti Men- doza. Þjónn læknisins opnaði fyrir þeim og virti þá vel fyrir sjer, áður en hann hleypti þeim inn. Hann hafði verið lengi í þjónustu Mendoza og hann vissi, hvernig menn, Jæknirinn þótti mest gaman að hitta. Þessir menn báru það nieð sjer að þeir voru ævin- íýramenn, ef til vill sjómenn, sem mundu hafa frá mörgu að segja. Mendoza reis á fætur um leið og þeir gengu inn og heils aði þeim kurteislega. Honum varð fyrst litið á Bernardo. Úr svip hans las hann þjáningar og tryggð. En þegar hann leit á Kit, brá glampa fyrir í aug- urn hans. Hann sá strax að þessi maður hafði ýmsar á- hyggjur og þær ekki smáar. „Færið okkur drykkjarföng“, sagði hann við þjón sinn, en Kit bandaði með hendinni. „Jeg held varla að tími sje til slíks. Jeg bið yður afsök- unar, herra minn, en jeg leita mjög mikilvægra upplýsinga hjá yður. Vitið þjer, hvar Del Toro lávarður og kona hans eru stödd núna?“. Mendoza hnyklaði brúnirnar og virti Kit enn vandlegar fyr- ir sjer. „Hefur nokkur bent yður á það fyrr að þjer eruð ótrúlega líkur lávarðinum?“, sagði hann. „Þjer svarið ekki spumingu minni?“, hreytti Kit út úr sjer. Læknirinn ypti öxlum. „Þau eru komin óf langt tii þess að Þjer getið náð til þeirra“, sagði hann þurrlega. Síðan bætti hann við, eins og við sjálfan sig. „Dona Bianca er ef til vill komin svo langt, að enginn nær til hennar framar“. „Við hvað eigið þjer?“, sagði Kit áhyggjufullur á svip. „Er hún dáin?“. „Nei, hún er ekki dáin. Hun er ekki einu sínni líkánile'gá1 68. dagur veik. En jeg hef engan rjett | á að segja yður þetta. Jeg má ekki segja öðrum leyndarmál sjúklinga minna. En hvers vegna spyrjið þjer? Elskið þjer hana?“. „Hvers vegna spyrjið þjer mig spurninga fyrst þjer getið ekki svarað mínum?“, sagði Kit. Mendoza brosti. „Hægan, hægan, ungi maður. Þjer eruð auðsjáanlega uppgefinn bæði á sál og líkama. Jeg spurði yður aðeins þessarra spurninga, vegna þess að ef eitthvað kynni að koma fyrir Del Toro, vegna upplýsinga sem jeg hef gefið.. þá á jeg ekki langt eftir ólifað. Ekki svo að skilja að jeg meti líf sjálfs mín svo mikið. Það eiga bara margir líf sitt undir mjer komið. Setj- ist niður og fáið ykkur vín- glas. Jeg skal segja ykkur, það sem jeg get“. Bernardo leit vonaraugum á Kit og Kit stundi. ,Við virðumst ekki eiga annars úrkosta“, sagði hann þurrlega. Mendoza dreypti á rauðvín- inu, sem þjónninn hafði borið þeim og virti fyrir sjer gesti sína. „Mjer er mikil ánægja af komu ykkar“, sagði hann. „Nú hef jeg nefnilega fengið sönnur fyrir því að ráðningin á gátunni var rjett hjá mjer. Jeg samhryggist yður. Jeg skil vel, að þjer sjeuð óþolinmóð- ur“. „Segið mjer þá í guðanna bænum, hvar þau eru niður komin“. „Hún er alls ekki veik í venjulegri merkingu“, sagði Mendoza. „Hún er veik á sál- inni og þó ekki beinlínis sál- sjúk. Hún getur ekki gert það. sem hana langar til, ekki vegna eiginmanns síns, heldur vegna þess, að það stríðir algerlega á móti því, sem henni var kennt ,í æsku. Nú veit hún ekki einu I sinni lengur, hvað hún vill gera. Jeg held, að hana langi núna mest til að segja skilið 1 við þetta líf, sem hún lifir núna ; og ganga í klaustur. Hún mint ist eitthvað á engla, þegar jeg var að tala við hana. Jeg er hræddur um, að hún hafi sterkar tilhneigingar til að leita I huggunar í ímyndunum“. I Kit hallaði sjer fram og lagði báða handleggina á borð ið. „Eigið þjer við, að Bianca sje að missa vitið?“. Mendoza hrissti höfuðið. „Nei. Jeg á við, að hún gæti misst vitið, ef vandamál henn- ar verða ekki leist á næstunni. Það er ekkert eins skaðlegt og að eiga í stríði við sjálfan sig. Jeg held að þjer eigið mikinn þátt í þessu stríði hennar. Því að svo sannarlega sem jeg sit hjer, þá eigið. þjer, herra minn, upptökin að hugarstríði hennar. Er tilgáta mín rjett?“. Kit kinkaði kolli. „Jú, það er rjett. Og það er jafnvel enn rjettara hjá yður, að jeg eigi eftir að leysa vanda hennar. Hafið þakkir mínar fyrir upp- lýáing'árháf”. Mendoza tók útrjetta hönd hans. „Og enn eitt“, sagði hann. „Farið að engu óðslega, því að þá getið þjer átt það á hættu, að hún komist í það ástand, sem við báðir viljum forðast“. Kit og Bernardo hneigðu sig og gengu út. En síðasta við- vörun Mendoza gerði Kit mjög þungt í skapi. Honum var svo mikið niðri fyrir, að hann ljet Bernardo telja sig á að dveljast í Santa Marta þar til næsta dag. Bernardo sagði ekki, hver tilgangur hans var. Hann vonaði nefnilega, að þegar Kit væri búin að hugsa sig um heila nótt, mundi hann hverfa frá fyrirætluninni og fara beina leið til Saint Dom- inque. Hann þurfti ekki að spyrja Kit að því núna, hvert hann ætlaði að halda. Hann vissi, að nú hugsaði hann sjer að fara til Cartagena. Kit sat við borðið í veitinga- húsinu. Hann snerti hvorki á matnum, sem var fyrir fram- an hann á borðinu nje víninu í glösunum. Bernardo leit á hann og reyndi að finna út, hvernig heppilegast yrði að hefja samræðurnar. En Kit leit ekki einu sinni upp. Loks þegar Bernardo var búinn að gefast upp á því, að Kit gæfi sjer nokkurn gaum að fyrra bragði, hnippti hann í ermi hans. En þá heyrðust mikil há- reysti innar í salnum. Þegar Kit leit við sá hann lágvaxinn mann berjast um í höndunum á veitingamannin- ' um. Hann minnti á litla skip- verjann hans af Seaflowei:, sem Del Toro hafði látið leika sem verst og hengja síðan. 1 „Jeg er búinn að segja, að jeg hef enga peninga“, æpti litli maðurinn. „En á morgun fæ jeg peninga .... peninga eins og skít .... þegar jeg segi yfirhershöfðingjanum, að Frakkarnir sjeu að koma, þá launar hann mjer ríkulega. Bíðið bara þangað til á morg- un“. Bernardo hallaði sjer fram á borðið og fylgdist með sam- ræðunum af miklum áhuga. „Heyrðirðu hvernig hann tal- ar .... hreimurinn, á jeg við. Hann er Frakki“. Kit kinkaði kolli. Það voru aðeins Frakkar, sem töluðu spönsku á þennan hátt. Það var ekki um það að villast, að maðurinn hlaut að vera Frakki. „Frakkarnir“, hreytti veit- ingamaðurinn út úr sjer. „Láttu þá koma. Þeir eru ekki annað en fjaðurskreyttar hæn- ur. Það verður engin borgun fyrir ‘allt vínið, sem þú ert bú- inn að svolgra í þig hjer ....“. Hann hætti í miðri setningu, því að Kit sló á öxl hans. „Afsakið“, sagði Kit. „Þessi maður er kunningi minn. Jeg skal borga það sem hann skuldar“. „Það eru alltaf tuttugu re- alar“, sagði veitingamaðurinn. Kit brosti og rjetti honum peningana og átta reala að auki. — Veitingamaðurinn hneieði sig næstum ofan í gólf og Kit tók um handlegg litla mannsins. í leit að gulli cftir M. PICKTHAAí 66 — Þriðja hlutann eða ekkert, sagði lieifur vingjarnlega en ákveðið, en nú ættum við Brown að flýta okkur af stað til Fossabæjar. Þjer þurfið nauðsynlega að komast á sjúkra- húsið. En Brown greip um hendur læknisins og það glampaði í svörtum augum hans. Þjer eruð sá besti maður, sem jeg hef nokkru sinni þekt, sagði Brown og sá sterkasti. En nú skuluð þjer einu sinni fara eftir því, sem jeg segi. Nú munum við skilja. Þjer þurfið að fara til Skelja og hvíla yður, en við Indíána Tommi munum halda ferð okkar áfram til Fossabæjar. Annað hvort kemst jeg þangað eða jeg kemst þangað ekki, Það er allt í lagi úr því jeg hjelt það út þangað til jeg náði yðar fundi. Nú ætla jeg enn einu sinni að taka í hönd yðar og þakka yður fyrir allt, sem þjer hafið gert fyrir mig. Verið þjer sælir. Þeir tókust í hendur og Brown og Indíána Tommi löll- uðu niður hlíðina. Leifur stóð kyrr og horfði á eftir þeim uns þeir þeir hurfu bak við næsta múla. Þá var eins og Leifur vaknaði af dvala. — Jeg veit ekki, hvort jeg var vakandi eða mig var að öreyma, en hjerna er pokinn. Er það mögulegt, að Brown hafi skilað mjer öllu gullinu mínu. — Nei, ekki öllu gullinu, sagði Villi. Þjer voruð ekki nógu gáfaður að taka við því öllu, en hann hefur þó skil- að Brandi gamla og það er þó gott. — Já, og nú erum við ekki tilneyddir til að selja hest- ana okkar. Gömlu duglegu klárana. Nei, jeg vildi ekki taka nema þriðja hlutann af gullinu. Það er líka miklu meira en nóg. Svo bætti hann við: — Svona nú Villi, nú höldum við til Skelja. Sjáum hvern- ig lífið gengur þar. — Hefurðu heyrt það sem sagt er um Leif lækni, sagði frú Jordan við frú Machold, nokkrum dögum síðar. Það er sagt, að hann hafi tekið drenginn hann Villa til sín .... og að hann hafi eignast tvo fallega hesta. Jeg hef nú líka sjeð það með mínum eigin augum, eitthvað hefur hann þá komið með heim. JTLíxT »u Heimilislausi fakírinn. ★ Fiskimaðurinn: — Jeg sagði þjer, að hann hefði verið svona langur. Jeg hefi aldrei sjeð slíkan fisk. — Því trúi jeg vel. ★ Bóndi einn, sem var í fram- boði til þings, taldi sjer það mjög .til gildis, að hann kynni til hlýtar öll sveitastörf. „Jeg er hundrað prósent bóndi“, sagði hann á framboðs fundi meðal stjettarbræðra sinna, „jeg get plægt, sáð, slegið, mjólkað kýr, markað lömb, farið með hesta o. s. frv., o. s. frv. Jeg hefði gaman af, ef einhver ykkar getur bent mjer á nokkurt starf unnið á sveitabæ, sem jeg ekki get innt af hendi“. „Geturðu verpt eggjum?“. ★ í lok ræðu sinnar komst presturinn svo að orði: „Hjer meðal okkar í kirkj- unni er maður, sem hefur lagt lag sitt við eiginkonu annars manns. Ef hann ekki lætur fimm dollaraseðil í samskauta baukinn, verður nafn hans gert heyrum kunnugt11. Þegar farið var að gæta í baukinn að messu lokinni voru þar 19 fimm dollara seðl- ar og tveir dollarar þar að auki. Með þeim var brjefmiði, sem á var skrifað: „Borga hina þrjá dollarana á morgun. Hafði ekki meira á mjer núna“. ★ Tannlæknirinn: — Opnaðu munninn meira — meira. Sjúklingurinn: — A-a-a-a-ah. Læknirinn (um leið og hann er að koma tönginni fyrir utan um eina tönnina): — Hvernig líður heima hjá þjer? tU SI 40 4VGLYSA > lintfiU OIRI.40INV ! .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.