Morgunblaðið - 13.04.1949, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. apríl 1949.
- „Bafálla"
Frh. af bls. 5.
Sjera Sigurbjörn
og Kaj Munk
Kommúnistar hafa notað
þessa ,Þjóðvarnarmenn‘ til þess
að reka fyrir sig áróður, sem
er liður í hinni svo nefndu
,,friðarsókn“ Moskvamanna um
allan heim. Þegar svo að því
kom að ,,Þjóðvörnin“ óttaðist
afleiðingar gerða sinna og
höfðust ekki að, komu komm-
únistarnir undan gærunni til
þess að annast hina „verklegu"
baráttu gegn lýðræðinu í land-
inu. Kommúnistar gera samt
,,lúmskt“ grín að „Þjóðvarnar-
mönnum" Þeir iíka t. d. sjera
Sigurbirni við hetjuna Kaj
Munk, encla þótt þeir viti, að
þeir sjerarnir hafi lítið annað
átt sameiginlegt en mikinn hár
lubba!
Það er nú einu sinni svo, að
menn verða hvorki spekingar
nje frelsishetjur á því einu að
láta hár sitt vaxa óskorið. Það
þarf meira til.
Öðrum mun sjera Sigurbjörn
líkari en Kaj Munk. Kaj Munk
barðist á móti nasistum. Sjera
Sigurbjörn berst með arftökum
þeirra, kommúnistum.
Því berst sjer Sigurbjörn
gegn hugsjón frelsishetjunnar
Kaj Munk, sem var svarinn
andstæðingur allrar kúgunar.
Þeir ættu að sjá að sjer
Vonandi sjá þessir menn að
sjer og hætta þessari kjánalegu
Don Quixote „baráttu“ sinni,
gegn öllum góðum mál-
um. — Enda þótt þeir
beri ekki gæfu til að sjá
með neinum líkum fyrir fram,
hvað þjóðarhag sje fyrir bestu,
ættu þeir a. m. k. að geta sjeð
það eftir á, hvað afstaða þeirra
hefur verið röng, og láta sjer
að kenningu verða.
Kommar í Kína
„Bel Ami" - ástar-
saga eflir Maupas-
sanl - komin úl
KOMIN er út í íslenskri þýð-
ingu skáldsagan „Bel Ami“,
eftir hinn heimsfræga franska
rithöfund Guy de Maupassant.
Er það Bólkfellsútgáfan, sem
gefur hana út.
Þetta er ein af frægustu ást-
arsögum Maupassant. Hún hef
ur verið þýdd á fjölda tungu-
mála og komið út í tugum út-
gáfa. Sagan hefur einnig verið
kvikmynduð, og það oftar en
einu sinni. í síðustu kvikmynd
inni fara þau George Sanders
og Angela Lansbury með aðal-
hlutverkin og er sagan í þess-
ari útgáfu skreytt með mynd-
um úr þeirri kvikmynd.
Hersteinn Pálsson hefur ís-
lenskað söguna úr ensku.
FRIÐRIK Bjarnason tón-
skáld hefur gefið út „Tíu söng-
lög“, ljósprentuð hjá Litho-
prent. Eru þetta einsöngslög
með undirleik. Lögin eru: 1.
Tónaflug (ljóðið eftir Jónas
Guðlaugsson), 2. Vorblær
(Fríða Hallgríms), 3. Stjörnur
um sumarnótt (Matth. Joch.),
4. Kvöldkyrð (Bjarni Jónsson
frá Vogi), 5. Það kvöldar (Ki’ist
mann Guðm.), 6. Ferðbúinn
(Örn Arnarson), 7. Hljóðar
nætur (Sigurjón Friðjónsson),
8. Haustljóð (Sigurður Jóns-
son frá Brún), 9. Hvíldin (Jón
Magnússon), 10. Sólarlag (Þor-
steinn Gíslason).
Frágangur er allur hinn vand
aðasti og lögin smekklega
klædd í þann búning, sem fer
þeim best og gerir þau auðveld
hverjum sem leikur þau. Frið-
rik Bjarnason er þjóðkunnur
fyrir lög sín, og munu þessi
lög enn auka á hróður hans sem
tónskálds. p.
Miðjarðarhafs-
bandalag nauðsyn-
legt, segir Tsaldaris
AÞENA, 12. apríl. -— Constant
in Tsaldaris, utanríkisráðherra
Grikklands, ljet svo ummælt
í dag, að hann væri sannfærð-
ur um, að brýn nauðsyn væri
á því að stofnað yrði Miðjarðar
hafs-bandalag. Um Atlantshafs
sáttmálann sagði ráðherrann,
að hann væri „mikilvægasta
skrefið, sem stigið hefði verið
í allri veraldarsögunni, til þess
að varðveita frið í heiminum“.
En hann sagðí, að nauðsynlegt
væri að mynda fleiri slík stað-
bundin varnarbandalög, m.a.
Miðjarðarhafsbandalg.
- Hvalveiðin
Frh. af bls. 10..
nýjar hvalveiðistöðvar á vest-
anverðu landinu, til viðbótar
þeirri, sem fyrir er, og gæti
veiði þeirra allra numið 1000
hvölum á ári. Er augljóst, hver
áhrif slík veiði mundi hafa á
hvalveiðistofninn, ekki síst
þegar þess er gætt, að hann er
vafalaust mikið minni en hann
var 1883. — Árin 1883 til 1900
voru hvalveiðar við Vesturland
stundaðar með 10 hvalveiðibát
um að meðaltali á hverju ári,
en þess ber að gæta, að þssir
bátar voru mjög litlir og ófull-
komnir í samanburði við þau
skip, sem nú eru notuð við
veiðar- Ef 14 veiðiskip verða nú
látin stunda þessar veiðar, svar
ar það vafalaust til 30 báta,
svipaðra þeim, sem hjer voru
notaðir áður.
Þetta mál þarf ekki að rekja
frekar. Ei ekki verða gerðar
ráðstafanir til þess, að koma í
veg fyrir áðurgreindar fram-
kvæmdir, er augljóst, að millj-
ónum króna verður varið til
þess að byggja nýjar hvalveiði
stöðvar, útvega hvalveiðiskip
og allan þann búnað, er til hval
veiða þarf. Æfa þarf íslenska
sjómenn til að taka við öllum
þessum flota, en grundvöllur-
inn ekki öruggari en svo, að
telja má víst, að hvalstofninn
eyðist á mjög skömmum tíma.
Það væri fásinna og þjóðar-
ósómi að eyðileggja þessa
merku atvinnugrein á ör-
skömmum tíma með óverjandi
fyrirhyggjuleysi eftir þá dýr-
keyptu re.ynslu, sem fengin er
í þessum efnum.
Arnjjótur Guðmundsson.
Jóninna SigurSar-
dóttir heiðruð
AKUREYRI, 12. apríl. — Veg-
legt samsæti var frk. Jóninnu
Sigurðardóttur veitingakonu
haldið á Hótel KEA í gærkvöldi.
Sóttu það nær 100 manns. —
Forseti bæjarstjórnar, Þorst.
M. Jónsson, stjórnaði samsæt-
inu, en aðalræðuna fyrir minni
heiðursgestsins hjelt Brynleifur
Tobíasson, yfirkennari. Afhenti
hann heiðursgestinum í ræðu-
lokin fjárhæð nokkra, er skyldi
mynda af sjóð ,er bæri nafn frk.
Jóninnu, en hún að öðru leyti
ráðstafa að vild.
Karlakórinn Geysir kom og
hylti afmælisbarnið með söng.
— H. Vald.
- Verkfallið
Frh. af bls. 6.
gert sig sekan um að stöðva með
ofbeldi akstur á frystum fiski úr
frystihúsi að skipshlið þó við það
væru notaðar bifreiðar, sem eru
eign frystihússins og ávalt áður
höfðu verið notaðar til þessara
flutninga og því fullkomlega lög-.
legt að halda því áfram.
Þróttur hefur með því að aka
bifreiðum sínum fyrir bryggju-
sporða stöðvað umferð á bryggj-
um er skipverjar fiskibáta einir
voru að skipa upp fiski úr bátum
sínum á handvögnum.
Hjer er að sjálfsögðu um al-
gera lögleysu að ræða hjá Þrótti
Þá hefur sjómönnum verið bann-
að af Alþýðusambandi íslands og
Sjómannafjelaginu, til stuðnings
Þrótti, að bera lóðastampa frá
skipi að verbúð og til baka úr
verbúð í skip. Með þessu og því,
sem framan er sagt hefur Þróttur
og Alþýðusamband íslands og
Sjómannafjelagið vegna Þróttar
stöðvað alla fiskibátana hjer í
Reykjavík. Telur Þróttur í grein-
argerð sinni þetta sýna „hinn
góða hug sinn til aðalatvinnu-
vegs þjóðarinnar, útvegsins", eins
og þar er komist að orði.
Ennfremur hefur Alþýðusam-
bandið, samkv. tilmælum Þrótt-
ár, bannað verkamönnum í Kefla
vík að vinna við alla afgreiðslu
á m.s. Goðafossi, sem var með
vörur til Keflavíkurflugvallarins
á farmskrám beina leið frá New
York til Keflavíkur.
Allt þetta eru tvímælalaus brot
á vinnulöggjöfinni, þegar vegna
þess að ekkert samúðarverkfall
hefur verið boðað í Keflavík.
Þetta ætti að nægja til að sýna
lögbrot Þróttar og samherja hans.
Reykjavík, 12. apríl 1949.
Eggert Claessen.
samþykkja að
hælla bardögum
NANKING 12 apríl. — Leið-
togar kommúnista í Peiping
hafa fallist á, að „stöðva allar
hernaðaraðgerðir gegn stjórn-
inni, þar til öðru vísi verður
ákveðið,“ eftir því sem segir
í skýrslu, er Li Tsung-jen for-
seti fjekk í dag frá friðarnefnd
stjórnarinnar í Peiping. —
Afþingi freslað fram
yflr pásha
í GÆRKVÖLDI, að lokinni at-
kvæðagreiðslu um fjárlögin,
var Alþingi frestað fram yfir
páska.
Tilkynnti forseti, Jón Pálma
son, að Alþingi skyldi koma
aftur saman á þriðjudag eftir
páska.
(Kvenskíðabuxuil
i Nokkur stykki, lítil núm- |
i er, til sölu hjá Guðmundi i
= Guðmundssyni, Kirkju- i
i hvoli, opið kl. 2—4. I
iiiiMiimimMiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Blómaborðin |
eru komin aftur. Verð i
kr. 125.00
i Hattabúð Reykjavíkur =
Laugaveg 10.
IMMMMIIIIMIMiMMIIIMMMMIMIIMIMIIIIMIIMMMIMIIIMIIIII
| Til sölu: |
| Hrognkelsa netaslöngur, 1
i fiskilóðar á bát, óbundin, i
i hrágúmmí og ein besta I
i laxveiðijörð Austanlands, =
| til sölu eða leigu. Uppl. |
i í Þverholti 5, bakdyr, II. I
i hæð frá kl. 15—18 dag- i
i lega (virka daga).
3
=
BARNAVAGN
| til sölu. Upplýsingar í
I síma 9487.
tMMMMIMIMMIIIIIIIIMMMMMIIMMMMIIIIIMMIMMMIMMMIU
IIIIIIIMMIIIIMIItllMllllllMlllllllillllllllllllMIIIIMIIIIIMMl
! Sportsokkar (
| fyrir börn í mörgum lit- §
I um og stærðum, nýkomn- |
i ir í verslun
Ásg. G.
Gunnlaugssonar & Co., I
Austurstræti 1.
jpBiuinimMiiMMMMMiiMiiiiiiiiiiiiiiisiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiimnramiiiiiiiiiinituMranmiiiiMUMiianHRaHi
I Markús & éL
I
Í jiui.ii'iiiiiiiMMiMMiiiiMiiiiiiiiiiuimiMiiiniiiiHiiinuHiraiiiiw
£t ák Eftir Ed Dodd
, kNED y,y son,.
/V I i j ■>%ASON/ TI/VNE ANO
TtéAE AGAIN...
— Heyrið þjer það, ungfrú.
Jeg er mörgum sinnum búiftn
að aðvara son minn og alltaf
endurtekur þetta sama sig.
— Jeg hef hvað eftir annað
sagt honum að fara að hugsa
beíur um að græða peninga, en
hann lætur það eins og vind um
eyrun þjóta.
— Og nú er þolinmæði mín á
enda og jeg skal sýna honum,
hvað það kostar að svíkjast um
að vinna og hlýða ekki föður
sínum.
En í því staðnæmdist bifreið
fyrir framan og ungur maður
stígur út úr henni.
— Hann er þá kominn hjerna
sjálfur. Herra Towne, sonur yð
ar er kominn hjerna.
| Vön |
I Skrifsfoíusiúikð I
Erlendar brjefaskriftir |
i nauðsynlegar, óskast nú §
1 þegar eða 1. maí. Hátt §
i kaup. Tilboð ásamt uppl. \
| sendist afgr. Mbl. fyrir |
= miðvikudagskv., merkt: i
| „816“. I
M llll IIIMIIIIIIIMIIMIIIII111111111111111111111111111III11111111111)
MMIflMMMMMMMIMIMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMII
(Til leigu (
i stór, sólrík stofa með að- \
i gangi að siina og baði. — i
i Uppl. í síma 8Í356.
IMMMIMIIMIIIIf 1111111111111111111 MMMMMMMMMMMimMMII