Morgunblaðið - 13.04.1949, Síða 16
'9XOI1ÍÚTLITIÐ: FAXAFLÖI.
ÆRSLAGANGUR kommún
SUNNAN eða suðvestan
gola. Riarning öðru hverju.
ista útaf vonbrigðum þeirra,
Sjá grein á bls. 2.
Goður gestur í heimsókn
hjá Rotaryklúbbnum
ángys S. Mifchsll, forsefi alþjóðasamfaka
IRofary kemur á ymdæmisþing í Reykjavík
ÞE3SA DAGANA stendur yfir hjer í bænum þriðja um-
dæmisþing Rotaryklúbbanna á íslandi. Þing þetta sækir góð-
tir gestur, Angus S. Mitchell, forseti alþjóðafjelagsskapar
Rotary, eða Rotary International, eins og það er nefnt. Dag-
íkrá umdæmisþingsins hófst á mánudagskvöld með kynningar-
kvöldi. eh í gær var hádegisverður í Sjálfstæðishúsinu fyrir
I.ota yfjelaga og gesti þeirra. Umdæmisstjóri, sjera Óskar J.
Þorláksson flutti skýrslu, en síðan voru rædd önnur fjelagsmál.
,,öætradagur“.
í aag er von á Mr. Miíchell
flugleiðis og verður hann boð-
imi. velkominn í hátíðasal Há-
skólans'og mun hann ávarpa
samkomuna. Síðan hefst fundur
Reylrjavíkurklúbbsirts og er það
svor.afndur ..dætradagur", en
það tf siður í Rotaryfjelags-
skapnutn hjer í bæ að hafa
,,dætradag“ miðvikudaginn fyr
ii páska og bjóða þá Rotary-
fjelagar dætrum sínum. I kvöld
verður svo miðdegisverður að
HotjL Borg fyrir Rotaryfjelaga,
kor.ur þeirra og gesti.
Forseíi Rotary International.
Mr. Angus S. Mitchell er 65
ára. Hann er fæddur í Shanghai
í Kín a og var faðir hans skoskur
-skipstjóri. Ungur fluttist hann
tií Astralíu og gerðist hann
verslunarmaður og síðan iðju-
Jiót-iur mikill.
1927 gerðist Mr. Mitchell
R.ocary fjelagi, en 1936, er hann
var 52 ára sagði hann af sjer
forstjóra, og formannsstörfum í
öllum hinum umfangsmiklu
fyrirtækjum, sem hann var
síjórnandi í og helgaði sig al-
gjöriega ýmsum fjelagsmálum
og mennir.garmálum. Meðal
annars hefir hann unnið mikið
starf fyrir skátafjelagsskapinn,
R. F.U.M. og Rotary. í síðustu
styrjöld stjórnaði hann fjelags-
skap þeim. sem vann að vel-
ferðarmálum hermanna í frí-
stur.dum þeirra.
Ð-veiur tvo daga á íslandi.
Mr. Mitchell mun dvelja tvo
daga hjer á landi. Er hann á
ferðalagi til Evrópulanda. Fer
Jijeðan til Oslo. Stokkhólms og
K ..-upmannahafnar, en síðar til
annara landa.
Rotary fjelögum hjer er hið
mesta gleðiefni, að forseti al-
fíjóðafielagsskaparins skuli
koiv-.a hingað til lands og sitja
J>r ðja umdæmisþing Rotary-
fjelaganna.
Rotary fjelagsskapnum hefir
vaxið mjög fiskur um hrygg
Rjó i lanai undanfarin ár og
jnargir klubbar verið stofnaðir
•útt um land. Ríkir mikill áhugi
íyc. fjelagsskapnum, en eitt
aðaláhugamál hans er að efla
k y nmgu.'gagnkvæmt traUst og
skilning milli hinna ýmsu
stjetta þjóðfjelagsins og veita
gu.rr kvæma aðstoð í menningar
Gr- . skiptamálum milli þjóða.
Angus S. Mitchell,
forseti Rotary International.
Iimeignir bankanna
erlendis 16,4 milj.
króna í marslok
í LOK marsmánaðar nam
inneign bankanna erlendis, á-
samt erlendum verðbrjefum o.
fl., 42,7 milj. kr., að frádreg-
inn iþefrri upphæð, sem bund-
in er fyrir ógreiddum eftir-
stöðvum af kaupverði tveggja
gufutogara, sem fest voru kaup
á 1946. — Ábyrgðarskuldbind-
ingar bankanna námu á sama
tima 26,3 milj. kr., og áttu
bankarnir, að þeirri upphæð
frádreginni, þannig 16,4 milj.
kr. inneign erlendis í lok síð-
asta mánaðar.
Við lok febrúarmánaðar nam
inneign bankanna erlendis 17,6
milj. kr., að frádregnum á-
byrgðarskuldbindingunum. Hef
ir inneignin þannig lækkað um
1,2 milj. kr. í marsmánuði.
Framlag Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar í Washington,
3.5 milj. dollara, sem látið var
í tje gegn því, að íslendingar
legðu fram jafnvirði þeirrar
upphæðar í freðfiski til Þýska-
lands, hefir ekki verið talið með
í þeim tölum um inneign barik-
anna erlendis, sem birtar hafa
verið mánaðarlega. í lok síð-
asta mánaðhr var búið að nota
17.5 milj. kr. af þeim 22.8 milj.
kr., sem hjer er um að ræða,
og voru því eftirstöðvar fram-
lagsins þá 5,3 milj. kr.
SOFIA — Verslunarnefnd frá
l
Albaníu kom fyrir skömmu til
Sofia, höfuðborgar Búlgaríu og
mun verslunarsamningur milli
þessar tveggja landa undirritað-
ur innan skamms.
Nýtt bðrnaheimili
STEINAHLÍÐ, húsið, scm Barnavinafjelaginu „Sumargjöf“
licfir verið gcfið og skýrt var frá í blaðinu í gær. — (Ljósm.
Mbl.: Ó. K. M.)
Þýskaiand sfærsfa viðskipfalandið í mars
HAGSTOFAN skýrði Mbl. frá því í gærdag, að vöruskifta-
jöfnuðurinn eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs, væri óhagstæð-
ur um 13,2 miljónir króna, en í marsmánuði einum, varð vöru-
skiftajöfnuðurinn óhagstæður um 5,1 milj. kr.
----------------------------
Marsmánuður.
Það sem veldur hinum ó-
hagstæða vöruskiftajöfnuði
marsmánaðar, er . vafalaust
hin langvinna stöðvun togara-
flotans, vegna deilu sjómanna
og útgerðarmanna. í mars-
mánuði nam verðmæti út-
fluttrar vöru aðeins 22,2 milj.
kr., en innfluttrar 27,3 milj.
króna.
Jan.-mars.
Fyrstu þrjá mánuði ársins,
nemur verðmæti innfluttrar
vöru alls 83,4 milj. kr., en
útfluttrar 70,2 milj. kr. Á
þessu sama tímabili árið 1848,
nam verðmæti innflutnings-
ins 101,1 milj. og útfluttrar
vöru 82 milj. kr. og vöru-
skiptajöfnuður þá óhagstæð-
ur um 19,1 milj. kr.
Mest viðskipti við
Þýskaland.
Samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofunni, var Þýska-
land stærsta viðskiptaland
okkar í marsmánuði, en þang
að munu hafa farið íslenskar
afurðir fyrir um 12 miljónir
króna alls.
Útflutningurinn.
Stærstu liðir útflutnings-
verslunarinnar í mars urðu
þessir: Freðfiskur til Þýska-
lands fyrir um 8 milj. kr.
Til Bandaríkjanna fyrir um
1,8 milj. kr. og afgangurinn
til Hollands og Sviss. Næst
kemur lýsi fyrir alls 4,9 milj.
kr. Þar af til Þýskalands fyr-
ir 3 milj. kr., til Bandaríkj-
anna fyrir um eina miljón og
til ísrael fyrir um 500 þús.
kr. Næst kemur svo ísvarinn
fiskur fyrir alls 4,4 milj. kr.
Þar af eru aðeins sjö ísfisk-
söiur togara, en hitt bátafisk-
ur, fluttur af hjerlendum
skipum á markað í Bretlandi,
aðallega og lítilsháttar til
Þýskalands. Þá nam sala á
hrognum til Svíþjóðar um
400 þús. kr. og saltfiskur fvr-
ir um 300 þús. kr. Var nokk-
ur af honum fullþurkaður og
fór hann til Brasilíu og
Kúbu. — Aðrir liðir útflutn-
ingsverslunarinnar eru minni
og því ekki ástæða til að geta
þeirra hjer.
Fyrirhugað ferðalag
forsefa islands fil
Horðurlanda í vor
í EINKASKEYTI frá frjettarit-
ara Morgunblaðsins í Kaup-
mannahöfn er skýrt frá því, að
Berlingske Aftenavis segi, að ’
forsætisráðuneyti Danmerkur
búist við opinberri heimsókn
forseta íslands til Danmerkur
í maímánuði í vor. Bætir blaðið
því við, að síðan fari forseti í
heimsókn til Svíþjóðar og Nor-
egs.
Hefir komið til mála.
Morgunblaðið sneri sjer til
skrifstofu forseta í tilefni þessa
frjettaskeytis og í gær barst
eftirfarandi tilkynning frá for-
sætisráðuney tinu:
,,Vegna orðrórns, sem komið
hefur upp í Kaupmannahöfn,
um að forseti íslands hafi á-
formað opinbera heimsókn til
Danmerkur, Noregs og Svíþjóð-
ar skal það upplýst að þetta
hefur komið til tals, en nauð-
synlegur undirbúningur hefur
ekki verið gerður ennþá og því
heldur ekki ákveðið hvenær
slík heimsókn verði, ef til kem-
ur“.
öregið í A-flokki
í GÆRKVÖLDI var dregið í
annað sinn í A-flokki Happ-
drættisláns ríkissjóðs. Þar eð
dráttur fór svo seint fram, get
ur Mbl. ekki birt vinninga-
skrána í dag. Alls voru dregin
út 461 brjef, en vinningsúpp-
hæðin nemur alls 375 þús. kr.
Hæstu vinningarnir þrír,
komu allir upp á happdrættis-
brjef er seldust hjer í Reykja-
vík. Hæsti vinningurinn 75,000
kr., kom upp á brjef númer
592, næst hæsti 40.000 kr. á
472 og þriðji hæsti 15 þús. kr,
á brjef númer 90,225 Því næst
koma þrír 10 þús. kr. vinningar
er komu upp á númer 16,657,
brjefið var selt í Haganesvík,
þá 41,308 selt á ísafirði og
númer 66051 er selt var suður
í Haínarfirði.
Fyrsta salan í
Brellandi
FYRSTU ísfiskslandanir ís-
lenskra togara í Þýskalandi og
Bretlandi, eftir að vinnudeil-
unni lauk, hafa farið fram.
I gær seldi Keflvíkingur í
Grimsby 4098 kit fyrir 12,866
sterlingspund. Þá hefur Hall-
veig Fróðadóttir landað í Cux-
haven 272 smáh, en þetta er þó
ekki allt eigin afli, því vegna
aflatregðu, fóru þeir Skúli
Magnússon og Ingólfur Arnar-
son og Ijetu af sínum afla í
skipið. Hvalfell hefur svo
landað í Bremerhaven 273
smál. og það er ekki heldur
að öllu leyti eigin afli, því
Egill Skallagrímsson setti
nokkuð af afla sínum i Hval-
fell.
RANGOON, 12. apríl. —<- í her-
stjórnartilkynningu Burma-
stjórnar í dag, sagði, að upp-
reisnarmenn hefðu verið hrakt
ir brott úr ýmsum stöðvum
sínum undanfarið. Sjerstaklega
hefðu þeir beðið mikið mann-
tjón í Myaungmya og Pyaponl
hjeruðunum fyrir vestan Ran-
goon. — Reuter.