Morgunblaðið - 19.05.1949, Blaðsíða 1
16 síður
36. árgangur.
112. thl. — Fimmtudagur 19. maí 1949.
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Tillapn isrii launabælur lil
opinberra slarhmanna samþ.
4 miljónir kr. varið í því skyni á þessu ári
EINS OG frá var skýrt í blaðinu í gær, hófust umræður um
þingsályktunartillöguna um heimild fyrir ríkisstjórnina til að
greiða allt að 4 milj. kr. í uppbætur á laun opinberra starfs-
manna á þessu ári strax að lokinni afgreiðslu fjáiiaganna á
þriðjudagsnóttina. — Stóð fyrri umræða til kl. um 4,30, en
þá var gengið til atkvæða. Voru allar breytingatillögur felld-
ar svo og tillaga um að vísa málinu til rikisstjórnarinnar.
Þingsályktunartillagan var síðan samþykkt með 27 : 20 atkv.
og vísað til síðari umræðu.
Strax þá um nóttina var mál-
ið tekið til síðari umræðu, sem
stóð til klukkan um 6 leytið á
miðvikudagsmorgun.
L,okaafgreiðsIan.
í gær kl. 3 fór svo fram loka-
átkvæðagreiðslan um tillöguna.
Var hún samþjdikt með 26 gegn
22 atkv., en fjórir þingmenn
voru fjarverandi.
Já við tillögunni sögðu: Bjarni
Bénediktsson, Brynj. Bjarna-
son, Einar Olgeii’sson, Eiríkur
Kinarsson, Emil Jónsson, Finn-
ur Jónsson, Guðm. í. Guðmunds
son, Gunnar Thoroddsen, Gylfi
Þ. Gíslason, Axel Guðmunds-
son, Hannibal Valdimarsson.
Hermann Guðmundsson, Jóh.
Hafstein, Katrín Thoroddsen,
Lárus Jóhannesson, Ólafur
Thors, Sigfús Sigurhjartarson,
Frh. á bls. 11
Búist við uppgjöf
Shanhai fljétlega
HONGKONG, 18 maí: — Eftir
því, sem frjettaritarar í Shang-
hai herma, sækja herir kom-
múnista nú að borginni bæði úr
austri og vestri og er talið, að
þeim muni takast að einangra
borgina algjörlega á næstunni.
Miklir eldar geisuðu í dag á
Pootung-svæðinu, sem er hinum
megin árinnar, andspænis
Shanghai — Enda þótt nokkur
götuvígi hafi verið reist í Shang
hai telja frjettaritarar ekki, að
barist muni á götum borgarinn-
ar Þeir telja líklegra að stjórn
arherinn muni gefast skiÞ'rðis-
laust upp — Reuter
Átta láta lífið —
82 særasf
RIO DE JANEIRO 18.
maí. — Átta mciin ljetu
lífið og að minsta kosti
82 særðust alvarlega, er
ægileg sprenging varð í
dag í einni af æfiuga-
stöðvum hersins skammt
hjeðan frá. — Joao Mont-
eiro, ofursti og yfirhers-
höfðingi var á meðal
þeirra, er ljetu lífið.
—Reuter.
Sharet! í Prag
PRAG, 18. maí: — Utanríkisráð
hei ra Ísraelsríkis, Moshe
Sharett kom hingað til Prag í
dag frá Paris. Búist er við að
hann pnuni ræða við útanríkis-
ráðherra Tjekkóslóvakíu, —
Vladimir Clementis, — á morg'
un. — Reuter.
Ræða
fjármálaráðh
ÚTVARPSRÆÐA Jóhanns
Þ. Jósefssonar, fjármála-
ráðlierra, við framhald
þriðju umræðu fjárlag-
anna cr birt í heild í blað-
inu í dag. Er ræða'n á 2.
og 5. síðu.
Nýtt samgöngubann
Rússn í Þýsknlons
Stöðva ISOflutningavagna á leið til Barlsn
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BERLÍN, 18. maí. — Rússnesku hernaðaryfirvöldin í Þýska-
landi tilkynntu skyndilega í gærkvöldi, að 150 stórir flufn-
J ingavagnar, hlaðnir vörum, sem fara áttu til Berlínar, fengju
| ekki að fara frá Helmstedt. Ástæðuna sögðu þeir þá, að skrá
! yfir vörurnar hefði ekki verið send áður til rússneska her-
r.amssvæðisms, en engin slík ákvæði hafa verið í gildi varð-
andi verslun og viðskifti milli
i WASHINGTON, 18. maí: — Ut
anríkismálanefnd Öldungadeild
ar Bandaríkjaþings lauk í dag
umiæðum um Atlantshafssátt-
málann, er staðið hafa yfir und
anfarnar þrjár vikur. Formað-
ur nefndarinnar, Tom Conally,
skýrði blaðamönnum svo frá í
dag, að telja mætti víst að nefnd
in myndi samþykkja sáttmál-
ann með „yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða“. Hann vildi ekk
ert segja um, hvenær atkvæða
greiðsla myndi fara fram. Nefnd
in mun seríiiilega senda Öld-
ungadeildinni skýrslu sína inn-
an 10 daga, en búist er við að
deildin muni ekki greiða atkv.
um sáttmálann fyrr en eftir
nokkra mánuði. — Reuter,
Austur- og Vestur-Þýskalands.
Engin heiniild
Hernaðaryfirvöld Vesturveld
anna sendu Rússum harðorð
mótmæli þegar í gærkveldi,
vegna þessa háttalags, og bentu
á að þeir hefðu enga heimild
til þess að stöðva hina 150 flutn
ingavagna. Var þess krafist, að
Rússar afljettu þegar þessu
nýja banni sínu.
Tilgangurinn
Háttsettur breskur embættis-
maður ljet svo ummælt i Berlín
í kvöld, að augljóst væri, að
Rússar væru að reyna á alla
lund að hrifsa í sínar hendur
eins mikil yfirráð yfir verslun-
inni milli Austur- og Vestur-
Þýskalands og unt væri.
Allsherjarþingið
freslar umræðum
um nýlendur íiala
Ungverjar rjúfa
friðarsamninga
Yfirlýsing bandaríska ufanríkisráðuneyfisins
Einkaskeyti til Mbl. frá Reiiter.
WASHINGTON 18. maí. — í yfirlýsingu, sem bandaríska
utanrikisráðuneytið gáf út í dag, er ungverska stjórnin sökuð
um að hafa rofið friðarsamningana með kosningum þeim, er
hún efndi til í landinú um s. 1. helgi. — í yfirlýsingunni segir,
að þessar svonefndu ,,kosningar“ hafi verið nákvæmlega sami
skrípaleikurinn, og leikinn var í Þýskalandi nasismans, þ. e. a. s
að þeim hafi verið stjórnað í einu og öllu af valdhöfunum og
aðeins einn listi, listi kommúnista, hafi verið í framboði. —
Ekkert stjórnmálafrelsi.
„Augljóst er“, segir í vfirlýs-
ingunni, ,,að ákvæði þáð í frið-
arsamningunum, er fjallar um
stjórnmálafrelsi þegnanna, hef-
ir verið þverbrotið af ungversku
stjórninni, bæði í kosningabar-
áttunni og kosningunum sjálf-
um“.
Árangurinn.
Sagði ennfremur, að árangur
„kosninganna“ hefði orðið ná •
lcvæmlega sá, er stjórn iands-
ins ætlaðist til, þ. e. a. s. að
kosið var algjörlega kommún-
istiskt þing.
95.6%.
(í opinberri tilkynningu ung-
versku stjórnarinnar í dag um
kosningarnar sagði, að 95,6%
kjósenda hefðu kosið „Þjóð-
fylkinguna“ svonefndu, er
stjórnað er af kommúnistum.
Það var eini listinn, sem í fram
boði var).
Tillögur Breta felldar
með 37 atkv. gegn 4.
LAKE SUCCESS, 18. maí: —
Allsherjarþing S. Þ. felldi í
dag tillögu Bieta varðandi
framtíð fyrv. nýlendna ítala í
Norður-Afríku. 14 greiddu atkv.
með tillögunni, 37 á móti. — í
Tripoli. höfuðborg Tripolitaníu
var mikið um dýrðir í dag, er
það frjettist að ítalir fengju
ekki umboðsstjórn í landinu.
Múgur og margmenni safnaðist
saman á götum bcx’garinnar,
söng og dansaði og hafði í
frammi önnur gleðilæti.
Umræðum fresíað
A fundi Aiisherjax’þingsins í
kvöld var samþykkt með 50
atkv.. gegn engu (6 fulltrúar
sátu hjá), að fresta umræðum
um ítölsku nýlendurnar þar til
á næsta fundi þingsins, í
september. — Tillaga um að
vísa málinu til Litla Allsherjar-
þingsins var felld með 27 atkv.
gegn 21. ■— Reuter.
Vopu til Pakif^n.
LONDON — Alexander, varnar-
málaráðherra Breta, ljet svo um
mælt í breska þinginu í dag, að
Bretar ljetu Pakistan í tje vopn
eftir megni.