Morgunblaðið - 02.06.1949, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 2. júní 1949.
Ármana vann svig-
keppnina um SSein-
þórsbikarinn
Á UPPSTIGNINGARDAG 26.
maí s.l. fór fram sex manna
keppni í svigi. Keppt var um
Steinþórs-bikarinn. — Keppni
þessi er eingöngu flokkakeppni
án tillits til flokkaskiftingarinn
ar. Þrír flokkar komu fram, frá
skíðadeild Ármanns, ÍR og'KR
Hlutskörpust varð sveit Ár-
manns á samanlögðum tíma
633,2 sek. Næst varð sveit KR
á 633,5 sek. og þriðja í röð-
inni varð ÍR-sveitin á 686.7
sek.
I sveit Ármanns voru þessir:
Bjarni Einarsson úr C-flokki,
Gísli Jóhannsson úr drengjafl..
Kristinn Eyjólfsson úr C.flokki
Magnús Eyjólfsson úr EWflokki,
Stefán Kristjánsson úr A-flokki
Víðir Finnbogason úr B-flokki
Fyrstur í þessari keppni varð
Þórir Jónsson KR á samanl.
tíma 94,4 sek. — Annar varð
Stefán Kristjánsson A á saman-
lögðum tíma 96,3 sek. Þriðji
varð Guðm Sigfússon ÍR á sam-
anl. tíma 96.7 sek.
— Meða! annara orða
Frh. af bls. 8.
í SKUGGA DAUÐANS
Dr. Polak kemst ennfremur
svo að orði:
Um þessar mundir byggja
kommúnistar fangabúðir í
landi mínu. Þar er þúsundum
landa minna haldið, og þeim
misþyrmt, eins og föngum
þeim, sem eru í fangabúðum
Rússa.
Hvergi geta kommúnistar
haldið völdum, nema þeir
beiti ofbeldi og misþyrming-
um. Þannig halda þeir völdun-
um í Rússlandi. Og sama sagan
endurtekur sig, hvar sem þeir
. fá yfirhönd.
Þjóð mín lifir nú, eins og
í guðspiallinu stendur, ,,f
skugga dauðans“.
Slálko
óskast um 2ja mánaða
tíma í sumarbústað við
Álftavatn. Þarf að geta
tekið að sjer að hugsa um
tvö börn í fjarveru hús-
móður, 3—4 daga í viku.
(Miðhluta vikunnar). —
Aðeins vönduð stúlka kem
ur til greina og má hún
hafa með sjer stálpað
barn. Tilbog ásamt uppl.
sendist aígr Mbl., merkt
„Álftavatn—756“.
Vilja vingasf við Rússa
SAN FRANCISCI, 1. júní: —
Útvarp kommúnista i Peiping
tilkynnti í dag, að kínverskir
kommúnistar myndu vinna að
því eftir megni að „treysta vin-
áttuböndin milli rússnesku og
kínversku þjóðarinnar11. Sagði
í útvarpinu, að þetta hefði ver-
ið samþykkt á fundi verkalýðs
samtaka „alls Kína“,' sem hald
inn var í Peiping 30. maí s.l. —
•— Reuter.
Eisler mótmælir.
PRAG, — Gerhardt Eisler, sem
nú er á leið hingað um Þýska-
land, hefur mótmælt því harð-
lega, að kona sín skuli höfð í
haldi á Ellis-eynni, við New York
- (yrenaica
Framh. á bls. 12
stjórn í Cyrenaica, austurhluta
Lybíu.
Kröfðust sjálfstæðis.
í mótmælaorðsendingu sinni
gat sendinefndin þess, m. a. að
Cyrenaica krefðist sjálfstæðis.
að landsmenn myndu ekki
sætta sig við neinskonar um-
boðsstjórn, og ef þeim yrði veitt
sjálfstæði, þá myndu þeir reiðu-
búnir til þess að gera samning
við Bretland.
í útlegð í 21 ár.
Idris E1 Senussi er andlegur
og veraldlegur leiðtogi 250,000
Cyrenaicabúa, er afi hans sam-
einaði undir eina stjórn fyrir
einni öld. Frá 1923 voru þeir
undir stjórn ítalskra fasista, og
Emir þeirra dvaldi í útlegð í
Egyptalandi til ársins 1944. —
Bretar hafa haft á hendi her-
stjórn landsins frá því styrj-
öldinni lauk.
Tvö tímarit Vestur-íslendinp
—-Ráðslefna
Fnamh, af bls. 1
að ákveðið yrði fyrirfram hvaða
mál þyrfti að samþykkja með
öllum greiddum atkvæðum í
herráðinu, og hvaða mál væri
hægt að útkljá með einföldum
meirihluta atkvæða.
«tiiiiriiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiill||l||||||||||||||u,||llll
Lítið
Herbergi |
í kjallara, með sjerinn- f
gangi til leigu. Uppl. á I
Hagamel 22 III. hæð eftir I
kl. 6. I
HINGAÐ hafa nýskeð borist
tvö tímarit Vestur-Islendinga,
og eiga bæði merkisafmæli.
Annað er Tímarit Þjóðrækn-
isfjelagsins og er þetta 30 árg.
þess. Ritstjóri er Gísli Jónsson,
eins og að undanförnu. Efni
ritsins er fjölbreytt að vanda
og frágangur hinn prýðilegasti.
Eru þar kvæði eftir Guttorm J.
Guttormsson (Brodd-Helgi),
Ríkarð Jónsson (Jón í Skjalg),
Þórodd Guðmundsson (I Hauka
dal), Snæbjörn Jónsson (W. P.
Ker prófesor), Gísla Jónsson
(Litla stulkan), J. Magnús
Bjarnason (ljóðabrjef) og X
(Símon á staurnum).
Þá eru þarna greinar um
nokkra menn. Sjera H. E. John-
son ritar um tónskáldið Jónas
Pálsson, Richard Bech ritar um
Ríkarð Jónsson í tilefni af sex-
augsafmæli hans, og dr. Stefán
Einarsson ritar um prófessor
Kemp Malone sextugan. Hann
er prófesor í enskum fræðum
við John Hopkins háskólann í
Baltimore, þar sem dr. Stefán
er prófesor í norrænum fræð-
um. Segir dr. Stefán að hann
ætti það skilið að vera Islend-
ingum miklu kunnari en hann
er. „Prófesor Malone hefur að
vísu aldrei haft tækifæri til að
kenna íslensku. En lymn hefur
skrifað einhverja hina nákvæm
ustu lýsingu, sem til er, af ís-
lenskum framburði. hann hefur
lesið öll fornrit í bókum og
greipum, sem sem því miður
eru grafnar í fræðiritum bæði
vestan hafs og austan . . . Auð-
sjeð er, að það er ekki á neins
meðalmanns færi að hreyfa sig
innan um þennan myrkvið
hinna fornu sagna — á knús-
aðri miðalda latínu, íslensku og
öðrum forngermönskum málum
— án þess að festa fót og falla
á sjálfs sín bragði. En það er
eigi aðeins undravert, hversu
mikið Malone verður úr því
litla, sem mönnum er kunnugt
um á þessum myrku sviðum og
má þar til nefna grein hans um
„Aegelmund og Lamicha", sem
snertir Helgakviðurnar í Eddu
— heldur líka hitt, hve fádæma
fundvís hann er á þá hluti, sem
öðrum hefir með öllu sjest yf-
ir“. Fylgir svo skrá yfir 34
ritgerðir Malone, sem nota og
skýra fornnorræn rit.
Dr. Sigurður Júl. Jóhannes-
son ritar um dr. Rich. Bech, sem
var varaforseti Þjóðræknisfje-
lagsins í sex ár og forseti þess
í önnur sex ár og hefir allra
manna mest unnið að sam-
heldni íslendinga austan hafs
og vestan og kynningu íslensks
atgjörvis út á við, samhliða um-
fangsmiklum kenslustörfum við
háskóla. Segir dr. S. J. J. svo
um hann: „Kynningarstarf dr.
Bechs er mikið og margbrotið,
en það er yfirleitt í þremur
liðum: Það er að kynna sem
nánast hvora öðrum Vestur- og
Austur-Islendinga og með því
að styrkja sem best samvinnu
og bróðurlegt hugarþel milli
þeirra; í öðru lagi að kynna ís-
lendingum hjer og heima er-
lendar bókmentir og erlenda
menningu; í þriðja lagi — og
umfram allt — að kynna hinum
enskumælandi þjóðum íslensk-
ar bókmentir, íslenskan skáld-
skap yfirleitt og íslenska nú-
tíðarmenningu“.
Sjera Valdemar J. Eylands
skrifar grein, sem hann nefnir
„Hauður og haf“. Lýsir hann
þar hlýlega Suðurnesjum óg
kynnum sínum af Suðurnesja-
mönnum þetta ár, sem hann var
prestur á Útskálum. Er það
skemtileg grein, sem búast má
við að aUir Suðurnesjamenn
vilji eiga, fjörlega rituð, krydd-
uð með smá frásögnum (s. s.
um Stapadrauginn), en um
fram allt sönn skyndimynd af
þjóðlífinu.
Þá er þarna útvarpstyindi
Ástríðar Eggertsdóttur um
blindu stúlkuna í Kolmúla, hug
leiðingar út af afmæli Guttorms
skálds, ritgerð um kvæðabók
Bjarna Þorsteinssonar frá Höfn
í Borgarfirði eystra og skýrsla
um 29. ársþing Þjóðræknisfje-
lagsins og störf þess.
Hitt ritið er Almanak Ólafs
S. Thorgeirssonar og er það 55.
árgangur. Ritstjóri þess er nú
Richard Bech. Eru þar greinar
um merka menn. Ritstjórinn
skrifar um Magnús Markússon
skáld, sem er nýlega látinn. —
Kannast flestir íslendingar við
ljóð hans. Hitt munu fæstir vita
að Magnús var mikill íþrótta-
maður á yngri árum. Vann hann
sjer frægðarorð „fyrir sigur-
vinninga sína í kapphlaupum,
sem háð voru í Winnipeg, en
hann hlaut þrisvar sinnum
fyrstu verðlaun í þeim, og jók
með þeim hætti á hróður landa
sinna í Vesturheimi“. Mættu
íslenskir iþróttamenn hjer
heima halda því á lofti.
Þá er grein eftir sjera Sig-
urð Ólafsson um Pál Jónsson
landnámsmann að Kjarna í
MiMfr'«■;•«]•• íiijiiiiimiigi
Mar!kó»
uuHmmiuMiimu
Eftir Ed Dodd
THAT AAAY BE A
CLUE, ANDV...VÆ'LL
KEEP AN EVE ON THM
old eov/
m
Markus sjer, að Vígbjörn fer Binni, þetta er Vígbjöm. Þaðj
inn í símaklefann við hliðina | er allt undirbúið. Það verður
.... og heyrir að hann er að 1 þá í nótt. En við verðum að
tala við mann í símanum: —jvera varkárir og....
Þegar Vígbjörn hefur talað í
símann, gengur hann aftur burt,
en Markús hcfur heyrt allt.
— Hver veit nema þetta sje
lausnin, Andi. Við verðum að
minnsta kosti að hafa vakandi
auga með honum.
Geysisbyggð. Páll var ættaður
frá Heiði í Gönguskörðum, en
fæddur á Álfgeirsvöllum 1848
og því 100 ára, þegar greinin
var rituð, og þá enn ern og við
sæmilega heilsu.
Sjera Sigurður S. Christop-
hersson ritar um Oddnýju Magn
úsdóttur Bjarnason ljósmóður,
sem dó 1922. Hún var fædd í
Vestmannaeyjum 1855, en fór
til Vesturheims með manni sín-
um 1888 og settust þau að í
Saskatshewan. Vann hún sjer
þar brátt almennings álit fyrir
ljósmóðurstörf og var hennar
leitað af margra þjóða mönnum
nær og fjær. Alls tók Oddný á
móti 840 börnum, þar af 611
íslenskum.
Sjera Sigurður Ólafsson ritar
um Ólaf Guðmundsson Nordal
og Margrjeti Ólafsdóttur konu
hans, sem voru frumbyggjar í
Selkirk í Manitoba. Ólafur var
bróðir Jóhannesar Nordals ís-
hússtjóra. G. J. Ólason ritar
grein um sjera Sigurðs Ólafs-
son.
Þá er ferðasaga frá Vopna-
firði til Winnipeg 1889 eftir
Svein Árnason og sönn smá-
saga frá landnámsárunum og
heitir „í þreskingu“. Eyólfur
var frá Fjósum í Laxárdal,
Dalasýslu og fluttist vestur
1888. Segir hann hjer frá því
hver mjög var litið niður á ís-
lendinga vestra fyrst í stað, ög
hvernig einn landinn jafnaði
um gúlana á ribbalda nokkrum,
og vann sjer og öðrum íslend-
ingum álit fyrir.
Bergur Jónsson Hornfjörð
skrifar um Kolbeinsey norður
og dregur þar saman ýmsar
heimildir. Bergur er frá Hafna-
nesi í Hornafirði og fór vestur
um haf 1902. Hcfuf hann unn-
j ið að fræðilegum iðkunum í tóm
! stundum sínum og getur ritstj.
• þess, að hann haíi sent sjer
jtvær stórar bækur (handrit)
1 með alls konar sögulegum fróð_
ieik. er hann hafði viðað að sjer
úr ýmsum áttum, og úr því safni
er Þessi grein. Er þetta enn eitt
dæmi þess, að í stjett íslenskrar
alþýðu finnast enn fróðleiks-
menn, sem halda til haga ýmsu,
er glatast mundi a$ öðrum kosti.
Að Iokum er annáll íslend-
inga vestan hafs 1947—48 og
mannslát á árunum 1945—48.
Nokkur eir.tök af Almanak-
inu hafa verið send hingað til
sölu.
Það ber vott um þrautseigju
landans, að þetta rit skuli nú
vera orðið 55 ára gamalt. Er
ur því verið gefinn allt of lítill
gaumur hjer á landi.
Fimm verkföll
á Ífalíu
RÓM, 1. júní: — Fimrn verk-»
föH standa nú yfir á Ítalíu og
ót.tast er, að fleiri kunni að
skella á á næstunni. Verkfajl
einnar milj. og 500 þúsund
landbúnaðarverkamanna hefir
nú staðið yfir í þrjár vikur og
eru engar horfur á því, að það
muni leysast á næstunni -—
Auk hinna fimm verkfalla
lýstu stúdentar í Róm yfir
„allsherjarverkfalli" { dag, í
mótmælaskyni við það að
kennslugjöld í háskólum haf-a
nú hækkað um 6000 lírur.