Morgunblaðið - 03.06.1949, Page 1
16 siSuir
Hýjar fiESögyr í Berlínardeilunni
Yesfurveldin vilja siýjar kosn-
inpr fif borprsíjórnar
Einkaskcyti til Mbl. frá Reuter.
PARIS, 2. júní. — Viðræður utanríkisráðherra fjórveldanna
hjeldu í dag áfram og var Bevin utanríkisráðherra Breta í for-
sæti. Þessi fundur var sá stygti, sem enn hefur verið haldinn.
en á honum skeði það merkilegt, að Dean Acheson utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, bar fram tillögur Vesturveldanna til
að leysa Berlínarvaldamálið. Eftir það var fundi slitið en
Vishinsky utanríkisráðherra Rússa bað um frest til annars
kvölds, svo að hann hefði tíma til að kynna sjer tillögur þessar
til hlítar.
Aðalefnið í tillögum Vest-*5 . " 11
Ui'veldanna er þetta:
1. Að hafnir verði að nýju
r.eglulegir fundir hernámsstjór-
anna í Berlín.
2. Að haldnar verði frjálsar
_almennar borgarstjórnarkosn-
ingar í Berlín_
3. Að ný borgarstjórn setji
nýjar stjórnskipunarreglur fyr
ir borgina.
4. Að. hernámsyfirvöldin
reyni að lækka hernámskostn-
aðinn með góðri samvinnu í
framtíðinni.
Vesturveldin þrjú saman
Tillögur þessar voru bornar
fram af Acheson utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna en í sam-
ráði við utanríkisráðherra Breta
og Frakka, enda höfðu þeir
þrír setið á fundi skömmu áð-
ur og komið sjer saman um
efni og orðalag tillagnanna.
Beðið eftir svari Vishinskis
Vishinski, utanríkisráðherra
Rússa, bað um frest til að rann
saka tillögurnar. Bevin stakk
þá upp á því, að fundi yrði slit-
ið í dag og næsti fundur yrði í
fyrramálið, en Vishinski vildi
lengri frest og verður næsti
fundur haldinn annað kvöld.
Bíða menn með eftirvænting'u
eftir þeim fundi og svari Vis-
hinskis, því að ef hann gengur
að þessum tillögum, táknar það
mikla breytingu til batnaðar.
Þriggja ára
lýðveldisafmæli
RÓMABORG, 2. júní. — í dag
vpru þrjú ár síðan lýðveldi var
komið á í Italíu. Forseti Italíu.
Forseti Italíu Luigi Einaudi,
bárust skeyti hvaðanæfa að af
því tilefni. Reuter.
Hersýning í Róm
RÓM, 1. júní. — Tveggja
klukkustunda hersýning var
haldin hjer í Rómaborg í dag,
á þriggja ára afmælisdegi ít-
alska lýðveldisins. Fimmtán
þúsund hermenn tóku þátt í
hersýningunni, sem er sú
stærsta er haldin hefur verið á
Italíu, síðan styjröldinni lauk.
Hvítasunnuferð
Heimdaliar
EINS og áður hefir verið getið,
efnir Heimdallur til kynnis- og
skemtiferðar til Vestmanna-
eyja um hvítasunnuna. Farið
verður til Eyja eftir hádegi á
morgun og komið til baka á
mánudag. Farið verður flugleið-
is báðar ferðir.
í sambandi við heimsókn
Heimdellinga, halda ungir Sjálf
stæðismenn í Vestmannaeyjum
fjölbreytta útbreiðslusamkomu
í samkomuhúsi bæjarins á
sunnudagskvöld. Meðal ræðu-
manna á' samkomunni verða:
Jóhann Þ. Jósefsson, fjármála-
ráðherra, Alfreð Andrjesson
leikari, syngur gamanvísur.
Bláklukkur syngja og leika á
gítar, sýndur verður stuttur
gamanleikur, að síðustu verður
dansað og leikur hljómsveit
Aage Lorange fyrir dansinum.
Söngvari með hljómsveitinni
verður Haukur Mortens.
Þeir Heimdellingar, sem
ætla að taka þátt í ferðinni,
þurfa að kaupa sjer farmiða í
dag í skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins.
Sfjórnmálasam ■
band við Spán
SVO sem tilkynnt var s. 1.
haust hefir orðið samkomulag
að taka upp stjórnmálasamband
milli Islands og Spánar. —
Spánska stjórnin hefir nú
skipað de Torata sendiherra á
Islandi, en hann er jafnframt
fulltrúi Spánar í Noregi, og
ætlunin er að Pjetur Bene-
diktsson sendiherra í París
verði einnig sendiherra íslands
í Madrid.
(Frjettatilkynning frá
utanr íkisráðuney tinu).
Komin kyrrð á í tinnámunum.
LA PAZ — Bolivíustjórn til-
kynnti í gær, að her hennar hefði
náð tinnámunum við Potosi á
sitt vald en þar höfðu verka-
menn gert uppreisn. Allt er nú
með kyrrum kjörum við nám-
urnar.
AÐVRINN SEM OLLI
EIKJIJMJM HAIMD-
TEKIIVIIM í SOGAMYRI
Fær verðlaun
Robert E. Sherwood, hinn kunni
ameríski rithöfundur, sem skrif
aði bókina „Roosevelt og Hop-
kins“, scm vakið hefur geysi-
mikla athygli í Bandaríkjunum
og hlotið óhemjumikla sölu
fjekk fyrir hana hin svonefndu
„Gutenberg“-verðlaun, en það
eru bókaútgefendur í Ameríku,
sem standa að sjóði þessum,
Verslun Breflands
og Kanada
LONDON, 2. júní: — Harold
Wilson verslunarmálaráðherra
Bretlands er nýkominn heim
úr ferð sinni í Kapada og
Bandaríkjunum. Hann sagði
eftir heimkomuna, að vegna
mikillar verslunarsamkeppni í
Kanada væri nauðsynlegt að
breskir framleiðendur veittu
kanadískum verslunarmönnum
söm best kaupkjör. — Reuter.
Churchill og Aftlee
sækja Evrópuþingið
BONDON, 2. júní: — Breska
þingið hefir ákveðið hverjir
skuli verða fulltrúar Bretlands
á Evrópuþinginu, sem innan
skamms mun koma ‘saman í
Strassburg_ Kosnir voru 11 af
þingmönnum verkamanna-
flokksins, sex frá íhaldsflokkn
um og einn frá Frjálslyndum.
Meðal þingfulltrúanna verða
Winston Churchill og Attlee.
— Reuter.
Njósnai'i deyr.
LONDON — Von Rinteln, sem
var njósnari fyrir Þjóðverja í
Bretlandi í heimsstyrjöldinni
fyrri, ljest nýlega í London, 65
ára að aldri.
Cióð lýsing sjónorvotta
miðveldaði lögregl-
unni handtökuna
Hefur m. a, jáfað á sig netagerðarbrunann
SAMSTARF BORGARA og lögreglu hefur leitt til þess, að
eitt hið alvarlegasta mál, sem rannsóknarlögreglan hefur haft
til meðferðar, hin grunsamlegu upptök allmargra bruna hjer
i Reykjavík upp á síðkastið, er nú leyst. Meðal þessara bruna
er eldsvoðinn mikli í Netagerð Björns Benediktssonar.
Tuttugu og sex ára gamall maður, Guðmundur Magnússon
verslunarmaður, til heimilis að Tangagötu 19 á ísafirði, játaði
í g'ærkvöldi fyrir rjetti, að vera valdur að brunanum í Fischer-
sundi og sjö brunum öðrum, m. a. Netagerðarbrunanum, sem
fyrr segir.
Fyrir rjettinum skýrði Guðmundur frá því, að hann gæti
ekki gefið neina skýringu á því, hver ástæðan væri fyrir því,
að hann hefði framið íkveikjur þessar. Hann kvaðst hafa verið
meira og minna drukkinn, við allar íkveikjurnar.
Þessi ógæfusami maður,1
mun ekki vera heill á geðsmun-
unum. Hann veiktist í vetur af
lömunarveiki. Fyrir nokkrum
vikum var hann fluttur hingað
til Reykjavíkur til skyldfólks
síns, en þá var farið að bera
mjÖg á geðbilun hjá honum.
í gærmorgun.
Það voru atburðirnar í gær-
morgun, er leiddu til handtöku
Guðmundar Magnússonar. Eft-
ir að hafa kveikt í vörugeymslu
húsinu Vesturgata 3 B, sem
skýrt er frá á 16. síðu blaðsins,
stal hann bifhjóli. A því hefur
hann farið inn á Sunnutorg í
Langholti, en þangað gabbaði
hann slökkviliðið. Þaðan fer
hann svo vestur í bæ og stelur
fólksbifreiðinni R-3624. Henni
ekur hann út fyrir bæ og er á
leið til Reykjavíkur ,er hann
ekur útaf veginum milli Blika-
staða og Korpúlfsstaða og þar
kemur eldur upp í henni. —
Slökkviliði og lögreglu er gert
aðvart um brunann í bílnum
og hófst nú skipuleg leit að
Guðmundi. Magnússyni, því
hann var hvergi nærri er lög-
regla og brunalið kom.
Leitin — handtakan.
Kl. 8 í gærmorgun fóru
fyrstu lögreglumennirnir af
stað í leit að Guðmundi og flest-
ir starfsmenn rannsóknarlög-
reglunnar tóku þátt í henni. —
Var leitað fram til kl. rúmlega
fjögur, en þá sást til ferða
manns í Sogamýri, er grunsam-
legur þótti. Lögreglumönnum
var gert aðvart.
Strax þótti sýnt að eitthvert
sambandi myndi vera á milli
bílþjófnaðarins og bifhjólsins.
Allmargir borgarar höfðu sjeð
til ferða manns á bifhjóli undir
morgun í gær, bæði við Sunnu-
torg og í Hlíðunum. Þetta fólk
gaf rannsóknarlögreglunni sam
hljóða lýsingu á manni þessum,
svo að lögreglumennirnir gátu
gengið að honum og tekið hann
höndum tafarlaust.
I allt gærkvöldi vann rann-
sóknarlögreglan að máli þessu,
og um kl. 11, boðaði Valdimar
Stefánsson sakadómari blaða-
menn á sinn fund í hegningar-
húsinu og skýrði þeim frá máli
þessu. Voru þar mættir auk
hans, yfirmenn rannsóknarlög-
reglunnar.
Spor upp í Hamrahlíð.
Þegar rannsókn málsins
hófst við hinn brunna bíl sem
skemmdist mikið, sáust glöggt
hvar spor lágu frá honum, upp
í Hamrahlíð, og þau voru síð-
an rakin norður af fjallinu.
Um þessar slóðir leitaði mjög
fjölmennur hópur lögreglu-
manna í allan gærdag, en án
árangurs.
Á gangi eftir hitaveitustokk.
Klukkan rúmlega 4 í gær,
sáu menn við rafmagnsstöðina
við Elliðaár, að maður kom
gangandi eftir hitaveitustokkn-
um og stefndi til bæjarins.
Hann gekk yfir Elliðaárnar á
stokknum, en er hann kom á
móts við lögregluvörðinn við
Framh. á bls. 4