Morgunblaðið - 06.07.1949, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADI&
Miðvikudagur 6. júlí 1949.^
Laura Zimsen í
eftir 30 ár
Minningar úr Halnarfirði
FVRIR nokkrum dögum kom (
hingað í heimsókn frk. Laura J
Zirnsen, systir Knud Zimsen
fyiverandi borgarstjóra. Hún
liefur ekki komið til íslands í
y/ir 30 ár.
Hún. er búsett í Silkiborg. en j
hyr dvelur hún á heimili bróð- J
ur síns, Knud Zimsen, og konu
hans, fm Onnu.
Þó frk. Laura hafa alið mest-
an áldur sinn erlendis, talar
tn'm svo hreina íslensku, að ekki
er hægt að heyra, að hún hafi
nokkursstaðar verið búsett ann
arsstaðar en hjer.
Hún er ákaflega yfirlætislaus
og viðkunnanleg eldri kona. Er
jeg hitti hana að máli á dög-
uuum, kvaðst hún sjaldan mæta
íslendingum í Silkiborg. Þó
stundum komi það fyrir, þegar
hún fer með skemmtibátum eft-
ir vötnunum þar, þá heyri hún
fóík tala íslensku og gefi sig
þá frarn Og þegar landar koma
í heimsókn til hennar, þá hafi
bún það fyrir sið að fylgja þeim
ux>p á ,,Himmelbjerget“ svo þeir
geii þar kynnst hinni dönsku
„fjallanáttúru". Þó hún sje ó-
svipuð hinni íslensku, getur hún
ah' fyrir það verið fögur.
Þegar talið barst að bernsku
og uppvaxtarárum hennar hjer
hr-iina, var það auðfundið, að
það er henni hugleikið að rifja
upi» minningarnar úr Hafnar-
fii'ði Eri bróðir hennar, Knud
Zimsen hefur, sem kunnugt er,
í. æfiminningum sínum, sem
komu út í vetur, lýst bernsku-
heimili þeirra m. a. hinum sjer-
kennilega. gáfaða og glaðværa
ffiður þeirra. Chr. Zimsen versl-
ujiarstjéra.
Margt í frásögn frk. Lauru,
þef.sa stuttu stund, sem jeg átti
taj við hana, leiðir hugann til
þoirra miklu breytinga, sem orð
ið hafa á daglegu lifi kaupstaða
barna, frá því í ungdæmi henn-
ar á níunda tug nítjándu ald-
arinnar. Þegar Hafnfirðingar t.
d. fóru í berjamó með krakk-
ana sína einu sinni til tvisvar
á sumri, og fluttu þau í hripum.
„Við vorum stundum þrjú syst-
kinkin í sama hripinu, og fegin
urðurn við, þegar við losnuðum
új þeirri prísund“, sagði hún.
Faðir yðar hefur. eftir lvs-
ingunni að dæma, verið einstak
ur uppeldisfræðingur.
Já, það mátti segja. Hann gaf
sjer alltaf tíma til að vekja og
g) eða áhuga okkar barnanna
og skemmta okkur á alla lund,
H -nn var glaðvær maður. Hann
vildi kenna okkur að syngja. En
til i ’ess vantaði okkur hæfileik-
an i Sjálfur söng hann mikið.
Þegar hann var á ferð á hest-
urn milli Hafnarfjarðar og
Rcykjavíkur, hafði hann þann
síð að syngja alla leiðina við
rau.it. Oft var það þá þessi
ví:;a: ,.Oft hefur hann slæmur
verið, — en aldrei eins og nú“.
Þá voru ekki gerðar miklar
ki ifur til þæginda eða skemmt-
aria Þegar ekki fengust jóla-
t'j'", þú smíðaði pabbi handa
okkur trje úr smáspítum og mál
aði og setti á það skraut, sem
við sjá.lf bjuggum til. Þetta varð
stórkostleg hátíð í okkar aug-
um. Enda fundum við, að marg-
ir áttú við þrengri kost að búa
í Firðinum en við. Það kom í
ljós. þegar mamma var að senda
okkur með gömul föt eða eitt-
hvað matarkyns til fátæka
fólksins fyrir jólin. En við feng
um til sælgætis bjór með sykri,
í staðinn fyrir limonade eða
brent rauðvín.
Laura Zimsen.
Mjer et' í fersku minni, þegar
bræður mínir gerðu veginn upp
á Hörðuvelli, byggðu brú yfir
lækinn og hvaðeina. Þetta var
mikið mannvirki í mínum aug-
um. enda bar vegurinn lengi
nafnið Bræðravegur. Mjer fanst
jeg eiga part i honum sjálf, af
því jeg hafði að minnsta kosti
fært þeim mat og kaffi, meðan
þeit voru við vegargerðina. mat
á disk, sem bundinn var á klút,
og kaffi á flösku í sokkbol.
Gamla fólkið kunni því best,
að unglingarnir vendu sig
snemma á að vinna. Þesvegna
leist ömmu minni ekki á, þeg-
ar hún varð þess vör, að Jes
bróðir okkar eyddi jafnan löng-
um stundum í að rabba við sjó-
mennina niðri á bryggju, þegar
þeir voru að koma úr róðri.
Hann vildi alltaf vera þar sem
sjómennirnir voru. Það var við-
kvæði gömlu konunnaf við
hann: Ekki veit jeg hvernig þú
átt nokkurntíma að geta sjeð
fyrir konu og börnum, sem eyð-
ir tímanum svona. Að vísu
hafði Jes nokkurn tíma til að
bæta ráð sitt. því þegar hann
fjekk þessar leiðbeiningar frá
gömlu konunni. var hann ekki
nema tíu ára.
Er frk. Zimsen var komin
þetta langt með endurminning-
ar sínar. kvaddi jeg hana að
þessu sinni, og óskaði henni á-
nægjule.grar sumardvalar á
fornum slóðum.
V. St.
Yfiriýsiag (ripps
í da§
LONDON. 5.- júlí — Staford
Cripps. fjáimálaráðherra, mun
flytja þýðingarmikla yfirlýs-
ingu í breska þinginu á morg-
un. — Er talið að hann
skýri frá nýjum aðgerðum til
að vernda dollaraeign Breta.
— Reuter_
Verslunarskóla-
slúdentarnir koma
heim í dag
STÚDFNT ARNIR, SPin út-
skrifuðust úr Verslunarskóla ís
lands í vor, hafa verið á ferða
lagi um Norðurlönd, ásamt
skólastjóranum Vilhj. Þ Gísla
svni, siðan þeir luku prófinu
og koma þeir heim flugleiðis í
dag, eftir fróðlega og skemmti-
lega ferð- Stúdentarnir voru út-
skrifaðir 10. júni, þeir eru 17,
sextán piltar og ein stúlka,
Margrjet Sigurðardóttir. Hæstu
einkunn hlutu Þórður B. Sig-
urðsson I. ág. 7,51. Knútur
Jónsson I. 7,26 og Jón Brynjólfs
son I., 7,22. (Östedkerfi, hæst
8). Brautskróningin fór fram
við hátíðlega athöfn i skólanum
og fór skólastjóri utan j f gar að
henni lokinni og stúdentarnir
rjett á eftir með „Drottning-
unni“. Fljeldu þeir 17. jú-ní há-
tíðlegan á skipsf jöl og hjelt Þórð
lír B. Sigurðsson þar ræðu og
var þar mikill söngur og gleð-
skapur og var svo ávallt síðan,
þar sem stúdfcíitarnir fói a. Þeir
komu fyrst til Hafnar en höfðu
þar stutta viðdvöl í það sinn, og
fóru til Stokkhólms og síðan til
Oslo og Hafnar aftur.
I ferðinni voru skoðnð ýmis
verslunar- og framleiðslufyrir-
tæki og verslunarskólar og ferð
ast allvíða, eftir því sem gjald
eyrir leyfði- M.a- var f rin á-
nægjuleg ferð til Uppsala, far-
ið um nágrenni Oslo og ferð-
ast um Sjáland. Norræria fje-
lagið hafði aðstoðað við undir-
búning ferðarinnar. Það ann-
aðist móttöku stúd&ntanna í
Stokkhólmi með miklum höfð-
ingsskap og sátu þeir ]iar veisl-
ur Kaupmannasambandsins,
Samvinnufielaganna, sem áttu
fimmtíu ára afmæli þessa dag-
ana, og Búnaðarsambandsins,
og voru skoðuð ýmis fyrirtæki
þeirra og að lokum var setið
boð Norræna fjelagsins og
Sænsk-íslenska fjelagsins. 1
Oslo sátu stúdentarnir hoo
Gísla Sveinssonar sendiherra og
konu hans, og sátu þar í góðum
fagnaði. Enginn af stúdentun-
um hafði áður farið ’atan og
varð þessi námsferð hæði til
nytsemdar og skemmtunar.
Væntanlega mun emhver
þátttakendanna segja nokkrar
ferðaminningar sínar hjer í
blaðinu síðar.
Jóhann Kristmundsson frá Goðdal
Misti fótinn, getur enga
útivinnu stundað
u i
ALLIR kannast við Jóhann
bónda Kristmundsson, frá Goð-
dal, er lenti í mannraununum
miklu þegar snjóflóðið fjell á
bæ hans í desember s. 1. Segja
má, að öll þjóðin hafi tekið þátt
í raunum hans. Svo einstæðar
voru þær.
Nú er Jóhann fyrir nokkru
kominn af Landsspítalanum. En
þangað var hann fluttur, eftir
að hann fannst í snjóflóðinu.
Og þar hefir verið gert að sár-
um hans, þeim líkamlegu.
Spurt um inneígnir
Ísraels-ríkis
LONDON, 5. júlí — Sir Stafford
Cripps, fjármálaráðherra neit-
aði í dag í breska þinginu að
skýra frá sterlingspunda inn-
eign Ísraelsríkis í Bretlandi.
Hann kvað það ekki leyfilegt að
skýra opinberlega frá sterlings-
punda inneign. Hinsvegar
skýrði hann frá því, að helsta
ástæðan fyrir sterlingspunda-
eignum ísraels væri kostnaður-
inn af hernámi Breta í Pales-
tínu á undanförnum árum.
—Reuter.
Yfir milljón í ísrael.
TEL AVIV — Innflutningur Gyð
inga til ísrael hefur verið geysi-
mikill á síðasta ári. Ibúatala
landsins er nú komin yfir eina
milljón. Eru Gyðingar um 900
þús. og Arabar um 120 þús.
Jóhann Kristmundsson.
Snorri Hallgrímsson hefir
verið læknir hans. Hann varð
að taka hægri fótinn af Jó-
hanni, skamt fyrir neðan hnje.
Sakir þess hve blóðrásin hafði
stöðvast til fótanna, á meðan
Jóhann var fastur í fönninni,
var ekki hægt að bjarga hægri
fætinum. Hann var tekinn 19.
febrúar.
Sú mikla læknisaðgerð gekk
vel, en á vinstri fæti voru sár,
sem seint hafa viljað gróa, og
ekki eru fullgróin enn. Svo Jó-
hann verður að koma á spítal-
ann til Snorra læknis annan
hvorn dag ennþá.
Jeg hitti Jóhann að máli fyr-
ir nokkrum dögum. Hann get-
ur staulast um innan húss, með
gerfifót, sem hann hefir fengið,
til bráðabirgða. En ekki er hægt
að láta hann fá fót til fram-
búðar, fyrri en lengra er liðið
frá uppskurðinum.
Það er skemtilegt að ræða
við Jóhann, því hann er glögg-
ur maður og greindur vel. Og
kjarkmaður er hann í besta
lagi. Það leynir sjer ekki í við-
tali. Enda ber öll saga hans
það með sjer.
Alúðarþakkir fyrir hlýhug
og vingjafir.
Jóhann bað mig að skila al-
úðarkveðjum sínum til allra
þeirra mörgu, sem á undanförn-
um mánuðum hafa sýnt honum
vinarþel, með því að senda hon
um glaðning og hughreystingu,
í peningagjöfum stórum og smá
um. Að sjálfsögðu hefir slíkur
fjárstyrkur komið sjer vel fyrir
hann. Sagði hann mjer, að vin-
arþelið, sem hann hefði fundið
með þessum sendingum, og sam
úðin, hefði þó orðið sjer ennþá
mikilvægari á mörgum döprum
stundum. Eins bað hann mig að
bera starfsfólki Landsspítalans
sínar bestu þakkir, fyrir ágæta
hjúkrun og aðhlynningu, en
fyrst og fremst Snorra lækni,
Goðdalur í eyði.
Hann skrapp til Hólmavikui1'
á dögunum, til þess að ráðstafa
einhverjum eignum sínum þar
nyrðra. T. d. kvaðst hann myndi
leigja túnið í Goðdal til slægna.
En það er bæði mikið og gott,
enda hefir Jóhann í búskap síru
um verið jarðræktarmaður i
besta máta.
Jörðin Goðdalur er eign hans.
En ekki bjóst hann við að hún
myndi byggjast Hún myndí
verða í eyði hjeðan í frá. Sjálf—
ur sagði hann mjer í vetur, að
hann gæti ekki hugsað sjer að>
setjast þar að hjer á eftir.
Og nú er komið annað uppá
teninginn. Læknir hans hefir
sagt honum, að hann muni
aldrei geta stundað neina vinnu
úti við. Til þess sje og verði
vinstri fóturinn of veikburða.
Þessvegna þarf Jóhann nú að
leita sjer atvinnu, við skrif-
stofustörf eða eitthvað það, sem
hann getur annast, án þess að
þurfa að reyna á fótinn sem
eftir er.
„Svona getur þetta alt breyst
fyrir manni“, sagði hann. ,.Ekkí
hafði jeg hugsað mjer, að til
þess myndi koma, að jeg þyrfti
að sækjast eftir innivinnu og
setjast að í kaupstað. Jeg var
búinn að búa svo vel um mig
á jörð minni, að jeg gat von-
ast eftir, að hafa rólega daga
þar á efri árum mínum. En
enga stöðu gat jeg kosið mjer
frjálsari og viðkunnanlegri en
bóndastöðu, þegar jörðin er orð
in þægileg, og búið að bæta
hana eftir föngum“.
—O—
Það eru tilmæli mín, að þeir,
sem kynnu að hafa hentuga at-
vinnu á boðstólum handa Jó-
hanni, sendi tilboð um hana til
afgreiðslu blaðsins næstu daga.
V. St.
Skip reks! á
lundurdufl
CUXHAVEN, 5. júlí — Hoí-
lenskt skip, sem var á siglingu
á Norðursjónum skammt und-
an ströndum Þýskalands raksii
á tundurdufl, sem sprakk og
skemmdist skipið mikið. Samú
var talið að hægt myndi ad!
bjarga skipinu. Voru dráttar-
bátar frá Cuxhaven komnir úti
að því og teknir að draga þacl
til lands. — Reuter.
1800 gestir á sýningu
S í B S |
AÐSÓKN að sýningu Sambanda
íslenskra berklasjúklinga 3
Listamannaskálanum, hefur vefl
ið mjög sæmilega sótt undan-
farna dgga. Eru gestirnir ntj|
orðnir um 1800, sem skoða<"3
hafa sýninguna. — Hún verðurj
enn opin í nokkra daga frá kl«
1 til 11 síðd.